Morgunblaðið - 01.02.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974
23
Samtök psoriasis- og exemsjúklinga:
Slgríður Einarsdóttir I varastjórn, Ásgeir Gunnarsson varaformaður, Hörður Ásgeirsson formaður,
Anna Tryggvadóttir ritari, Adolf Björnsson meðstjórnandi og Benedikt Sveinsson gjaldkeri.
A myndina vantar Kirsten B jartmars, sem er f varastjórn.
Ókeypis
til handa sjúklingum
Tryggingastofnun rfkisins og
lyf jaskrárnefnd hafa nú ákveð-
ið, að sjúklingar, sem þjást af
psoriasis og exemi á háu stigi,
fái öll sfn lyf greidd að fullu af
öllum sjúkrasamlögum á land-
inu. Þessar upplýsingar komu
fram á blaðamannafundi, sem
Samtök psoriasis- og exem-
sjúklinga efndu til nú f vik-
unni. Samtökin hafa einnig náð
hagstæðum samningum við
Flugfélag tslands um afslátt á
fargjöldum til Kanarfeyja, en
sól- og sjóböð eru talin mjög
heppileg fyrir psoriasissjúki-
inga. Af öðrum verkefnum,
sem stjórn samtakanna hefur á
stefnuskrá sinni, má nefna
heimangöngudeildir, fræðslu-
fundi og fjársöfnun til rann-
sóknarstarfa á sviði psoriasis
og exems.
Strax eftir stofnun Samtaka
psoriasis- og exemsjúklinga
þann 15. nóvember 1972 var
hafizt handa, um að vinna að
þeim verkefnum, sem brýnust
voru, þ. á m. að fá ókeypis lyf til
handa psoriasis- og exemsjúk-
um. Þetta starf hefur nú borið
þann árangur sem fyrr greinir.
Tryggingaráð hefur þó sett
mjög ákveðnar reglur um þessi
mál og þarf sjúklingurinn að
framvísa læknisvottorði, sem
Sýnir fram á, að hann þjáist af
,,kronisku“ (langvarandi)
psoriasis eða exemi. Geta þarf
þess i vottorðinu, hvers eðlis
sjúkdómurinn er, og á hve háu
stigi. Aðeins verða tekin gild
vottorð frá húðsjúkdómalækni,
nema viðkomandi sjúklingur
eigi örðugt með að ná til sér-
fræðings, t.d. végna búsetu, og
mun þá vottorð heimilis- eða
héraðslæknis tekið gilt. Sjúkl-
ingum verður úthlutað skfr-
teini við framvisun læknisvott-
orðs til sjúkrasamlags. Sjúkra-
samlag Reykjavfkur mun hefja
afgreiðslu skírteina i dag, 1.
febrúar. Það gefur auga leið, að
þessi ráðstöfun mun spara
þeim, er þjást af þessum ill-
kynjuðu húðsjúkdómum, tugi
þúsunda króna á ári.
Reynslan hefur sýnt, að psor-
iasissjúklingar fá flestir hverjir
tímabundna lækningu við sól-
og sjóböð. Nú hafa samtökin í
samráði við Fiugfélag íslands
annazt fyrirgreiðslu um ódýrar
ferðir til Kanarieyja, vegna
hagstæðs tilboðs Flugfélagsins
til handa sjúklingum samtak-
anna. Nokkrir tugir sjúklinga
hafa þegar farið í þessar ferðir
með góðum árangri.
Það verkefni, sem samtökin
leggja áherzlu á um þessar
mundir, er að koma á fót heim-
angönguheimilum, þar sem
sjúklingar geta notið læknis-
meðferðar, fengið gufu- og ljós-
böð og komizt I sundlaug með
saltblönduðu vatni og tjöruböð.
Hafa heilbrigðisyfirvöld tekið
vel í ósk samtakanna um, að
slíkum heimangönguheimilum
verði komið á fót í fjölmenn-
ustu byggðarlögum landsins.
Nýlega hafa verið stofnuð al-
þjóðasamtök psoriasissjúkl-
inga, og eru islenzku samtökin
aðilar að þeirri stofnun. í is-
lenzku samtökunum eru nú um
580 manns, þar af 462 sjúkling-
ar. Leggja samtökan mikla
áherzlu á, að allir psoriasis- og
exemsjúklingar, sem ekki eru í
samtökunum, gangi f þau, svo
að allir, sem bera þessa sjúk-
dóma geti staðið saman f barátt-
unrii um bætta aðstöðu og betri
möguleika álækningu.
Mánudaginn 4. febrúar n.k.
verður haldinn fræðslufundur
á vegum samtakanna, og hefst
hann kl. 20.30 I Súlnasal Hótei
Sögu.
Dr. Maggi Jónsson
Doktor í
arkitektúr
Maggi Jónsson arkitekt varði
16. janúar sl. doktorsritgerð við
University of Michigan i Anarbor
í Bandarikjunum.
Mun hann vera fyrsti doktorinn
í arkitektúr hér á landi. Doktors-
ritgerðin nefnist á ensku
„Guidelines and Criteria for the
Design of Facilities for
Compulsory Education in Rural
Iceland" og fjallar um skólabygg-
ingar fyrir skyldunámið úti á
landsbyggðinni á íslandi.
Maggi Jónsson er Húnvetning-
ur, fæddur 1937 á Kagaðarhóli i
Austur-Húnavatnssýslu, sonur
hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur
og Jóns Stefánssonar, bónda þar.
Hann varð trésmiður og lauk
siðan námi í tæknifræði i Svíþjóð
árið 1966. Þá starfaði hann hér
heima í 8 ár, en í ársbyrjun 1969
fór hann til Bandaríkjanna, þar
sem hann lauk BA- og sfðan
Masterprófi i arkitektúr við
Michiganháskóla, og þar varði
hann doktorsritgerð sína nú ný-
lega.
Maggi Jónsson er nú ráðgjafi
háskólans um byggingarmál, mun
fylgjast þar með byggingarfram-
kvæmdum. Kona hans er
Sigríður Soffía Sandholt.
7 0 bátar tryggðir
hjá Bátaábyrgðar
félagi Vestm.eyja
AÐALFUNDUB Bátaábyrgðar-
féiags Vestmannaeyja fyrir árið
1972 var haldinn f Akóges í Vest-
mannaeyjum, föstudaginn 25.
janúar s.l. Afkoma félagsins 1972
var góð, og var tekjuafgangur af
öilum tryggingum félagsins, sem
eru: bátatrygging, skipatrygging,
atvinnuslysatrygging, farangurs-
trygging bátasjómanna og endur-
tryggingar.
Nettóeign félagsins var í árslok
kr. 38 milljónir, i séreignasjóði
félagsmanna eru 14.6 milljónir,
en sá sjóður er jafnframt vara-
Bifreið stolið
Rannsóknarlögreglan í Reykja-
vík hefur lýst eftir gulri Opel
Record-bifreið með svörtum
toppi, árgerð 1963, R-11587, sem
hvarf frá Kjartansgötu 7 íReykja-
vík á sunnudaginn. Þeir, sem geta
gefið upplýsingar um ferðir bif-
reiðarinnar siðan eða hvar hana
er nú að finna, eru beðnir að láta
lögregluna vita.
sjóður félagsins. I tryggingu hjá
félaginu voru 70 bátar að heildar-
verðmæti 574 millj. kr.
Á fundinum kom fram mikill
áhugi fyrir að hraðað yrði við-
gerðum á dráttarbrautunum í
Vestmannaeyjum, svo hægt verði
að taka upp báta. Ennfremur kom
fram hörð gagnrýni á Póst- og
símamálastjórnina fyrir ófull-
nægjandi þjónustu á Vestmanna-
eyjaradió og var samþykkt sam-
hljóða eftirfarandi tillaga frá
Guðmundi Karlssyni:
„Aðalfundur Bátaábyrgðar-
félags Vestmannaeyja, haldinn i
Akógeshúsinu 25. janúar 1974,
skorar á Póst- og símamálastjórn
að setja þegar næturvakt á Vest-
mannaeyjaradló og að séð verði
um, að radíóið skili allri sömu
þjónustu nú og fyrir eldgos."
Ur stjórn áttu að ganga Björn
Guðmundsson útgerðarmaður og
Haraldur Hannesson útgerðar-
maður en þeir voru báðir endur-
kjörnir. Fyrir eru i stjórn Martin
Tómasson, formaður, Sighvatur
Bjarnason, varaformaður og Jón
Sigurðsson, ritari.
Bátaábyrgðarfélag Vestmanna-
eyja er orðið 112 ára gamalt, en
þaðvar stofnað árið 1862.
Tore Askilsrud og Þyri Hóim sölukona hjá Jóhanni Olafssyni & co.
með veggteppi með góbelin-útsaumi. (ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Norskur góbelinútsaumur
á íslenzkan markað
Skjalatösku
stolið úr bíl
Um kl. 19 á miðvikudagskvöldið
var svartri skjalatösku stolið úr
bifreið, sem stóð á stæði framan
við húsaröðina nr. 26—30 við
Skúlagötu. I skjaiatöskunni var
kvikmyndatökuvél og talsvert af
skjölum, sem eru eigandanum
verðmæt, en þjófnum ekki. Er
mjög bagalegt fyrir eigandann að
missa skjölin. *
NVLEGA var hér á ferð Tore
Askilsrud sölustjóri norska fyrir-
tækisins Gunnar Pedersen A.S.,
en það er leiðandi fyrirtæki i
Noregi varðandi vörur, er iúta að
útsaumi. Hefur fyrirtækið hug á
þvf að koma vörum sfnum á ís-
ienzkan markað, en það hefur
þegar aflað sér viðurkenningar f
Skandinavfu og Bandarfkjunum.
Gunnar Pedersen A.S. hefur að
baki langa reynslu í framleiðslu á
útsaumi, en fyrirtækið var stofn-
að árið 1915 i Osló. Einkum hefur
það iagt mikla rækt við góbelinút-
saum og komið fram með ýmsar
nýjungar á því sviði, bæði hvað
varðar litasamsetningi og mynzt-
ur. Sagði Askilsrud, að i mynstr-
unum mætti finna áhrif frá göml-
um norskum útsaumi, þótt þar
væri ekki um beinar eftirlíkingar
að ræða. Kvaðst Askilsrud von-
góður um góðar undirtektir á
framleiðsluvörum fyrirtækisins
hér á landi og var hann ánægður
með árangur af för sinni hingað.
Jóhann Ölafsson & co hefur um-
boðfyrir vörur norska fyrirtækis
ins á Islandi.