Morgunblaðið - 01.02.1974, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974
Blakað í Laugar-
dalshöllinní í kvöld
Viðar Sfmonarson — driffjöður FH-liðsins skorar þarna eitt af tfu mörkum sfnum gegn Fram f
fyrrakvöld.
FYRSTf pressuieikurinn f blaki
fer fram f Laugardalshöllinni í
kvöld og hefst klukkan 20.30.
Eins og sagt var frá f blaðinu í
gær er fyrsti landsleikur tslands I
blaki framundan og fer hann
fram á Akureyri 23. marz og verð-
ur það fyrsti landsleikurinn f
knattfþrótt, sem fram fer á Akur-
eyri. Það er ekki tilviljun, að
blaklandsleikur fari fram á Akur-
eyri, þvf vagga blaksins stóð á
Akureyri.en þar kenndi Hermann
Stefánsson blak f mörg ár. Það
verða Norðmenn, sem leika fyrsta
landsleikinn gegn tslendingum
og leika þeir tvo leiki f islands-
ferðinni, hinn fyrri á Akureyri og
daginn eftir f fþróttahúsinu f
Hafnarfirði.
1 gær var sagt frá hvernig liðin
verða skipuð, en nú hefur nfunda
manninum verið bætt i pressulið-
ið er það Guðlaugur Ellersson, IS,
sem sýnt hefur miklar framfarir
að undanförnu. Bæði f landsliði
og pressuliði eru margir íþrótta-
menn kunnir úr öðrum íþrótta-
gréinum. Má þar nefna menn eins
Og handknattleiks- og knatt-
spyrnukappann Ásgeir Eliasson,
knattspyrnumennina Snorra
Rútsson frá Vestmannaeyjum og
Pál Ólafsson frá ísafirði og sfðast
en ekki sfst Anton Bjarnason, sem
leikið hefur bæði i körfuknatt-
leiks-og knattspyrnulandsliði.
Víkingur
Aðalfundur handknattieiks-
deildar Vfkings verður haldinn í
félagsheimili Víkings laugardag-
inn 9. febrúar nk. og hefst
klukkan 14.00.
FH-ingar enn óstöðvandi
Sigruðu Fram 25
BELGISKA
KNATTSPYRNAN
Urslit leikja í 1. deildar keppn-
inni í knattspyrnu í Belgfu urðu
þessi um síðustu helgi:
Cercle BrUgge — Beveren 2—0
Antwerpen — RacingWhite 3—2
Beringen — B erchem 0—0
FD Liege—St.Trond 4—0
Berschot—Lierse 2—0
Mechelen — Standard Liege 2—1
Varegem—FC Briigge 2—2
Anderlecht — Diest 2—1
Staða efstu liðanna í deildinni
EFTIR sigur FH yfir Fram f 1.
deiidar keppni tslandsmótsins f
handknattleik f fyrrakvöld, þarf
varla að því að spyrja, hvar
tslandsbikarinn í ár hafnar. Hann
er svo gott sem kominn nú þegar í
safn FH-inga, þar sem hann hefur
svo oft áður verið geymdur. Og
liklega hafa FH-ingar ekki oft
verið jafn vel að þvf komnir og nú
að taka grip þennan til geymslu.
Lið þeirra er tvfmælalaust það
bezta f keppninni nú, enda hafa
sigrar liðsins f mótinu verið hver
öðrum glæsilegri.
Eina keppikefli FH-inga úr
þessu er að vinna mótið á fullu
húsi stiga, og ef ekkert óvænt
kemur fyrir ættiþaðaðtakast.En
róðurinn verður örugglega erfið-
ur. Það er mjög eðlilegt, að liðið
slaki nú nokkuð á, þegar sigurinn
er f höfn, og jafneðlilegt, að það
verði æðsta takmark andstæðinga
þeirra að vinnasigur.
Leikurinn i fyrrakvöld bar öll
einkenni úrslitaleiks. Mikill fjöldi
áhorfenda fylgdist með honum,
stemmningin var á köflum
skemmtileg, og taugaóstyrkur
leikmanna í algleymingi, sérstak-
lega hjá leikmönnum Fram, sem
stundum voru hreinlega miður
sín. Af hreinum klaufaskap sendu
þeir oft knöttinn beint í hendur
FH-inga, sem voru fljótir að svara
fyrir sig, bruna upp og skora.
Þegar 20 mínútur voru liðnar af
fyrri hálfleik töldu flestir, að búið
væri að gera út um leikinn. Þá
hafði FH náð sex marka forystu,
nokkuð sem á að duga svo góðu
liði til yfirburðasigurs. Þegar
staðan var þannig var einum PH-
ingnum, Erni Sigurðssyni, vísað
af leikvelli, og Framarar náðu að
notfæra sér það mjög vel, að þeir
voru einum fleiri, skoruðu tvö
mörk meðan örn var utan vallar,
og virtust við það öðlast aftur trú
á sjálfa sig, og fyrr en varði höfðu
þeir minnkað muninn niður í eitt
mark og komið spennu f leikinn.
1 byrjun seinni hálfleiks
munaði svo aftur einu marki, en
þá sýndu FH-ingar enn einu
sinni, hvers þeir eru megnugir,
þegar á reynir. Vörn þeirra
þéttist og hreinlega lokaði öllum
smugum fyrir leikmönnum Fram,
og næði knötturinn að markinu
varði Birgir. I sókninni var svo
leikið skynsamlega og færin, sem
gáfust, nýtt til fulls. Staðan
breyttist því fljótlega í 5 marka
forystu FH, og þar með var
endanlega gert út um leikinn.
Eftir þennan kafla var leikurinn
nokkuð jafn f seinni hálfleik, en
FH-ingarnir héldu jafnan öruggri
forystu og að leikslokum skildu
þrjú mörk, 25:22. Sanngjarn
sigur.
Fæstir höfðu trú á þvi sl. haust,
að FH-ingarnir myndu spjara sig í
vetur án Geirs Hallsteinssonar,
sem verið hefur máttarstólpi liðs-
ins undanfarin ár. Annað hefur
rækilega komið á daginn. Ekkert
1. deildarlið virðist vera f jafn
góðri æfingu og FH og það gerir
gæfumuninn. Þá hafa leikmenn
eins og Viðar og Auðunn aldrei
verið betri, og hinn ungi Gunnar
Einarsson, sem nánast er spegil-
mynd Geirs Hallsteinssonar,
stefnir beint í það að verða hand-
knattleiksmaður á heimsmæli-
kvarða, ef hann er ekki orðinn
það nú þegar. Þá hefur það einnig
haft mikið að segja fyrir FH-liðið
í vetur, að markvarzlan hjá því
hefur verið jafnbetri en hjá öðr-
um liðum.
Framliðið var, sem fyrr segir,
oft undarlega mistækt í þessum
leik. öðru hverju náði það að sýna
prýðilegan leik, einkum þó í vörn,
en skorti alltaf herzlumun til þess
að fylgja þessum leikköflum eftir.
Eini leikmaðurinn, sem virtist
halda ró sinni nokkurn veginn,
var Ingólfur Óskarsson, en einnig
honum urðu á mistök.
I STUTTU MALI:
Laugardalshöll 30. janúar:
Islandsmótið 1. deild
(JRSLIT Fram — FH 22—25
(11—13)
Anderleicht 17 42—17 27
Antwerpen 17 29—17 22
58. Stefán 2123 Racing White 17 27—15 21
58. 2124 Gunnar(v) Waregem 17 28—31 20
60. 2125 Gunnar LiegeFC 17 32—25 19
60. Axel 2225 Standard Liege 17 21—19 19
Gangur leiksins:
Mín. Fram FH
2. Björgvin 1:0
3. 1:1 Gunnar (v)
6. 12 Viðar
6. Ingólfur 2:2
8. 2:3 Viðar
10. 2:4 Viðar (v)
12. Axel (v) 3:4
13. 3:5 G unnar
13. Axel 4:5
15. 4:6 Arni
1& 4:7 Viðar (v)
17. 4:8 Viðar
17. 4« Auðunn
18. Amar 5:9
19. 5:10 Viðar
22. 5:11 Gunnar
23. Sigurbergur 6:11
24. Ingólfur 7:11
25. Björgvin 8:11
26. Andrés 9:11
28. Stefán 10:11
28- 10:12 Þórarinn
29. 10:13 Þórarinn
'30. Ingólfur 11:13
Hálf leikur
31. Axel 12:13
32. 12:14 öm
33. 12:15 Birgir
34. 12:16 Gunnar
38. 12:17 Viðar
38. Axel 13:17
40. Björgvin 14:17
42. Axel (v) 15:17
44. 15:18 Þórarínn
45. 15:19 Gunnar
46. Stefán 16:19
49. 16:20 Viðar
49. Hannes 17:20
50. 17:21 Þórarinn
51. Ingólfur 1821
52. Axel (v) 1921
53. 1922 Viðar
56. Ingólfur 2022
57. 2023 Viðar
Mörk Fram: Axel Axelsson 7,
Ingólfur Öskarsson 5, Björgvin
Björgvinsson 3, Stefán Þórðarson
3, Arnar Guðlaugsson 1, Hannes
Leifsson 1. Andrés Bridde 1.
MörkFH: Viðar Símonarson 10,
Gunnar Einarsson 7, Þórarinn
Ragnarsson 4, Birgir Björnsson 1,
Auðunn Öskarsson 1, Árni
Guðjónsson 1, Örn Sigurðsson 1.
Brottvfsanir af velli: örn
Sigurðsson og Auðunn Óskarsson,
FH í 2 min. og Andrés Bridde og
Axel Axelsson, Fram f 2mfn.
Misheppnuð vftaköst: Axel
Axelsson átti vítakast í stöng og
Ut á 20. mín. og steig á línu og
gerði ógilt á 54. mín., Birgir Finn-
bogason varði vítakast frá Ingólfi
Óskarssyni á 29. mín., Viðar
Símonarson skaut yfir úr víta-
kasti á 57. mín.
Dómarar: Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Þeir höfðu góð tök á
nokkuð erfiðum leik og dæmdu
vel, þegar á allt er litið. — stjl.
Spánska knatt-
spyrnan
Urslit leikja í 1. deildar
keppninni á Spáni urðu þessi um
sfðustu helgi:
Espanol — Atl. Bilbao 2—0
Granada — Castellon 2—0
Murcia — Real Madrid 0—1
Atl. Bilbao — San Sebastian 1—2
Malaga — Santander 3—0
Zaragossa—Espanol 3—1
Oviedo — Elche 1—0
Atl. Madrid — Las Palmas 3—1
Valencia — Real Gijon 6—1
Barcelona—Celta 5—2
Eftir 20 umferðir hefur
Barcelona forystu með 30 stig,
Zaragossa er í öðru sæti með 25
stig, Malaga í þriðja sæti með 25
stig, Atl. Bilbao er með 24, Atl.
Madrid með 23 og Granada 23.
Vörublll tll sölu
Volvo F 85 árgerð 1 966.
á kvöldin eftir kl. 8.
Upplýsingar í síma 94—3514.
LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson 2, Ingólfur Óskarsson 3, Björgvin
Björgvinsson 2, Stefán Þórðarson 2, Pétur Jóhannsson 2, Arnar
Guðlaugsson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 3, Hannes Leifsson 1,
Andrés Bridde 2, Jón Sigurðsson 1, Axel Axelsson 2.
LIÐ FH: Birgir Björnsson 3, Viðar Símonarson 4, Gils Stefánsson
2, Árni Guðjónsson 2, Auðunn Óskarsson4, Jón Gestur Viggósson
1, Örn Sigurðsson 2, Birgir Finnbogason 3, Gunnar Einarsson 3,
Þórarinn Ragnarsson 3, Ólafur Einarsson 1.
Otsala
Brelðilrðingabúð (uppl)
Verzlun sem er hætt rekstri selur mikið magn af
vörum á ótrúlega lágu verði: