Morgunblaðið - 07.02.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ,FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1974
S-Vietnamar
hættu við
landgönguna
Níutíu og tveir létu lífið þegar þessi Boeing 707
inn laugardag. Þotan lenti um 300 metra frá
farþegaþota fórst í lendingu á Samoa sfðastlið-
brautarendanum.
Saigon, 6. febrúar, AP.
SUÐUR-VIETNAMSKA stjórnin
hætti ðvænt við það í dag að láta
herlið ganga á land á einni af
Sprately-evjunum, þegar hún
uppgötvaði, að hermenn frá
Filipseyjum voru þar fyrir.
Sprattey-eyjaklasinn er töluvert
fyrir sunnan Paraceleyjar, sem
Kínverjar og Suður-Vietnamar
börðust um fyrir nokkru. Kín-
verjar hafa nú eyjarnar á sfnu
valdi.
ítölsku olíufélögin notuðu
2,25 milljarða til að múta
Róm, 6. febrúar, NTB.
ÍTALSKA stjórnin hefur frestað
verðhækkunum á bensfni um
óákveðinn tfma meðan verið er að
rannsaka stórfellt svikamál, sem
hófst, þegar Arabaríkin hófu að
beita olfunni sem pólitísku vopni.
Verið er að rannsaka kærur um
að olíufélögin hafi mútað stjórn-
mála- og embættismönnum til að
fá þá til að segja, að orkukreppan
væri mun verri en hún í rauninni
var.
Fimm dómarar i Genúa og Róm
hafa fyrirskipað að símar skuli
hleraðir og lagt hald á bókhald og
ýmisönnur skjöl fjölmargra olíu-
félaga sem eru sökuð um að hafa
notað sem svarar um 2,25
milljörðum isl. króna til að múta
fyrrnefndum heiðursmönnum.
Rannsóknarlögreglumenn hafa
þegar fundið sannanir fyrir því,
að eitt olíufélaganna hafi gefið út
ávisun upp á sem svarar 150
milljónum ísl. króna í þessu skyni
og var hún stiluð á vinnustúlku á
heimili eins stjórnmálamannsins.
Aðrar ávísanir hafa verið gefnar
út á hin merkilegustu nöfn, meðal
annars fékk frægur veðhlaupa-
hestur tugi milljóna.
Dómararnir sem stjórna rann-
sókninni hafa fyrirskipað að öll
sönnunargögn skuli vera undir
vernd vopnaðara lögreglumanna
meðan rannsókn og réttarhöld
fara fram. Talsmaður stjórnarinn-
ar hefur upplýst, að búið hafi
verið að ákveða að hækka bensin-
verð um rúmar 37 krónur islenzk-
ar í þessari viku, en það hefði
verið þriðja verðhækkunin á síð-
ustu fimm mánuðum.
Skjöl, sem þegar liggja fyrir,
sýna svo ekki verður um villst, að
olíufélögin og hjálparmenn
þeirra gáfu stjórninni alrangar
upplýsingar um ástandið, þegar
Arabar lokuðu fyrir oliuna, og á
grundvelli þeirra upplýsinga var
tekin upp bensínskömmtun og
verðið hækkað.
Bæði Suður-Vietnam, Filipseyj-
ar, Formósa og Alþýðulýðveldið
Kína þykjast eiga tilkall til
Spratley-eyjaklasans en í honum
eru 11 eyjar. Stjórn Filipseyja
heldur því þó fram, að þær tvær
eyjar, sem hún kveðst eiga, til-
heyri ekki eyjaklasnum.
Herflokkar frá Suður-Vietnam
eru á fjórum eyjanna og nú er
vitað um herflokk frá Filipseyj-
um á a.m.k. einni þeirra. Hins
vegar munu ekki vera hermenn
frá Kína eða Formósu á þessu
svæði.
Talsmaður stjórnar utanríkis-
ráðuneytis Suður-Vietnam sagði
um hermennina frá Filipseyjum,
að löndin tvö væru vinveitt og
þau myndu útkljá deilur sinar
vinsamlega eftir diplomatiskum
leiðum. Hann minntist hins vegar
ekkert á Kina. Hinn skyndilegi
áhugi á þessum eyjum stafar af
þvi, að þar er talin finnast olia.
Er samsteypustjórn
á næsta leiti í Laos?
EBE tregt til samvinnu
um orkuvandamálin
Brussel, 6. febrúar, NTB.
FRAKKLANI) þáði I nótt boð frá
Nixon forseta um að taka þátt í
fyrirhugaðri ráðstefnu um orku-
mál, sem á að halda í Washington
11. og 12. þessa mánaðar. Þetta
var tilkynnt, eftir að ráðherra-
nefnd Efnahagsbandalags
Evrópu hafði náð samkomulagi
um að fela Walter Scheel, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýzkalands,
umboð til samninga fyrir EBE.
Scheel verður fulltrúi EBE á
ráðstefnunni ásamt frakkanuin
Francois-Xavier Ortoli. Frakk-
land hefur hingað til verið heldur
á móti hugmyndinni um orku-
málaráðstefnu, enda kom 1 Ijós,
að þeir höfðu fengið í gegn ýmsar
kröfur sfnar.
1 umboði Scheels felst m.a., að
bandalagið mun leggjast gegn
bandarískum óskum um, að á ráð-
stefnunni verði mótuð sameigin-
leg stefna, sem miði að því að
minnka áhrif olíukreppunnar.
Það mun heldur ekki samþykkja
amerísku tillöguna um, að þetta
verði upphafið á framtíðarsam-
vinnu milli landa, sem flytja inn
mikið af oliu.
Þá verður EBE á móti því, að
stofnuð verði samtök ríkja, sem
flytja inn olíu, og það mun leggja
fram tillögu um, að fyrir 1. apríl
næstkomandi verði hafnar samn-
ingaviðræður um olíumál. í þess-
um viðræðum skuli taka þátt olíu-
kaupendur, olíuseljendur og full-
trúar frá þróunarlöndunum. Auk
EBE landanna níu senda Noreg-
ur, Japan og Kanada fulltrúa til
Washington.
Vientiane, 6. febrúar, AP.
STJÖRN Laos og kommúnista-
hreyfing Pathet Lao undirrituð í
gær samkomulag, sem vonazt er
til, að geti gert mögulega m.vndun
samsteypustjórnar á næstu vik-
um. I samkomulaginu er kveðið á
um hlutverk sameiginlegra lög-
reglusveita, sem eiga að gæta laga
og réttar í höfuðborginni
Vientiane og í konungsborginni
Luang Prabang.
Soukarn Vilaisarn ráðherra,
sem undirritaði samkomulagið
fyrir hönd stjórnarinnar, kvaðst
vona, að þetta myndi opna leiðina
til myndunar samsteypustjórnar í
iok þessa mánaðar eða í byrjun
marz. Soth Pethrasy, sem skrifaði
undir fyrir Pathet Lao, fór var-
legar i sakirnar og sagði aðeins,
að hann vonaðist til, að hægt yrði
að mynda stjórn ,,eins fljótt og
mögulegt væri“.
Það hefur verið eitt að skilyrð-
um Pathet Lao fyrir myndun
samsteypustjórnar, að fyrrnefnd
lögreglusveit yrði mynduð. Sam-
kvæmt samkomulaginu munu
2000 lögreglumenn frá stjórninni
og Pathet Lao f sameiningu gegna
störfum i Vientiane, en 1000 f
Luang Prabang.
Lögreglusveitirnar munu meðal
annars hafa eftirlit með og stjórn
á ferðum útlendinga til og frá
þessum tveimur borgum og þær
mundu einnig annast varnir flug-
vallanna. Talsmaður Pathet Lao
sagði, að hann gæti ekki sagt
nákvæmlega til um hvenær sam-
einuðu lögreglusveiörnar myndu
hefja störf en það yrði vonandi
strax í byrjun næstu viku.
ViSræSur síðan 1973
Stjórn Laos og Pathet Lao hafa
verið að reyna að mynda ríkis-
stjórn siðan vopnahléssáttmálinn
Framhald á bls. 20.
Slapp við dóm
fyrir „Playboy”
Má ekki bjóða þér
pappír að borða ?
New York, 6. febrúar, AP.
VlSINDAMENN við háskólann
1 Lousiana f Bandaríkjunuin ;
tilkynntu i dag, að þeiin hefði
tekist að finna aðferð, sem
breyti afgangspappír í næring-
arrfka fæðu fyrir dýr og inni-
haldi fóðrið meira af eggja-
hvftuefni en t.d. stór og safarík
steik. Þeir telja, að eftir
nokkur ár verði bifið að full-
koinna aðferðina svo, að hægt
verði að hefja framleiðslu
efnisins til manneldis.
Það hefur tekið vísindamenn-
ina sex ár að ná svona langt, og
þeir segja að ntikið rannsöknar-
starf sé óunnið, áður en pappir
verði mannamatur, en þeir
binda miklar vonir við þessa
fæðutegund. í stórum dráttum
er aðferðin á þá leið, að þeir
nota bakteríutegund sem þeir
nefna „Cellulomonas'1 til að
kljúfa lífrænar trefjar f pappír,
trjám, vefnaðarvöru og öðru
sem einhvern tímá verður úr-
gangsefni. Úr þessu verður
kornótt efni, nærri bragðlaust
sem er mjög eggjahvíturíkt.
Rektor háskólans, Cecil G.
Taylor, sagði á fundi með
fréttamönnum, að þeir væru
sannfærðir um, að nú þegar
væri markaður fyrir þessa
framleiðslu til dyraeldis í stað
inn fyrir soyabaunir eða fiski-
mjöl. Hann benti á, að nýleg
verðhækkun á soyabaunum
sýndi fram á, að framleiðendur
þeirra gætu ekki annað eftir-
spurn.
Dr. Vadake Srinivasan, sem
uppgötvaði „Cellulomonas"
sykurakri, sagði, að það tæki
7—10 ár að fullkomna þessa
framleiðsluaðferð þaðmikið, að
hægt yrði að setja „efnið" á
markað til manneldis. Eins og
aðferðinni er beitt núna er
hægt að framleiða 50 pund af
næringarefninu úr 100 pundum
af hreinum pappír. Eggjahvítu-
innihald þessara 50 punda væri
60 prósent, en til samanburðar
má geta þess, að eggjahvftu-
innihald steikur er 20 prósent
og soyabauna 44 prósent.
Háskólinn hefur fengið
einkaleyfi á þessari fram-
leiðsluaðferð og gert samning
við Bechtel fyrirtækið i San
Francisco um framleiðslu þess í
núverandi mynd. Jafnframt
verður haldið áfram að full-
komna aðferðina, svo hægt
verði að framleiða til mann-
eldis.
Madrid, 6. febrúar, AP.
H/ESTIRÉTTUR Spánar kvað f
dag upp þann úrskurð, að það
væri ekki opinbert hneyksli að
eiga tímaritið Pla.vboy heima hjá
sér. Rétturinn ógilti dóm, sem
kvcðinn hafði verið upp í undir-
rétti yfir Ramon nokkruin Lopez,
sem er búsettur í Madrid.
Það er bannað að flvtja Playboy
til Spánar og lögreglumenn
fundu nokkur gömul eintök á
heimili Lopezar, þegar þeir voru
að leita að eiturlyfjum. Hæstirétt-
urinn koinst að fyrrnefndri niður-
stöðu á þeirri forsendu, að blöðin
hefðu ekki farið út fyrir heimili
hins ákærða.