Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 1

Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 1
48 SIÐUR OG LESBOK 58. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 10 MARZ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins A1 Ahram: Verkföllin standa enn í Eþfópíu og mikil ólga er í landinu. Þessi mynd er af stúdentum og verkamönnum í kröfugöngu og vilja þeir ekki aðeins betri lífskjör heldur og lýðræðislegra stjórnarfar. EÞIQPIA: Hungursneyðin breið- ist suður á bóginn Genf, 9, marz NTB % Upplýst er I dag af hálfu Rauða krossins í Genf, að hungursneyðin í þurrkahéruðunum í Eþíópíu virðist nú vera að breiðast suður á bóginn til svæðanna á landamærum Eþíópíu og Kenya. % Vestur-þýzkur fulltrúi Rauða krossins, Rolf Schmidt, kom til höfuð- stöðvanna í Genf í gær eft- ir að hafa ferðazt um í Eþíópíu og kynnt sér ástandið. Hann upplýsti, að vænta mætti hungur- dauða um 300.000 manna í héruðunum Gemo, Gufa og Sidamo, bærist ekki skjót 4 S-Afríkumenn felldir 1 Rhódesíu Pretoria, 9. marz. AP.NTB. FJÓRIR lögreglumenn fráSuður- Afrfku féllu í bardaga við skæru- liða í Rhódesíu f gær og þess fimmfa er saknað að þvf er Lowrens Muller, lögregluáðherra Suður-Afríku, skýrði frá í dag. Atburðurinn mun hafa gerzt skammt frá Kandahar-eyju, um 6 km norður af bænum við Viktorfufossa, að þvf er segir f skeyti frá fréttaritara AP, Reg Shay, sem er staddur skammt frá Zambesi-fljóti. Suður-afrísku lögreglumönnun- um virðist hafa verið veitt fyrir- sát. Talið er að týndi lögreglu- maðurinn, hvftur liðþjálfi, hafi verið tckinn til fanga. Skæruliðar munu hafa haft hann með sér yfir Zambesi að sögn Shays. Flokkar lögreglumanna frá Suður-Afríku hafa aðstoðað f nokkur ár við tilraunir Rhódesíu- manna til þess að koma í veg fyrir að skæruliðar laumist inn í Rhódesíu yfir Zambesi-fljót. Niu suður-afrískir lögreglu- menn hafa fallið í Rhódesíu á undan förnum 15 mánuðum. Skoðunarferðum til Viktoriu- fossa hefur verið aflýst vegna at- burðarins, en annars gengur lifið sinn vanagang í ferðamannabæn- um við fossana. Öll umferð um Zambesi-fljót hefur einnig verið stöðvuð. aðstoð utanlandsfrá. Sagði hann enga beit lengur að finna fyrir húsdýr á þess- um slóðum, sem eru lífs- grundvöllur íbúanna þar. Schmidt upplýsti, að flutningur matvæla væri eitt helzta vanda- mál hjálparstarfsins í suðurhluta Eþíópíu, en kvaðst vonast til, að matvælum yrði fljótlega komið til hinna þurfandi með því að nota þyrlur. Hann sagði, að um 5000 lestir af hveiti, sem hefðu verið sendar til Eþíópiu hefðu í tvær vikur verið í geymslu i hafnar- borginni Djibouti, vegna hins slæma ástands vega landsins. Rauði krossinn hefur skírskot- að til þjóða heims að senda hjálp í formi matvæla, lyfja og fjár, til aðstoðar þeim tveimur millj- ónum manna i Eþíópiu, sem háðar eru matargjöfum stjórnvalda. Olíubanninu á Bandaríkin verður aflétt Kairó, 9. marz, NTB. EGYPZKIR embættismenn stað- festu I morgun, að fundur olfu- málaráðherra Arabaríkjanna yrði haldinn í Kairó á morgun (sunnu- dag) og dagblaðið AI Ahram, sem er hálfopinbert málgagn egypzku stjórnarinnar, sagði I frétt, að ráðherrarnir myndu ákveða að af- Flugslys í Hanoi; 15 blaða- menn fórust Algeirsborg, 9. marz AP. FLUGVÉL af gerðinni Antonov 24 fórst í gær við herflugvöllinn í Hanoi og með henni áhöfnin, nokkrir N-Vietnamar og fimmtán alsírskir blaðamenn, sem komnir voru til Norður-Vietnams til að fylgjast með ferðalagi Houaris Boumediennes, forseta Alsirs, þar í landi. Forsetinn hafði áður heimsótt N-Kóreu og Kína. Af hálfu n-vietnamskra yfir- valda hefur ekki enn verið upp- lýst hversu margir N-Vietnamar fórust og ekki er vitað hvort áhöfnin var öll frá N-Vietnam. Flugvélin var rússneskrar gerðar i eigu stjórnar N-Vietnams og hafði verið lánuð blaðamönnun- um alsírsku til að fylgjast með Boumedienne. Ekki er upplýst að heldur hvað slysinu olli. létta oliusölubanninu áBandarík- in. Mikil óvissa hefur ríkt um fundarstaðinn undanfarna daga og síðast í gær var haft eftir „áreiðanlegum heimildum“ i Libýu, áð fundurinn yrði haldinn þar á miðvikudaginn. Þetta bend- ir til, að Arabaleiðtogarnir séu ekki á eitt sáttir í þessu máli. Egyptar lögðu mikla áherzlu á, að fundurinn yrði haldinn þar i landi og þeim mun umhugað um að leika þar aðalhlutverkið til að vega á móti herskárri öflunum. Þeim er nokkuð umhugað um, að sambúðin við Bandaríkin sé góð, a.m.k. meðan verið er að ganga frá friðarsamningum við Israela. Sadat vann mikinn pólitiskan sig- ur með október-stríðinu og hann vill mikið til vinna, að ekki syrti aftur i álinn. Egyptar eru nýbúnir að taka upp stjórnmálasamband við Bandaríkin, en þvi var slitið eftir sex daga striðið 1967. Biskupar þinga Madrid, 9. marz, AP KAÞÓLSKU biskuparnir á Spáni héldu áfram fundum sinum í dag til að reyna að finna lausn á deil- unni við stjórnvöld. Antonio Anoveros, biskup í Bilbao, sem flutti predikunina umdeildu, sit- ur fundinn en hann hefur neitað að verða við þeirri kröfu stjórri- valda að fara úr landi. Tunglgrjót jafn- gamalt jarðgrjóti Moskvu, 9. marz AP. TASS-fréttastofan skýrir frá því í dag, að sovézkir vísindamenn séu þeirrar skoðunar, að grjótsýni tek- in á tunglinu séu jafngöm- Kveðjuathöfn um Sól Hurok í Carnegie Hall New York, 9. marz, AP. FJÖLDI frægra listamanna og listaáhugamanna var meðal þeirra 2.800 gesta, sem við- staddir voru kveðjuathöfn hins heimskunna umhoðsmanns listamanna og skemmtikrafta, Sols Huroks, sem fram fór í Carnegie Hall 1 New York. Var athöfn þessi stutt og komu þar fram söngvararnir Marian Anderson og Jan Peerce og fiðluleikarinn Isaac Stern. Hurok lézt sl. þriðjudag af hjartaslagi, 85 ára að aldri. Kista Huroks, sem var þakin rauðum rósum, stóð á miðju sviðinu, sem var að mestu leyti autt þar fyrir utan, aðeins tá- einir stólar og ræðustóll. Margir viðstaddra, óperu- söngvarar, listdansarar, tón- Iistarmenn, hljómsveitarstjórar og fulltrúar fleiri listgreina höfðu áður komið fram á þessu sviði á vegum Huroks. Þar voru m.a. söngvararnir Robert Merr- i 11, Renata Tebaldi og Roberta Peters, píanóleikararnir Van Cliburn og Byron Janis, gítar- leikarinn Andrei Segovia og hljómsveitarstjórinn Leonard Bernstein. Sömuleiðis var meðal Viðstaddra sendiherra Sovétríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Yakov A. Malik, en Hurok hefur haft um það for- göngu um langt árabil að fá til Bandaríkjanna fremstu lista- menn frá Sovétrikjunum. Marian Anderson sagði i minningarorðum sínum um Hurok, að hann hefði hjálpað fjölmörgum listamönnum að fóta sig á listabrautinni, styrkt göngu annarra eftir henni og veitt milljónum manna gleði, er auðgað hefði líf þeirra. Sol Hurok var lagður til hinztu hvildar í hofi Israels í Hastings-on-Hudson í New York. ul eða ámóta að aldri því grjóti, sem jörðin er af ger. Það eru vfsindamenn frá jarð- eðlisfræðistofnuninni í Moskvu, sem komizt hafa að þessari niður- stöðu eftir rannsóknir á sýnum frá tunglinu, sem hin ómönnuðu geimför Sovétmanna, Luna 16 og Luna 20, hafa komið með til jarð- ar. Hafa þeir borið niðurstöður sínar saman við niðurstöður bandariskra visindamanna og nið- urstöður athugana á jarðgrjóti og segja, að margar gerðir tungl- grjóts, sérstaklega basalts, likist jarðgrjóti. Þéir segja ennfremur, að tunglsýnin innihaldi meira af járni, titanium og öðrum málmum en jarðgrjót og sé ástæðan sú, að yfirborðsefni hafi kristallast fyrr á tunglinu en á jörðu. 20 börn létust TUTTUGU börn á aldrinum 8 til 12 ára biðu bana þegar vörpu- sprengja, sem skæruliðasveitir kommúnista skutu, lenti i skóla- garði. Það voru frimínútur í skólanum og börnin voru úti að leika sér þegar sprengjan lenti. Skólinn er um 45 mflur fyrir suðvestan Saigon og á því svæði hefur verið fremur rólegt að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.