Morgunblaðið - 10.03.1974, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.03.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974. Kvikmyndir Eftír Björn Vtgní Sígurpálsson ALLT frá því að Point Blank var sýnd hér fyrir fáeinum árum i Gamla bíó hefur mér jafnan þótt einna mest koma til John Boor- man af brezkum kvikmynda- gerðarmönnum af yngri kynslóð. Þó að Boorman sé búsettur á (r- landi, hefur hann Utið rengizt við kvikmyndagerð í heimalandi sínu heldur fetað i fótspor Hitchcocks og gert myndir sinar í Ameriku með þarlendu fjármagni. Flestar helztu myndir Boormans hafa verið sýndar hérlendis — auk ofangreindrar myndar bæði Hell in the Pacific og Leo the Last og áður en langt um liður fáum við að sjá næstsiðustu mynd Boormans — Deliverance, sem Austurbæjar- bió hefur tryggt sér sýningarétt á. Deliverance er amerisk dæmi- saga — „saga af bandariskum borgarmönnum, sem láta heillast af óbyggðaferðum, en hitta náttúruna fyrir t hefndarhug", eins og Boorman lýsir henni sjálfur. Nýjasta mynd Boormans nefnist hins vegar Zardoz, ekki óáþekk Deliverance að inntaki, en sett i búning visindaskáldsögu (science fiction). Boorman frum- samdi handritið, leikstýrði mynd- inni og framleiddi. Hún hefur fengið misjafna dóma í Banda- rikjunum, menn hæla Boorman sem áður fyrir sérstæða og tækni- lega fullkomnun i myndformum, en efnisinntakið fer að mestu leyti fyrir ofan garð og neðan. Niður- staðan hjá þorra gagnrýnenda er þvi fremur neikvæð. Boorman kvikmyndaði Zardoz á grænum grundum Wicklow-sveit- ar á Irlandi, sem verður að teljast óvenjuleg umgjörð visindaskáld- sögu. Sagan gerist eftir 220 ár, en þar sést hvergi geimskip eða geimbúningar. Þvert á móti spássera söguhetjur þar um í miðaldaklæðum og tónlistin I myndinni er leikin á ævaforn hljóðfæri frá dögum vestrænnar tónlistar. Höfundurinn segir Zardoz tví- mælalaust innan ramma visinda- skáldsögunnar — „hún stendur nærri vönduðustu tegund slíkra bókmennta, sem byggja mjög á likingum", segir Boorman. „Flestar vísindaskáldsögur, sem komið hafa óorði á þessa bók- menntastefnu, eru ekkert annað en ævintýrafrásagnir i geimklæð- um. En það má kannski segja, að i þessari mynd sé fremur fjallað um hinn innri geim en þann ytri." Myndin lýsir samfélagi velferð- er og áhyggjulauss lifs, þar sem misrétti, dauða og sjúkdóma hefur verið útrýmt. Samfélagið hefur að stefnumiði að varðveita hið bezta i menningu mannsandans og sú er skýringin á klæðaburði fólksins og tónlist. Spennan hefst, þegar hrotti einn (leikinn af Sean Connery) brýzt inn i þetta sér- stæða samfélag og hann ber með sér eitur dauðans. sem er um leið eitur breytinganna, og þá skiptir sköpum. „Visindin og rökfestan eru ekki óskeikul." segir Boor- man. „Þverstæðan á sér lítið Ijóð: Hér hefur fólkið til dæmis gleymt því, hvað dauðinn er og fyrir bragðið hefur það tapað lifs- þránni." Við samningu Zardoz leitaði Boorman víða fanga og i handrit- inu má finna áhrif allt frá L. Frank Baum til T. S. Eliot. Einnig varð hann fyrir verulegum áhrifum af bók J.R.R. Tolkiens — Lord of the Rings (sem er á góðri leið með að verða tízkulesning hér heima fyrir) og ýmsum öðrum verkum, er sækja efnivið til miðalda. „Þetta miðaldaform hefur jafnan vakið áhuga minn," segir Boorman, „og mér datt í hug, að gaman gæti verið að flytja það fram f framtíöarsýn " Þá vikur sögunni til Frakklands. Rar er komið upp dálitið spauglegt nr,ál — árekstur milli kvikmynda- beimsins og utanríkismála. Svo er rnál með vexti, að kinversk stjórn- völd oru um þessar mundir æf yfir síðasta framlagi fransks kvik- myndaiðnaðar og hafa sagt heimamönnum skoðun sina i þeim efnum, að þvi er segir í fréttagrein Framtíðarsýn og lítil þúfa, sem veltir þungu hlassi frá NTB. Myndin, sem gerir Kin- verjum svo gramt i geði, er dálitið sprell, sem nefnist Les Chinoie a Paris eða Kinverjarnir f Paris, og hlaut hún einróma lof franskra gagnrýnenda. er hún var frum- sýnd þar í fyrri viku. Kinverski sendiherrann er hins vegar á öðru máli. Hann hefur borið fram opin- ber mótmæli stjórnar sinnar vegna myndarinnar og fullyrðir þar, að myndin skipi Alþýðulýðveldinu Kina > bás með Þýzkalandi nas- ismans. Þar með eru allar likur á. að þessi gaman mynd eigi eftir að draga dilk á eftir sér á vettvangi utanríkismála. Myndin greinir frá kinverskum hermönnum, sem hertaka Paris árið 1974 — ekki þó með skot- vopnum heldur blómum. í reynd- inni snýst myndin aðallega um það, hvernig heimamenn taka á móti þessu innrásarliði, ganga á mála hjá aðkomum önnunum, blómstra i svartamarkaðsbraski og embættismenn fremja spillingar- dans. f stórum dráttum gengur Iffið sinn vanagang svo lengi sem heimamenn fá að stunda eftir- lætisiðju sína: Mat, vin og konur. Viðkunnanlegt gaman, segja gagnrýnendur, en með broddi þó. Það eru i rauninni Frakkar sjálfir, sem eiga sneiðina, en ekki Kin- verjar, fullyrða franskir fréttaskýr- endur. Verðí menn að draga ein- hverjar ályktanir af henni, þá sé eðlilegast að lita á hana sem ádeilu á atferli Frakka á hernáms- árum nasismans. Leikstjórinn Jean Yanne segist ekkert botna i særindum Kínverja og kveðst hafa teflt fram Kinverjum f þessari mynd þar sem hann hafi hreinlega verið orðinn leiður á Þjóðverjum sem hernámsliði. „En þetta er al- varlegt mál. 800 milljónir manna án kimnigáfu eru mun hættulegri en 800 milljónir manna undir vopnum," var haft eftir Yanne. Viðbrögð frönsku þjóðarinnar i síðari heimsstyrjöldinni hafa um langt skeið verið feimnismál i Frakklandi. Umræða um málið hófst ekki af alvöru fyrr en eftir sýningu á heimildarmyndinni Le Chargrin et la pitie fyrir fáeinum árum. Hún var upphaflega gerð fyrir sjónvarpið, en aldrei sýnd þar. Hins vegar braut einn virtasti kvikmyndagerðarmaður Frakka Louis Malle ísinn fyrir fáeinum vikum með mynd sinni Lacombe Lucien, sem var Iftillega getið hér i siðasta þætti. Myndin um Kínverjana i París er fyrst og fremst hugsuð sem afþreying. en allir þættir fransks þjóðfélags fá þar skammtinn sinn. Gagnrýnendur telja þó fyndnasta atriði myndarinnar vera „paródiu" á kinverska alþýðuleikhúsið, og það er einmitt þetta atriði, sem Kinverjar hafa hreyft kröftugum mótmælum við. Og eftir þessi mótmæli er myndin hætt að vera gamanmál fyrir Michel Jobert utanríkisráðherra Frakka, þó að hann fullyrði, að samskipti Frakk- lands og Kina séu traustari en svo, að ein kvikmynd geti lagt þau að velli. Myndin getur nefnilega haft hinar alvarlegustu afleiðingar, þó að of snemmt sé að fullyrða nokkuð þar um. I mótmælum sín- um hafa Kinverjar haldið þvi fram, að frönsk stjórnvöld hefðu átt að stöðva sýningar á mynd, sem sé 100% andkinversk og dragi dár að Rauða hernum og kinversku alþýðuleikhúsi. Hið diplómatfska orðfæri orðsendingarinnar er óvenju hvasst — „stjórnin ætti ekki að ganga þess dulin, að þetta mál getur haft hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir samskipti landa okkar", segir þar. Fréttaskýrendur i Paris óttast nú, að málin geti tekið enn alvar- legri stefnu, þvi að ekki sé loku fyrir það skotið, að kinverski sendiherrann og menningarfulltrú- inn verði kallaðir heim. Um leið geti málið sett forsætisráðherra Kina, Chou En-lai, i hinn mesta vanda. þar sem hann á nú undir högg að sækja heima fyrir i við- leitni sinni viö að bæta sambúðina við hinn vestræna heim. TILSÖLU Sófasett, sófaborð, sjónvarp, hjónarúm og setubaðkar. Upplýsingar í síma 50005 GULLEYRNARLOKKUR. aflangur, með rauðum steini í endanum, tapaðist á árshátið Strandamanna, Hótel Borg, laugard. 2. marz. Finnandi hringi í sima 33434. Fundarlaun. YTRI-NJARÐVÍK Til sölu nýlegt einbýlishús í Ytri- Njarðvík, Sími 2814. NÝ 3JA HERB. ÍBÚÐ í Breiðholti til leigu. Tilboð sendist Mbl. merkt 612, fyrir þriðjudag. KJALLARAÍBÚÐ Til sölu er tveggja herbergja kjall- araíbúð. Allt sér. Tilboð merkt: „Innan Hringbrautar — 4895". BMW 1600 til sölu BMW árg 1971 Ekinn 58 þúsund km Skipti koma til greina Til sýnis að Kársnesbraut 26 Sími 42910 FORD FAIRLANE '70 Sportbíll 2ja dyra. Sérstaklega fal- legur til sölu. Má borgast með 3ja—6 ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Sími 22086. GERUM VIO kaldavatnskrana og WC-kassa Vatnsveita Reykjavikur, simi 13134. RENNIBEKKUR Járnsmíðarennibekkur óskast ásamt hulsuborvél á fæti. Uppl. í síma 41 81 7 og 72087 á kvöldin BRONCO Bronco árg. '66 til sölu. Upplýs- ingar í sima 85431. VINNUSKÚR Til sölu góður vinnuskúr. Upplýs- ingar í sima 15526. TILLEIGU I BREIÐHOLTI 3ja herb ibúð og eldhús 2ja herb. ibúð og eldhús. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 1 5. þ.m. merkt: „4889". RÚSSAJEPPI ÁRG. '59. til sölu, álhús, lítið notuð vél, ódýr gegn staðgreiðslu. Uppl. i sima 92-1 21 4 eftir kl. 7 næstu kvöld. TVEIR BÍLAR Hornet '72 til sölu. Rauður. Pow- erstýri. Einnig Rambler station '66 sjálfskiptur, powerbremsur, blár. Uppl i sima 23805 i dag kl 1 —5. KEFLAVÍK Verzlun Kristinar Guðmundsdóttur er lokuð. Þakkar viðskiptavinum sínum góða samvinnu. GÓÐ ORGANPINE HURÐ með karmi tilsölu Simi 50730. HANDAVINNUNÁMSKEIÐ Nýtt námskeið hefst 20. marz. Flos, fina og grófa nálin. Myndvefnaður, taumálun og fleira. Innritun i síma 41 955. TILSÖLU TOYOTA MK II 1970 ^^ 71. Hardtop — coupé. Nýinnfluttur. Glæsilegur bill. Einn- ig Chevrolet Pick-Up 1967 Upp- lýsingar i simum 38294 og 72027 TILSÖLU svo til ný Candy þvottavél. Gott verð Upplýsingar i sima 52477. LÁN ÓSKAST Óska eftir sambandi við mann, sem getur lánað 300—400 þús- und kr. í ca 1 ár gegn öruggu fasteignaveði. Tilboð sendist Mbl. fyrir n.k. fimmtudag merkt „Hag- stætt — 1377". KVENFÉLAGIÐ KEÐJAN Skemmtifundur verður haldinn að Bárugötu 11 fimmtudaginn 14 marz kh 20.30. Spilað verður bingó Skrúfudagurinn verður laugar- daginn 1 6. marz. Stjórnin. JWorgunÍJla&ifc mRRCFRLDRR mÖCULEIKR VÐRR Trésmlðlr - trésmiðlr fræðist um hinargeysivinsælu framleiðslu okkará: spónapressum kantlímingarpressum kantslípivélum skápapressum sjálfvirkum hillulista, borvélum og fjölmörgum öðrum vélum. Tug ára reynsla, tryggir gæðin. Greiðsluskilmálar. STÁLVIRKINN H.F., Skeifan 5, Reykjavík, sími sölumanns 1 31 60. verkstæðið 85260, heimasimi 85059.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.