Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
27
MATSEÐILL
Umsjón:
Unnur Tómasdóttir xrTVTTHJHJ A D
matrei'ðslukennari VIKl/AliVAIi
Morgunverður
Kornflögur og súrmjólk, hrökkbrauð,
brauð, ostur og marmelaði, kaffi, te og
mjólk, 1/2 grapealdin.
Mánudagur
Fiskur, heill á fati, hrátt salat, hvítkáls-
súpameð hornum.
Þriðjudagur
Kjöthringur (kjötdeig) m. gulrótarjafn-
ingi, súrmjólkurábætirm. ávöxtum.
Miðvikudagur
Ýsurúllur, hrátt salat, blönduð grænmetis
súpa.
Fimmtudagur
Soðinn fiskur m. hollenzkri eggjasósu,
hrátt salat, bláberjagrautur m. mjólk.
Föstudagur
Saxað buff m. lauk og steiktum eggjum,
hrátt salat, ferskir ávextir og ostur.
Laugardagur
Plokkfiskur (afg. frá fimmtudegi), hrátt
salat, súrmjólkursúpa.
Sunnudagur
Kótelettur m. hrísgrjónum og karrýsósu,
hrátt salat, sólskinsábætir.
Ysurúllur
600—700 g ýsuflök, * salt, * rækjur eða
kryddsíld, * egg og brauðmylsna, ★ 30 g
smjör, * 2 dl rjómi.
Fiskur þerraður, síðan eru flökin skorin
þannig að þau myndi fiskgeira. Fiskur
kryddaður. Rækjum eða síldarbitum rað-
að á stykkin. Geirunum rúllað saman og
velt upp úr eggi og brauðmylsnu. Rúll-
unum er raðað þétt saman í smurt mót,
þannig að þær standi á enda. Á hverja
rúllu er settur smjörbiti. Látið inn í heit-
an ofn og steikt, þar til það er brúnt. Þá er
rjómanum hellt yfir og bakað við hægan
eld í 15 mfnútur. Borðað með hrærðum
kartöflum.
Hollenzk eggjasósa
4 eggjarauður, * salt, * 1/2 sítróna, * 3/4
dl fisksoð, * 250 g smjör, * salt, pipar.
Eggjarauðurnar ásamt salti, pipar og
sítrónusafa látnar í skál með ávölum
botni. Þeytt með þeytara, þar til það er
seigt, fisksoði hrært út í smátt og smátt,
skálin látin ofanápottmeð vel heituvatni
í, og nú er hrært stöðugt i sósunni með
þeytara, þar til hún er orðin að jöfnu
þykku kremi. Skálin er tekin af og smjör-
ið, sem er bráðið, hrært út I smátt og
smátt. Sitrónusafi og salt sett I eftir
smekk. Sósuna verður að borða strax. Hún
má ekki sjóða. Þeim, sem ekki vilja hafa
svona mikið fyrir hollenzku sósunni sinni,
er bent á ágætt hollenskt sósuduft í verzl-
unum, sem útbúið er eftir leiðbeiningum
á pakka.
Súrmjólkurábætir
með ávöxtum
250 g nýir, frosnir eða niðursoðnir ávextir,
(ekki má vera of mikill safi saman við þá)
★ 1 dl rjómi, * 4 dl súrmjólk, * 2 msk.
sykur, * 2 msk. kókosmjöl.
Brytjið ávextina (t.d. epli, perur, banana,
appelsínur) og leggið þá í skál. Þeytið
rjómann og blandið honum saman við
súrmjólkina ásamt sykrinum. Hellið því
síðan yfir ávextina. Brúnið kókosmjölið á
þurri pönnu, og stráið þvf yfir.
Tilbreytni:
Berið ábætinn fram vel kældan ásamt
ískexi eða smákökum.
Blandið ávöxtunum saman við súrmjólk-
ina og látið þá 4 blöð af bræddu matarlími
út í.
Kótelettur með hrísgrjónum og
karrýsósu
8 kótelettur, * salt, pipar, * smjörliki til
steikingar, * 2 laukar.
Karrýsósa:
3 dl vatn + súputeningar, ★ 3 dl rjómi, *
50 g smjörlíki, * 2 tsk. karrý * hveiti jafn-
ingur.
Kóteletturnar þerraðar, barðar og steikt-
ar, kryddaðar og bornar fram með steikt-
um lauk eins og buff.
Hrfsgrjón:
Hrisgrjón (2 bollar) og vatn er soðið í
10—12 mín. í potti með þéttu loki á. 50 g
af smjöri er hrært út í grjónin, síðan eru
þau brögðuð til með salti, pipar og pap-
riku.
Karrýsósa:
Smjörliki og karrý er látið krauma í
nokkrar minútur, án þess að brúnast.
Rjóma og teningasoði er hellt út í pottinn
og látið sjóða, jaf nað og kryddað.
Sólskinsábætir
4 dl ananassafi eða appelsínusafi, * rifið
hýði af 1/2 sitrónu, * 4 msk. sykur, * 6
blöð matarlím, * 3 msk. volgur ananassafi
eða appelsfnusafi, * l1^ dl rjómi, * 5 msk.
kókósmjöl.
Skraut:
ananashringir, * ráuð ber eða jarðarber.
Ananassafa, sítrónuhýði ogsykri er bland-
að saman. Matarlím er lagt í bleyti, kreist
upp og brætt í volgum ananassafanum,
siðan bætt út i kaldan ananassafann og
látið standa á köldum stað. Þegar safinn
byrjar að stirðna er hann þeyttur upp með
hjólþeytara eða rafmagnsþeytara þar til
hann er orðinn að þykkri froðu. Þá er
þeyttum rjómanum ásamt kókosmjölinu
blandað saman við. Blandið öllu varlega
saman og hellið síðan búðingnum i skál
eða form, sem skolað hefur verið með
köldu vatni og sykri stráð. Látið standa í
kæliskáp í nokkrar klukkustundir. Þá er
búðingnum hvolft upp á fat, skreyttur
með ananashringjum og rauðum berjum,
og kókosmjöli stráð yfir.
Leiðbeiningar um
matarlímsnotkun
Vegna þess hve mörgum konum, sérstak-
lega ungum og óreyndum húsmæðrum,
vex i augum að matbúa rétti, sem matar-
lím er í, hef ég ákveðið í þessum þættí og
þeim næsta að fara um það nokkrum
orðum, ef þau mættu koma að gagni.
Matarlím:
Leggið ætið matarlímsblöð i kalt vatn, svo
að f ljóti vel yfir blöðin. Látið þau liggja í
vatninu í u.þ.b. 5—10 mín., eða þar til þau
eru lin. Gerður er greinarmunur á, hvort
matarlím á að fara í kaldan eða heitan
vökva.
Matarlím i kaldan vökva, búðinga, þeytt-
an rjóma eða þ.u.l.
Takið matarlimið upp úr kalda vatninu,
án þess að kreista það. Bræðið það í skál,
sem látin er ofan i pott með heitu vatni,
eða bræðið það yfir gufu. Gott er að vakta
matarlimið, og vera tilbúin að taka það
upp úr um leið og síðasti kökkurinn er
bráðinn, þá er hitastigið á matarlíminu
^®^úegt til að fara beint út í kaldan
vökvann, eftir það hleypur vökvinn mjög
fljótt. Ef matarlímið er hins vegar lengi í
hitanum ef tir að það er bráðið hitnar það
um of, þá þarf að kæla það og það tekur
lengri tíma. Kælið matarlímið ef með
þarf, þar til það er ylvolgt (látið dropa á
handarbakið). Hellið því siðan í mjórri
bunu út i Það, sem verið er að búa til.
Hrærið eðaþeytið í a meðan. Sé matarlím-
ið i þykkara lagi, má Iáta örlitið vatn
saman við það eða dálítið af bragðefninu.
Blandið varlega þeyttum eggjahvítum!
þeyttum rjóma eða þ.u.l. saman við, þegar
ábætirinn er að verðaþykkur. Hellið síðan
ábætinum í skál eða mót.
Ath. Það er merki um, að matarlím sé of
kalt, ef það er aðeins farið að hlaupa út
við barma bollans. Ef kalt matarlím fer út
i vökvann fer allt í kekki, þvi er hægt að
bjarga, ef að rjómi eða þeyttar hvitur eru
ekki komin saman við. Skálin er þá látin
yfir gufu og kekkirnir þeyttir úr. Ef
matarlím fer of heitt út í vökvann, er
vökvinn lengi að hlaupa.
FROSTFLUTNINGAR
Get tekið að mér flutning á allskonar matvælum með
frystibíl. Get flutt kjöt hangandi og haft + 30° eða +
30°.
Ragnar Kristjánsson,
sími 41957.
Slúdentar MA 1967!
Bekkjarkvöld að binghóli við Álfhólsveg, Kópavogi, föstu-
daginn 1 5. marz kl. 20.30 stundvíslega.
Fjölmennið.
Stjórnin.
PLASTPOKAVELAR OSKAST
Einnig plastprentvél, límbandavélar og límbandaprent-
vélar. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Trúnaðarmál —
4894".
Húseigendur
Skrif slof uhúsn æði
Óskum eftir skrifstofuhúsnæði sem næst Glæsibæ við
Álfheima.
Veitingahúsið GLÆSIBÆ
Símar 85660 og 86220.
Tilboó óskast
I neðangreindar bif reiðar skemmdar eftir tjón:
Volvo Amazon árg. '66
Volkswagen 1 300 árg. '66
Ford Cortina árg. '64
Taunus 12M árg. '63
Bifreiðarnar verða til sýnis að Dugguvogi 9—11, Kænuvogsmegin
á mánudag. Tilboðum sé skilað í skrifstofu vora eigi siðar en
þriðjudag 12. marz.
sjúvAtryggingarfélag íslandsp
Bifreiðadeild, Suðurlandsbraut 4, sími 82500
S]E1E1G]B]E]E]E]E]B]E]E]E]E]G]G1G]E]E]E]G}
OOCXXXDOOOOOOOOOOOOOOOO
HádegisverÖarfundur
verður haldinn i Veitingahúsinu GLÆSIBÆ n.k.
þriðjudag 1 2. marz n.k. kl. 1 2.00.
Gestur fundarins verður Magnús Kjartansson,
ráðherra og mun hann ræða um „STÓRIOJU
ÁFORM Á ÍSLANDI "
Félagar mætið vel og stundvislega og takið með
ykkur gesti.
Junior
Chamber
í Reykjavík
OOOOCXX)OOCXDOOOCXX)OOCXX)
Auglýsing
um gjaldeyrisskuldbindingar vegna leigu á erlendum
skipum eða flugvélum.
Að gefnu tilefni er hér með vakin athygli á eftirfarandi
reglum:
1) Aðilum hér á landi er með öllu óheimilt að taka erlend
skip eða flugvélar á leigu, nema fyrir liggi heimild
Gjaldeyrisdeildar bankanna.
2) Óheimilt er að stofna til erlendra skuldbindinga vegna
leigutöku á skipum eða flugvélum án heimildar
Gjaldeyrisdeildar bankanna.
LANDSBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS