Morgunblaðið - 10.03.1974, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.03.1974, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974. 27 MATSEÐILL Umsjón: Unnur Tómasdóttir xrTVTTHJHJ A D matrei'ðslukennari VIKl/AliVAIi Morgunverður Kornflögur og súrmjólk, hrökkbrauð, brauð, ostur og marmelaði, kaffi, te og mjólk, 1/2 grapealdin. Mánudagur Fiskur, heill á fati, hrátt salat, hvítkáls- súpameð hornum. Þriðjudagur Kjöthringur (kjötdeig) m. gulrótarjafn- ingi, súrmjólkurábætirm. ávöxtum. Miðvikudagur Ýsurúllur, hrátt salat, blönduð grænmetis súpa. Fimmtudagur Soðinn fiskur m. hollenzkri eggjasósu, hrátt salat, bláberjagrautur m. mjólk. Föstudagur Saxað buff m. lauk og steiktum eggjum, hrátt salat, ferskir ávextir og ostur. Laugardagur Plokkfiskur (afg. frá fimmtudegi), hrátt salat, súrmjólkursúpa. Sunnudagur Kótelettur m. hrísgrjónum og karrýsósu, hrátt salat, sólskinsábætir. Ysurúllur 600—700 g ýsuflök, * salt, * rækjur eða kryddsíld, * egg og brauðmylsna, ★ 30 g smjör, * 2 dl rjómi. Fiskur þerraður, síðan eru flökin skorin þannig að þau myndi fiskgeira. Fiskur kryddaður. Rækjum eða síldarbitum rað- að á stykkin. Geirunum rúllað saman og velt upp úr eggi og brauðmylsnu. Rúll- unum er raðað þétt saman í smurt mót, þannig að þær standi á enda. Á hverja rúllu er settur smjörbiti. Látið inn í heit- an ofn og steikt, þar til það er brúnt. Þá er rjómanum hellt yfir og bakað við hægan eld í 15 mfnútur. Borðað með hrærðum kartöflum. Hollenzk eggjasósa 4 eggjarauður, * salt, * 1/2 sítróna, * 3/4 dl fisksoð, * 250 g smjör, * salt, pipar. Eggjarauðurnar ásamt salti, pipar og sítrónusafa látnar í skál með ávölum botni. Þeytt með þeytara, þar til það er seigt, fisksoði hrært út í smátt og smátt, skálin látin ofanápottmeð vel heituvatni í, og nú er hrært stöðugt i sósunni með þeytara, þar til hún er orðin að jöfnu þykku kremi. Skálin er tekin af og smjör- ið, sem er bráðið, hrært út I smátt og smátt. Sitrónusafi og salt sett I eftir smekk. Sósuna verður að borða strax. Hún má ekki sjóða. Þeim, sem ekki vilja hafa svona mikið fyrir hollenzku sósunni sinni, er bent á ágætt hollenskt sósuduft í verzl- unum, sem útbúið er eftir leiðbeiningum á pakka. Súrmjólkurábætir með ávöxtum 250 g nýir, frosnir eða niðursoðnir ávextir, (ekki má vera of mikill safi saman við þá) ★ 1 dl rjómi, * 4 dl súrmjólk, * 2 msk. sykur, * 2 msk. kókosmjöl. Brytjið ávextina (t.d. epli, perur, banana, appelsínur) og leggið þá í skál. Þeytið rjómann og blandið honum saman við súrmjólkina ásamt sykrinum. Hellið því síðan yfir ávextina. Brúnið kókosmjölið á þurri pönnu, og stráið þvf yfir. Tilbreytni: Berið ábætinn fram vel kældan ásamt ískexi eða smákökum. Blandið ávöxtunum saman við súrmjólk- ina og látið þá 4 blöð af bræddu matarlími út í. Kótelettur með hrísgrjónum og karrýsósu 8 kótelettur, * salt, pipar, * smjörliki til steikingar, * 2 laukar. Karrýsósa: 3 dl vatn + súputeningar, ★ 3 dl rjómi, * 50 g smjörlíki, * 2 tsk. karrý * hveiti jafn- ingur. Kóteletturnar þerraðar, barðar og steikt- ar, kryddaðar og bornar fram með steikt- um lauk eins og buff. Hrfsgrjón: Hrisgrjón (2 bollar) og vatn er soðið í 10—12 mín. í potti með þéttu loki á. 50 g af smjöri er hrært út í grjónin, síðan eru þau brögðuð til með salti, pipar og pap- riku. Karrýsósa: Smjörliki og karrý er látið krauma í nokkrar minútur, án þess að brúnast. Rjóma og teningasoði er hellt út í pottinn og látið sjóða, jaf nað og kryddað. Sólskinsábætir 4 dl ananassafi eða appelsínusafi, * rifið hýði af 1/2 sitrónu, * 4 msk. sykur, * 6 blöð matarlím, * 3 msk. volgur ananassafi eða appelsfnusafi, * l1^ dl rjómi, * 5 msk. kókósmjöl. Skraut: ananashringir, * ráuð ber eða jarðarber. Ananassafa, sítrónuhýði ogsykri er bland- að saman. Matarlím er lagt í bleyti, kreist upp og brætt í volgum ananassafanum, siðan bætt út i kaldan ananassafann og látið standa á köldum stað. Þegar safinn byrjar að stirðna er hann þeyttur upp með hjólþeytara eða rafmagnsþeytara þar til hann er orðinn að þykkri froðu. Þá er þeyttum rjómanum ásamt kókosmjölinu blandað saman við. Blandið öllu varlega saman og hellið síðan búðingnum i skál eða form, sem skolað hefur verið með köldu vatni og sykri stráð. Látið standa í kæliskáp í nokkrar klukkustundir. Þá er búðingnum hvolft upp á fat, skreyttur með ananashringjum og rauðum berjum, og kókosmjöli stráð yfir. Leiðbeiningar um matarlímsnotkun Vegna þess hve mörgum konum, sérstak- lega ungum og óreyndum húsmæðrum, vex i augum að matbúa rétti, sem matar- lím er í, hef ég ákveðið í þessum þættí og þeim næsta að fara um það nokkrum orðum, ef þau mættu koma að gagni. Matarlím: Leggið ætið matarlímsblöð i kalt vatn, svo að f ljóti vel yfir blöðin. Látið þau liggja í vatninu í u.þ.b. 5—10 mín., eða þar til þau eru lin. Gerður er greinarmunur á, hvort matarlím á að fara í kaldan eða heitan vökva. Matarlím i kaldan vökva, búðinga, þeytt- an rjóma eða þ.u.l. Takið matarlimið upp úr kalda vatninu, án þess að kreista það. Bræðið það í skál, sem látin er ofan i pott með heitu vatni, eða bræðið það yfir gufu. Gott er að vakta matarlimið, og vera tilbúin að taka það upp úr um leið og síðasti kökkurinn er bráðinn, þá er hitastigið á matarlíminu ^®^úegt til að fara beint út í kaldan vökvann, eftir það hleypur vökvinn mjög fljótt. Ef matarlímið er hins vegar lengi í hitanum ef tir að það er bráðið hitnar það um of, þá þarf að kæla það og það tekur lengri tíma. Kælið matarlímið ef með þarf, þar til það er ylvolgt (látið dropa á handarbakið). Hellið því siðan í mjórri bunu út i Það, sem verið er að búa til. Hrærið eðaþeytið í a meðan. Sé matarlím- ið i þykkara lagi, má Iáta örlitið vatn saman við það eða dálítið af bragðefninu. Blandið varlega þeyttum eggjahvítum! þeyttum rjóma eða þ.u.l. saman við, þegar ábætirinn er að verðaþykkur. Hellið síðan ábætinum í skál eða mót. Ath. Það er merki um, að matarlím sé of kalt, ef það er aðeins farið að hlaupa út við barma bollans. Ef kalt matarlím fer út i vökvann fer allt í kekki, þvi er hægt að bjarga, ef að rjómi eða þeyttar hvitur eru ekki komin saman við. Skálin er þá látin yfir gufu og kekkirnir þeyttir úr. Ef matarlím fer of heitt út í vökvann, er vökvinn lengi að hlaupa. FROSTFLUTNINGAR Get tekið að mér flutning á allskonar matvælum með frystibíl. Get flutt kjöt hangandi og haft + 30° eða + 30°. Ragnar Kristjánsson, sími 41957. Slúdentar MA 1967! Bekkjarkvöld að binghóli við Álfhólsveg, Kópavogi, föstu- daginn 1 5. marz kl. 20.30 stundvíslega. Fjölmennið. Stjórnin. PLASTPOKAVELAR OSKAST Einnig plastprentvél, límbandavélar og límbandaprent- vélar. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Trúnaðarmál — 4894". Húseigendur Skrif slof uhúsn æði Óskum eftir skrifstofuhúsnæði sem næst Glæsibæ við Álfheima. Veitingahúsið GLÆSIBÆ Símar 85660 og 86220. Tilboó óskast I neðangreindar bif reiðar skemmdar eftir tjón: Volvo Amazon árg. '66 Volkswagen 1 300 árg. '66 Ford Cortina árg. '64 Taunus 12M árg. '63 Bifreiðarnar verða til sýnis að Dugguvogi 9—11, Kænuvogsmegin á mánudag. Tilboðum sé skilað í skrifstofu vora eigi siðar en þriðjudag 12. marz. sjúvAtryggingarfélag íslandsp Bifreiðadeild, Suðurlandsbraut 4, sími 82500 S]E1E1G]B]E]E]E]E]B]E]E]E]E]G]G1G]E]E]E]G} OOCXXXDOOOOOOOOOOOOOOOO HádegisverÖarfundur verður haldinn i Veitingahúsinu GLÆSIBÆ n.k. þriðjudag 1 2. marz n.k. kl. 1 2.00. Gestur fundarins verður Magnús Kjartansson, ráðherra og mun hann ræða um „STÓRIOJU ÁFORM Á ÍSLANDI " Félagar mætið vel og stundvislega og takið með ykkur gesti. Junior Chamber í Reykjavík OOOOCXX)OOCXDOOOCXX)OOCXX) Auglýsing um gjaldeyrisskuldbindingar vegna leigu á erlendum skipum eða flugvélum. Að gefnu tilefni er hér með vakin athygli á eftirfarandi reglum: 1) Aðilum hér á landi er með öllu óheimilt að taka erlend skip eða flugvélar á leigu, nema fyrir liggi heimild Gjaldeyrisdeildar bankanna. 2) Óheimilt er að stofna til erlendra skuldbindinga vegna leigutöku á skipum eða flugvélum án heimildar Gjaldeyrisdeildar bankanna. LANDSBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.