Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
Fyrsti flugkostur Loftleiða,
þriggja sæta Stinson Reliant
komin á hjól 7. apríl 1944.
30 ára
Loftleiða
Ágrlp af
Loftleiðir h/f halda upp á 30 ára afmæli
sitt í dag. 1 því tilefni hefur Mbl. borizt
yfirgripsmikið ágrip af sögu félagsins frá
kynningardeild þess, sem hér fer á eftir
nokkuð stytt. Myndirnar, sem hér fylgja,
eru allar úr myndasafni Ólafs K. Magnús-
sonar ljósmyndara Morgunblaðsins, nema 9
myndin af stjórn og varastjórn Flugleiða ,
h/f. |
enn viðurkennd, og nemur mis-
munurinn að meðaltali 30%. En
einnig hér verður samkeppnisað-
staðan æ örðugri vegna marg-
víslegra lágra sérfargjalda
annarra félaga í áætlunarferðum
yfir Norður-Atlantshafið, svo og
samkeppni leiguflugfélaga.
Eigin skrifstofur
og aðalumboð:
Reykjavík
Aðalskrifstofur Loftleiða hafa
alltaf verið í Reykjavík, og frá þvi
í maímánuði 1964 í eigin skrif-
stofubyggingu á Reykjavíkurflug-
velli. Félagið hefir söluskrifstofu
í eigin húsnæði að Vesturgötu 2,
en vörugeymslur og afgreiðslu
með Flugfélagi íslands við
Sölvhólsgötu. Loftleiðir stofnuðu
bifreiðaleigu í Reykjavík 1. apríl,
og 1. júlí 1971 hóf Ferðaþjónusta
Loftleiða starfsemi.
Keflavíkur-
flugvöllur
Eftir að Rolls Royce flugvélar
Loftleiða komu til sögu vorið 1964
var flugrekstri Loftleiða haldið
uppi á tveim flugvöllum í Reykja-
vík og Keflavík, en í ágústmánuði
sama ár var allur flugreksturinn
fluttur til Keflavíkurflugvallar.
Samkvæmt samningi, sem gerður
Norðurlönd
Fyrsta skrifstofa Loftleiða
erlendis var opnuð í Kaupmanna-
höfn 1. júní 1948. í Noregi var
aðalumboðsskrifstofa frá 1952
unz Loftleiðir opnuðu eigin skrif-
stofu i Ósló 1. júlí 1971. í Svíþjóð
starfaði aðalumboðsskrifstofa frá
1953, en frá 1. sept. 1970 hefir
félagið haft eigin skrifstofur í
Gautaborg og Stokkhólmi. Aðal-
umboðsskrifstofa gætti hagsmuna
Loftleiða í Finnlandi frá árinu
1956, en í janúarmánuði 1972
opnaði félagið eigin skrifstofu í
Helsingfors. Áætlunarferðum var
um nokkurt árabil haldið uppi til
Helsingfors, Gautaborgar og
Stafangurs, en Norðurlandaferðir
Loftleiða eru nú til Óslóar, Stokk-
hólmsog Kaupmannahafnar.
Luxemborg
Hinn 1. maí 1955 opnuðu Loft-
leiðir skrifstofu í Luxemborg, og í
maímánuði sama ár hófst fyrsta
áætlunarferð Loftleiða til Luxem-
borgar og frá. Starfsemi Loft-
leiða í Luxemborg hefir vaxið ár-
lega, og má nefna í því sambandi,
að um háannatímann 1973 voru
23 vikulegar áætlunarferðír farn-
ar til Luxemborgar og frá.
Frá því í janúarmánuði 1972
hefir fjölmennasta deild viðhalds-
og viðgerðarþjónustu Loftleiða
verið á Luxemborgarflugvelli.
Innanlandsflug
Seint á árinu 1943 komu þrír
ungir flugmenn, Alfreð Elíasson,
E.K. Olsen og Sigurður Ólafsson,
heim til Islands að loknu námi og
störfum í Kanada. Þeir höfðu
keypt 4 sæta sjóflugvél af gerð-
inni Stinson Reliant, sem þeir
töldu, að myndi verða því til
tryggingar, að þeir fengju störf
við flug á tslandi. Eftir árangurs-
lausar samningatilraunir um at-
vinnumöguleika hjá Flugfélagi
Islands og boð um að afhenda því
flugvélina var ákveðið hinn 10.
marz 1944 að stofna flugfélagið
Loftleiðir. Það hóf starfsemi sína
með fyrrgreindri sjóflugvél.
Fyrsti flugdagur félagsins var 7.
apríl, er flogið var til Isafjarðar
frá Vatnagörðum, Reykjavík, sem
var bækistöð félagsins.
Hekla, fyrsta Skymastervél Loftleiða, kemur til landsins 15. júnf
1947.
Nýjasti farkostur Loftleiða DC-8-63 þota í flugtaki.
þar upp flugvél, sem fennt hafði
yfir frá því i septembermánuði
1950. Vélin var dregin niður af
jöklinum og henni svo flogið til
Reykjavíkur. Er þessi för einstæð
í flugsögunni.
Lág fargjöld
Sumarið 1952 hófu Loftleiðir
vikulegar áætlunarferðir til og
frá Ameríku. Félagið notaði
hæggengari flugvélar en keppi-
nautar þess, og bauð af þeim sök-
um lægri fargjöld. Hafa Loftleiðir
alla tíð boðið lægri gjöld i
áætlunarflugferðum milli Evrópu
og Ameríku en þau flugfélög, sem
eru innan alþjóðlegu flugfélaga-
samsteypunnar IATA.
Allt frá upphafi þessara viku-
legu áætiunarflugferða hefir
starfsemi félagsins vaxið, far-
þegafjöldi aukizt og starfsmönn-
um fjölgað. Meðan samstarf var
innan IATA-félaganna um far-
gjaldamál áttu Loftleiðir mjög
undir högg að sækja um viður-
kenningu stjórnvalda á fargjalda-
stefnu sinni. Á Norðurlöndum og
Bretlandi lauk þeirri viðureign
með því, að Loftleiðir urðu að
samþykkja gjaldskrá IATA frá
upphafi vetraráætlunar 1971/72.
Á fiugleiðinni milli Banda-
rfkjanna og Luxemborgar um Is-
land eru hin lágu gjöld Loftleiða
var milli Loftleiða og íslenzkra
stjórnvalda i maímánuði 1962, tók
félagið að sér afgreiðslu flug-
reksturs á Keflavíkurflugvelli, og
tveim árum síðar varð samkomu-
lag um, að það sæi einnig um alla
farþegaþjónustu. Frá þeim tíma
hafa Loftleiðir annazt fyrir-
greiðslu alls annars flugs til og
frá Keflavíkurflugvelli en þess,
sem haldið er uppi af hernaðar-
yfirvöldum.
Þar eru einnig aðalstöðvar
Cargolux, og hinn 1. janúar sl.
varð sú skipulagsbreyting, að
Cargolux tók við stjórn þessarar
deildar Loftleiða á flugvellinum.
Áætlunarferðum International
Air Bahama milli Luxemborgar
og Nassau er og haldið uppi frá
Luxemborgarflugvelli.
Skrifstofa Loftleiða í Luxem-
borg hefir umsjón með starfsemi
aðalumboðsskrifstofu Loftleiða í
Tvær flugfreyjur Loftleiða um borð I Heklu, Elfnborg Óladóttir og
Sigríður Pálsdóttir.
Utanlandsflug
Árið 1946 ákváðu Loftleiðir að
kaupa flugvél til þess að halda
uppi ferðum milli Islands og
útlanda. Þessi flugvél, sem var af
Skymastergerð Douglas DC-4 og
nefnd „Hekla“, fór í fyrstu
áætlunarferðina frá Islandi hinn
17. júníl947.
A tímabilinu frá 1947 til ársloka
1952 reyndi félagið að hasla sér
völl á alþjóðamarkaði og hélt þá
bæði uppi leiguferðum og óreglu-
bundnu áætlunarflugi. Árið 1948
fékk félagið leyfi til að halda uppi
áætlunarferðum til Banda-
ríkjanna og frá.
Jökulævintýrið
Frá 8. apríl til 6. maí 1951 fór 12
manna leiðangur undir stjórn
Alfreðs Elíassonar og Kristir\s
Olsen upp á Vatnajökul og gróf