Morgunblaðið - 10.03.1974, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
33
Stjórnar- og varastjórnarmenn Flugleiða h.f. á stofnfundinum, er haldinn var að Hótel Loftleiðum hinn
20. júll sl. Sitjandi (frá vinstrijeru SigurðurHelgason,OttarrMöller,Birgir Kjaran,ÖrnÓ. Johnson
Kristján Guðlaugsson, Alfreð Elíasson, E. Kristinn Olsen og Bergur G. Gíslason. Standandi (frá vinstri)
eru Einar Árnason, Grétar Br. Kristjánsson, Einar Helgason, Jóhannes Einarsson, Ölafur Johnson
Finnbjörn Þorvaldsson, Gunnar Helgason, Axel Einarsson, Jakob Frímannsson og Einar B. Guðmundsson
hæstaréttarlögmaður, er stjórnaði fundinum. Á myndina vatnar Svanbjörn Frímannsson, Geir Zoega,
Thor R. Thors, Dagfinn Stefánsson og Jóhannes Markússon.
Starfsmenn Loftleiða á frumherjaárunum.
Hollandi og i nökkrum borgum í
Suður-Evrópu, Asíu og Afríku.
Bandaríki
Norður-Ameríku
Fyrsta áætlunarflug Loftleiða
til New York var farið 25/26
ágúst 1948, en vikulegar áætlun-
arferðir hófust ekki fyrr en árið
1952. Hefir þeim síðan fjölgað ár-
lega, og urðu þær 18 til New York
og frá um háannatímann sumarið
1972. Þá hóf félagið reglubundið
áætlunarflug til Chicago 2. maí
1973 og voru vikulegar ferðir
þangað flestar fimm það sumar.
Umboðsskrifstofur gættu hags-
muna Loftleiða í Bandaríkjunum
frá því árið 1946, unz félagið opn-
aði eigin skrifstofur í New York
síðla árs 1951. Nú eru aðalskrif-
stofur félagsins vestan hafs í
Rockefeller Center, en afgreiðsla
er á J.F. Kennedy flugvelli.
í San Francisco starfaði aðal-
umboðsskrifstofa til janúar-
byrjunar árið 1970, er Loftleiðir
opnuðu þar eigin skrifstofu. f
Chicago hafa Loftleiðir haft skrif-
stofu frá 1956. I ársbyrjun 1969
var opnuð skrifstofa Loftleiða í
Flórída. I febrúarmánuði 1969
var skrifstofa Loftleiða opnuð í
Washington, D.C. og 5. apríl 1971
í Houston, Texas.
Öllu sölustarfi Loftleiða í
Kanada, Mexíkó, mið- og Suður-
Ameríku er stjórnað frá skrif-
stofu Loftleiða í New York.
Auk þessara helztu skrifstofa
félagsins rekur það söluskrifstof-
ur víðsvegar um heim, og fer
þéim fjölgandi með ári hverju.
Farþegaflutningar
Fyrsta starfsárið fluttu Loft-
leiðir 484 farþega. Frá upphafi
Kristinn Ólsen, Eggert Kristjánsson þáverandi stjórnarformaður
Loftleiða, Hrafn Jónsson og Alfreð Elfasson við komuna til Rvk.,
eftir björgun skíðaflugvélarinnar á Vatnajökli í maí 1951.
Fyrsta RR-400 skrúfuþotan við komuna til landsins 29. maí 1964.
Kristinn Ólsen og Alfreð Elfasson.
vikulegu áætlunarferðanna til og
frá New York hefir farþegafjöld-
inn vaxið árlega, og fluttu flugvél-
ar félagsins 324,453 farþega árið
1972. Félagið hefir undanfarið
verið í niunda sæti þeirra, sem
halda uppi áætlunarflugferðum
yfir Norður-Atlantshafið, og flutt
um 2,4% þeirra, sem ferðast með
áætlunarflugferðum á þeirri flug-
leið. Sætanýting hefir verið til-
lölulega góð, t.d. var hún 74,1%
árið 1972, en vegna lágra far-
gjalda er hún ekki einhlít til við-
miðunar um afkomu.
Flugáætlun .
Föstum áætlunarferðum er nú
haldið uppi til New York, Luxem-
borgar, Glasgow, London, Óslóar,
Stokkhólms og Kaupmannahafn-
ar. Ferðafjöldi er breytilegur eft-
ir árstíðum.
Flugkostur
Sumarið 1973 voru Loftleiðir
með fimm þotur f notkun á flug-
leiðum félagsins, allar af gerðinni
DC-8. Þar af var ein Super 63 og
tvær Super 61 með rými fyrir 249
farþega hver, ein DC-8-55 með 173
farþegarými og ein Super 61, sem
útbúin var með þrjá vörupalla og
að auki sæti fyrir 204 farþega.
Yfir vetrarmánuðina er flugflot-
inn minni i samræmi við minni
flutninga.
Viðdvalarboð
Loftleiða á
Íslandi
Árið 1963 ákvað stjórn Loft-
leiða að bjóða farþegum sólar-
hrings viðdvöl á Islandi á hag-
stæðu verði. Árið 1966 var bætt
við öðrum degi og árið 1970 hin-
um þriðja. Þessi boð hafa orðið
vinsæl. Arið 1972 varð tala við-
dvalargesta 15,271, og reyndist
um fjórði hluti þeirra erlendu
ferðamanna, sem sóttu Island
heim það ár.
Hótel
Loftleiðir
Hótel Loftleiðir var opnað 1.
mai 1966 og ný viðbygging 1. maí
1971. í hótelinu eru 217 tveggja
manna herbergi, sex fundasalir,
þar sem sæti eru fyrir 420 manns
og er þar með talinn 10 manna
ráðstefnusalur. 1 veitingasölum
er rými fyrir 725 manns. Hótelið
er nýjast og nýtízkulegast gisti- og
veitingastaða höfuðborgarinnar
og sérstaklega útbúið til ráð-
stefnuhalds.
Nokkur minn-
isatriði
Heildarvelta Loftleiða var
fyrsta starfsárið rúmlega 200 þús-
und krónur. Hún reyndist rúmar
3,138 milljónir króna árið 1972.
Við árslok 1944 voru starfsmenn
félagsins 8, en um áramót 1972/73
voru þeir, heima og erlendis,
1,286, þar af 703 á íslandi, en það
samsvarar um 1% af öllum vinnu-
færum Islendingum.
Loftleiðir hafa undanfarin ár
verið einn hæsti skattgreiðandi á
landinu, en félagið greiðir þar að
auki stórfé í óbeina skatta.
Flughjálp
Hinn 18 apríl 1969 gerðust Loft-
leiðir, ásamt líknarfélagi skandi-
navísku kirknanna og íslenzku
þjóðkirkjunni stofnendur félags-
ins Flughjálpar. Markmið þess er
að flytja i lofti hjálpargögn til
nauðstaddra. Félagið kom mjög
við sögu flutninga til Biafra
vegna borgarastyrjaldarinnar i
Nígeríu.
Cargolux
Félagið Cargolux var stofnað í
Luxemborg 4. marz 1970 af Loft-
leiðum, Luxair og sænska skipafé-
laginu Salenia. Félagið heldur
uppi vöruflutningum með fimm
Rolls-Royce flugvélum víða um
heim og haustið 1973 bættist
fyrsta þotan í flugflota félagsins.
Fjórar Rolls-Royce flugvélanna
voru áður í eigu Loftleiða, en eru
nú sameign Loftleiða og Salenia
A.B.
Sjá nœstu
síðu A
Frá upphafi Loftleiðaævintýris-
ins 22. maí 1955, er fyrsta flugið
er farið milli New York og
Luxemborgar. Victor Dodson
samgönguráðherra Luxemborgar
flytur ávarp I flugstöðvarbygging-
unni í Luxemborg og Ingólfur
Jónsson þáverandi samgönguráð-
herra fytur ræðu við sama tæki-
færi.
Við komu fyrstu.flugvélarinnar til Luxemborgar. 22. mal 1955.