Morgunblaðið - 08.11.1974, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÖVEMBER 1974
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
/^BÍLALEIGAN
^&IEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOMEEI1
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
BILALEIGA
Car Rental
fjfj SENDUM
41660-42902
Ferðabílar hf.
BilaleigaS—81260
5 manna Citroen G.S fólks og
stationbilar 1 1 manna Chervolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabilar (með bilstjérn)
Hjartans þakkir til ættingja og
vina sem glöddu mig á 85 ára
afmæli mínu4. nóvembers.l.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnhi/dur
Gísladóttir,
MöðruvaUastræti 3,
Akureyri.
Þakkarávarp
Ég vil þakka öllum þeim, sem
með gjöfum, skeytum og heim-
sóknum gerðu mér afmælisdag-
inn ógleymanlegan. Þá vil ég
einnig þakka Kvenfélagi Ólafs-
vikur rausnarlegt samkvæmi,
sem það hélt mér til heiðurs.
Guð blessi ykkur öll.
Kristjana Einarsdóttir
Ólafsvík.
Rökrétt afleiðing
Þegar núverandi ríkisstjórn
tók við völdum f endaðan ágúst-
mánuð sfðast liðinn, voru marg-
ir f vafa um aðiöðungarhæfni
og samstarfsmöguleika
stjórnarflokkanna. 18 ár voru
liðin sfðan þeir höfðu starfað
saman f rfkisstjórn og allar göt-
ur frá þeim tfma höfðu flokk-
arnir eldað grátt silfur saman
og marga hildi háð. Fiokkarnir
eru og á ýmsa lund ólíkir og
hafa gagnstæð sjónarmið f
mörgum málum. Þeir höfðu ný-
verið gengið í gegnum tvennar
kosningar með tiiheyrandi
átökum, og skammur tfmi
skildi á milli samstarfs þeirra
og vopnaviðskipta á timum
vinstri stjórnar.
Þegar betur er að gáð, og mál
skoðuð ofan f kjölinn, kemur
þó í ljós, að einmitt þetta
stjórnarsamstarf var rökrétt og
óhjákvæmilega afleiðing af
þeim viðhorfum, sem við blöstu
f þjóðfélaginu, og þeim vanda-
málum sem við var að glima.
Rætur samstarfsins
Þríþætt viðfangsefni, sem öll
gátu valdið stefnuhvörfum f
málefnum þjóðarinnar, og
efnahagsleg og stjórnarfarsleg
velferð hennar var undir kom-
in, réð mestu um, að flokkarnir
kusu að snúa bökum saman:
1. Risavaxin, óleyst vandamál
f efnahagslffi þjóðarinnar, sem
kölluð á skjót og róttæk úrræði.
Þau ógnuðu rekstraröryggi at-
vinnuveganna og atvinnu-
öryggi almennings f þeim
mæli, að efnahagslegu sjálf-
stæði þjóðarinnar var hætta bú-
in.
2. Öryggismál þjóðarinnar,
sem m.a. vörðuðu stöðu lands-
ins f samstarfi lýðfrjálsra
þjóða. Öryggishagsmunir okkar
og nágrannaþjóða, með Ifk við-
horf til ýðfrelsis og þegnrétt-
inda, voru f veði.
3. Svipuð viðhorf flokkanna
til málefna landsbyggðarinnar,
sem miða að þvf f senn, að
treysta byggð í landinu öllu
sem og að valddreifingu til
sveitarfélaga, sem eru horn-
steinar þjóðfélagsbyggingar-
innar.
Lýðræðið
og flokkarnir
Tilvera stjórnmálaflokka
tryggir nauðsynlegt aðhald og
gagnrýni f stjórnkerfinu.
Stjórnarandstaða gegnir ekki
sfður nauðsynlegu hlutverkí en
rfkisstjórn hverju sinni. Þetta
fyrirkomulag tryggir þegnun-
um, að horft er á viðfangsefnin
frá fleiri en einni hlið, og nauð-
synlegar upplýsingar koma
fram til að fylgjast með gangi
mála og byggja á mat og af-
stöðu, er hæstiréttur almenn-
ings kemur saman til dónis og
stefnumörkunar við kjörborð-
ið.
Þegar alvarlegan vanda ber
að höndum, sem varðar hag
hverrar einustu fjölskyldu f
landinu, eins og nú er raunin á,
er það hinsvegar skylda allra
ábyrgra stjórnmálaflokka, að
snúa bökum saman um nauð-
synleg úrræði. Sú var ástæða
þess, að Sjálfstæðisflokkurinn
vildi halda opnum dyrum fyrir
Alþýðuflokkinn að núverandi
stjórnarsamstarfi. Það mun og
almannadómur og mat á að-
stæðum f þjóðfélaginu f dag, að
samstarf lýðræðisflokkanna
allra um lausn á steðjandi
vanda, hefði verið æskilegt. Og
staða Alþýðuflokks utan rfkis-
stjórnar á ekki að útiloka slfkt
samstarf, ef sá flokkur dregur
réttar ályktanir af augljósum
staðreyndum. Öðru máli gegnir
með kommúnista, sem eru ekki
á dagskrá Staksteina f dag.
Að horfa
fram en ekki aftur
Núverandi stjórnarflokkar
geta að sjálfsögðu deilt um
margt, sem að baki liggur.
Vandamálin og viðfangsefnin
krefjast þess hinsvegar, að nú
sé horft fram en ekki aftur.
Skoðanaágreiningur þeirra á
milli, í ýmsum málum, er þó
ekkert leyndarmál. Sá ágrein-
ingur er þó ekki meiri en geng-
ur og gerist f samstarfstjórn-
um. Stjórnin hefur farið vel af
stað. Mikill hluti þjóðarinnar
árnar henni velfarnaðar f
vandasömu starfi. Þær óskir ná
langt út fyrir flokksramma
stjórnarflokkanna. Þjóðin skil-
ur, að svo mikið er í húfi, að vel
takist til, að gifta hennar og
stjórnarinnar er ein og hin
sama. Þjóðin mun þvf horfa
fram á veginn með ríkisstjórn-
inni.
Kjördæmisráðið á Austurlandi:
NÝ VIÐREISN
Aðaifundur kjördæmisráðs
Sjáifstæðisflokksins f Austur-
landskjördæmi var haidinn á
Höfn f Hornafirði 25. og 26. okt.
sl.
Formaður ráðsins, Albert
Kemp, setti fundinn og flutti
skýrslu stjórnarinnar, sem bar
með sér gott og f jölbreytt starf
flokksins sfðasta starfsár.
Fundurinn gerði eftirfarandi
ályktun um stjórnmálaviðhorf-
ið:
„Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi fagnar því, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er á ný tekinn við
forystu um stjórn landsins. Lýs-
ir fundurinn yfir fyllsta stuðn-
ingi við ríkisstjórnina og stefnu
hennar í þjóðmálum eins og
hún birtist í stefnuyfirlýsingu
stjórnarflokkanna við stjórnar-
myndun og verkum stjórnar-
innar siðan.
Um s.l. áramót varð ljóst, að
stefna og störf vinstri stjórnar
myndi á nýjan leik leiða til
ófarnaðar fyrir þjóðarbúskap-
inn. Almenningi er í fersku
minni ömurlegur viðskilnaður
vinstri stjórnar í árslok 1958,
en hin síðari vinstri stjórn virð-
ist í flestu hafa tekið hinni
fyrri fram um illa meðferð
þjóðmála. Rekstrarstöðvun
allra atvinnuvega blasti við og
hefðu þeir raunar stöðvazt sl.
vor, ef bankayfirvöld hefði
ekki hafið milljarða útlán til að
hindra rekstursstöðvun meðan
kosningar fóru fram og ný
stjórn var mynduð.
Gjaldþrot fjárfestingarlána-
sjóða var á næsta leiti og algjör
fjárþurrð hjá greinum
þjónustu hins opinbera og
bæjar- og sveitarfélaga.
Milljarða rýrnun varð á fram-
kvæmdafé hins opinbera.
Gjaldeyrisvarasjóðurinn var
gersamlega uppurinn. Skuldir
við útlönd höfðu hlaðizt upp, en
lánstraust þjóðarinnar út á við
þorrið, er hér var komið sögu.
Magnaðri óðaverðbólga geisaði
en nokkur dæmi eru til um í
íslenzku efnahagslífi.
1 utanríkismálum var unnið
leynt og ijóst að þvf að rjúfa
varnarkeðju vestrænna þjóða
með brottvísun varnarliðsins.
Kosningaúrslitin sl. vor, bæði
í byggða- og alþingiskosning-
um, urðu mikill sigur stefnu
Sjáifstæðisflokksins bæði í inn-
an-og utanrikismálum. Blaðinu
hefir gersamlega verið snúið
við í utanrikismálum og stefna
Sjálfstæðisflokksins f þeim
málum orðin rfkjandi. Sterkri
ríkisstjórn undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins er treyst til að
taka stjórn efnahagsmála þeim
tökum, að ný viðreisn verði
framkvæmd á skömmum tíma.
Aðalfundurinn fagnar áform-
um um stóraukið átak í byggða-
málum og skorar á flokkinn að
fylgja þeim málum fast fram.
Fundurinn treystir á styrka
samstöðu flokksmanna um
stuðning við ríkisstjórnina og
full heilindi í samstarfinu."
Albert Kemp, formaður kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins f Austuriandskjördæmi.
Albert Kemp var endurkjör-
inn formaður ráðsins og aðrir í
stjórn: Árni Stefánsson, Höfn,
Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir,
Seyðisfirói, Svanur Sigurðsson,
Breiðdalsvík og Þorsteinn
Gústafsson, Egilsstöðum.
Hópferð á Smithfield-landbúnaðarsýninguna
Smithfield-landbúnaðarsýn-
ingin verður opnuð í Earls
Corut mánudaginn 2. desember
og stendur fram til 6. des.
Fimmtudaginn 5. des verður al-
þjóðlega alifugla- og kjöt-
iðnaðarsýningin opnuð f
Olympia.
Á Smhithieldsýningunni
verða sýndir Í713 gripir dag-
inn, sem opnað verður, þar af
verða 416 gripum slátrað og
föllin sýnd á sérstakri kjötsýn-
ingu miðvikudag og fimmtu-
dag. Sýndir verða nautgripir af
13 mismunandi kynjum og auk
þess kynblendingar/ Sýnd
verða 23 mismunandi sauöfjár-
kyn. Alla sýningardagana er
ýmislegt um að vera f aðaldóm-
hring. Þar fer fram keppni í
búfjárdómum. Sýndir verða
bestu gripirnir. Samtök mjólk-
urframleiðenda kynna nýjung-
ar á sviði nautakjötsframleiðslu
og í lok sýningarinnar fer fram
uppboð á sýningargripum. Á
sýningu gefst tækifæri tíl að sjá
fagmenn stundurlima skrokka
af dilkum og grísum Slíkar
kynningar verða 4 sinnum á
dag.
Allir helstu búvélaframleið-
endur í Evrópu og reyndar frá
öðrum heimsálfum kynna
helstu nýjungar á sviði bú-
tækni. Sú venja hefur skapast,
að nýjar vélar eru fyrst kynntar
á Smithfieldsýningunni.
Sýningarstúlkur og deildir
eru frá 354 fyrirtækjum.
Stærsti hutinn eru vélar og
verkfæri, en auk þess eru sýnd-
ar sáðvörur, lyf og margs konar
efni til notkunar í landbúnaði.
Þetta er í 163. sinn, sem Smith-
field-landbúnaðarsýningin er
haldin.
Alifugla- og kjötiðnaðar-
sýning:
Upphaflega voru þetta tvær
sýningar, sem nú hafa verið
sameinaðar. Sýningin er opin í
Seltjarnarnes
verður prestakall
Á FUNDI, sem haldinn veróur á morgun kl. 2 (9. nóv.), verður
kosinn safnaðarnefnd og safnaðarfulltrúí í Seltjarnarnessókn, með
það fyrir augum, að þar hefjist sérstakt safnaðarstarf. Þetta er
eðlileg þróun, þar sem Seltjarnarnes er nýlega orðinn sérstakur
kaupstaður.
Með auglýsingu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá 19. ág. 1963
var ákveðið, að Seltjarnarnes skyldi verða sérsakt prestakall, en
dregist hef ur nokkuð að kjósa þar sérstaka sóknarnefnd.
Prestar Nesprestakalls munu þjóna hinni nýju sókn,, þartil öðru
vísi verður ákveðið.
(Frétt frá Reykjavíkurprófastsdæmi).
þrjá daga frá 5.—7. des. og er í
Olympia sýningarhöllinni, sem
er skammt frá Earls Court, þar
sem Smithfield-sýningin verð-
ur. Á þessari sýningu eru
sýndar flestar tegundir ali-
fugla, auk þess allur búnaður í
sambandi við uppeldi fulga- og
eggjaframleiðslu, sláturbúnaó-
ur og pökkun. Mjög háþróuð
tækni hefur verið tekin í notk-
un innan þessarar búgreinar og
allar nýjungar á þvi sviði eru
kynntar á sýningunni. Enn-
fremur verður sýndur allur
helsti tæknibúnaður við kjöt-
iðnað og frystingu matvæla.
Ef nægileg þátttaka fæst,
verður farið á þessar sýningar.
Hugmyndin er að fara frá
Keflavík mánudaginn 2. des. kl.
9.00 og til baka frá London
föstudaginn 6. des. Gert er ráð
fyrir, að þátttökugjald i ferð-
inni verði kr. 19.000. Þá er inni-
falið auk flugfarsins ferðir til
og frá flugvelli í London, gist-
ing 4 nætur á góðu hóteii og
morgunverður. Nánari upplýs-
ingar um sýningarnar og ferðir
eru gefnar hjá Búnaðarfélagi
íslands.simi 19200.
(Frá Búnaðarfélagi Islands)