Morgunblaðið - 08.11.1974, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.11.1974, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974 33 fólk í fréttum t framhaldi af þeim greinum, sem íslenzkir lækn- ar hafa skrifað um krabbamein, og birtzt hafa hér í blaðinu undanfarna daga, er ekki úr vegi, að glugga hér f viðtal, senl þýzkur blaðamaður átti við eigin- konu hins tiltölulega nýskipaða forseta V-Þýzka- lands, Walter Scheel, dr. med. Mildred Scheel, í tilefni af stofnun „Þýzka krabbameinsfélagsins“, sem stofnað var þann 25. september s.I. af frum- kvæði hennar. ffHin falska blygðunarliliinn ing” Sp: Hver var ástæðan fyrir þvf að þér stofnuðuð Þýzka krabbameinsfélagið? Mildred: Aðalástæða þess var sú staðreynd, að nú f dag veik- ist þriðji hver maður f Vestur- Þýzkalandi af krabbameini og fimmti hver íbúi deyr af völd- um þess. Ef nú aðeins væri hægt með nýjustu læknisað- ferðum við krabbameini á byrjunarstigi að breyta þessarri tölu úr fimmta hverj- úm í sjötta hvern íbúa mund- um við bjarga tveim milljónum manna frá dauða af völdum krabbameins. Sp: Hver var ástæðan fyrir því að þér völduð yður einmitt þetta svið lækninganna? Mildred: Vegna þess að ég hef svo oft orðið fyrir þvf vegna stöðu minnar sem röntgen- læknir, að til mín hafa komið sjúklingar sem vissu lítið eða alls ekkert um veikindi sfn og fóru því miður oftast á ranga staði til að leita lækningar. Fyrir þetta fólk er mikið hægt að gera, það sannar eftirfar- andi dæmi: A ákveðnu svæði innan Sameinuðu þjóðanna hefur fengizt einstaklega góður árangur á sviði lækninga á leg- krabbameini. Jafnvel á þessu svæði eða f þessu ákveðna landi var unnt að koma algerlega f veg fyrir dauðsföll af völdum legkrabbameins. Sp: Hvaða verkefni eru mest aðkallandi fyrir félagið nú? Mildred: Það er staðreynd að of lítið er gert úr undirbúnings- skoðuninni. Þó gildir það frek- ar um karlmenn en konur, og ástæður fyrir því að fólk kemur ekki reglulega til skoðunar eru ýmsar, meðal annars er það óttinn við sannleikann og margir verða fyrir því að láta blygðunarsemina koma f veg fyrir að þeir leiti á náðir lækna. Einnig er það, að þeir sem búa á vissum stöðum f dreifbýlinu eiga erfitt með að komast á rétta staði til rannsókna og lækninga. Þessar hömlur verð- ur að brjóta, og að því munum við stefna. Sp: Hvernig? Mildred: Meðal annars með þvf að láta sérmenntað fólk um Iækningu þessara sjúklinga — fólk sem skilur einmitt erfið- leika þess og er sérmenntað f meðferð þeirra. Einnig kæmi til greina að einhver ákveðinn dagur á hverju ári yrði valinn sem „Baráttudagur gegn krabbameini" — og að á þeim degi mundu allir læknar beina rannsóknum sfnum að krabba- meini. Sp: Hvernig verður hægt að leysa vanda þeirra, sem búa f dreifbýlinu? Mildred: Ég hef hugsað mér til dæmis, að hægt væri að senda fólksflutningabfl á þessa staði f dreifbýlinu, sem sjúkl- Betty Ford veiktist af krabba- meini. Það hafði mikil áhrif f Þýzkalandi; læknabiðstofur fylltust og fólk vaknaði til um- hugsunar. ingarnir mundu síðan safnast f og að þeir yrðu sfðan fluttir á mismunandi staði, þar sem þeir fengju rétta meðhöndlun. Sp: Hefur tekizt eða liggja fyrir einhverjar betri aðferðir til að finna krabbamein á byrj- unarstigi? Mildred: Já það er sérstök lækningaaðferð á krabbameini f brjósti, mamographie, eða hin „tvöfalda röntgenrannsókn“. Með þeirri aðferð er unnt að finna krabbamein löngu áður en það væri unnt með þreifiað- ferðinni. Sp: Hvað með peningalegu hliðina, það hlýtur að kosta mikið fé að reka þess háttar stofnun? Mildred: Það verður hinn al- menni borgari að sjá um með því að styrkja félagið með pen- ingagjöfum. Það þýðir auðvitað fyrir okkur, að við verðum að sjá hinum almenna borgara fyrir bættum lækningaraðferð- um sem kæmi öllum að góðum notum. Markmið okkar er, að gera öllum kleift að fá lækn- ingu, sama hvar sjúklingurinn býr og sama hver hann er — allir jafn réttháir þar. Stofnandi Þýzku krabbameinshjálparinnar. „Við gætum bjargað tveim milljónum manna frá dauða af völdum krabbameins". — Heldur Mildred Scheel fram, en „sjúklingarnir koma oftast of seint“. IJtvarp Reykfavth FÖSTUDAGUR 8. nóvember 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55 Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Rósa B. Blöndals lýkur við að lesa söguna „Flökkusveininn" eftir Hector Malot í þýðingu Hannesar J. Magnússonar (23). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Spjallað við bændur kl. 10.05. „Hin gömlu kynni" kl. 10.25: Sverrir Kjartansson sér um þátt með tónlist og frásögnum f rá liðnum árum. Norræn tónlist kl. 11.00: Sinfónfu- hljómsveit sænska útvarpsins leikur Leikhússvftu nr. 4 eftir Gösta Nyström/ Konunglega hljómsveitin f Kaupmannahöfn leikur „Saga-dröm" op. 39. sinfónfskt söguljóð eftir Carl i Nielsen/Fflharmonfusveitin f ósló leikur Concerto grosso Norvegese op. 18 eftir Olav Kielland/ Hljómsveit óperunnar f Covent Garden leikur Rómönsu f C-dúr eftir Jean Sibelius. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Fanney á Furu- völlum" eftir llugrúnu Höfundur les (5). 15.00 Miðdegistónleikar Sinfónfuhljómsveit Lundúna leikur „Parade", ballettmúsfk eftir Satie; Antal Dorati stj. Beverly Sillssyngur arfur úr frönskum óperum við undirleik Konunglegu ffl- harmónfusveitarinnar f Lundúnum; Charles Mackerras stj. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (Veður- fregnir kl. 16.15) 16.25 Popphomið 17.10 Ctvarpssaga barnanna: „Hjalti kemur heim“ eftir Stefán Jónsson Gfsli Halldórsson leikari les (6). 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöfdsins. 19.00 Fréttir. Fráttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá Umsjón: Kári Jónasson 20.00 Frá hollenzka útvarpinu: Tónlist eftir Debussy Fflharmonfusveit hollenzka útvarpsins leikur; Jean Fournet stj. „ a. „Sfðdegi fánsins", forleikur. b. „Íbería", svfta. 20.30 Þjóðarbúið og hagur þess Páll Heiðar Jónsson stjórnar þætti f útvarpssal. 22.00 Fréttir. 22.15 Húsnæðis- og byggingarmál ólafur Jensson ræðir við Svavar Páls- son og Guðmund ó. Guðmundsson, framk'æmdastjóra Sementsverk- smiðju rfkisins, um fslenzka sementið. 22.35 Bob Dylan I Þ A skfanum FÖSTUDAGUR 8. nóvember 1974 20.00 F rét ti r og veðu r 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar 20.40 Eldfuglaeyjarnar Fyrsti flokkur fræðslumyndaflokks um dýralff og náttúrufar á Trinidad f Vestur-lndfum og á nærliggjandi eyj- um. Risaskjaldbakan Þýðandi og þulur Gfsli Sigurkarlsson. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 21.10 Frá Listahátfð '74 * Ómar Valdimarsson les úr þýðingu sinni á ævisögu hans eftir Anthony Scaduto og kynnir hljómplötur; annar þáttur. 23.20 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 9. nóvember 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55 Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05. Veðrið og við kl. 8.50: Borgþór Jónsson veðurfræðingur flytur þáttinn. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Sigrfður Schiöth les „Búkollubrag" eftir Sigurbjörn Sveinsson. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristfn Sveinbjörnsdóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 Iþróttir Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.15 Að hlusta á tónlist Atli Heimir Sveinsson flytur annan fræðsluþátt sinn. 15.00 Vikan framundan Magnús Bjarnfreðsson kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Islenzkt mál Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag. flytur þáttinn. 16.40 Tfuátoppnum öm Petersen sér um dægurlagaþátt 17.30 Framhaldsleikrit barna og ungl- inga: „Á eyðiey*4 eftir Reidar Anthonsen samið upp úr sögu eftir Kristian Elster. Annar þáttur. Þýðandi Andrés Kristjánsson. Leik- stjóri: Brfet Héðinsdóttir. Persónur og leikendur: Eirfkur/K jartan Ragnarsson, And- rés/Randver Þorláksson, Jörgen/ Söl- veig Hauksdóttir. 18.00 Söngvar f léttum dúr. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Tveirátali Valgeir Sigurðsson ræðir við Hrafnkel Helgason yfirlækni. 20.00 „Nú haustar að“ Ingibjörg Þorbergs syngur eigin lög við undirleik Lennarts Hannings frá Svfþjóð. 20.30 „Hin mikla freísting", smásaga eft- ir Þorvarð Helgason. Höfundur les. 21.15 Hljómplöturabb Þorsteinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok. * Einleikur á pfanó f Háskólabfói 9. júnf. Daniel Barenboim leikur Impomtu f Ges-dúr, op. 51, og Scherzo nr. 3 f cis-moll, op. 59 eftir Chopin. 21.30 Lögregluforinginn Þýzkur sakamálamyndaflokkur. Á elleftu stundu Þýðandi Auður Gestsdóttir. 22.25 Kastljós Fréttaskýringaþáttur. Umsjónarmaður Eiður Guðnason. 23.00 Dagskráriok i fjclmiélum Risaskjaldbakan — tónlist eftir Chopin Vmislegt er bitastætt ( sjónvarpsdagskránni í kvöld. Fyrsta atriði að loknum fréttum og veðurfregnum er fræðslumynd um náttúru og dýralff á Trfnidad. Hér er um að ræða fyrstu mynd f flokki fræðslumvnda frá Vestur-Indfum, og fjallar hún um risaskjaldbök- una. Þá verður sjónvarpað frá Listahátfð ’74. Það er Daniel Baren- boim, sem leikur pfanóverk eftir Chopin. Þeir, sem rffast og skammast að jafnaði út f sfgilda tónlist, ættu að gera sér það ómak að hlýða á þessa tónlist, þvf að Chopin hefur alla jafna þótt aðgengilegt tónskáld þeim, sem þykjast annars ekki bera mikið skynbragð á tónlist. Chopin var ákaflega rómantfskur tónsmiður, angurvær og hugljúfur á köflum, en eldfjörugur í hugsjónahit- anum þar fyrir utan. Tónlist hans hefur sumum þótt ofhlaðin og útflúruð, sem stafar lfklega af því, að Chopin var frábær pfanóleik- ari og fingrafimur mjög. Svipuð einkenni komu fram hjá Franz Lizst, sem á sfnum tfma var frægari fyrir hljóðfæraleik sinn en tónsmfðarnar sjálfar. Verkin, sem Barenboim leikur í kvöld, eru Scherzo og Impromtu, en þau eru meðal alvarlegri verka tónskáldsins, ef svo má að orði komast, meðan danslögin eins og valsar og marzúrkar voru hliðstæð dægurtónlist vorra tfma. Um Daniel Barenboim þarf vart að fara mörgum orðum — svo kunnur og vinsæll er hann hér á landi. Tónleikarnir fóru fram f Háskólabfói 9. júnf s.l.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.