Morgunblaðið - 08.11.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1974
5
Sjötugur í dag:
Halldór Jónsson
Leysingjastöðum
ungmennafélögunum. Hann var
formaður ungmennasambands A-
Hún. um skeið, eftir að starfsemi
sambandsins hafði legið i dvala í
nokkur ár. Sfðan hafa hlaðizt á
hann flest þau félagsmálastörf í
sveit og héraði, sem nöfnum tjáir
að nefna, enda skal hér aðeins
talið það helzta. Hann sat i
hreppsnefnd um árabil og hefur
verið form. búnaðarfélags mjög
lengi. Hann hefur setið flesta full-
trúafundi' í héraðinu í búnaðar-
samtökum og samvinnufélögun-
um um áratugi og átti um alllangt
skeið sæti í stjórn Kaupfélags
Húnvetninga. Hann á sæti í stjórn
Landssambands veiðifélaga og á
aðalfundum Stéttarsambands
bænda.
Halldór hefur starfað mikið i
samtökum Sjálfstæðismanna og
var m.a. i mörg ár form. kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i
Norðurlandskjördæmi vestra.
Eigum við Sjálfstæðismenn hon-
um mikið að þakka fyrir störf
hans á þeim vettvangi.
Halldór er málsnjall maður,
bæði í ræðu og riti og nýtur þar
skarprar greindar, íhygli og marg-
víslegrar þekkingar. Hann hefur
ákveðnar skoðanir og heldur fast
við þær ef í odda skerst, en reyn-
ir þó oftar að laða menn til sátta
um sameiginlega niðurstöðu.
Hann er þrautreyndur félags-
málamaður, sem mörgu góðu máli
hefur lagt lið.
Halldór er höfðingi heim að
sækja, léttur i máli og bregður á
leik í orðræðum, ef svo býður við
að horfa. Hann er hagorður vel
og hafa birtzt eftir hann kvæði i
tímaritum. Bókasafn hans er meó
því stærsta, sem sést í einstakl-
ingseigu. Hann er óvenjulega víð-
lesinn bændahöfðingi, sem hefur
aflað sér mikillar þekkingar, ekki
sízt á tungumálum, bókmenntum
og sögu.
Halldór hefur ekki búið einn.
Kona hans, Oktavía Jónasdóttir
frá Harðarnúpi, er góð kona,
rausnarleg húsfreyja og víkingur
að dugnaði. Þau hjónin eignuðust
einn son, Jónas bónda á
Leysingjastöðum, sem fórst af
slysförum fyrir rúmu ári siðan.
Þá þungu raun hafa þau borið
með einstakri hetjulund. Þau ólu
einnig upp fósturdóttur, Ástu
Gunnarsdóttur, sem gift er og bú-
sett í Reykjavík.
Ég sendi afmælisbarninu inni-
legar árnaðaróskir á sjötugsaf-
mælinu og bið þeim hjónum
blessunar á komandi tíð, um leið
og ég þakka vináttu þeirra og
tryggð við mig og mitt heimili
fyrr og síóar.
Pálmi Jónsson.
Gjafir til elliheim-
ilis á Þingeyri
Samkvæmt upplýsingum Jónas-
ar Ölafssonar, sveitarstjóra Þing-
eyrarhrepps, hafa stórgjafir bor-
izt til væntanlegs elliheimilis á
þessu ári, bæði frá heimamönn-
um og brottfluttum. Eru gjafir
þessar f vörslu Þingeyrarhrepps.
Einar Lárusson, Þingeyri, gaf
til minningar um foreldra sína,
Guðrúnu Helgu Kristjánsdóttur
og Lárus Ágúst Einarsson. —
Ólafur Jóhannesson, Hrafnistu,
til minningar um foreldra og ætt-
ingja, Jóhannes Bjarnason og
Þorbjörgu Ólafsdóttur, Kristinn
Jóhannesson, Ingibjörgu Jó-
hannesdóttur og Kristjönu
Ágústu Jónsdóttur. — Vagn Þor-
leifsson gaf bókasafn sitt allt eftir
sinn dag og hefur þegar afhent
nokkuð af þvf.
Ennfremur hefur hreppsnefnd
Þingeyrarhrepps lagt fram álit-
lega fjárhæð til sama málefnis. Þá
hefur Kvenfélagið Von á Þingeyri
móttekið kr. 100.000,00 sam-
kvæmt ósk Guðmundar J. Sig-
urðssonar, vélsmiðs á Þingeyri, er
lézt á liðnu ári. Var gjöf þessi
afhent nú í haust f minningarsjóð
konu hans til stuðnings elli-
heimilisbyggingu á Þingeyri.
— H.
2Hovt)uuþInþií>
margfnldar
markad uðar
Sjötugur er í dag einn af merk-
ustu bændum Húnavatnsþings,
vinur minn og fóstri, Halldór
Jónsson á Leysingjastöðum í
Þingi. Hann hefur víða komið viö
sögu í sveit og héraði á liðnum
árum og er svo enn. I þessu af-
mælisspjalli verður tæpt á fáu
einu af nokkru handahófi.
Kynni okkar Halldórs hófust, er
hann starfaði um nokkurra ára
skeið, ásamt sinni ágætu konu, á
búi foreldra minna og veitti því
alla forsjá, meðan þau voru lang-
dvölum fjarverandi. Ég var þá á
unglingsaldri og á Halldóri og
þeim hjónum báðum mikið að
þakka frá þeim árum. Teldi ég
mér sæmd að, ef á mér hefði
sannazt hið fornkveðna, að fjórð-
ungi bregói til fósturs. Víst er, að
störf öll voru unnin af kostgæfni-
meó þeim hætti, sem bezt var
talið gegna fyrir foreldra mína.
Mynduðust á þeim árum vináttu-
tengsl milli fjölskyldnanna, sem
ekki hafa rofnað síðan.
Halldór hóf búskap á eignar-
jörð sinni, Leysingjastöðum, vorið
1946. Vann hann þegar á fyrstu
búskaparárunum stórvirki í rækt-
un og byggingum, og breytti jöró-
inni í stórbýli, enda Iandkostir
góðir. Hann er búfræðingur frá
Hvanneyri og virðist sem eðli
ræktunarmannsins hafi verið
runnið honum í merg og blóð.
Auk ræktunarumsvifa á jörð
sinni starfaði hann á fyrri árum
mikið að jarðræktarframkvæmd-
um í héraðinu með verkfærum
þeirrar tíðar. Honum er lagin sér-
stök álúð í samskiptum við skepn-
ur og hefur leyst margan vanda
með kunnáttu sinni i dýralækn-
ingum áður en lærðir menn komu
til sögu í þeim efnum.
Fyrstu félagsmálastörf
Halldórs munu hafa verið unnin í
Þettaeru
Tvær gerðir af mörgum úr okkar frábæru
jakka- og fatalínu — Margar efnisgerðir og litir:
Einnig viljum við vekja athygli á
okkar gífurlega buxnaúrvali úr terelyne & ull
flaueli — denim (bæði burstuðu og óburstuðu)
og tweed. Mörg snið og mjög fallegir litir.
Tókum upp í gær:
KVENPEYSUR í FJÖLMÖRGUM GERÐUM □ HERRAPEYSUR —
MJÖG FALLEGAR □ HERRASKYRTUR OG BINDI □ LEÐURJAKKAR
Á DÖMUR OG HERRA □ BOLI □ MJÓ BELTI □ HERRAVESTI
O.M.FL:
OPIÐ Á MORGUN
— LAUGARDAG
til kl. 12 í öllum verzl. okkar
LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800