Morgunblaðið - 08.11.1974, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1974
2 kg sykurs
209,oo kr.
Stokkhólmi, 7. nóv. NTB.
VERÐ A sykri hækkaði f Svfþjóð
f dag f annað sinn á viku vegna
hækkunar á heimsmarkaðsverði
og er tveggja kílógramma poki nú
kominn upp f 7.74 sænskra krón-
ur eða sem svarar um 209.00 kr.
fsl. Þessi hækkun hefur áhrif á
verðlag ýmissa annarra vöruteg-
unda, sem innihalda sykur, og
hafa t.d. samtök brauðgerðar-
manna þegar farið fram á það við
sænska verðlagseftirlitið, að þeir
fái að hækka verð á framleiðslu
sinni.
Athugasemd um
símabilanir
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
athugasemd frá Fóst- og síma-
málastjórninni út af fréttum um
sfmabilanir í Meðallandi f sam-
bandi við brunann á Melhól I. Þar
segir:
Póst- og símamálastjórnin vill
hér meö upplýsa, að bilun sú, sem
um er talað, olli ekki sambands-
leysi milli bæja í Meðallandi, þar
eð línan hafði ekki slitnað, heldur
var um að ræða, að símtöl heyrð-
ust milli lina.
Það er ennfremur upplýst, að
bóndinn á næsta bæ hringdi strax
um nóttina fimm langar hringing-
ar frá síma sfnum og svöruðu þá
allir bæir samstundis að undan-
skildum einutn. Meðal annarra
svaraði líka á þeim bæ, sem gætir
talsstöðvar Slysavarnafélags Is-
lands. Var talstöðin í lagi og hefði
því mátt ná í Hafnar í Horna-
firði, Vestmannaeyja eða Gufu-
ness og gátu þá þær stöðvar
hringt um sjálfvirka sfmakerfið
til stöðvarstjóra pósts og sfma á
Kirkjubæjarklaustri, sem svar-
ar, þar eð síminn er stilltur inn I
herbergi hans að næturlagi. Hér
má ennfremur benda á, að tal-
stöðvarbílar geta oft komið að
góðum notum í slíkum tilfellum.
— Kína
Framhald af bls. 1
legum samskiptum. „Umfram allt
ætti að standa við það gagn-
kvæma samkomulag, sem tókst í
september 1969 á fundum for-
sætisráðherra hinna tveggja ríkja
— að undirrita skuli sáttmála um
að árásir verði ekki gerðar, valdi
ekki beitt, óbreytt ástand varð-
veitt á landamærunum, komið í
veg fyrir hernaðarárekstra og
bardaga, aðskilnað herliðs á um-
deildum svæðum og lausn allra
landamæradeilna með viðræð-
um.“
— Magakrabbi
Framhald af bls. 40
frá Alþjóða krabbameinsrann-
sóknastöðinni í Lyon og er Hrafn
Tulinius læknir, sem þar vinnur,
tengiliður Krabbameinsfélagsins
við þá stofnun.
Þá kom fram á blaðamanna-
fundinum hjá Krabbameinsfélagi
Islands í gær, að frumuskoðun fer
öll fram f leitarstöð Krabbameins-
félagsins. I því sambandi gat
Ólafur Bjarnason þess, að nýlega
væri kominn frá Bandaríkjunum
ungur sérfræðingur á þessu sviði,
Gunnlaugur Geirsson', læknir, og
er hann nú tekinn til starfa hjá
félaginu. Mjög hefur skort á að-
stö^u til frumurannsókna á öðr-
um tegundum krabbameins en
leghálskrabbameini. Ætlunin er,
að aðstöðu til slikra rannsókna
verói komið upp á vegum Rann-
sóknastofu Háskólans í meina-
fræði, þar sem Gunnlaugur er
fastráðinn starfsmaður. Er ný-
byrjað að reisa bráðabirgðahús-
næði til þess að bæta úr húsnæðis-
skorti Rannsóknastofnunarinnar
og er ætlunin, að þessari starf-
semi verði komið þar fyrir. Verð-
ur þar með bætt úr mjög til-
finnanlegum skorti á rannsókna-
tækni,. sem lengi hefur verið
beðið eftir.
EM í bridge:
Enn tapa
Islendingar
1 fyrradag spilaði fslenzka
sveitin við gestgjafana, Israeis-
menn, og tapaði þeim leik naum-
lega, 9—11. Um kvöldið var svo
áttunda umferðin spiluð og voru
mótherjarnir þá Þjóðverjar.
Lauk þeim leik einnig með
naumu tapi, 9—11.
Svfþjóð og Italfa berjast um
efsta sætið og hafa bæði löndin
hlotið 123 stig. 1 þriðja sæti var
Portúgal með 103 stig. Franska
sveitin var komin f fjórða sæti og
brezka sveitin er einnig að ná upp
snúningnum og var komin ( sjö-
unda sæti, en þessar sveitir voru
taldar með sterkari svcitunum
fyrir mótið.
Ekkert hafði frétzt af mótinu í
gær.
— Endurmeta
Framhald af bls. 40
Halldór kvaðst sjálfur vera þvi
hlynntur að slíkt endurmat á
neyzlustigum þjóðarinnar færi
fram, enda væru nú að hans dómi
ýmsir fráleitir liðir inni í vísitöl-
unni, eins og laxveiðar og gisting
á hóteli. „Þetta verður vafalaust
eitt af því, sem nú verður tekið til
athugunar hjá ríkisstjórninni,"
sagði Halldór.
— Norðmenn
Framhald af bls. 1
lýsti. Þykir þessi mikli áhugi
sýna, að olíufélögin telji næsta
víst, að meiri olíu sé að finna í
Norðursjó. Norsk stjórnvöld hafa
þá stefnu að fara sér hægt við
olíuleit á landgrunninu við Noreg
og hafa til þessa’einungis veitt
fimm leitarheimildir i átta hólf-
um. Hvert norskt leitarhólf er
fimm hundruð ferkílómetrar að
stærð.
Eitt af skilyrðum stjórnarinnar
fyrir leyfisveitingu var að borun
skyldi hefjast þegar á næsta ári.
Hlutur norska rfkisins í þeirri
olíu, sem finnast kann, verður að
minnsta kosti 50% og allt upp í
75% eftir því magni, sem finnst.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
bætti við, að enn stæðu opnir
möguleikar á að þoka málunum í
samkomulagsátt.
Samstarfsmaður Kissingers
sagði, að ísraelsmenn yrðu að
taka afstöðu til þess hvort þeir
ættu að semja við PLO eða Huss-
ein en bætti því við, að það væri
framtiðarvandamál og israels-
menn þyrftu ekki að semja við
PLO strax.
— Söluskattur
Framhald af bls. 16
sinni yfir því, sem áunnizt hefur á
sviði garðyrkjutilrauna.
í fjórða lagi var gerð eftirfar-
andi samþykkt varðandi Garð-
yrkjuskóla rikisins: „Aðalfundur-
inn leyfir sér að vekja athygli á
þvi að enn er ekki lokið uppbygg-
ingu garðyrkjuskólans á Reykj-
um, sem hafizt var handa um árið
1961. Þessi dráttur er með öllu
óviðunandi og sýnilegt er aó
þegar á næsta ári verður ekki
unnt að taka inn nemendur og
framfylgja kennslu samkvæmt
gildandi reglugerð skólans. Það
er því eindregin áskorun aðal-
fundar Sambands garðyrkju-
bænda til stjórnvalda, að Garð-
yrkjuskólinn fái þegar nægilegt
fjármagn til þess að geta lokið
nauðsynlegum framkvæmdum,
sem þegar hefur orðið allt of
langur dráttur á vegna þess
hversu árlegar fjárveitingar hafa
verið ófullnægjandi."
Núverandi formaður Sambands
garðyrkjubænda er Emil Gunn-
laugsson, Laugarlandi Hruna-
mannahreppi.
(Frá Sambandi
garðyrkjubænda).
— Tékkneskir
stúdentar
Framhald af bls. 2
horn nokkurra og svör Tékkanna
við þeim:
Spurn.: Hver eru tengsl IUS og
tékkneskra stúdentasamtaka?
Svar: Tékkneskir stúdentar
stofnuðu IUS og samtökin hafa
alltaf haft höfuðstöðvar sínar i
Prag.
Spurn.: Mótmæltu tékknesku
stúdentasamtökin og IUS innrás
Rússa í Tékkóslóvakíu árið
1968?
Svar: Við erum ekki hingað
komnir til að svara öðrum spurn-
ingum en þeim, sem eru viðkom-
andi erindi okkarhingað.
Fréttamenn gerðu sig ekki
ánægða með þessa afgreiðslu og
ítrekuðu spurninguna, en Tékk-
arnir bentu þá á, aó hægt væri, að
fá upplýsingarit hjá tékkneska
sendiráðinu hér. Ennfremur gætu
þeir útvegað samþykktir IUS þar
sem fjallað væri um þetta mál.
Spurn.: Hversu margir sovézkir
hermenn eru nú I Tékkóslóvakíu?
Svar: Við vitum það ekki.
Spurn.: Tékknesk yfirvöld hafa
lýst þvi yfir, að engir sovézkir
hermenn hafi verið i landinu þeg-
ar innrásin var gerð. Hvenær
hafði sovézk herseta verið þar síð-
ast?
Svar: Við vitum það ekki, og við
munum ekki svara fáránlegum og
ómálefnalegum spurningum. Við
erum á þessum fundi til þess að
gefa upplýsingar um starfsemi
tékkneskra stúdenta.
Við þessi svör var Tékkunum
bent á, að fréttamenn væru komn-
ir á fundinn 1 því skyni að fá svör
við spurningum um efni, sem þeir
teldu áhugaverð, en ekki til að
láta mata sig á upplýsingum, völd-
um af þeim, sem þarna ættu að
sitja fyrir svörum.
Spurn.: Jiri Pelikan, sem lengi
var formaður IUS, á vini og kunn-
ingja hér á landi, sem eflaust
hefðu gaman af að frétta af hon-
um. Hvar býr hann nú og hvað
starfar hann?
Svar,: Jiri Pelikan er ekki leng-
ur búsettur í Tékkóslóvakíu.
Spurn.: Hvenær fór hann þaó-
an?
Svar: Arið 1968.
Spurn.: Hvað starfaði hann í
Tékkóslóvakíu árið 1968?
Svar: Hann var forstjóri tékk-
neska sjónvarpsins.
Spurn.: Hafið þið lesið „Játn-
inguna“, endurminningar
Arturs London, fyrrverandi
varautanríkisráóherra Tekkósló-
vakíu, eða séð kvikmyndina, sem
byggð var á bókinni.
Svar: Nei, við höfum hvorki les-
ið bókina né séó kvikmyndina, og
höfum heldur ekki áhuga.
Spurn.: Var bókin gefin út I
Tékkóslóvakíu árið 1968?
Svar: Við vitum það ekki — það
koma svo margar bækur út, að
það er ekki hægt að fylgjast
nákvæmlega með öllu því, sem
gerist i bókaútgáfumálum.
Spurn.: Eruð þið hreyknir af
Slansky-réttarhöldunum?
Svar: Við svörum ekki slíkum
spurningum. Þetta eru mál, sem
við höfum ekki minnsta áhuga á.
Spurn.: Er ekki dálítið ein-
kennilegt, að þið skulið ekki hafa
áhuga á slíkum málum? Sá mað-
ur, sem hér um ræðir, var ráð-
herra í landi ykkar, og auk þess
var hann annar þeirra tveggja,
sem lifðu af Slansky-réttarhöldin
og afleiðingar þeirra.
Þegar hér var komið sögu var
farið að síga mjög í hina
tékknesku stúdentaleiðtoga, og
lögóu þeir mjög að fréttamönnum
að spyrja „málefnalegra“ spurn-
inga.
Spurn.: Hér var áðan spurt
hvort þið væruð hreyknir af
Slansky-réttarhöldunum. Það er
kannski ástæða til að umorða
þessa spurningu og spyrja um álit
ykkar á Slansky-réttarhöldunum.
Svar: Við munum ekki svara
þessari spurningu.
Þegar hér var komið leystist
fundurinn upp í fyrirlestur
Porchazka um frið, vináttu og
starf tékkneskra stúdentasam-
taka, en þar sem allt var áður
fram komið, sem máli skipti um
þau mál, hvarf blm. Mbl. af fund-
inum, og kann ekki að segja sögu
þessa lengri.
Eftir fundinn hafði Mbl. sam-
band við Guðnýju Bjarnadóttur,
formann utanríkismálanefndar
Stúdentaráðs, og spurði hvort
Stúdentaráð væri aðili að IUS.
Guðný kvað það ekki vera, en
hins vegar hefði verið sótt um
inntöku í samtökin. Tveir íslenzk-
ir stúentar hefðu farið á 11. AIls-
herjarþing IUS, sem haldið var í
Pfag í apríl s.l., og hefðu þeir lagt
drög að samningi um inngöngu
í samtökin.
Mbl. spurði Guðnýju hvort
heimsóknir sem þessar væru tíðar
til stúdenta hér, en hún sagði, að
síðasta heimsóknin hefði verið í
marz sJ. þegar IUS sendi hingað
Araba.
— Súráls-
verksmiðja
Framhald af bls. 40
vinnslu. Ársafköstin eru þó I báð-
um tilfellum langt umfram það
magn, sem nú er notað til álfram-
leiðslunnar hér á landi en með
aukinni álframleiðslu hér innan
lands, sem raunar eru hafnar við-
ræður um, kynni rekstur minni
verksmiðjunnar að koma mjög til
álita. I síðara dæminu er hins
vegar gert ráð fyrir töluvert mikl-
um útflutningi á súráli til ýmissa
nágrannalanda, þar sem álfram-
leiðsla er stunduð, en hingað til
hefur súrálsvinnsla svo til ein-
göngu verið bundin við þau lönd
þar sem boxíð er unnið úr jörðu.
Sveinn benti á, að þegar þetta mál
kæmist frekar I brennidepil
þyrfti að fara fram mun nákvæm-
ari könnun á öllum hliðum þess,
því að á tímum örra breytinga
væru stöðugt að koma upp nýjar
aðstæður,. er áhrif gætu haft á
þessar forsendur. Hann kvað
boxiðlöndin t.d. hafa stofnað með
sér samtök í líkingu við hags-
munasamtök oliuríkjanna og þaó
væri yfirlýst stefna þeirra að
halda súrálsvinnslunni sem mest
innan sinna vébanda, ekki sizt til
að geta ráðið verðlaginu. „Tíminn
einn getur þannig skorið úr því
hvort ástæða verður til að aðhaf-
ast meira í þessu máli — hvort
hér er grundvöllur fyrir slíkri
verksmiðju samhliða aukinni
innanlandsframleiðslu á áli,“
sagði Sveinn.
— Peningagjöf
Framhald af bls. 2
rétta fram, í gerð þess skjóls, sem
verið er að gera taugaveikluðum
börnum. Henni fylgir virðing mín
til ykkar, er verkið vinnið, og
einnig áskorun frá mér til þeirra,
er reykja ekki, um að gera eins.
Upphæðina miðaði ég við eyðslu
reykingarmanns á altari nautnar
sinnar í 2 mánuði.“
Eitthvað á þessa leið hljóðuðu
orð konu, sem kom á skrifstofu
mína í dag. Hún sagði ekki til
nafns, heldur bað, að hún yrði
kölluð „þakklát kona“.
Virðingarfyllst,
Sigurður Haukur Guðjónsson.
— Ræða Geirs
Framhald af bls. 17
skeið mikilvægur vettvangur
margskonar menningarlífs.
Norrænu eldfjallastöðina í
Reykjavík, sem vígó var til starfa
nú i haust og á vonandi eftir að
vera merkileg stöð vísindastarf-
semi á þessu sviði ekki eingöngu í
þágu Norðurlandanna heldur og
framlag þeirra allra til alþjóðlegr-
ar vísindalegrar samvinnu.
öll þessi mál sýna og sanna
hinum almenna borgara í landi
mínu gildi norrænnar samvinnu á
áþreifanlegan hátt.
Það hlýtur að vera kappsmál
okkar allra, að áhugi manna Sé
sem mestur á störfum okkar og
þau komi fram í sem flestum þátt-
um norræns þjóðlífs.
— Uthaldið
Framhald af bls. 38
Sigurbergur og Pétur allvel út úr
vörninni, en sá síðarnefndi er
feikilegur baráttugarpur og gefur
sinn hlut ekki fyrr en í fulla hnef-
ana, eða vel það.
I sóknarleik sinum voru
Framarar tæpast nógu ógnandi.
Þar var Björgvin einna atkvæða-
mestur — þær voru ekki allar
vandaðar linusendingarnar sem
hann tók á móti. Það má mikið
vera ef nokkur íslenzkur hand-
knattleiksmaður hefur eins gott
grip og Björgvin, — og hreyfingar
hans á línunni eru sífellt ógnandi
og opna fyrir skyttur liðsins.
' I STUTTU MÁLI:
Laugardalshöll 6. nóvember
íslandsmótið 1. deild
URSLIT: Fram — Ármann
16—12 (6—7)
Gangur leiksíns:
Mín. Fram Armann
2. 0:1 Jón
3. 0:2 Hörður K.
4. Björgvin 1:2
7. 1:3 Björn (v)
11. 1:4 Pétur
11. 1:5 Hörður K.
13. Pálmi (v) 2:5
16. Pálmi (v) 3:5
20. Björgvin 4:5
22. 4:6 Björn
23. Pétur 5:6
26. Arnar 6:6
27. Hálfleikur 6:7 Jón
34. 6:8 Stefán
34. Pálmi (v) 7:8
38. Pálmí 8:8
áa Stefán 9:8
40. 9:9 Ragnar
41.Arni 10:9
12. 10:10 Hörður H.
46.Guðmundur (v) 11:10
50. 11:11 Björn (v)
55.Gúðmundur 12:11
55.Björgvin 13:11
56.Pétur 14:11
57. 14:12 Jón
59.Pétur 15:12
60.Björgvin 16:12
Mörk Fram: Björgvin
Björgvinsson 4, Pálmi Pálmason
4, Pétur Jóhannesson 3,
Guðmundur Sveinsson 2, Arnar
Guðlaugsson 1, Stefán Halldórs-
son 1, Árni Sverrisson 1.
Mörk Ármanns: Jón Astvalds-
son 3, Hörður Kristinsson 2,
Björn Jóhannesson 3, Hörður
Harðarson 1, Pétur Ingólfsson 1,
Stefán Hafstein 1, Ragnar Jóns-
son 1,
Brottrekstur af velli: Pétri
Jóhannessyni var vísað tvívegis af
velli i 2 mín., Björgvin Björgvins-
syni I 2 mín. og Ragnari Jónssyni,
Ármanni í 2 mín.
Misheppnuð vitaköst: Ragnar
Gunnarsson varði vítaköst frá
Pálma Pálmasyni á 5. mín. og 43.
min. Björn Jóhannesson skaut í
þverslá og út á 35. mín.
Dómarar: Magnús V. Pétursson
og Valur Benediktsson. Þeir
dæmdu leikinn nokkuð vel
framan af, en þegar harka tók að
færast í hann í seinni hálfleik
höfðu þeir ekki nægjanlega góð
tök á honum og var of mikið ósam-
ræmi í dómum þeirra.
— stjl.
LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson 3, Guðmundur Sveinsson 2,
Sveinn Sveinsson 2, Björgvin Björgvinsson 4, Arni Sverrisson 2,
Stefán Þórðarson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Pétur Jóhannes-
son 3, Arnar Guðlaugsson 2, Pálmi Pálmason 2, Þorgeir Pálsson 1.
LIÐ ARMANNS: Ragnar Gunnarsson 4, Olfert Nábye 1, Stefán
Hafstein 2, Björn Jóhannesson 2, Ragnar Jónsson 1, Hörður
Harðarson 2, Pétur H. Ingólfsson 2, Jón Astvaldsson 2, Hörður
Kristinsson 2, Kristinn Ingólfsson 1, Jón Hermannsson 2.