Morgunblaðið - 08.11.1974, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1974
Athugasemd heilbrigðisráðu-
ney tis vegna Hlaðgerðarkots
VEGNA viðskipta Filadelfíusafn-
aðarins við heilhriðisráðuneytið f
sambandi við fyrirhugaðan
rekstur dvalarheimilis fyrir
drykkjusjúka að fllaðgerðarkoti
og einkum vegna greinar Georgs
Viðars Björnssonar í Tímanum
hinn 18. október sl., telur ráðu-
neytið nauðsynlegt að upplýsa
eftirfarandi:
I maímánuði sl. átti Einar J.
Gíslason viðtal við ráðuneytis-
stjóra heilbrigðisráðuneytisins og
spurðist fyrir um gildandi reglur
um starfsemi og rekstur heimila
fyrir drykkjusjúka, og í fram-
haldi af því viðtali sendi hann
bréf til ráðuneytisins hinn 24.
mai, þar sem skýrt var frá því, að
Hvítasunnusöfnuðurinn hefði
mikinn áhuga á að hasla sér víðari
völl með starfsemi sinni en áður
var með svokallaðri Samhjálp
Hvítasunnumanna og hyggðist í
þvi skyni kaupa Hlaðgerðakot í
Mosfellssveit og koma þar á stofn
heimili fyrir drykkjusjúka.
Tveim spurningum var sérstak-
lega beint til ráðuneytisins í
þessu samband:
1. Mundi heimili fyrir drykkju-
sjúka rekið i Hlaðgerðarkoti falla
undir sjúkrahúslög?
2. Má reikna með fjárveitingu
úr Gæsluvistarsjóði til starfsem-
innar í Hlaðgerðarkoti?
Fyrrgreint bréf barst ráðuneyt-
inu 28. maí óg því var svarað 30.
maí, þar sem skýrt var frá því, að
ráðuneytið mundi óska eftir um-
sögn héraðslæknisins í Álafoss-
héraði og landlæknis um rekstur
heimilis fyrir drykkjusjúka að
Hlaðgerðarköti í Mosfellsveit og
að á álitsgerð þeirra mundi
byggjast umsögn ráðuneytisins og
svar við *þeirri spurningu, hvort
heimili fyrir drykkjusjúka að
Hlaðgerðarkoti mundi falla undir
sjúkrahúslög.
Um hitt aðalatriðið, hvort
reikna mætti með fjárveitingu úr
Gæsluvistarsjóði, var bent á að
gert er ráð fyrir að fé Gæslu-
vistarsjóðs sé varið til fjárfest-
ingar vegna stofnana fyrir
drykkjusjúka, en ekki til
reksturs, og jafnframt skýrt frá
því, að ekki hafi verið gert ráð
fyrir fé úr Gæsluvistarsjóði til
þessara framkvæmda á árinu.
Ráðuneytið lofaði hins vegar að
taka málið upp við gerð næstu
fjárlaga.
1 samræmi við þetta skrifaði
ráðuneytið samdægurs héraðs-
lækninum í Alafossiæknishéraði,
Friðrik Sveinssyni, Reykjalundi,
Mosfellssveit, og landlækni, þar
sém skýrt var frá beiðni Fíladel-
fíusafnaðarins og var óskað eftir
aó þessir embættislæknar tækju
málið til athugunar og létu ráðu-
neytinu í té álitsgerð um málið,
einkum um það, hvort húsakynni
og staðsetning mundu henta þess-
ari starfsemi.
7. júní 1974 barst ráðuneytinu
bréf frá Friðrik Sveinssyni,
héraðslækni, þar sem hann skýrði
frá því, að hinn 5. júni hefði hann
fariö ásamt heilbrigðisfulltrúa
Dansleikur
\
í kvöld
Haukar sjá um fjörið.
Húsið sér um allar
veitingar.
F.U.J. Keflavík.
Einari I. Sigurðssyni, að Hlað-
gerðarkoti og skoðað húsakynni
og aðbúnað. Hann taldi að húsa-
kynni litu vel út en ýmislegt
þarfnaðist lagfæringar og benti á,
að viðkomandi aðila baferi að
sækja um starfræksluleyfi til
heilbrigðisnefndar Mosfells-
hrepps og mundi nefndin þá taka
endanlega afstöðu til umsóknar-
innar.
Svar landlæknis dags. 9. sept.
barst ráðuneytinu hinn 10.
september og í því segir, að land-
læknir mæli með því að umbeðið
leyfi verði veitt að uppfylltum
skilyrðum, sem greind eru i bréfi
heilbriðgðisnefndar Mosfells-
hrepps frá 2. september, sem
fylgdi meó í ljósriti, en í þessu
bréfi er skýrt frá því, að heil-
brigðisnefnd Mosfellshrepps hafi
mælt með ieyfisveitingunni, að
því tilskyldu að lagfæringar sem
tilgreindar eru i bréfinu verði
lokið að fullu fyrir 1. nóvember
þ.á.
Þær lagfæringar, sem nefndin
taldi að gera þyrfti voru fyrst og
fremst í sambandi við bætta
geymslu á neysluvörum, lagfær-
ingu á innréttingum i eldhúsi,
breytingu á loftræstingu í eld-
húsi, og lagfæringu á umbúnaði
sorps.
í samræmi við bréf landlæknis
frá 9. sept. skrifaði ráðuneytið
Einari Gíslasyni, Filadelfíu-
sögnuðinum, Hátúni 2, Reykjavík,
bréf hinn 11. sept. 1974, þar sem
vitnað er til bréfsins frá 24. maí
og skýrt frá þeim athugunum,
sem ráðuneytið hafði látið gera í
sambandi við umsókn um rekstur
heimilis fyrir drykkjusjúklinga í
Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit.
Ráðuneytið veitti með þessu
bréfi Fíladelfíusöfnuðinum leyfi
til að reka hæli fyrir drykkju-
sjúka að Hlaðgerðarkoti í Mos-
fellssveit með þeim skilyrðum,
sem landlæknir og heilbrigðis-
Ný póstafgreiðsla
í Garðahreppi
MANUDAGINN 12. nóvember
nk. flytur póstafgreiðslan 1 Garða-
kauptúni f nýtt húsnæði að Goða-
túni 2. Jafnframt breytist dag-
legur afgreiðslutími og verður kl.
9—17 alla virka daga nema
laugardaga kl. 10—12.1 hinu nýja
húsnæði verður einnig almenn
sfmaafgreiðsla.
Múrari
Get bætt við mig múrverki og
flisalögnum. Upplýsingar i sima
52938.
Bréfhirðing var fyrst sett á
laggirnar í Garðahreppi árið 1950.
Var það í Silfurtúni, en 1958 var
hún flutt að Ásgarði. Árið 1964
var bréfhirðingin gerð að póstaf-
greiðslu og flutt í húsnæði það, er
hún hefur verið í fram að þessu.
Þórður Reykdal veitti póstaf-
greiðslunni forstöðu til 1. janúar
1973, Jens Pálsson til 1. des. sama
ár, en núverandi stöðvarstjóri er
Dýrmundur Ólafsson.
Við flutninginn í hið nýja hús-
næði batna mjög aðstæður bæði
viðskiptavina og starfsfólks, en
gamla húsnæðið var fyrir löngu
orðið ófullnægjandi.
nefnd höfðu sett, og var gert ráð
fyrir að þær lagfæringar, sem til-
greindar voru, yrðu komnar til
framkvæmda fyrir 1. nóvember
næstkomandi og var leyfið veitt
til eins árs til reynslu í samræmi
við tilmæli þeirra aðila, er leitað
var til.
Afrit af þessu bréfi ráðuneytis-
ins var sent til heilbrigðisnefndar
Mosfellssveitar og skrifstofu
landlæknis.
Ráðuneytið hefur síðan beðió
staðfestingar á því, að fyrrgreind-
ar breýtingar hafi komist til fram-
kvæmda og í simtali við land-
lækni í dag (21. okt. 1974) upp-
lýsti hann að hann hefði ekki
fengið staðfestingu á því, að fyrr-
greindar breytingar hefðu verið
gerðar.
Ráðuneytið hefur því litið svo á,
aóiskilyrðiþess fyrir leyfisveiting-
unni hafi ekki verið uppfyllt, og
hefur því enn ekki ritað sjúkra-
tryggingadeild Tryggingastofn-
unar rfkisins eða Daggjaldanefnd
sjúkrahúsa um málið.
Þessu til viðbótar má geta þess,
að enda þótt ekki hafi verið ætlað
fé úr Gæsluvistarsjóði á þessu ári
til framkvæmda á vegum Ffladel-
ffusafnaðarins, þá ákvað ráðherra
hinn 10. okt. að veita Filadelfíu-
söfnuðinum styrk til þessarar
starfsemi kr. 300.000.00, og var
þeirri upphæð ávísað úr Gæslu-
vistarsjóði til Einars Gfslasonar
frá ráðuneytinu þann sama dag.
Þær upplýsingar, sem hér hafa
verið færðar fram, sýna glögglega
að allar aðdróttanir aðstandenda
Filadelfíusafnaðarins, um að
ráðuneytið hafi tafið framgang
málsins, hafa ekki við rök að
styðjast, þvert á móti hefur öll
afgreiðsla málsins í ráðuneytinu
gengið viðstöðulaust og fullnaðar-
afgreiðsla þess bíður þar til þau
skilyrði, er ráðgjafar ráðuneytis-
ins lögðu til um rekstrarleyfi,
hafa verið uppfyllt.
Þar að auki hefur verið veitt fé
úr Gæsluvistarsjóði til að mæta
þeim kostnaði, er fyrrgreindar
kröfur um breytingar höfðu í för
með sér.
Fyrir hönd ráðherra
Páll Sigurðsson.
Opið til kl. 10 í kvöld ~i—
/\/
(l/- t- » i . [11 11
Cr Sími-22900 Laugaveg 26
Atvinna óskast
Ungur málarameistari óskar eftir fastri vinnu, helzt við máln-
ingu eða eftirlit með málningarvinnu. Önnur vinna kemur til
greina. Upplagt tækifæri fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Þeir, er áhuga hafa leggi tilboð inn á afgr. Mbl. merkt: „8761"
fyrir 1 6. nóv.
Atvinnurekendur
Ung kona óskar eftir fjölbreyttu starfi. Er vön almennum
skrifstofustörfum, bréfaskriftum og afgreiðslustörfum. Margt
kemur til greina.
Tilboð óskast send Mbl. fyrir 13. þ.m. merkt: „Starfsreynsla
— 8760."
Atvinna óskast
Ungur maður óskar eftir atvinnu. Er
reglusamur, hefur bílpróf.
Uppl. í síma 41064 eftir kl. 5.
Innheimta —
Bílpróf
Viljum ráða röska og ábyggilega stúlku til
innheimtu og skrifstofustarfa e.h. Þarf að
hafa bílpróf.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 12 þ.m. merkt:
5382.
Vandvirk stúlka
vön jakka-, kápu- eða dragtasaumi ósk-
ast, hálfan eða allan daginn.
Sævar Karl Ólason, klæðskeri,
Hafnarstræti 22,
sími 27727.
Bifreiðastjóri
Bifreiðastjóri óskast nú þegar. Aðeins
reglusamur og stundvís maður kemur til
greina.
Cudo-Gler h. f.,
Skúlagötu 26.
Ungur reglusamur
maður
óskar eftir vinnu, margt kemur til greina.
Hefur unnið í mörg ár sem matsveinn.
Hefureinnig meirapróf.
Uppl. í síma 50964.
Vélvirkjar
óskast
Landssmiðjan