Morgunblaðið - 08.11.1974, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.11.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÖVEMBER 1974 29 Nýjung á Akureyri: „Opið hús” fyrir aldraða FIMMTUDAGINN 14. nóvember næstkomandi hefst ný starfsemi hjá Félagsmálastofnun Akur- eyrar. Gera á tilraun með að hafa „opið hús“ fyrir aldraða f veit- ingasal Hótels Varðborgar og er ætlunin að hafa opið þar frá kl. 15 til 19 á hverjum fimmtudegi. Aldrað fólk getur þá komið þar saman og spjallað, fengið sér kaffi, spilað eða teflt og Iitið f blöð og tímarit. Gestum „opins Kröflunefnd fær aðsetur á Akureyri MEÐ BRÉFI iðnaðarráðuneytis- ins, dags. 21. júní sl. skipaði þá- verandi iðnaðarráðherra nefnd til þess að undirbúa jarðgufuvirkjun við Kröflu eða Námafjall í Suður- Þingeyjarsýslu, í samræmi við lög nr. 2110. april 1974. Formennska i nefndarstarfinu var þá falin Páli Lúðvíkssyni, verkfræðingi. Hefur hann nú ósk- að að vera leystur frá því starfi en jafnframt sitja áfram i nefndinni. Iðnaðarráðherra, Gunnar Thoroddsen, hefur því hinn 5. nóvember skipað Jón G. Sólnes, alþingismann, er sæti á fyrir í nefndinni, formann Kröflunefnd- ar og framkvæmdastjóra. Lögð er á það sérstök áherzla, að hraðað verði eins og frekast er unnt tæknilegum og fjárhags- legum undirbúningi Kröflu- virkjunar. Skal Kröflunefnd hafa aðsetur á Akureyri. (Frá Iðnaðarráðuneytinu). 5 í stjórn Rafmagns- veitna ríkisins I MÁIMANUÐI síðastiiðnum skipaði Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra þriggja manna stjórn Rafmagnsveitna ríkisins til fjögurra ára þá Helga Bergs, bankastjóra formann, Tryggva Sigurbjörnsson verkfræðing og Björn Friðfinnsson framkvæmda- stjóra. Með lögum frá 17. september sl. var ákveðið, að í stjórninni skyldu vera fimm menn. Samkvæmt því hefur Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra nú skipað alþingismennina Jón Árnason og Pálma Jónsson til þess að taka sæti í stjórn Rafmagnsveitna rikisins. húss“ verður allt að kostnaðar- lausu nema veitingar, en verði á þeim verður stillt I hóf. Þessa dagana stendur yfir nám- skeið fyrir væntanlegt starfsfólk heimilisþjónustu á vegum félags- málastofnunar. Þátttakendur eru 21. Kennd eru ýmis atriði, sem koma eiga starfsfólkinu að gagni við heimilisþjónustuna, svo sem ýmis hjúkrunaratriði, þættir úr næringarefnafræði og um fæðu- þörf og komið er inn á félagsleg viðhorf og sálfræðileg atriði. Námskeiðinu á að ljúka 16. nóvember og eftir það getur heimilisþjónustan hafizt af fullum krafti. Félagsmálastofnun Akureyrar hvetur alla, sem þarfn- ast hjálpar af einhverju tæi á heimilum sínum til að hafa sam- band við stofnunina. Allir sem sækja um heimilisþjónustu verða heimsóttir og i samráði við þá verður metið hvaða hjálp og hve mikla umsækjandinn þarfnast. Gáfu smásjá og myndavél Félagskonur f Soroptfmista- klúbb Reykjavfkur (beztu syst- urnar) komu f heimsókn til fæð- ingardeildar Landspftalans þann 19. september, 1974, á afmælis- degi klúbbsins, og afhentu yfir- lækni deildarinnar, prófessor Pétri H.J. Jakobssyni, mjög full- komna smásjá og myndavél til nákvæmrar greiningar á sjúk- dómum f leghálsi. Með þessari gjöf sinni hafa fé- lagskonur i Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur stutt að stórauknu öryggi í greiningu á legháls- krabba og öðrum sjúkdómum þar. Fyrir hönd klúbbsins afhenti for- maður hans, ungfrú Gerður Hjör- leifsdóttir, gjöfina. Stjórnarnefnd ríkisspítalanna vill hér með færa félagskonum í Soroptímistaklúbb 'Reykjavíkur og öðrum, sem hafa stutt að framangreindri gjöf, sínar beztu þakkir fyrir góðan stuðning og hug til Landspitalans. Frá skrifstofu rfkisspftalanna. NARFI í reynsluferð UM ÞESSAR mundir er verið að ljúka við að breyta togaranum Narfa úr sfðutogara f skuttogara og er það í fyrsta skipti, sem slíkt er gert. Gert er ráð fyrir að Narf> fari f reynsluferð um miðja næstu viku og ef allt reynist eins og ráð er fyrir gert, er Narfi væntanlegur heim fljótlega. Sjúkraliðar mótmæla fráviki frá námskröfum SJÚKRALIÐAFÉLAG lslands hélt fjölmennan fund mánudag- inn 4. nóv. Fundurinn var hald- inn vegna námskeiða, sem komið var á samkvæmt skipun heil- brigðisráðherra með bréfi dags. 7. ágúst sl. vegna gæzlumanna og fleiri á Kleppsspítala. Námskeið- ið á að standa 3—4 mánuði og verða þátttakendur brautskráðir sem sjúkraliðar. Hefur þetta vakið mikla óánægju hjá sjúkraliðum, þar sem sjúkraliðanám tekur nú eitt ár, og ekki siður hjá sjúkraliða- nemum. Sjúkraliðafélagið mótmælir harðlega þessari ráðstöfun, enda sé hér um mikið frávik frá til- skyldum kröfum til náms sjúkra- liða að ræða og það á sama tima og unnið er að lengingu náms sjúkra- liða. Fundinum bárust mótmæli frá sjúkraliðum Akureyrardeildar- innar, sjúkrahúsinu á Isafirði og víðar. Fulltrúar frá B.S.R.B., Einar Ölafsson og Hrafn Magnússon, sátu fundinn og svöruðu fyrir- spurnum. Byggung í Garðahreppi AÐ undanförnu hafa félög ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík og Kópavogi stofnað byggingarfélög ungs fólks, sem hlotið hafa nafnið Byggung. Tilgangur þessara félaga er að reisa íbúðarhúsnæði fyrir félagsmenn sína á sem hag- kvæmastan hátt og að stuðla að nýjungum i byggingariðnaðinum og hafa áhrif á stefnumótun opin- berra aðila í byggingamálum. Ungir Sjálfstæðismenn í Garða- hreppi hafa nú ákveðið að stofna sitt eigið byggingarfélag með sama tilgang í huga og félagar þeirra í Kópavogi og Reykjavík. Stofnfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 14. nóvember n.k. að Lyngási 12. Gestur fundarins verður Skúli Sigurðsson skrif- stofustjóri Húsnæðismálastjórn- ar. Kassettur frá T.D.K. eru til sölu í mörgum útgáfum DYNAMIC (D) er góður og ódýr þráður sem er mjög góður til allra venjulegrar upptöku. Fáanlegar IC45-60-90-1 20 og 1 80 mínútur kassettum. SUPER DYNAMIC (SD) Mjög góður þráður sérstaklega þar sem gerðar eru kröfur um tóngæði. Fáanleg IC 45-60-90 og 1 20 mínútna kassettum EXTRA DYNAMIC (ED) Bezti þráður, sem völ er á. Notist þar sem kröfur um gæði eru mestar. KRÓM (KR) Frábær þráður sem notist í tæki gerð fyrir krómþráð einnig fyrirliggjandi 5", 7" og 1 01/2" spólur. Útsölustaðir: Karnabær, Faco, Hljóðfærahús Reykjavíkur Eyjabær Vestmannaeyjum, Eplið Akranesi. Jónfna Björnsdóttir formaður Sjúkraliðafélags islands I ræðu- stól. Aðrar I stjórn eru (talið frá vinstri): Sigrún Sigurjónsdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Kristín Her- mannsdóttir og Guðrún Erna Narfadóttir. í þessari auglýsingu segulbandsþráð frá T.D.K. Sérfræðileg þekking á segulmagni og seguláhrifum, hafa sett T.D.K. í fremstu röð framleið- anda á segulbandsþræði. Þegar þú hljóðritar uppáhalds hljómlistina þeirra, kemstu fljótt að raun um að T.D.K. spólurnar hafa: alla háutónana, alla millitónana, alla lágutónana, allar yfirsveiflur og allt sem skiptir máli til að ná fullkominni upptöku. &TDI< Umboðið: Björn Pétursson hf. Laugavegi 66, s. 14388. Við viljum kynna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.