Morgunblaðið - 28.12.1974, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER, 1974
OMCBOK
1 dag er laugardagurinn 28. desember, 362. dagur ársins 1974. Barnadagur.
10. vika vetrar hefst.
Ardegisflóð f Reykjavfk er kl. 05.35, sólarlag kl. 17.55.
Sólarupprás f Reykjavfk er kl. 11.22, sólarlag kl. 15.36.
Á Akureyri er sólarupprás kl. 11.37, sólarlag kl. 14.51.
(Heimild: lslandsalmanakið).
Mfnir sauðir heyra raust mfna, og ég þekki þá og þeir fylgja mér, og ég gef
þeim eilfft Iff, og þeir skulu aldrei að eilffu glatast, og enginn skal slfta þá úr
hendi minni. (Jóhannesarguðspj. 10.27—28).
| BRIDC3E ~~|
Hér fer á eftir spil frá leik milli
Noregs og Israels í Evrópumóti
fyrir nokkrum árum.
Norður.
S. A.
H. K-8-5-2
T. Á-D-10-6-3
L. A-G-9
ÁRIMAÐ
HEILLA
75 ára er f dag, 28. desember,
Guðmundur J. Helgason, Hátúni
33, Reykjavik.
Magnús A. Árnason listmálari
er áttræður í dag, laugardaginn
28. desember. Honum verður
ánægja að taka á móti vinum sín-
um í vinnustofunni við Kársnes-
braut milli kl. 15 og 19.
Nú, þegar tveir þriðju hlutar
jarðarbúa liða næringarskort og
hungur, hefur komið fram sú
afmælisósk Magnúsar, að hann
kysi miklu heldur, að þeir sem
hefðu í hyggju að færa honum
blóm eða gjafir, legðu andvirði
þeirra inn á gíróreikning nr.
20.000. Eins og flestir vita, var
stofnaður sjóður með þessu
númeri til hjálpar bágstöddum,
einkum í Bangladesh. „Þjóð mln,
hefur einnig soltið og búið við
skort, en er nú orðin aflögufær,
enda hafa börn okkar aldrei haft
það eins gott. Ég gæti því trúað,
að flestir landar minir, sem munu
eiga stórafmæli á árinu 1975,
muni líta á málið á sama hátt,“
segir Magnús.
19. október gaf séra Þorsteinn
Björnsson saman I hjónaband
Aðalheiði Jónsdóttur og Einar
Baldvinsson. Heimili þeirra verð-
ur að Miðvangi 6, Hafnarfirði.
(Ljósmyndast. Þóris).
19. október gaf séra Sæmundur
Vigfússon saman í hjónaband
í Landakotskirkju Svövu
Benediktsdóttur og Ragnoli
Walter. Heimili þeirra verður í
Sviss.
(Ljósmyndast. Þóris).
Lárétt: 1. fugl, 6. saurga, 8. sér-
hljóðar, 10. 2 eins 11. vöntun 12.
tónn, 13. belju 14. rösk, 16. sorg-
ina.
Lóðrétt: 2. á fæti, 3. dýrið, 4. slá,
5. lokaður 7. ölduna, 9. keyri, 10.
fyrir utan. 14. hvað, 15. forfaðir.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1. askar, 6. nár, 8. stakkur,
11. kar, 12. ana, 13. IR, 15. ám, 16.
ota, 18. armingi.
Lóðrétt: 2. snar, 3. kák, 4. arka, 5.
óskina, 7. gramsi, 9. tár. 10. una,
14. ati, 16. óm, 17. án.
á' ;v,V ÍL
1
|;0; '1 I GENGISSKRÁNING
Nr. 235 - 27. descmbcr 1974.
SkráC írá F3ini cc Kl. 13.00 Kaup Sala
19/12 1974 I Bandaríkjadollar 118,00 1 18, 40
27/12 - i Sterlingspund 275, 65 276,85 *
19/12 1 Kanadadollar 119,25 119, 75
27/12 - 100 Danskar krónur 2057, 60 2066,30 *
- - 100 Norskar krónur 2242,20 2251,70 *
- - 100 Sænskar krónur 2864,65 2876, 75 *
- - 100 Finnsk mörk 3301,15 3315, 15 ♦
- - 100 Franskir frankar 2647,60 2658,80 *
- - 100 Belg. frankar 321,75 323,15 *
- - 100 Svissn. frankar 4680,60 4700,40 *
- - 100 Gyllini 4670, 35 4690,15 *
- - 100 V. -Þýzk mörk 4852,90 4873, 50 ♦
- - 100 Lírur 18, 06 18, 13 *
- - 100 Austurr. Sch. 681,20 684,10 *
- _ 100 Escudos 478,50 480, 50 *
_ - 100 Pe6etar 210,45 211,35 *
- - 100 Yen 39. 19 39. 36 *
2/9 - 100 Reikningskrónur- Vöruskiptalönd 99, 86 100,14
19/12 - 1 Reikningsdollar- 118,00 Vöruskiptalönd * Breyting frá síöustu skraningu. 118,40
Lionsklúbburinn Týr hefur frá upphafi sýnt skóla f jölfatlaðra barna
mikinn áhuga og fært honum nytsamar og góðar gjafir. — Þriðjudag-
inn 17. des. fengu börnin f Kjarvalshúsinu óvænta heimsókn. Þar var
kominn einn félagi klúbbsins, Grétar Franklínsson, í fylgd með
jólasveini og færði öllum börnunum gjafir frá Lionsklúbbnum Tý. —
Gestirnir brugðu á leik með börnunum og gleðin var óblandin yfir
gjöfunum og hinni góðu heimsókn. — Myndin er frá afhendingu
gjafanna. Ljósm. Mbl.: EBB.
Dregið í Síma-
happdrætti
„DREGIÐ var í Símahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra 23. desember og hlutu
eftirfarandi númer vinninga, sem
er Mini Austin bíll:
Svæðisnúmer:
91-33880
91-36734
91-53418
91-53428
94-03075“
(Birt án ábyrgðar).
GuÖ þarfnast
þinna handaf
GÍRÓ 20.000
HJÁLPARSTOFSIS f
KIRKJLiSSAR [
Vestur.
S. K-D-8-5-2
H. 10-7-6
T. G.
L. 10-8-6-2.
Austur.
S. G-7-6-4-3
H. A-D-G
T. 4
L. K-D-7-4.
Suður
S. 10-9
H. 9-4-3
T. K-9-8-7-5-2
L. 5-3
Við annað borðið sátu spilar-,
arnir frá Israel N—S og þar
gengu sagnir þannig:
N — A — ■ S —
lt D 31
4g P 51
5 t D Allir pass
Austur lét út laufa kóng og það
varð til þess, að sagnhafi varð
aðeins einn niður, þvl síðar I spil-
inu svínaði hann laufa 9 og
þannig varð laufa gosi góður og
var þá hægt að losna við hjarta I
borði. Norska sveitin fékk 100
fyrir.
Við hitt borðið sátu spilararnir
frá Israel A—V og þar gengu
sagnir þannig:
N — A — S — V
11 1 s P 2 s
3 t 3 s 5 t P
P D P 5 s
D P P P
Öskiljanlegt er að vestur skuli
ekki treysta doblun félaga síns og
segja heldur 5 spaða. — Suður lét
út laufa 3, norður drap með ási og
þetta varð til þess að spilið var
aðeins 1 nióur og fékk norska
sveitin 200 fyrir og græddi
samtais 7 stig á spilinu.
Minningarkort
Bústaðasóknar
Minningarkort Kven-
félags Bústaðasóknar fást í
Bókabúð Máls og menning-
ar, Bókabúðinni Grímsbæ,
Verzluninni Gyðu, Ásgarði
og Verzluninni Austur-
borg, Búðargerði
Happdrætti MR
HINN 20. desember sl. var dregið
I Happdrætti 6. bekkjar Mennta-
skólans I Reykjavík. Þessi númer
hlutu vinning:
Utanlandsferð með Ferðamið-
stöðinni nr. 494.
Flugfar til Færeyja með Flug-
leiðum nr. 1610.
Vöruúttekt I Karnabæ nr. 1471.
Flugfar til Akureyrar nr. 604.
Vöruúttekt hjá Hverfitónum
nr. 957.
Vöruúttekt hjá Bókabúö Æsk-
unnar nr. 55.
Vöruúttekt hjá Týli hf. nr. 1366.
Vöruúttekt hjá Oculus nr. 1196.
Vinninga má vitja á skrifstofu
MR.
(Birt án ábyrgðar).
ÁRIMAO
HEILLA
t dag verða gefin saman I Lang-
holtskirkju, Ásthildur Sigurðar-
dóttir og Sigmundur Arthúrsson
Bólstaðarhlíð 48.
Listasafn
Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar
verður lokað 1 desember og
janúarmánuði.
V
•V*'
AJL
Maður hefði nú þolað eitthvað sterkara eftir öll þessi ár.