Morgunblaðið - 12.01.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.01.1975, Blaðsíða 1
44SIÐUR Skammdegi. Ljósm. Ól. K. Mag. Ferð Sojusar 17 gengur prýðilega Nixon dýr í rekstri Washington, 11. jan. Reuter. BANDARÍSKA stjórnin varði 367 þúsund dollurum eða rösklega 43 millj. ísl. króna, til að aðstoða Nixon fyrrverandi forseta við að framfleyta sér á fyrstu þremur mánuðunum eftir að hann sagði af sér. Var þetta birt í Hvíta hús- inu í gærkvöldi. Upphæðin er rösklega 200 þúsund dollurum hærri en sú upphæð sem þingið samþykkti að veita Nixon fyrstu sex mánuðina eftir að hann hætti forsetastörfum. Ekki var gefinn upp kostnaður við öryggisvörzlu vegna Nixons, en lögum samkvæmt á Nixon rétt á slíkri gæzlu meðan hann lifir. Sumar heimildir telja að kostn- aður við öryggisvörzlu sé rösklega sex hundruð þúsund dollarar ár hvert (eða sem svarar 70 millj. króna). Barbra og Redford vinsælust Hollywood, 11. jan. Reuter. ROBERT Redford og Barbara Streissand eru vinsælustu kvik- myndaleikarar í heiminum árið 1974, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var sérstaklega og niðurstöður hennar birtar í dag. Var þetta í þriója skipti sem Barbara Streisand er í efsta sæti. Þau fá í verðlaun ,,Gullhnöttinn“ sem samtök erlendra fréttamanna í Bandaríkjunum veita. Skoðanakönnunin var gerð í samtals 65 löndum. Vinsældir þeirra sl. ár eru sagðar byggðar að verulegu leyti á myndinni „The „Way we were“ en þar leika þau saman. Callaghan bjartsýnn Lagos, Nígeríu 11. jan. Reuter. JAMES Callaghan, utanrfkisráð- herra Bretlands, sagði á blaða- mannafundi hér í dag, skömmu áður en hann lagði af stað heim- leiðis til Bretlands, að hann hefði trú á því, að ferð hans hefði borið nokkurn árangur og hann væri bjartsýnn á að samkomulag næð- ist í stjórnarskrármáli Ródesíu. Moskvu, 11. jan. Reuter. AP. NTB. TASS-fréttastofan tilkynnti laust eftir hádegið að ferð hins nýja mannaða geimfars Sojusar-17 gengi að ðskum. Var tekið fram að þessi ferð væri ekki f tengslum við væntanlega sameiginlega geimferð Bandarfkjamanna og Sovétmanna, heldur væri verk- efni geimfaranna fyrst og fremst rannsóknarstörf f sambandi við geimstöðina Saljut-4, og ýmis tæknileg atriði þar að lútandi. Verður Sojus að Ifkindum tengd- ur við geimstöðina f ferðinni. Að- ur höfðu menn getið sér til um að tilgangur fararinnar væri vegna hinnar ofangreindu fyrirhuguðu geimferðar. Ekki hefur verið frá þvf skýrt, hversu lengi Sojusi-17 er ætlað að vera úti í geimnum. Getgátur voru á lofti um að hann myndi verða alllanga hrfð, en TASS hefur hvorki staðfest það né borið tH baka. Geimfararnir tveir, sem stjórna Sojusi nú eru þeir Alexei Gubarev og Georgi Grechko. Þeir hafa hvorugur farið í geimferð áður. Tilkynnt var um geimskotið að- fararnótt laugardags. Röskur mánuður er siðan siðasta Sojus- fari var skotið upp. TASS-, fréttastofan hefur sagt allýtar- lega frá þvf og segir frá gangi mála alltaf öðru hverju. / Geimfarinu var skotið upj/ frá Baikonur f Miðasfu. Santiago, 11. jan. Reuter. TVEIR fyrrverandi ráðherrar i stjórn Salvadors Allende voru Síðustu tæki Satúrnusar Kanaveralhöfða, 11. jan. AP. REUTER. HLUTI 2. þreps Satúrnuseld- flaugarinnar, sem flutti Skylab- geimstöðina á braut fyrir tveim- ur árum, lenti í bitið í morgun undan ströndum Afríku, en ekki ver vitað með vissu hvar. Mikill hluti þrepsins brann upp áður en það kom inn í andrúmsloftið, en það sem eftir var er sagt vera m.a. ýmiss konar tæki og gæti svo verið að efni úr þrepinu hafi dreifzt yfir mjög stórt svæði. látnir lausir úr fangelsi í dag, en þar hafa þeir verið í sextán mánuði. Hafa þeir óskað eftir þvi að fá að flytjast til Rúmeniu. Ráð- herrarnir eru Clodomiro Almeyda, fyrrverandi utanríkis- ráðherra og náinn samstarfs- maður Allendes á sinum tfma, og Framhald á bls. 43 Glezer vill flytja úr landi Moskvu, 11. jan. Reuter. ALEXANDER Glezer, skáld og listamaður, sem var i hópi þeirra er stóðu að umdeildri útisýningu í MoskVu í september er fjarlægð var á þann hátt að jarðýtur voru látnar ryðja burt listaverkunum, hefur nú sótt um að fá að flytjast til Israel. Hann gaf þó f skyn við erlenda fréttamenn að hann sækti um það formsins vegna, síðar hygðist hann flytjast búferlum til London. Brezka blaðið Economist: Samdrátturogkreppatil 1977 MESTA uppgangstíma sög- unnar er lokið, segir f grein í hinu virta brezka vikublaði The Economist og spáir biaðið samdrætti og kreppuástandi fram til ársins 1977 a.m.k. Grein þessi er birt f heild f Morgunbiaöinu f dag á bls. 20 og 21. Hið brezka blað vekur athygli á eftirtöidum stað- reyndum máli sfnu til stuðn- ings: % Arið 1974 var enginn hag- vöxtur f iðnaðarrfkjum heims. • Þjóðartekjur Bandarfkj- anna hafa minnkað um 2% og minnka enn. • Eftir 25 ára stöðugan vöxt hafa þjóðartekjur Japana minnkað um 3%. 0 Hækkun olfuverðs iefddi til 60 milljarða doilara halla þeirra landa, sem kaupa olíu. • Tilfærsla þessara 60 miiljarða dala frá olfunot- endum inn á bankareikn- inga Araba kom af stað sam- drætti í heimseyðslu. The Economist spáir þvf, að kreppuástandið muni harðna á árinu 1975 og standa yfir allt til ársins 1977. Þá sé hugsanlegt, að tfmabundinn bati verði og hagvöxtur verði um 5%. Ef öll lönd taki þátt f sveiflunni upp á við verði hún skörp og skamm- lff. Heimurinn verði ólfkur þvf, sem hann var áður að loknum 4 árum án nokkurs hagvaxtar. Meðal þeirra atriða, sem blaðið telur vera forsendu fyrir þvf að þjóðir lifi kreppuna sæmilega af, eru: • Sanngjarnir verkalýðsieið- togar. 0 Pólitísk samstaða um viðun- andi tekjuskiptingu. % Pólitískt samkomulag á breiðum grundvelli um form efnahagskerfis. • Næg orka heima fyrir. Sjá nánar grein á bls. 20 og 21. Ráðherrum sleppt í Chile

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.