Morgunblaðið - 12.01.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1975
Orkumál og stóriðja hafa verið til umræðu að
undanförnu. Hækkun á olíuverði, raforkuskortur
innanlands og fyrirhuguð málmblendiverksmiðja í
Hvalfirði hafa valdið deilum, og enn hafa verið
teknar upp gamlar þrætur um orkuverðið til Ál-
verksmiðjunnar. Ingðlfur Jónsson á sæti í viðræðu-
nefnd um orkufrekan iðnað og í ráðherratíð sinni
tók hann þátt í undirbúningi að fyrstu stórvirkj-
unum og stóriðju hér á Iandi. Hér á eftir fer viðtal,
sem Morgunblaðið átti við hann um þessi efni.
Rætt við Ingólf Jónsson
— Það er ekki svo langt síðan
ég gerði þetta að umtalsefni á
þinginu. Ég held, að ég hafi svar-
að þar þeim fullyrðingum, sem
Magnús Kjartansson er enn með
varðandi álsamninginn. Hann
heldur því vfst fram, að ríkið hafi
tapað 1000 milljónum króna á
þessum samningi. En auðvitað er
sannleikurinn sá, að þjóðin hefur
hagnast verulega á þessum samn-
ingi. I fyrsta lagi er á það að líta,
að með honum varð mögulegt að
virkja við Búrfell í einum áfanga.
Með öðrum orðum hann var for-
senda fyrir fyrstu stórvirkjun á
íslandi. Því er ekki að neita að
ýmsum fannst á þeim tíma í full-
mikið ráðist. Magnús Kjartansson
flutti m.a. þingsályktunartillögu
um heimild til smávirkjunar f
Efstadal í stað stórvirkjunar við
Búrfell. Ef farið hefði verið að
þeim ráðum, hefði rafmagnsverð
til almennings orðið miklu hærra
en raun varð á með Búrfellsvirkj-
un.
1732 M.KR.
— Hvað hefði rafmagnsverð til
almennings orðið miklu hærra, ef
farið hefði verið að tillögum
Magnúsar Kjartanssonar á sfnum
tfma?
— Það var áætlað, að rafmagn
tíl almennra nota hefði orðið
65—70% dýrara, ef ekki hefði
verið samið um svo umfangsmikla
orkusöiu til álversins. Annars
held ég, að Magnús Kjartansson
og þeir Alþýðubandalagsmenn
hafi ekki endilega viljað iþyngja
almenningi með þessum hætti af
ásettu ráði. Hér hefur ráðið ein-
strengingsleg afstaða þeirra gegn
stóriðju og samstarfi við erlenda
aðila og stórfyrirtæki. Stóriðja og
eriendir auðhringar voru bannorð
í þessum herbúðum, þar til
Magnús Kjartansson tók sjálfur
upp viðræður við eitt stærsta
fyrirtæki þessarar tegundar,
Union Carbide.
— Menn halda þvf enn fram
Ingólfur, að við seljum Alverk-
smiðjunni orkuna á of lágu verði.
Hver eru þfn mótrök við þessari
gagnrýni?
— Þetta er vitaskuld háð mati
hverju sinni og við verðum að lita
á málið í heild. Hjá Alverksmiðj-
unni vinna á fimmta hundrað
manns og fá kaup greitt sam-
kvæmt sérstökum samningum við
launþegafélögin, og hér er um að
ræða miklar gjaldeyristekjur. En
ef við lítum á beinan hagnað Is-
lendinga af þessari verksmiðju
kemur f ljós, að á árinu 1973
greiddi Álverksmiðjan ísiend-
ingum 1.732 milljónir króna. Hér
er í fyrsta lagi um að ræða
greiðslu fyrir orku sem nam 346
milljónum króna, í öðru lagi fram-
leiðslugjald, er nam 264 millj.
króna, í þriðja lagi launatengd
gjöld er námu 784 millj. króna og
loks ýmis önnur kaup á þjónustu
og vörum, er námu 325 millj.
króna.
HAGKVÆMARI EN
NORSKI SAMNINGURINN
— Þú nefnir 346 milij. kr. fyrir
orkusölu til Álverksmiðjunnar.
Er þetta ekki of lág upphæð?
— Þegar talað er um hvort þess-
ir samningar séu þjóðhagslega
hagkvæmir má auðvitað ekki
gleyma að taka framleiðslugjaldið
með f reikninginn. I Noregi er t.d.
starfrækt verksmiðja af svipaðri
stærð og hér, hún heitir Sörral. Ef
við lítum á orku- og skattgreiðslur
Álverksmiðjunnar hér, kemur f
ljós, að hún hefur greitt sem svar-
ar 5,3 mills. á sama tíma og
Sörralverksmiðjan f Noregi
greiddi 4,8 mills. Það er engum
blöðum um það að fletta, að okkar
samningur er ekki síður hagstæð-
ur en sá norski, svo ekki sé dýpra
tekið í árinni.
Það má ennfremur geta þess í
þessu samhengi, segir Ingólfur,
að Magnús Kjartansson hefur f
samningum sínum við Union Car-
bide lagt áherslu á, að tekið yrði
mið af samningum Norðmanna,
því að þeir kynnu að semja við
erlend stórfyrirtæki. Það er ákaf-
lega gaman að heyra slíkar full-
yrðingar, þegar við höfum gert
samninga, sem gefa talsvert
meira í aðra hönd en sams konar
samningar norskir.
BREYTTAR AÐSTÆÐUR
— Það hefur verið bent á, að nú
standi fyrir dyrum að selja orku
til Union Carbide á talsvert
hærra verði en samið var um við
tsal á sfnum tfma. Ymsir telja, að
þetta sanni þær fullyrðingar, að
samið hafi verið um of lágt orku-
verð. Hverju svarar þú?
— Ég held, að allir heilvita
menn hljóti að sjá, að samningar,
sem nú eru gerðir um orkusölu,
hljóta að vera með allt öðrum
hætti heldur en var fyrir átta
árum. Það þarf ekki annað en líta
á þær stórkostlegu hækkanir, sem
skollið hafa yfir á orkuverði á
heimsmarkaði. Það er með öllu
útilokað að bera saman samninga,
sem nú eru í deiglunni við átta
ára gamla samninga. Þetta sannar
því ekkert, hvorki til né frá. Til
marks um þær öru breytingar,
sem orðið hafa f þessum efnum
má benda á, að aðstæður eru allt
aðrar nú heldur en fyrir 8 til 10
mánuðum, þó að ekki sé lengra til
jafnað. Þá var Magnús Kjartans-
son iðnaðarráðherra og vildi
semja við Union Carbide um
miklu lægra rafmagnsverð en nú
er rætt um í sambandi við hugsan-
lega málmblendiverksmiðju. I
fyrra vetur taldi Magnús Kjart-
ansson mjög gott að fá 7 mills.
fyrir forgangsorkuna, sem selja
átti til málmblendiverksmiðj-
unnar. Nú er hins vegar talið
sjálfsagt að verksmiðjan greiði
9,5 til 10 mills fyrir forgangsork-
una. Það er m.a. vegna hækkunar
orkuverðs á heimsmarkaði og
hækkaðs virkjunarkostnaðar, sem
ríkisstjórnin og viðræðunefnd um
orkufrekan iðnað hafa krafist
mun hærra verðs fyrir raforkuna
en gott þótti fyrir nokkrum mán-
uðum. Þetta sýnir best hversu
allur samanburður er út f hött.
Þegar átta mánaða gamlar tillög-
ur Magnúsar Kjartanssonar um
orkuverð eru úreltar orðnar,
hvernig er þá hægt að bera þessar
tölur saman við átta ára gamlan
samning?
— En er nokkur akkur f þvf,
Ingólfur, að selja fyrirhugaðri
málmblendiverksmiðju raforku á
sem hæstu verði, þegar við eigum
meirihluta f verksmiðjunni
sjálfir?
— Þótt við komum til með að
eiga meirihluta f fyrirtækinu, ef
af því verður, er auðvitað sjálf-
sagt að miða orkuverðið við kostn-
aðarverð á hverjum tíma eins og
gert var við álsamningana á sinni
tíð, þegar samið var um raforku-
sölu frá Búrfelli.
Ég vil auk þess senda heim til
föðurhúsanna allar fullyrðingar
um, að við höfum tapað á orkusöl-
unni til Alversins. Hversu stórum
upphæðum hefðum við ekki tap-
að, ef ekki hefði verið ráðist í
Búrfellsvirkjun og enginn samn-
ingur verið gerður við Isal. Það
hljóta allir að sjá, þegar á þessa
hlið er litið, að hér var farið rétt
að og hagkvæmir samningar gerð-
ir. Hundruð manna hafa haft at-
vinnu af þessari starfsemi, þjón-
ustufyrirtæki eins og t.d. Eim-
skipafélagið hafa fengið stór
verkefni og þjóðin f heild haft af
þessu miklar gjaldeyristekjur;
1.732 millj. króna hefðu einhvern
tíma verið taldar góð búbót.
NÝTINGARTÍMINN 94%
— Svo að við vfkjum aftur að
raforkuverðinu, þá hefur það ver-
ið gagnrýnt, að Álverksmiðjan
hefur fengið raforku á lægra
verði en almenningur.
— Þegar rætt er um verð á
raforku til almennra neytenda er
rétt að hafa f huga, að raforku-
kostnaðurinn skiptist í raun réttri
f þrennt: I fyrsta lagi er fram-
leiðslukostnaður, í öðru Iagi er
kostnaður við flutning á há-
spenntri orku til spennistöðva, og
í þriðja lagi er svo dreifingar-
kostnaður til neytenda. I þessu
sambandi er rétt að benda á, að
ísal tekur við orkunni háspenntri
og rekur síðan eigin spenni- og
dreifikerfi. Þegar þetta er haft í
huga og miðað er við hliðstæðan
nýtingartíma má margfalda orku-
verð ísals með 2,35 til þess að fá
réttan samanburð að þessu leyti.
En hér er einnig rétt að hafa
það f huga, að Isal nýtir aflið, sem
fengið er frá Búrfelli i u.þ.b. 8200
klst. á ári. Nýtingartíminn er því
94% samanborið við 50% nýt-
ingartíma hjá almennum not-
endum rafmagns. Raforkuverð til
almennra nota er miðað við, að
greitt sé fyrir raforkuframleiðslu,
sem fram fer til að mæta mesta
álagi, þó að nýtingartfminn sé
50% eða jafnvel innan við það.
RAFORKUVERÐIÐ
GERIR MEIRA . . .
— Þvf er jafnan haldið fram, að
samningarnir um álverksmiðjuna
hafi verið forsenda fyrir stór-
virkjun við Búrfell. En hvert er
þá hlutfallið milli þess verðs, sem
Isal greiðir fyrir raforkuna þaðan
og kostnaðarins við að reisa virkj-
unina?
— Um þetta eru skýrar upp-
lýsingar fyrirliggjandi. Stofn-
kostnaður virkjunar við Búrfell,
1. og 2. áfanga, ásamt vatnsmiðl-
un við Þórisvatn og Búrfellslinu
II nam 5.200 milljónum króna.
Heildargreiðslur Isals fyrir raf-
orkuna eina á 25 ára tfmabili
munu nema 6.400 milljónum
króna. Við þetta bætist svo fram-
leiðslugjaldið. Verksmiðjan
kemur því til með að greiða
virkjunarkostnaðinn við Búrfell
og meira til á umræddu tímabili.
Þessi samningur veldur engri
áhættu fyrir okkur, en færir
okkur verulegan hagnað. Og það
má furðulegt heita að einstakir
menn hafi þá köllun helsta í líf-
inu að telja öðrum trú um að
þetta hafi verið landráðasamning-
ar.
Alsamningurinn
tryggði almenningi
lægra rafmagnsverð
Makaskipti
Húseign sem gefur möguleika á tveimur íbúð-
um óskast í skiptum fyrir vandaða 4ra herb.
íbúð á Melunum. Uppl. í síma 27958.
Kennslunótur,
kennslunótur
Nýkomnar píanó kennslunótur Kinderland og
Klavier fiebel eftir Willy Schneider.
Höfum einnig mikið úrval af byrjendagíturum,
Hljóðfæraverzlun
Sigríðar Helgadóttur,
Aðalstræti 6.
3Ö. FONIX
HÁTÚNI 6A.SÍMI 24420
NILFISK
þegar
um gæÓin er
aÖ tefla....
Hestamenn
Týnd er 4ra vetra meri úr landi Úlfarsfells og
Óskots við Hafravatn. Merin er mannelsk,
ómörkuð, rauð með vindótt fax og nokkuð
dökkleitt tagl, vottar fyrir hvítu í miðju enni.
Uppl. í síma 43077 og 4081 1.
Utboð
Tilboð óskast í að fullgera fyrri hluta síðasta
áfanga Digranesskóla í Kópavogi. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings
gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð kl. 1127. janúar 1 975 á sama stað að
viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.