Morgunblaðið - 12.01.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANUAR 1975
Barnastarf í
Bústaðakirkju
Á LIÐNUM vetrum hefur Bú-
staðasöfnuður í Reykjavík boðið
upp á starf fyrir börn á virkum
dögum i safnaðarheimili kirkj-
unnar. Hefur þessu verið mjög
vel tekið og aðsókn góð.
Vegna framkvæmda I safnaðar-
heimilinu fyrri hluta vetrar hefur
ekki verið unnt að byrja þetta
starf í vetur fyrr en núna á
þriðjudaginn kemur. Er börn-
unum skipt í þrjá flokka eftir
aldri, koma 4—6 ára börn á
þriðjudaginn kl. 2, 7—9 ára börn
verða á þriðjudögum kl. 4 og
fimmtudögum kl. 2, og 10—12 ára
börn á fimmtudögum kl. 4.
Sóknarnefndin hefur verið svo
lánsöm að fá frú Ingibjörgu Þor-
valdsdóttur til þess að veita þessu
starfi forstöðu, en hún er vel
þekkt frá skátaskólanum að Ulf-
ljótsvatni, þar sem hún hefur
starfað i mörg sumur.
Barnastarfið i Bústaðakirkju
felst í sögum, söngvum, bænum
auk föndurs og leikja. Og hefst
það á þriðjudaginn kemur eins og
fyrr segir.
Eftir sem áður verða vitanlega
barnasamkomurnar á sunnudög-
um kl. 11 árdegis, og við guðs-
þjönusturnar kl. 2 síðdegis er
starfrækt barnagæzla, sem þegar
hefur hlotið miklar vinsældir,
enda eru leikföngin frá Ingvari
Helgasyni bæði fjölbreytileg og
mörg.
Ólafur Skúlason.
— Slagsíðan
Framhald af bls. 13
annarra. En það er ljóst að við
þyrftum að hafa miklu betri
stúdió hér heima.
Mánar tóku upp tvö lög I einu
íslenzku stúdíóanna og ég er alls
ekki ánægður með þau. Að vísu
hafa þau fallið i góðan jarðveg og
um vinsældir lagsins hans Olafs i
,,Tíu á toppnum" er auðvitað ekk-
ert nema gott og blessað að segja.
Annars hef ég aldrei tekið neitt
mið af þeim þætti.
Nú, annars, það er kannski ekki
rétt að segja, að ég sé mjög svart-
sýnn á nýja árið. Mér lízt mjög vel
á það hjá ýmsum hljómsveitum og
aðilum — það er ýmislegt á döf-
inni hjá Jóa G., Change og
Pelikan, og ég vil óska þess að
islenzkir popparar hafi erindi
sem erfiði á erlendum mörkuð-
um.
En það mega verða breytingar á
þessu hér innanlands. Það er
þreytan og tilbreytingarleysið,
sem spillir svo mikið fyrir. Ef
menn eru að spila i sömu sam-
komuhúsunum 3—4 kvöld i röð
fyrir skítadjöfulslúsanápening —
þetta máttu hafa eftir mér — þá
verða menn þreyttir á skömmum
tíma. Launin í þessu starfi hafa
nánast ekkert hækkað á undan-
förnum árum, a.m.k. verður mað-
ur ekki var við það á þessum
tlmum hækkana og verðbólgu,
nema síður sé. Helzt að maður
finni að það stefni í hina áttina.
Svo er annað, sem er mjög baga-
legt í þessu öllu, sem hefur eyði-
lagt bransann. Það eru þessar
hljómsveitir, sem er hrúgað sam-
an með lágmarksfyrirhöfn. Það
eru keypt hljóðfæri og nokkur
búnt af danslagatextum og
þarrneð er hljómsveitin tilbúin —
Bingó! Þessar hljómsveitir æfa
ekkert og eru hörmulegar — en
taka samt vinnuna frá öðrum,
sem hafa fyrir að æfa og vanda
sig.
Argerð 1975
Allar gerðir
fyrirliggjandi
Fiat einkaumboð
á íslandi
GÓÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Lancia Beta 1800 5 manna.
Vél 110 din. 10 lítr. pr. 100 km.
Framhjóladrif.
Verð 1.035.000 —
Fiat 132 GLS 1600 — 1800
5 manna.
Vél 107 din. 1 0 lítr. pr. 100 krrc
Verð 1600: 813.000. — , 1800: 835.000.—
Fiat 125 P. station 5 manna.
Vél 80 din. 9 lítr. pr. 1 00 km.
Verð 672 .000
Fiat 128 Rally 5 manna.
Vél 67 din. 9 lítr. pr. 100 km.
Framhjóladrif.
Verð kr. 657.000.—
Fiat 125 P. 5 manna.
Vél 80 din. 9 lítr. pr. 1 00 km.
Verð 625.000.—
Fiat 128 Berlina 5 manna.
Vél 55 din. 8 lítr. pr. 1 00 km.
Framhjóladrif.
Verð 2ja dyra 572.000.—, 4ra dyra 598.000.—
Station 61 6.000.—
Fiat 127 Berlina 5 manna.
Vél 47 din. 7 lítr. pr. 1 00 km.
Framhjóladrif.
Verð 2ja dyra 51 5.200. —, 3ja dyra 538.000.—
Fiat 126 Berlina 4ra manna.
Vél 23 din. 5,5 lítr. pr. 100 km.
Verð 462.000. — .
Fiat 238 Van.
Vél 46 din. 8 lítr. pr. 100 km.
Framhjóladrif.
Verð 670.000.—