Morgunblaðið - 12.01.1975, Síða 30

Morgunblaðið - 12.01.1975, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANUAR 1975 Farið því og kristnið allar þjóðir... MAÐUR er nefndur Billy Graham. Hann fæddist áriö 1917 meðal bænda- fólks í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Á sex- tánda æviári hans var haldin samkomuherferð í heimabyggð hans og sótti hann samkomurnar. Þar heyrði hann boðskap Bibliunnar um að Guð hefði með Jesú Kristi keypt menn lausa undan refsingu syndarinnar og á samkomunni þarna Billy Graham Evengelistic Association ákvað hann að gerast þjónn Jesú Krists. Það hefur hann staðið viö og síðan 1949 hefur hann ásamt aðstoðarfólki sínu haldið miklar sam- komuherferðir víða um lönd. Krossferðirnar, eins og þær eru nefndar, hafa milljónir manna sótt og þar hefur lokist upp fyrir þeim að Guð er sá raunveruleiki, sem Biblían talar um, og er þess megnugur að færa frið og kraft af hæðum. Á síðunni í dag er fjall- að nokkuð um starf Billy Graham — Evangelistic Association. Heimildir eru úr blaðinu Decision, sem B.G.E.A. gefur út, og bók um Billy Graham eft- ir John Pollock. Tónlist skipar mikinn sess i samkomum bæði einsöngur, kórsöngur og almennur söngur. Hér eru 3 menn, sem hafa haft stjórn á söngmálunum: Cliff Barrows söngvari og söngstjóri, Tedd Smith pianisti, og John Innes organisti. A litlu mynd- inni er George Beverly Shea, sem hefur verið með frá upp- hafi en hann hefur flutt boð- skapinn með söng. Fieiri tón- listarmenn hafa starfað með þessi 25 ár sumir timabundið, aðrir í fullu starfi. t Los Angeles Washington Bouleward 1949. I fleiri vikur voru samkomur hér og mörg þúsund manns komu og hlýddu á prédikun Billy Gra- hams. Söngur var mikið notaður og stjórnaði aðstoðarmaður hans öllum söng. Billy Graham á heimili sinu í Montreat 1965. Hann hefur greinilega ekki alltaf haft tíma til að hafa allt i nákvæmri röð og reglu í kring- um sig! KROSSGOTUR Umsjón: Jóhannes Tómasson Gunnar E. Finnbogason Fleiri leiðir fyrir boðskap Bibliunnar eru farnar en að halda samkomur. 1950 fór af stað útvarpsdagskráin „Hour of Decision" og hefur mikill fjöldi bréfa ætið borist, sem þeir hafa svarað. „Svar mitt“ hefur Billy Graham gefið síðan 1952 og það kannast lesendur Morgunblaðs- ins við. Timaritið „Decision" kemur út í milljónum eintaka á ensku, þýsku, frönsku, spænsku, japönsku og nú síðast á kínversku. Hefur blaðið komið út síðan 1960. skírið... kennið...” Howard 0. Jones, einn prédikara B.G.E.A. með Sene- gal-mönnum. Boði Krists er hlýtt — „farið út um allan heiminn..." Siðan 1962 hafa verið haldin fjölmörg námskeið til að þjálfa fólk i að fara út með kenningu Biblíunnar. Seoul. Gífurlegur mannfjöldi kom á útisamkomuna hinn 3, júní 1973. Aætlað var, að 1,1 milljón manna hefði verið þar. Á skiltinu standa þessi orð Jesú: Ég er vegurinn og samm- leikurinn og lífið.“ Um 6. boðorðið eftir Hjalta Hugason, stud. theol. Sjötta boðorðið: Þú skalt ekki drýgja hór. Fá boðorðanna eru eins þrábrotin á okkar dögum og það. Þetta er afdráttarlaust • boðorð, merking orðsins hór er þröng að bibifulegum skilningi. Kristin siðfræði Iftursvoáaðvettvangurkynlffsins sé einungis I innan hjónabandsins, sé það iðkað utan þess sé um hór að ræða, Þetta skoðast harður boðskapur á tuttugustu öldinni, margir I afskrifa boðorðið með einu orði: Þröngsýni. Sé þó dýpra skyggnst | verður allt annað uppi á teningnum. Kynlff er náið samband tveggja sjálfstæðra einstaklinga, f þvf verða kynni þeirra dýpst og sönnust, nær verður ekki komist, þetta staðfestist af orðalagi | Gamla testamentisins, þar er sama forna hebreska sögnin notuð ■ um náin kynni og kynferðislegt samband. Fylgi hugur ekki gjörðum í slfkum samskiptum eða sé fleiri aðilum blandað inn f þau, skapast engin slík kynni, af slíku kvnlífi sprettur engin hamingja eins og þó er til ætlast, heldur tómleiki, tortryggni og spenna, sem kemur í veg fyrir heilbrigt samlff og samskipti f J jafnvægi, dæmi þessa getur margur fundið f eigin lífi. Sé þessi skilningur hafður f huga verður samræmið milli sjötta | boðorðsins og hinna auðséð, öll miða þau að heilbrigðu, kær- • leiksríku mannlffi, sem borið er uppi og helgað af samfélaginu við Guð, kristnum mönnum er ekki ætlað að gera neitt í hálf- | kæringi eða ábyrgðarleysi, þeim er ætlað að meta aðra jafnt og | sjálfa sig og breyta f öllu samkvæmt þvi. Þeim, sem ekki viðurkenna neina algilda viðmiðun, heldur sækjast f öllu eftir I þvf, sem veitir þeim sjálfum mesta mögulega nautn á líðandi | stund verður sjötta boðorðið aftur á móti alltaf torskilið og óárennilegt til eftirbreytni, þeir spyrja líka manna síðast um afleiðingar gerða sinna og hag og hamingju annarra. Sjötta boðorðið er hollt umhugsunarefni á okkar dögum, þegar • orðið hór hefur nánast fallið brott úr orðaforða manna, orðið að merkingarlausu fornyrði en menn krefjast lagalegs réttar til | frjálsra fóstureyðinga til að koma óvelkomnum börnum fyrir á I auðveldan hátt. IWenn ættu að spyrja sjálfa sig f einlægni, hvort • kristið siðferði eða einstaklingsbundin hentistefna sé lfklegri til að skapa sem flestum hamingju og koma á friði á jörðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.