Morgunblaðið - 23.01.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975
ÍR sýndi sitt rétta andlit
og sigraði FH-inga 23:21
ÞEGAR loksins kom ad því að botnliðið í 1. deildar keppninni í
íslandsmótinu í handknattleik, ÍR, vann leik, var ekki ráðist á garðinn
þar sem hann var lægstur, heldur voru Islandsmeistarar P'H að velli
lagðir. Fyrri leikur þessara liða, sem fram fór i Hafnarfirði, hafði
verið mjög jafn, en hann varð upphafið að sorgargöngu ÍR-inga í
ieildarkeppninni i vetur. Mikið má vera ef þessi mikilsverði sigur í
rrakvöld verður ekki til þess að lyfta ÍR-ingunum á kreik. Þeir hafa
i. ' 'coinizt yfir skrekkinn — vita að þeir geta jafnvel staðið beztu
t ii‘. m í deildinni á sporói, og þeir eru ekki fallnir í aðra deild
ennþá. ÍR-sigur í þessum leik hleypir enn T)''iri spennu í mótió. Öll
liðin sem berjast um sigurinn, nema Víkingur, ;:aia tapað sex stigum.
Jafnari getur baráttan á toppnum tæpast verið.
Leikurinn i fyrrakvöld var
gífurlega spennandi þegar leið að
leikslokum. Því miður voru of fá-
ir áhorfendur í Höllinni, en flest-
ir þeir sem þar voru staddir tóku
virkan þátt í leiknum og um tima
ætlaði allt af göflunum að ganga.
Eftir að ÍR-ingar höfóu haft for-
ystu í leiknum nær undantekn-
ingarlaust, tókst FH-ingum að
jafna á tölunni 18—18 og voru þá
aðeins sjö minútur til leiksloka.
Oft hefur FH verið sterkari aðil-
inn í slíkum spennuieikjum, en
nú létu iR-ingar ekkert á sig fá og
börðust eins og grenjandi ljón allt
til leíksloka. Svo virtist sem þeir
væru ákveðnir í að vinna þennan
leik og tryðu því að þeir gætu bað,
en þessi hugsun hefur ekki fylgt
lR-ingunum i mótinu til þessa. En
sigur iR-inga í leiknum varð þó
ekki staðreynd fyrr en Asgeir
Elíasson skoraði þeirra 23. mark
þegar aðeins örfáar sekúndur
voru til leiksloka og færði þannig
liði sínu tveggja marka forystu.
Vafalaust eru fleiri en ein
ástæða fyrir því að FH — fyrir-
fram talinn öruggur sigurvegari í
leiknum — tapaði. Það er liðinu
mikið áfall að missa Geir Hall-
steinsson úr leik. Leikur liðsins
við ASK Vorwárts á laugardaginn
var erfiður og hefur örugglega
setið i leikmönnum, og auk alls
þessa lék Jón Gestur, sem oft
hefur verið drjúgur, ekki með lið-
inu að þessu sinni. Ástæðan er sú
að hann getur ekki farið með því
til A-Þýzkalands, og mun þjálfar-
inn, Birgir Björnsson, hafa valið
þann kostinn að nota þá leikmenn
i þessum leik, sem í þá ferð fara.
Svipur FH-liðsins i þessum leik
var því með daufara móti, og bar-
áttukrafturinn og ákveðnin ekki
eins og oftast áður. Meira bar og á
mistökum i sendingum hjá leik-
mönnum, en titt er hjá þessu liði.
Ólafur Einarsson brá sér i gerfi
stórskyttunnar, eins og i leiknum
við Vorwárts, í þessum leik og
kom mjög vel frá leiknum. Skota-
nýting hans var nú miklu betri en
oftast áður, og ógnun hans stöðug.
Engum blöðum er um það að
fletta, að þegar þessi gáll er á
Ólafi, er mjög erfitt að hemja
hann. Bæði er hann mjög
hávaxinn og fæturnir eru miklu
sterkari en áður. Skoraði Ólafur
flest sjö marka sinna í þessum
leik, uppá eindæmi. Annar FH-
ingur sem k':in vel frá þessum
leik, var Þórarinn Ragnarsson, en
auk þess sem hann skoraði lagleg
Ólafur Einarsson skoraði níu mörk fyrir FH í leiknum
í fyrrakvöld og greinilega að ná sér vel á strik.
Misheppnuð vítaköst: Hjalti
Einarsson varði vítakast Gunn-
laugs Hjálmarssonar á 18. min.
Þórarinn Ragnarsson skaut i
stöng úr viti á 18. mín. og Jens G.
Einarsson varði vitakast frá Olafi
Einarssyni á 50. mín.
Dómarar: Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Þeir voru nokkuð
mistækir og ósamræmi i dómum
þeirra. Mistök þeirra bitnuðu
jafnt á liðunum.
mörk úr hornunum, var hann
mjög virkur í varnarleiknum og
barðist þar eins mikið og honum
var unnt.
I ÍR-liðinu var það einnig einn
einstaklingur sem bar af. Sá var
Ásgeir Eliasson, sem átti þarna
stjörnuleik, og það var öðrum
fremur hann, sem færði ÍR-
sigurinn. Ásgeir dreif spil IR-
liðsins upp, bæði í sókn og vörn,
og var oft ótrúiega slunginn að
smeygja sér í glufur sem mynduð-
ust i FH-vörninni, auk þess sem
hann átti góð og óvænt skot að
utan. Þegar svo bar undir átti
hann einnig gullfallegar línu-
sendíngar. Þá kom Guðjón
Marteinsson einnig á óvart i IR-
liðinu. 1 honum var mikill kraftur
til þess að byrja með og þá skoraði
hann falleg mörk með uppstökk-
um. Þegar á leikinn leið dofnaði
hins vegar yfir Guðjóni, — likast
þvi sem hann væri ekki í nægjan-
legri úthaldsæfingu.
Ásgeir Elfasson átti stórleik með tR-liðinu í fyrrakvöld. Þarna á hann í höggi við
Gils Stefánsson og Gunnar Einarsson, sem tókst að stöðva gegnumbrot hans að þessu
sinni. Til vinstri eru iR-ingarnir Brynjólfur Markússon og Jóhannes Gunnarsson.
26. Asgrir 12:7
27. 12:8 ólafur (v)
29. 12:9 Ólafur
30 12:10 Gunnar
30. Hörður 13:10
Hálfleikur
32. 13:11 ólafur
33. Agúsl 14:11
36. 14:12 Þórarinn
37. Asgeir 15:12
40. Agúst 16:12
40. 16:13 Þórarinn
41. Agúsl 17:13
43. 17:14 ólafur
45. 17:15 Ólafur
46. 17:16 Þórarinn
48. Brynjólfur 18:16
50. 18:17 Þórarinn
53. 18:18 ólafur (v)
54. Þórarinn (v) 19:18
55. Þórarinn 20:18
57. 20:19 Gunnar
58. Asgeir 21:19
58. 21:20 ólafur
59. Þórarinn (v) 22:20
59. 22:21 ólafur
60. Asgeir 23:21
Mörk IR: Asgeir Eliasson 6,
Guðjón Marteinsson 4, Brynjólfur
Markússon 3, Ágúst Svavarsson 3,
Þórarinn Tyrfingsson 3, Jóhannes
Gunnarsson 2, Hörður Hákonar-
son 1, Gunnlaugur Hjálmarsson 1.
Mörk FH: Ólafur Eínarsson 9,
Þórarinn Ragnarsson 7, Gunnar
Einarssón 2, Örn Sigurðsson 1.
Viðar Simonarson 1, Árni
Guðjónsson 1.
Brottvísanir af velli: Bjarni
Hákonarson í 2 mín., Þórannn
Tyrfingsson í 2 mín. og 5 mín.,
Brynjólfur Markússon i 2 min.
Viðar Simonarson, FH i 2 min.
Annars verður ekki annað sagt
en að það hafi verið allt annað
ÍR-lið sem lék þennan leik, en
verið hefur i mótinu til þessa.
Oftast léku leikmennirnir af yfir-
vegun og skynsemi og meira að
segja þegar mestu lætin voru,
héldu þeir nokkurn veginn höfði.
ÍR-ingar hafa nú hlotið 3 stig i
deildarkeppninni, einu minna en
Grótta, og má ljóst vera að bar-
áttan á botninum milli þessara
tveggja liða verður gífurlega
hörð. Þau eiga eftir að leika i
seinni umferðinni.
ISTUTTU MÁLI:
islandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 21. janúar
URSLIT: ÍR — FH 23—21
(13—10).
Gangur leiksins
Min. IR FH
4. Ásgeir 1:0
5. 1:2 Þórarinn
7.
9. Gunnlaugur (v>
10. Gudjón
11.
12. Jóhannes
13. Guðjón
13. Guðjón
14.
16.
19. Brynjólfur
21. Jóhannes
22. Asgeir
22. Brynjólfur
24.
25.
25. Guðjón
1:2 Þórarinn
2:2
3:2
3:3 Örn
4:3
5:3
6:3
6:4 Þórarinn
6:5 Ami
7:5
8:5
9:5
10:5
10:6 Viðar
10:7 Ólafur (v)
11:7
Þjálfari
Ungmennafélagið Leiknir óskar að ráða knatt-
spyrnuþjálfara árið 197 5.
Upplýsingar gefnar í síma 91 á Fáskrúðsfirði
frá kl. 9 — 6.
Leiknir
LIÐ IR: Hákon Arnþórsson 3, Ásgeir EHasson 4, Guðjón Mar-
teinsson 3, Þórarinn Tyrfingsson 2, Ágúst Svavarsson 2, Gunn-
laugur Hjálmarsson 1, Brynjólfur Markússon 2, Jóhannes
Gunnarsson 2, Hörður Hákonarson 1, Bjarni Hákonarson 2, Jens
G. Einarsson 1.
LIÐ FH: Hjalti Einarsson 1, Guðmundur Á. Stefánsson 1, Viðar
Sfmonarson 2, Gils Stefánsson 2, Sæmundur Stefánsson 2, Árni
Guðjónsson 1, Tryggvi Harðarson 1, Örn Sigurðsson 2, Gunnar
Einarsson 2, Ólafur Einarsson 4, Birgir Finnbogason 2.
— stjl.