Morgunblaðið - 25.03.1975, Page 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
68. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Brezkir sjómenn herða
mótmælaaðgerðir sínar
VÍGGIRÐING
FISKIBÁTA
— Loftmynd af
viggirðingu fiskibáta
sem lokar af höfnina í
Grimsby.
USA endurskoðar stefnuna
í málefnum Miðausturlanda
London, Newcastle,
24. marz. Reuter — NTB — AP
• MOTMÆLAAÐGERÐIR
brezkra sjómanna gegn innflutn-
ingi ódýrs freðfisks frá Noregi,
tslandi og Póllandi breiddust út f
dag, og f kvöld náðu þær til 10
hafnarbæja á austurströnd Eng-
lands eftir 200 mflna strand-
lengju frá Sunderland í norðri til
Scarborough í suðri. Floti 150
fiskiskipa lokaði höfnunum á
þessu svæði, þannig að skip kom-
ust hvorki inn né út úr höfnun-
um. Þannig voru t.d. 12 skip föst
á Tynefljóti og 5 í Blyth, og meðal
annars éru nú nokkur norsk skip
kyrrsett af þcssum orsökum. 23
flutningaskip urðu frá að hverfa
við höfnina í Grimsby og Imming-
ham, þar sem mótmælin hófust
fyrir helgina. Ferjan „England“
fékk þó að sigla með 45 farþega
frá Tyneside f kvöld áleiðis til
Bergen eftir að eigendur hennar
höfðu látið undan kröfum fiski-
manna um að flytja 30 tonn af
norskum freðfiski aftur til Nor-
egs, en honum hafði verið skipað
á land s.I. sunnudag.
#TaIið er að kyrrsetning skip-
anna í höfnunum kosti eigendur
þeirra um 2500 sterlingspund á
dag. British Transport Docks
Board, eigandi hafnanna í Grims-
by og Immingham við Humber-
fljót, sagði f dag að reynt yrði að
fá lokun hafnanna aflétt með
dómsúrskurði á morgun. Þá hót-
aði hafnarstjórinn f Blyt að sækja
þá sjómenn sem nú loka hafnar-
mynninu þar til saka fyrir að
hindra umferð um höfnina. 1
kvöld var ekki ljóst hvort skozkir
sjómenn myndu hefja samúðar-
aðgerðir félögum sínum í Eng-
landi til styrktar, en um það voru
haldnir margir fundir f skozkum
hafnarborgum f dag, og fleiri
verða haldnir á morgun. Sjómenn
f sex skozkum hafnarbæjum neit-
uðu í dag að fara f róðra vegna
máls þessa.
# Sjómenn f Englandi héldu þvf
fram í dag að aðgerðir þeirra
kynnu að valda fiskskorti. Segja
sjómenn að útlenzkur freðfiskur
sé orðinn að sex milljón dollara
iðnaði og verð á freðfiski hafi af
þessum orsökum stórfallið. Kref j-
ast þeir næstum algjörs banns á
Saigon, Phnom Penh,
24. marz — AP — Reuter.
HEIMILDIR innan hers Suður-
Vfetnam hermdu f kvöld að
stjórnarherinn hefði yfirgefið
enn eina héraðshöfuðborgina og
hörfað undan sókn skæruliða-
sveita kommúnista inn f strand-
héruð landsins. Borg þessi er
Tam Ky I Qand Tin-héraði, um
560 kilómetra frá Saigon. Héraðs-
höfuðborgirnar falla nú ein af
annarri og stjórnarherinn hefur
misst svo til allt miðhálendið úr
höndum sér, en reynir hins vegar
að styrkja stöðu sfna meðfram
ströndinni. Norður-Víetnamar og
Vfet Cong ráða nú yfir 11 af 44
innflutningi freðfisks frá löndum
utan Efnahagsbandalags Evrópu,
banni á löndunum ferskfisks frá
öllum útlendum veiðiskipum yfir
vetrarmánuðina frá október til
aprfl, ásamt útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar. Fred Peart, sjávar-
útvegsráðherra Bretlands, kvaðst
ræða við fulltrúa sjómannanna f
London sfðdegis á morgun,
þriðjudag. Hafa sjómenn í Grims-
by og Immingham samþykkt að
senda tvo fulltrúa til fundarins.
Peart sagði á þingi í dag, að
hann myndi ekki láta þvinga sig
til fljótfærnislegra aðgerða gegn
vinaþjóðum Breta. Michael Broth-
erton, þingmaður íhaldsflokks-
ins, hafði skorað á ráðherrann að
viðurkenna „hin miklu vanda-
mál“ sem sjómennirnir stæðu
frammi fyrir og láta til skarar
skríða gegn innflutningi landa
utan EBE. Peart svaraði þá: „Hér
er um vinaþjóðir okkar að ræða
og ég kýs heldur að ná vinsam-
legri lausn.“ Hann kvaðst viöur-
kenna að fiskimennirnir ættu við
vanda að glima, og hann myndi
reyna að finna viðunandi lausn.
Sjóménnirnir segja að norsk,
íslenzk og pólsk fiskiskip séu
rekin fyrir drjúgan ríkisstyrk og
rekstraraðstaða brezka fiskiskipa-
flotans sé mun lakari. Þeir halda
því fram að landanir pólskra
fiskiskipa nýlega hafi verið í lág-
marki fiskverðs og eingöngu í
þeim tilgangi að afla erlends
gjaldeyris á meðan tekjur brezkra
sjómanna sjálfra hafi orðið illi-
lega fyrir barðinu á hærri kostn-
aði.
NTB-fréttastofan segir að
norska sjávarútvegsráðuneytið
hafi kannað hvort setja ætti lág-
marksverð á útflutning freðfisks
til Bretlands, og verði ákvörðun
um þetta hugsanlega tekin á
morgun, þriðjudag. Ekki er þó
ljóst hvort þetta breytir ein-
hverju um aðgerðir brezku sjó-
mannanna gegn norsku
skipunum.
Til þess hafa eingöngu sjómenn
sem veiða á heimamiðum staðið
að mótmælaaðgerðunum, en
Reuter-fréttastofan segir að nú
séu þeir einnig að leita stuðnings
hjá togaraútgerðarmönnum, sem
líka hafa hvatt til innflutnings-
banns.
héruðum Suður-Víetnam, eða
40% af landinu öllu og 15%
allrar þjóðarinnar. Þróun mála
hefur leitt til þess að kröfur um
að Thieu forseti segi af sér verða
æ háværari, og f kvöld sagði
japanskt dagblað f forsíðufrétt að
s.l. sunnudag hefði verið gert mis-
heppnað morðtilræði við for-
setann. Hefði tilræðismaðurinn
verið háttsettúr embættismaður.
Bandaríkjastjórn hyggst senda
flugmóðurskip með þyrlum til
Indókína ef til þeirra þyrfti að
grípa til að flytja burt bandaríska
borgara og fleiri, að því er skýrt
var frá í Washington.
Jerúsalem, Kairó, Washington,
AP—NTB—Reuter.
HENRY Kissinger, utanrfkisráð-
herra Bandaríkjanna, bar f kvöld
til baka fregnir um að endurmat
Bandaríkjastjórnar á stefnu sinni
f málefnum Miðausturlanda fæli
f sér niðurskurð á aðstoð Banda-
rfkjanna við Israel. Fyrr f dag
hafði stjórnin skýrt frá því að
hún hyggðist nú taka stefnu sína
til endurskoðunar í kjölfar þess
að friðarumleitanir Kissingers
fóru út um þúfur á laugardag.
Kissinger sagði í kvöld að þetta
endurmat þýddi hins vegar að
„við stöndum nú frammi fyrir
nýjum og nokkúð hættulegum
kringumstæðum".
Sókn kommúnista hefur gert
um milljón manns að flótta-
mönnum í Suður-Vietnam, og
streyma nú þúsundir þeirra frá
héraðshöfuðborgunum tveim sem
síðast féllu.
í Kambódíu voru enn gerðar
eldflaugaárásir á flugvöllinn í
Phnom Penh og á borgina sjálfa,
og hermdu áreiðanlegar heimildir
innan hersins að staða stjórnar-
hersins færi hríðversnandi
norður og norðvestur af höfuð-
borginni. Bandaríkjamenn reistu
að nýju loftbrú sína með matvæli,
eldsneyti og skotfæri til Phnom
Penh í dag.
□ Israelar og Egyptar héldu f dag
áfram að saka hvorir aðra um að
eiga sökina á því að friðartilraun-
ir Kissinger runnu út f sandinn.
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra
Israels, gaf f skyn í kvöld að nýtt
stríð væri hugsanlega yfirvof-
andi. Rabin hélt ræðu á þinginu
og að henni lokinni hlaut hann og
stjórn hans traustsyfirlýsingu
yfirgnæfandi meirihluta þing-
manna, eða 92—4, en 6 sátu hjá.
Kom andstaðan frá þingmönnum
vinstri flokka og kommúnista. Er
þessi yfirlýsing talin mikill sigur
fyrir hina veikbyggðu, 9 mánaða
gömlu stjórn Rabins. 1 ræðu sinni
fyrir atkvæðagreiðsluna sagði
Rabin að Egyptar hefðu með af-
stöðu sinni f friðarviðræðum
Kissingers sýnt að þeir vildu
aðeins styrkja hernaðarstöðu
sfna. 1 Kairó sagði Ismail Fahmi,
utanrfkisráðherra Egypta, hins
vegar, að ástæðan fyrir þvf að
ferð Kissingers var árangurslaus
hefði verið „hroki og óbilgirni"
lsraela. Og Sadat forseti sagði í
yfirlýsingu, að Arabar myndu
lýsa yfir heilögu stríði ef ísraelar
gerðu árás eða hindruðu tilraunir
til að koma á friðsamlegri lausn í
vandamálum Miðausturlanda. _
Rabin forsætisráðherra sagði í
ræðu sinni á þinginu, að sam-
vinna við Bandaríkin væri „horn-
steinn stefnu ísraelsstjórnar", en
bætti við: „Um leið tókst okkur
ekki að koma okkur saman um
tillögur þær sem bandaríski utan-
ríkisráðherrann færði okkur frá
Egyptum."
Israelskar hersveitir og sveitir
Palestínuskæruliða skiptust á
skotum við Hermonfjall í dag eft-
ir tveggja mánaða friðsemd.
i Washington kváðust banda-
riskir ráðamenn nú hefja undir-
búning að því að friðarráðstefnan
í Genf hæfist á ný. Friðarumleit-
anir Kissingers hlutu stuðnings-
yfirlýsingar talsmanna bæði
demókrata og repúblikana.
Hafréttarráðstefnan:
Settur frest-
ur til 7. apríl
Genf, 24. marz — NTB.
FORSETI hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Genf,
H. Shirley Amerasinghe,
ákvað í dag að mánudaginn 7.
aprfl rynni út frestur til að
skera úr um það hvort útlit
væri fyrir að unnt yrði að ná
einingu um sáttmála um
heimshöfin og auðlindir
þeirra. Amerasinghe sagði að
7. apríl myndi hann innheimta
skýrslur frá sendinefndunum
á ráðstefnunni til þess að Ijóst
yrði hvaða árangur hefði náðst
fyrstu þrjár vikur hennar, en
ráðgert er að ráðstefnan standi
f átta vikur.
Amerasinghe ákvað þennan
frest eftir að hann fékk skýrsl-
ur frá formönnum þeirra
nefnda sem fjalla um land-
helgi, mengunarvandamál, og
stofnun alþjóðlegrar haf-
svæðastofnunar. Allir for-
mennirnir voru heldur óhress-
ir yfir hægaganginum í störf-
um nefnda sinna.
Héraðshöfuðborgimar falla ein af annarri:
Var reynt að myrða Thieu?