Morgunblaðið - 25.03.1975, Page 16
Jg MÖRGUNBLAÐIÐ, í>RIÐ'JXJr)A'GÚft 25. MÁRZ 1975
Vaxandi harka færist nú f leiki ensku knattspyrnunnar, enda slagurinn á botni og toppi í algleymingi.
Myndin sýnir dómara í leik Manchester City og Q.P.R., sem fram fór um fyrri helgi, bóka fyrirliða City,
Rodney Marsh, fyrir grófan leik. Frank McLintock lætur sér þetta vel líka. Margir leikmenn fengu
bókanir f laugardagsleikjunum.
Spennan magnast stöðugt
EVERTON ER ENN í FARARBRODDI
LlNURNAR á toppnum í ensku
1. deildar keppninni í knatt-
spyrnu skýrðust Iftið á laugardag-
inn. Everton hélt þó stöðu sinni f
fararbroddi með því að gera jafn-
tefli við Ipswich Town á Goodison
Park í Liverpool, en síðan má
segja að næstu lið séu f einum
hrærigraut. Liðið hans Jackie
Charitons, Middlesborough, er
skyndilega komið f annað sæti
með 41 stig, en sama stigafjölda
hafa eigi færri en fjögur önnur
lið: Liverpool, Stoke, Burnley og
Ipswich og síðan kemur svo
Derby County með 40 stig. Það
getur því sannarlega allt gerzt
ennþá, þótt Evertonliðið sé
óneitanlega orðið mjög sigur-
stranglegt. Lfnurnar eru hins veg-
ar greinilega að skýrast á botnin-
um. Luton og Carlisle eiga sér
tæpast viðreisnar von og svo virð-
ist sem hreint kraftaverk þurfi til
að bjarga hinu fornfræga Totten
ham-liði frá því að fylgja þess-
um liðum niður í aðra deild. Virð-
ist nú vera að koma á daginn það,
sem margir sögðu f upphafi
keppnistímabilsins, að leikmenn
Tottenham hefðu ekki búið sig
nægjanlega vel undir tímabilið
— væru orðnir of feitir og of
gamlir.
Leikirnir á laugardaginn voru
flestir hinir skemmtilegustu og
skal nú vikið lauslega að hverjum
og einum:
Birmingham — Queens Park
Rangcrs:
Lundúnarliðið náði forystu í
þessum leik á 27. mínútu er Dave
Thomas skoraði með skalla. En
þetta var líka nánast það eina sem
Q.P.R. gat í þessum leik. Birming-
ham hafði algjöra yfirburði og
leið ekki á löngu unz Trevor
Francis jafnaði fyrir sína menn.
A 54. minútu skoraði Alan
Campbell með skoti í stöng og
inn, og Bob Hatton og Jim Calder-
wood bættu svo um betur með
mörkum á 83. minútu og 89.
mínútu. Ahorfendur voru 32.832.
Chelsea —Middlesborough
Alan Willey, 18 ára piltur i
Middlesborough-liðinu, færði þvi
forystu þegar á 16. mínútu með
skoti af löngu færi. John Craggs
breytti svo stöðunni í 2:0 skömmu
síðar. Hljóp þá mikil harka í leik-
inn og var Terry Cooper vísað af
leikvelli. En þrátt fyrir að
Middlesborough léki með 10
menn allan seinni hálfleikinn
tókst liðinu að verjast áhlaupum
Chelsea utan einu sinni er John
Sparrow skoraði með skalla eftir
sendingu frá Charlie Cooke á 74.
mínútu. Áhorfendur voru 22.240.
Bordtennis-
vörur
Badminton-
vörur
Strigaskór
Sundgleraugu
Hnéhlífar
Legghlífar
Öklahlifar
Olnbogahlífar
Sokkabönd
Handklæði
m/enskum
félags
merkjum
Fótboltar
Verð frá
kr. 1.635.—
Leicester — Wolves:
Hinn nýi leikmaður með
Leicester-liðinu, Chris Garland,
náði forystu fyrir lið sitt á 8.
minútu, er hann var fyrstur á
knöttinn eftir hornspyrnu. A 34.
mínútu jafnaði Steve Kindon fyr-
ir Ulfana og 5 mínútum siðar náði
John Richards forystu yfir þá. En
Leicester hafði heppnina með sér
er Dere Parkin skoraði sjálfs-
mark á 61. mínútu, og að venju-
legum leiktíma loknum tókst Gar-
land að skora aftur og færa liði
sínu bæði stigin — stig sem eru
svo dýrmæt fyrir liðið. Ahorfend-
ur voru 25.000.
Tottenham — Liverpool:
Liverpool hafði náð stöðunni
2:0 snemma í seinni hálfleik með
mörkum sem Kevin Keegan og
Peter Cormack skoruðu. Bæði
þessi mörk höfðu nokkurn
heppnisstimpil á sér, eða fremur
komu eftir herfileg varnarmistök
Tottenhammanna, sem áttu ella
sízt minna i leiknum. Áhorfendur
voru 34.331.
Sheffield United — West Ham:
21.010 áhorfendur fylgdust með
skemmtilegri viðureign liðanna.
Þurftu þeir ekki lengi að bíða
eftir marki, þar sem Bobby Gould
skoraði fyrir West Ham þegar á 7.
mínútu. 90 sekúndum síðar hafði
Tony Currie jafnað fyrir Shef-
field-liðið. Aftur náði West Ham
forystu á 28. mínútu er Billy
Jennings reyndi að skalla knött-
inn yfir en markvörður Sheffield
sló hann í eigið mark. í seinni
hálfleik sótti Sheffield-liðið án af-
láts og skoraði Alan Woodward á
58. mínútu og Currie Grabbing
skoraði svo sigurmarkið á 78.
minútu.
Newcastle — Derby:
Þetta var mjög fjörugur leikur
sem var að mestu í eigu Derby-
liðsins sem iék mjög beittan og
skemmtilegan sóknarleik frá
byrjun til enda. David Nish skor-
aði fyrra markið eftir aukaspyrnu
sem Alan Hinton afgreiddi
skemmtilega til hans og Bruce
Rioch skoraði seinna mark Derby
skömmu fyrir leikslok. Áhorfend-
ur voru 31.010.
Manchestér City — Coventry:
Eins og jafnan þegar Manchest-
er City leikur á heimavelli var
liðið mjög samstillt og lék and-
stæðing sinn grátt. Illa gekk þó að
finna leiðina i mark Coventry og
var það ekki fyrr en vítaspyrna
var dæmd, á 59. mínútu að City
tókst loksins að skora. Vitið var
dæmt eftir að Larry Loyd hafði
brugðið miðherja City, Joe Royle,
illa innan vitateigsins. Dennis
Tueart tók spyrnuna og brást hon-
um ekki bogalistin. Á lokamínút-
unum átti Coventry loks nokkrar
góðar sóknir en markvörður City,
Joe Corrigan, bjargaði þá
snilldarlega. Ahorfendur voru
25.903.
Everton — Ipswich:
Eigi færri en 46.269 áhorfendur
fylgdust með viðureign þessara
toppliða i ensku knattspyrnunni.
Trevor Whymark skoraði fyrra
mark leiksins þegar skammt var
liðið á leiktímann. Colin Viljoen
hafði þá tekið aukaspyrnu og sent
vel ínn að markinu þar sem Why-
mark stökk hærra en aðrir og
skallaði knöttinn inn. Áhorfendur
ætluðu hreint að ærast er þetta
gerðist og hvöttu Everton-liðið
gifurlega. Allt kom þó fyrir ekki
lengi vel. Ipswieh stóðst hvert
áhlaupið af öðru, en á 60. mínútu
tókst þó loksins að finna leið í
gegnum vörnina, er Bob Latch-
ford sendi knöttinn á Mick Lyons
sem afgreiddi hann rétta boð-
leið.
Stoke — Carlisle:
Það kom flestum á óvart að
botnliðið Carlisle United tókst að
halda algjörlega i við Stoke í fyrri
hálfleiknum, og staðan að honum
loknum var 1:1. Fyrra mark hálf
leiksins hafði Gerry Conroy skor-
að fyrir Stoke, en 12 minútum
síðar tókst Joe Lidlaw að jafna
fyrir Carlisle. í seinni hálfleikn-
um stóðst hins vegar ekkert fyrir
Stoke-liðinu sem lék oft glæsilega
knattspyrnu. Conroy skoraði með
skalla á 64. mínútu, Jimmy Green-
hoff bætti þriðja markinu við á
66. minútu, Ian Moore sem kom
inná sem varamaður skoraði
fjórða markið á 72. mínútu og
Framhald á bls. 21
* o 1. DEILD
L HEIMA UTI STIG
Everton 35 9 8 1 29—15 5 8 4 20—17 44
Middlesborough 35 9 6 3 29—13 6 5 6 18—21 41
Liverpool 35 10 5 2 34—16 5 6 7 14—19 41
Stoke City 35 10 6 2 35—18 5 5 7 21—25 41
Burnley 35 10 5 3 35—22 6 4 7 25—29 41
Ipswich Town 36 13 2 2 36—19 6 1 11 17—27 41
Derby County 34 10 3 3 32—17 6 5 7 20—28 40
Sheffield United 34 10 6 2 28—19 5 3 8 17—25 39
Queens Park Rangers 36 9 3 6 23—16 6 5 7 25—30 38
Manchester City 35 14 2 2 35—13 1 6 10 11—35 38
Leeds United 34 9 6 2 29—14 5 3 9 17—22 37
West Ham United 35 9 5 3 34—17 3 7 8 19—29 36
Newcastle United 34 11 3 3 33—17 3 3 11 19—40 34
Coventry City 35 7 8 3 28—33 3 5 9 18—31 33
Wolverhampton Wand. 34 9 4 4 34—18 2 6 9 14—26 32
Birmingham 35 9 3 6 31—24 3 5 9 15—27 32
Arsenal 33 7 5 4 25—13 3 4 10 15—27 29
Leicester City 34 5 6 6 17—17 4 4 9 18—32 28
Chelsea 35 4 6 7 20—28 4 6 8 19—36 28
Tottenham Hotspur 35 4 4 9 18—24 4 4 10 20—32 24
Luton Town 34 5 5 7 19—24 2 5 10 13—26 24
Carlisle United 35 5 1 11 14—19 4 2 12 21—34 21
2. DEILD
L HEIMA UTI STIG
Manchester United 35 13 3 1 35—9 8 4 6 17—15 49
Aston Villa 34 12 4 1 35—5 5 4 8 18—24 42
Sunderland 35 11 5 1 32—6 4 7 7 22—24 42
Norwich City 34 12 3 2 27—11 3 9 5 18—19 42
Bristol City 34 12 4 1 26—7 5 3 9 13—18 41
Blackpool 35 11 4 2 27—12 2 10 6 7—11 40
West Bromwich Albion 34 10 4 3 25—12 4 5 8 16—19 37
Bolton Wanderes 34 9 5 4 25—12 4 4 8 13—20 35
Notts County 35 7 9 1 29—18 4 4 10 11—27 35
Oxford United 35 12 3 3 26—16 1 6 11 9—30 35
Fulham 35 7 6 4 22—12 3 8 7 12—17 34
Southampton 34 8 6 3 24—16 4 4 9 20—29 34
Orient 34 6 7 4 13—14 3 9 5 11—18 34
Hull City 35 9 7 1 21—10 2 5 11 13—41 34
York City 35 9 5 4 27—15 4 2 11 18—31 33
Nottingham Forest 35 5 6 7 21—22 5 5 7 15—23 31
Oldham Atletic 35 9 6 3 24—15 0 6 11 8—22 30
Portsmouth 35 7 6 4 23—16 3 4 11 12—29 30
Bristol Rovers 35 9 3 6 19—17 2 4 11 13—34 29
Millwall 35 8 7 3 28—14 1 3 13 9—31 28
Cardiff City 34 6 7 5 20—17 16 9 10—31 27
Sheffield Wednesday 34 3 6 7 16—21 2 4 12 12—32 20
• o • , Knattspyrnuúrslit: O ■ • r> V ■
ENGLAND 1. DEILD:
Birmingham — Q.P.R. 4—1
Burnley — Arsenal 3—3
Chelsea — Middlesborough 1—2
Everton — Ipswich 1 — 1
Leicester — Wolves 3—2
Luton — Leeds 2—1
Manchester City — Coventry 1 —0
Newcastle — Derby 0—2
Sheffield Utd. — West Ham 3—2
Stoke — Carlisle 5—2
Tottenham — Liverpool 0—2
ENGLAND 2. DEILD:
Bolton — Bristol City 0—2
Bristol Rovers — Sunderland 2—1
Cardiff — Sheffield Wed 0—0
Millwall — Blackpool 0—0
Norwich—Hull 1—0
Nottingham — Manch. Utd. 0—1
Oldham — Oxford 1 — 1
Orient — Aston Villa 1—0
Southampton — Notts County 3—2
W.B.A. — Portsmouth 2—1
York — Fulham 3—2
ENGLAND 3. DEILD:
Brighton — Blackburn 0—1
Colchester—Chesterfield 1—2
Gillingham — Port Vale 0—0
Gimsby — Bury 2—0
Halifax — Watford 2___0
Hereford — Walsall 2—0
Huddersfield — Charlton 1—3
r
Urslit getrauna
LEIKVIKA 30
L*ikir 22. marz 1975 1 2
i X 2 t X 2
Birmingham - Q.P.R. i / 7 X
Ðurnley - Arsenal
Chelsea - Middlesbro / z
Everton - Ipswich - / K
Leicester - Wolves - Z /
Luton - Leeds - / /
Manch. City - Coventry / - O f
Newcastle - Derby c> — Z \Z
Sheff. Utd. - West Ham 9 2 /
Stoke - Carlisle ó 2 /
Tottenham - Liverpool 0 - 2 z
Millwall - Blackpool <7 X
Preston — Aldershot 3— 1
Swindon — Crystal Palace 1 — 1
Wrexham — Peterborough 1—2
ENGLAND 4. DEILD:
Barnsley — Rochdale 5—3
Bradford — Cambridge 1 — 1
Brentford — Chester 1 —1
Darlington — Northamton 2—0
Hartlepool — Crewe 1 —1
Lincoln — Rotherham 2—0
Reading — Scunthorpe 1 — 1
Shrewsbury — Newport 1—0
Workington — Stockport 1—0
SKOTLAND 1. DEILD:
Airdrie — Celtic 1—0
AyrYtd. — Dumbarton 1—3
Clyde — Hibernian 0—3
Dundee United — Partick 2—1
Dunfermline—Kilmarnock 1 — 1
Hearts — Arbroath 0—0
Morton — Aberdeen 0—3
Rangers — Motherwell 3—0
St. Johnstone — Dundee 3—1
SKOTLAND 2. DEILD:
Berwick — Montrose 2—2
Brechin — East Stirling 1—0
Clydebank — Albion Rovers 2—0
Falkirk — Alloa 2—1
Forfar—Stranraer 1—4
Queen of The South
— Cowenbeath 2—1
Queens Park — East Fife 0—0
Raith Rovers — St. Mirren 1—2
Stirling — Stenhousemuir 0—1
V-ÞÝZKALAND 1. DEILD:
Bayern Miinchen
— Eintracht Braunswick 1—0
VFL Bochum — Borussia
Mönchengladbach 0—0
Mönchengladbach 0—0
Fortuna Dusseldorf
— Werder Bremen 4—1
Kickers Offenbach
— Schalke 04 3—0
Rot-Weiss Essen
— Eintracht Franfurt 0—5
Hertha Berlin
— Wuppertaler SV 2—0
VFB Stuttgart
— FC Köln 2—0
Hamburger SV
— Kaiserslautern 2—0
MSV - Duisburg
— Tennis Borussia Berlin 2—3