Morgunblaðið - 26.03.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1975
Skákþing
Islands
ORSLIT 4. umferðar Skák-
þings tslands urðu þau, að
Björn Þorsteinson vann Jðn Þ.
Þór, Ómar Jónsson vann Gunn-
ar Finnlaugsson og Frank
Herlaufssen vann Asgeir P.
Asbjörnsson. Jafntefli varð f
skák Helga Ólafssonar og
Hauks Angantýssonar, en skák
Braga Halldórssonar og Mar-
geirs Péturssonar fór í bið.
Skák Júlíusar Friðjónssonar
og Jónasar Þorvaldssonar var
frestað vegna veikinda Jónas-
ar. Þeir Björn, Haukur og
Helgi eru nú efstir með 3 vinn-
inga. 5. umferð átti að tefla I
gærkvöldi.
Teflt við
Fœreyinga
SKAKLANDSKEPPNI milli
tslands og Færeyja hófst f
Hreyfilshúsinu við Grensásveg
f gærkvöldi. Varð seinkun á
keppninni, þar eð
Færeyingarnir komust ekki
hingað f tæka tfð vegna erfiðra
flugskilyrða. Teflt er á 10
borðum. Ólafur B. Thors, for-
seti borgarstjórnar Reykjavfk-
ur, lék fyrsta leik keppninnar.
Alvarleg
meiðsli
Akureyri 25. marz.
58 ára gamall maður, Gunnar
Guðmundsson, SólvöIIum 15,
féll af reiðhjóli á Glerárbrú
um hádegisbilið í gær og hlaut
alvarlegan höfuðáverka. Hann
var ekki kominn til meðvit-
undar í dag, þar sem hann lá á
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Gunnar mun hafa reitt 7 ára
gamlan dreng fyrir framan sig
og er talið aó drengurinn hafi
lent með annan fótinn í fram-
hjólinu og við það hafi Gunnar
misst vald á því. Drenginn sak-
aði litið.
Sv. P.
Farafonov afhendir trúnaðarbréf
NÝSKIPAÐUR sendiherra Sovétrikjanna, hr. Georguy Nikolaevich Farafonov,
afhenti á þriójudag forseta íslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum utanríkisráð-
herra, Einari Ágústssyni.
Síðdegis þá sendiherrann boð forsetahjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum
fleiri gestum.
Hafnbanni haldið áfram í
Immingham og Grimsby
Nýtt lágmarksverð á norskar fiskafurðir
London, 25. marz. Reuter.
SJÓMENN í Immingham og
Grimsby ákváðu í dag að virða að
vettugi dómsúrskurð þess efnis
að þeir hættu þegar f stað að
koma f veg fyrir löndun erlendra
fiskiskipa f þessum höfnum.
Hins vegar ákváðu sjómenn við
Tyneside og Teeside á Norðaust-
ur-Englandi að hætta aðgerðum
sínum. Vmislegt benti til þess að
sjómenn f öðrum höfnum á
austurströndinni mundu einnig
hætta aðgerðum sínum.
Fred Peart landbúnaðarráó-
herra átti í dag fund með sjó-
mönnum og fulltrúum þeirra í
London og hét þvi að gengið yrði
fljótlega að kröfum þeirra varð-
andi innfluttan fisk.
Sjómennirnir sögðust vilja al-
gert bann við innflutningi fisk-
afurða frá löndum utan Efnahags-
bandalagsins og útfærslu brezku
Ferðaskrifstofan
Útsýn 20 ára
landhelginnar sem nú er 12 míl-
ur.
Peart ráðherra sagði
sjómönnunum að þeir hefðu mik-
ió til síns máls og hét yfirlýsingu
um málið í Neðri málstofunni
Kirkjukvöld
Bræðrafélags
Dómkirkju
BRÆÐRAFÉLAG Dómkirkjunn-
ar heldur sitt árlega kirkjukvöld í
Dómkirkjunni á skírdag kl. 20.30.
t tilefni kvennaársins hefur
Bræðraféíagið að þessu sinni
fengið fjórar konur til að koma
þar fram: biskupsfrú Magnea
Þorkelsdóttir flytur frásögu,
kirkjumálaráðherrafrú Dóra Guð-
bjartsdóttir flytur hugvekju, Elin
Sigurvinsdóttir, óperusöngkona,
syngur einsöng með undirleik
Ragnars Björnssonar, dómorgan-
ista, og dr. Guðrún P. Helgadóttir,
skólastjóri, flytur erindi.
Ennfremur flytur séra Þórir
Stephensen, dómkirkjuprestur,
ávarp og séra Óskar Þorláksson,
dómprófastur, flytur hugvekju og
bæn.
innan tveggja daga. Talsmaður
sjómanna sagði: „Okkur hefur
verið heitið aðgerðum innan
tveggja daga svo að við erum
ánægðir — en ekki sigri hrós-
andi.“
Talsmaðurinn sagði að öllum
togurum hefði verið sagt að láta
ekki úr höfn fyrr en Peart gæfi
yfirlýsingu sína. Peart sagði að
fyrirspurnunum hefði verið beint
til Noregs og annarra landa vegna
fiskinnflutningsins. Hann sagði
að innflutningsbann hefði líklega
neikvæð áhrif á fiskverð til neyt-
enda.
Aður hafði deilan breiðzt út til
vesturstrandarinnar Sjómenn í
Fleetwood lokuðu höfninni þar
en því hafnbanni var aflétt eftir
fundinn með Peart.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Jón Olgeirsson í
Grimsby. Hann sagði, aó
sjómennirnir stæðu fastir á sínu
og vildu aðgerðir af hálfu
stjórnarinnar. Jón ítrekaði að
þetta bann fiskimannanna hefði
sáralítil áhrif á Islendinga, engin
skip frá íslandi væru væntanleg,
hvorki fiskiskip né fragtskip. Jón
sagðist hafa fengið tölur um inn-
Framhald á bls. 27
UM ÞESSAR mundir á Ferða-
skrifstofan Utsýn 20 ára afmæli.
Af því tilefni gefur Útsýn út í dag
16 síðna litprentað auglýsinga-
blað með Morgunblaðinu og er
þar m.a. birt ferðaáætlun Utsýnar
í sumar.
Stofnandi Utsýnar, eigandi og
stjórnandi alla tíð hefur verið
Ingólfur Guðbrandsson. A þessu
20 ára timabili hafa umsvif ferða-
skrifstofunnar aukizt mjög og
stendur Utsýn nú fyrir skipulögð-
um ferðum víða um heim m.a. til
Spánar og itaiíu en einnig til fjöl-
margra annarra Evrópulanda.
Ferðaskrifstofan hefur einkaum-
boð fyrir Tjæreborg á Íslandí svo
og American Express, sem mun
vera stærsta þjónustufyrirtæki
sinnar tegundar í heiminum. Enn-
fremur hefur Utsýn tekið upp
samstarf við ferðaskrifstofuna
Globetrotter, sem annast hópferð-
ir til fjarlægra heimsálfa. í viðtali
við Morgunblaðið kvaðst forstjóri
Utsýnar vilja vekja athygli á, að
enda þótt fargjöld í áætlunarflugi
hefðu hækkað mikið næmi hækk-
un fargjalda í hópferðum aðeins
broti af því.
Samstaða um 200
mílurnar í Genf
Genf, 25. marz. Reuter.
SÉRLEGUR sendimaður Kurt
Waldheims, framkvæmdastjóra
SÞ, sagði á biaðamannafundi í
Genf f dag að fulltrúar á hafrétt-
arráðstefnunni væru yfirleitt
sammála um 200 milna efnahags-
lögsögu.
Fulltrúinn, Bernardo Zuleta
frá Kólombíu, sagði að um-
ræðurnar nú fjölluðu um það
hvernig nýta ætti 200 mflna efna-
hagslögsögu og skipta auðlind-
unum.
Þessi mynd var tekin fyrir nokkru af starfsfólki Utsýnar.
Zuleta kvað 200 mflna efna-
hagslögsögu ómissandi í endan-
legum samningi og sagði:
„Hugmyndin um efnahagslög-
sögu virðist greinilega hafa verið
samþykkt."
Hann kvaðst bjartsýnn á fram-
tíð ráðstefnunnar því viðræðurn-
ar hingað til hefðu einkennzt af
alvöru. En hann sagði að önnur
ráðstefna yrði áreiðanlega
nauðsynleg áður en endanlegur
samningur yrði undirritaður.
Japanir hafa samþykkt 200
mílur en vilja halda hefðbundn-
um réttindum samkvæmt góðum
heimildum.
Kalt verð-
ur áfram
NORÐANATT hefur ríkt um
allt land sfðan á laugardag og
hefur fylgt henni töluverður
kuldi. I fyrrinótt fór frostið
hvergi undir 10 stig og mest 25
stig f Sandbúðum. Að sögn
Markúsar Einarssonar veður-
fræðings eru engar breytingar
sjáanlegar á veðrinu, a.m.k.
ekki næstu tvo daga.
„Þetta er vissulega mikill
kuldi en þó engin metkuldi,“
sagði Markús. Hann sagði að i
fyrrinótt hefði frostið víðast
verið 10—12 stig í byggð og
mest farið í 16 stig á Gríms-
stöðum á Fjöllum. Á hálend-
inu var frostið enn meira, 22
stig á Hveravöllum og 25 stig í
Sandbúðum. Norðanáttinni
hefur einnig fylgt hríðarveður
á norðanverðu landinu.
Sandbylurá
strandstað
NORÐANROK var á Mýrdals-
sandi f gær og mikill sand-
bylur á strandstað brezka tog-
arans D.P. Finn.
Aó sögn Árna Sigurjóns-
sonar í Vík komust menn frá
Landhelgisgæzlunni af þeim
sökum ekki lengra en til Víkur
með dráttartaugar og annan
útbúnað til að draga skipið út.
Varð því ekkert af björgunar-
tilraun í nótt eins og til stóð.
Vonir standa til að koma megi
útbúnaðinum á strandstaó í
dag. Varðskipið Ægir lónar
fyrir utan og bíður eftir þvf að
hægt verði að gera tilraun til
að ná togaranum út.
Hvassafellið:
Unnið yfir
páskana
NORÐAN hvassviðri var í
Flatey f gær, þegar Mbl. hafði
samband við Hvassafellið og
6—7 vindstig. Nokkur kvika er
við skipið og því ekki hægt að
athafna sig við olfudælinguna,
enda engin hætta yfirvofandi
af hennar völdum.
Starfsmenn Björgunar halda
áfram að leggja bílaslóð í eyj-
unni svo hægt verði að bjarga
áburðinum, og verður því
verki haldið áfram. Unnið
verður yfir páskana. 8 stiga
frost var í Flatey í gær og 11
stig í fyrradag og hefur klaka-
brynja setzt á skipið, þar
á meðal lestarlúgur. Verður
töluvert verk aó brjóta klak-
ann af lúgunum ef ekki
þiðnar.
Rafmagn
skammtað
Akureyri 25. marz.
RAFMAGNSSKÖMMTUN hef-
ur verið haldið áfram í dag á
veitusvæði Laxárvirkjunar og
hefur skömmtunin verið hert
siðdegis.
Ástæðan er sú, að verið er að
vinna við hreinsun lónsins
ofan við efri rafstöðina við
Laxá en það hefur verið gjör-
samlega fullt af ís og krapi.
Allt tiltækt vatn hefur verið
notað til að skola krapinu burt
yfir yfirfallið á stiflunni.
Hreinsunin gengur eftir beztu
vonum og ekki er ósennilegt,
að hægt verði að auka raf-
magnsskammtinn á morgun,
miðvikudag. Engra breytinga
er þó að vænta á rafmagns-
framleiðslunni fyrr en í fyrsta
lagi seint í nótt. Laxárvirkjun
hefur nú til ráðstöfunar 21
megawatt alls, þar af 10 frá
Laxá, neðri stöðinni, 7 frá
dieselstöðvum, 3 frá gufustöð-
inni í Bjarnaflagi og eitt fæst
eftir Skagafjarðarlínunni af
vestursvæðinu. Sv. P.