Morgunblaðið - 26.03.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1975
3
Staða setuliðsins
1 Hue er vonlaus
Saigon, 25. marz.
Reuter. AP.
NGUYEN Van Thieu forseti skip-
aði forsætisráðherra sínum að
mynda stríðsstjórn i dag samtím-
is því að stórfellt undanhald
stjórnarhersins og sigrar komm-
únista hafa gerbreytt hernaðar-
ástandinu. Með þessu ætlar for-
setinn bersýnilega að hafa nánara
samráð við hershöfðingja sína.
Staða stjórnarhersins í keisara-
borginni Hue i norðri var sögð
vonlaus og búizt var við að hún
félli þá og þegar. Borgin er ein-
angruð en setulið hennar reyndi
að halda opinni leið til sjávar.
I Washington var tilkynnt að
forseti herráðs landshersins,
Fred Weyand hershöfðingi, færi
til Saigon á morgun til að kynna
sér ástandið og gera tillögur um
hugsanlega aðstoð Bandaríkja-
manna. Ford forseti fól sjálfur
Weyand hershöfðingja að fara í
þessa ferð.
Samkvæmt tilkynningu frá
Hvíta húsinu verður Graham
Martin, sendiherra Bandaríkj-
anna í Saigon, með Weyand hers-
höfðingja í ferðinni. Martin hefur
dvalizt nokkra daga í Bandaríkj-
unum að leita sér lækninga.
Ford forseti hét sendinefnd
þingmanna frá Saigon því i dag að
hann mundi gera allt sem í hans
valdi stæði til að sjá til þess að
Suður-Vietnam fengi aukaaðstoð.
Áður ræddi hann ástandið við
Weyand, Martin og Henry Kiss-
inger utanríkisráðherra.
Blaðafulltrúi forseta sagði að
Ford hefði beðið Weyand hers-
höfðingja að fullvissa Thieu for-
seta um eindreginn stuðning sinn
við baráttu Saigon-stjórnarinnar
gegn kommúnistum. Blaðafulltrú-
inn sagði að Weyand mundi ekki
ráðleggja Thieu hvernig vörnum
landsins skyldi hagað.
Herstjórn Viet Cong á Hue-
vígstöðvunum hefur útvarpað
áskorun til setuliðsins um að gef-
ast upp: „Flýið ekki með óvinin-
um. Neyðið ekki fjölskyldur ykk-
ar eða landa til þess,“ sagði i
áskoruninni.
Nokkurt lið frá Hue virðist þeg-
ar hafa verið flutt suður á bóginn
sjóleiðina, en allt var á reiki um
hvort Thieu forseti ætlaði að
halda borginni til síðasta manns.
Kommúnistar héldu uppi harðri
stórhríð á borgina i dag og beittu
nákvæmustu og langdrægustu
fallbyssum sínum.
Stjórnin ætlaði að halda langri
óreglulegri viglínu mörg hundruð
kílómetra meðfram ströndinni frá
Hue meðan herlið þess hörfaði
frá miðhálendinu sem þegar er
fallið en kommúnistar rufu skörð
í þessar víglínu á Þjóðvegi I, þeg-
ar þeir tóku höfuðstaði héraðanna
Quang Tin og Quang Ngap á ein-
um sólarhring.
Á sama hátt og Hue virðist Da
Nang, önnur stærsta borg Suður-
Vietnam, á góðri leið með að ein-
angrast ásamt stóru svæði um-
hverfis borgina. Eina leiðin til
þess að koma vistum til borgar-
innar virðist vera með skipum og
flugvélum.
Lengra i suðri reynir fjöldi her-
manna og flóttamanna að brjótast
frá hálendinu til strandarinnar.
Stór bílalest hefur reynt að kom-
ast til Tuy Hoa á ströndinni en
hefur orðið fyrir hörðum árásum
og tafizt við þær.
Enn lengra i suðri reyna fall-
hlífaliðar að opna þjóðveg til
strandarinnar og þeir munu hafa
endurheimt bæinn Khanh Duong.
Þeir reyna að opna veginn fyrir
leifar fjölmenns fótgönguliðs
stjórnarinnar sem lokaðist inni
lengra inni i landi.
Norður-víetnamska fréttastofan
segir að 600.000 óbreyttir borg-
arar hafi gengið í lið með Viet
Cong í bardögunum á miðhálend-
inu. Hún segir að 120.000 her-
menn stjórnarinnar, þar af 40.000
úr fastahernum, hafði verið gerð-
ir „óvirkir'1.
Með hliðsjón af þessum atburð-
um fól Thieu forseti Tran Thien
Khiem forsætisráðherra að
mynda stríðsstjórn með þátttöku
„hæfra þjóðernissinna sem eru
fjandsamlegir kommúnistum" er
gæti ráðið fram úr ríkjandi neyð-
arástandi: varið landið, hjálpað
flóttamönnum, tryggt jafnvægi í
borgum, aukið framleiðsluna,
stutt baráttuna á vigstöðvunum,
virkjað þjóðina til baráttu gegn
kommúnistum og sigrað Norður-
Víetnama.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hefur Thieu snúið sér til
hófsamra stjórnarandstæðinga,
meðal annars búddatrúarmanna
og kaþólskra, og beðið þá um
stuðning, og bæði bandaríska
sendiráðið og róttækir stjórnar-
andstæðingar hafa hvatt hann til
að mynda stjórn á breiðari grund-
velli.
Þrálátur orðrómur hefur verið
á kreiki um óánægju í hernum, en
stjórnartalsmaður vísaði á bug í
dag frétt um að háttsettur foringi
úr hernum hefði reynt að ráða
Thieu af dögum. En Thieu er
sagður hafa haft nánast stöðugt
samráð við herforingja sína síðan
hið stórfellda undanhald stjórnar-
hersins var ákveðið og nú eru
aliar meiriháttar ákvarðanir sagð-
ar teknar á grundvelli samráðs
við æðstu yfirmenn hersins.
Jafnframt jókst þrýstingurinn á
Phnom Penh og Battembang,
tvær stærstu borgir Kambódíu í
dag og lið stjórnarinnar hörfaði
frá þorpinu Tuol Leap fyrir norð-
an Pochentong-flugvöll hjá höfuð-
borginni. Þó voru loftflutningar
Bandaríkjamanna auknir.
Liðsauki var sendur á vettvang
til að gera gagnárás en ástandið
er sagt alvarlegt í norðvestan-
verðum varnarhring höfuðborg-
arinnar og flugvallarins. 1 Batt-
ambang, 300 km norðvestur af
Phnom Penh, hafa uppreisnar-
menn sótt fram austan við borg-
ina en þeir hafa þegar náð mikil-
vægum stöðum suður af borginni.
Khaled — nýr kgrt
unaur Saudi-Arahíu
KHALED IBN Abdul Aziz, hinum nýja konungi Saudi-Arabíu,
hefur einhverju sinni verið svo lýst af erlendum diplómat, „að
hann væri viðkunnanlegasti maðurinn í öllu konungsríkinu". En
ekki hafði verið við því búizt, að hann yrði konungur.
Hann er sextiu og tveggja ára og var lýstur konungur landsins
skömmu eftir að bróðir hans, Feisal, hafði fallið fyrir morðingja-
hendi. Hann hafði borið titil krónprins síðan Feisal varð kon-
ungur, en næsta bróðurnum, Fahd, sem nú hefur verið útnefndur
krónprins, höfðu iðulega verið falin mikilvægari verkefni og
höfðu margir ætlað að Feisal vildi að hann tæki við af sér. En þar
sem mikil virðing ríkir fyrir aldri i Saudi-Arábíu og Khaled er
elztur þeirra 40 eftirlifandi sona Ibn Sauds, verður þetta að
teljast eðlileg ráðstöfun.
Khaled gekkst nýlega undir mikla hjartaskurðaðgerð á sjúkra-
húsi í Ohio í Bandarikjunum. Aðaláhugamál hans eru sögð
fálkaveiðar og úlfaldaveðhlaup.
Enda þótt hann hafi verið krónprins i mörg ár, má segja að
viðhorf hans til deilu Arabaríkjanna og Israeis, og til olíumálsins,
svo og afstaða hans til Bandaríkjanna, séu óþekkt. Vitað er að
hann er strangtrúaður og heldur í heiðri lög Kóransins, en að
öðru leyti er hann lítt þekkt stærð í landinu, og að svo komnu máli
treysta stjórnmálasérfræðingar ekki að spá hvort stefnubreyting
verður í Saudi-Arabiu við valdatöku hans.
Berum lotningu fyrir lífinu—
einnig því ófædda ÁSKORUNTIL^ALÞimiS
190 KONUR hafa sent Alþingi
yfirlýsingu, þar sem þess er
vænzt, að alþingismenn ljái ekki
máls á frekari rýmkun laga um
fósturcyðingar og ófrjósemisað-
gerðir.
Þær, sem staðið hafa að söfnun
undirskrifta undir yfirlýsinguna,
eru: JóhannaG. Möller, AnnaG.
Hugadóttir, Vilborg Ragnarsdótt-
ir, Klara Björnsdóttir, Katrin
Guðlaugsdóttir, Astrid Hannes-
son, Lilja Sigurðardóttir og Halla
Jónsdóttir, Undirskriftasöfnunin
tók tvo daga.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
Við undirritaðar fögnum breyt
ingum þeim, sem gerðar hafa ver-
ið á 9. grein frumvarps til laga frá
1973 um ráðgjöf og fræðslu varð-
andi kynlíf og barneignir og um
fóstureyðingar og ófrjósemisað-
gerðir frá því sem það var i upp-
haflegri mynd sinni. Teljum við
að ganga hefði mátt enn lengra i
því að þrengja ákvæði umræddr-
ar greinar.
Við væntum þess, að alþingis-
menn beri þá lotningu fyrir lif-
inu, einnig lífi hins ófædda, að
þeir ljái ekki máls á frekari rýmk-
un laga um þetta efni. Þess í stað
beiti þeir sér fyrir hverjum þeim
félagslegu umbótum, sem miða að
þvi, að öll börn geti fæðzt við
aðstæður, sem sæmandi eru sið-
uðu þjóðfélagi".
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prestur. Anna J.
Guðmundsdóttir, húsmóðir. Alda B. Skarp-
héðinsdóttir, húsmóðir. Aðalheiður Samson-
ar, húsmóðir. Anna P. O’Connell, húsmóðir,
skrifstofustúlka. Auður Auðuns, lögfræðing-
ur. Agnes Steinadóttir, húsmóðir. Agnes B.
Eirfksdóttir. flugfreyja. Anna Hilmarsdóttir,
menntaskólanemi. AnnaGuðrún Hugadóttir,
húsmóðir. Astrid S. Hannesson, húsmóð-
ir/forstöðukona. Alda Markúsdóttir, hús-
móðir. Bryndfs Vfglundsdóttir, móðir og
kennari. Bergþóra Sigurðardóttir, læknir.
Betsy Halldórsdóttir, kennari. Bjarnheiður
Sigmundsdóttir, hjúkrunarkona. Agústa
Sverrisdóttir, skrifstofustúlka. Aðalheiður
*Albertsdóttir, nemi. Árný Albertsdóttir,
nemi. Arný Jóhannesdóttir, heilaritari. Asa
O. Þorsteinsdóttir, húsmóðir. Asdfs Emils-
dóttir, háskólanemi. Ásdís Jakobsdóttir,
bankastarfsmaður. Ásthildur Sigurjónsdótt-
ir kennari. Ásthildur Tómasdóttir, ritari.
Ástrfður Kristinsdóttir, hjúkr. nemi. Dagný
G. Álbertsson, kennari. Edda Björk Boga-
dóttir, einkaritari. Edda Gfsladóttir, fóstra.
Elfn Karitas Bjarnadóttir, húsmóðir. Evlalía
K. Guðmundsdóttir, húsmóðir. Eygló V.
Hjaltalfn, húsmóðir. Emilfa Guðjónsdóttir,
hjúkrunarkona. Elfsabet Bjarnhéðinsdóttir,
stud. pharm. Friðrikka Jónsdóttir. Guðrún
Gfsladóttir, húsmóðir. Guðný Steingríms-
dóttir, húsmóðir. Guðrún Ragnarsdóttir, hús-
móðir. Guðrún Dóra Guðmannsdóttir,
háskólanemi. Guðbjörg Hallvarðsdóttir,
heilsuverndarhjúkrunarkona. Guðný
Stefánsdóttir, nemi. Guðrún Jónsdóttir, hús-
móðir. Guðfinna Gísladóttir, verzl. kona.
Guðfinna Guðmundsdóttir aðstoðarlyfjafr.
Guðrún R. Danfelsd. fóstrunemi. Gerður
Olafsdóttir frú. Guðlaug Ragnarsdóttir hús-
móðir. Gréta Bachmann forst. kona. Guð-
björg M. Benediktsd. bókavörður. Gerd Ellen
fiinarsdóttir, húsmóðir. Gerður Finnbogad.
húsmóðir. Guðfinna Jónsd. starfsst. Guðný
Kristinsd. sfmastúlka. Guðfinna Gfsladóttir
húsmóðir. Hanna Arnlaugsdóttir, röntgen-
tæknir. Hrefna Einarsdóttir, húsmóðir.
Helga Magnúsdóttir, kennari. Helga St. Hró-
bjartsd. kennari. Herdfs Þ. Sigurðard. hús-
móðir. Hjördfs Birgisd. hjúkr.nemi. Hellen
S. Helgad. menntask.nemí. Helga Ólafsd.
menntask.nemi. Hallgerður Bjarnhéðinsd.
nemi. Heiðrún B. Jóhannesd. húsmóðir.
Hjördfs Ólafsd. skrifst.st. Helga Friðriksd.
kennari. Helga Möller Johnson, skrifst.st.
danskennari. Halla Bachmann fóstra. Helga
Eyjólfsd., starfst. Helena Ingibergsd fóstra.
Hrefna Óskarsdóttir kennaranemi. Hólm-
frfður Bragadóttir nemi. Herdfs Astráðsd.
hjúkr. nemi. Halla Jónsdóttir stud. phil.
Hulda R. Jessen húsmóðir. Halldóra Krist-
bergsd. húsmóðir, nemi. Helga Guðmundsd.
stud phil. Inger R. Jessen kennari. Inga
Þórðardóttir húsfrú. Inga Stefánsdóttir
menntask.nemi. Ingunn Gfslad. hjúkrunar-
kona. Jenna K. Bogadóttir húsmóðir,
skrifst.st. Jónína S. Bender. Jóna K. Bald-
ursd. fóstra. Jóhanna Zimsen húsmóðir. Jóna
Þorsteinsd. verzl.st. Jóhanna G. Möller hús-
móðir. Kristín Magnúsd. Möller, meinatækn-
ir og húsfrú. Kristfn Ólafsdóttir, húsmóðir.
Kristrún Kristinsd. húsmóðir. Kristrún
Kristjánsdóttir húsmóðir. Kristfn Einars-
dóttir húsmóðir. Kristjana Jónatansd. hús-
móðir. Katrín Bragadóttir starfsst. Kristfn
Pálsdóttir fóstra. Kristfn Albertsdóttir nemi.
Kolbrún Einarsd. menntask.nemi. Kolbrún
Hjaltad. tónlistarsk.nemi. Klara Björnsdótt-
MOKVEIÐI er nú á ansjóvetu I
Perú og hafa veiðzt frá desember-
byrjun og þar til 21. marz sfðast-
liðinn, er tölur um veiði lágu sfð-
ast fyrir, hvorki meira né minna
en rúmlega ein milljón tonn. (Jr
þessum afla hafa Perúmenn
framleitt um 234 þúsund tonn af
fiskmjöli og 46 þúsund tonn af
lýsi.
Veiðarnar hófust eins og áður
er getið í desemberbyrjun og voru
eins konar tilraunaveiðar. Gáfu
þær í desember, janúar og til
ir, húsm. nemi. Kristfn Guðmundsd. ráðs-
kona. Kristfn Markúsdóttir skrifsst.st. Karó-
Ifna Margr. Másdóttir nemandi. Lilja Krist-
jánsdóttir húsm. Lýdfa Þórhallsd. gjaldkeri.
Lára Arnórsd. húsfrú. Lára Vigfúsd. Silja
Sigurðard. hjúkr. kona. Lilja Magnúsd.
húsm. Lilja Gfsladóttir hjúkr.kona. Lfney
Sigurjónsd. Marfa Matthfasd. húsm. Margrét
Erna Baldursd. húsm. Málfríður Erlingsd.
húsm. Margrét Sveinsdóttir, félagsmálafull-
trúi. Marta Sveinbjörnsdóttir póstmaður.
Margrét A. Halldórsd. hjúkr.nemi. María
Sighvatsd. nemi. Málfríður Finnbogad. kenn-
aranemi. Margrét Þorkelsd. menntask.nemi.
Marfa Finnsdóttir hjúkr.kona. Margrét Jóns-
dóttir, húsmóðir. Marfa Aðalsteinsd. fóstra.
Málfrfður Magnúsdóttir, Margrét Möller hús-
móðir. Oddný G. Jónsd. símavörður. Ólöf
Elfa Sigvaldad. skrifst.st. Oddný P. Eiríksd.
húsmóðir. Oddrún Jónasdóttir. Petrína
Steinadóttir húsm. Ragnheiður Magnúsdótt-
ir verkakona. Rósa Einarsdóttir hjúkr.kona.
Ragnhildur Ragnarsdóttir fóstra. Svanlaug
Sigurjónsd. húsm. Sóiveig Hákonard.
febrúarloka um 500 þúsund lestir,
sem úr fengust 110 þúsund tonn
af fiskmjöli, og 15 þúsund tonn af
lýsi. Hin eiginlega ansjóvetuveiði
hófst síðan 10. marz og eru þegar
2 vikur búnár af veiðitímanum.
Veitt er 5 daga vikunnar og hefur
dagveiðin verið sem hér segir:
Fyrsta daginn, 10. marz, veiddust
47 þúsund tonn, 11. marz veiddust
47 þúsund tonn, 12. veiddust 63
þúsund tonn, 13. marz 53 þúsund
tonn og hinn 14. veiddust 66
þúsund tonn eða samtals fyrstu
vikuna 276 þúsund tonn. Þessi
skrifst.st. Sigrún Hallgrfmsd. kennari. Sum-
arlfna Pétursdóttir starfsst. Sigrfður tsleifsd.
kennari. Sigrfður Þ. Tómasd. húsm. Sigrfður
Jónsd. húsmóðir. Sigrfður S. Friðgeirsd.
stúdent. Sigrún H. Pétursd. menntask. nemi.
Sólveig Aðalsteinsd. menntask.nemi. Stein-
unn Pálsdóttir húsm. Sigrún Briem kennari.
Sigríður Pétursd. kennari. Sigurifna Sigurð-
ardóttir, kennari. Sigrún Gfsiadóttir, hjúkr-
unarnemi. Sveinbjörg Ásmundsdóttir húsm.
Sigrfður Sumarliðad. fulltrúi. Sigþrúður
Zophaníasd. húsm. Sólveig Óskarsdóttir stud.
med. Sigrún Hjartard. afgreiðslust. Svanfrfð-
ur Bjarnadóttir, húsm. Svanhildur Vagns-
dóttir húsm. Sigrfður Jónsdóttir, Ijósmóðir.
Steinunn Sighvatsd. húsm. Stefanía Ingi-
mundardóttir fóstrunemi.Sigrfður Magnús-
dóttir, fóstrunemi. Sigrfður Alexandersdótt-
ir húsm. Stína Gísladóttir, kennari. Sigrfður
Aðalsteinsdóttir, skrífst.st. Susie Bachmann
húsmóðir. Sigrfður Magnúsdóttir Sandholt,
húsmóðir. Sigrfður Jóhannsdóttir, stúdent.
Sigrún Harðardóttir nemi. Sæunn Jónsdótt-
ir, skrifst.st. Sigrfður Gunnlaugsd. nemi.
Steinunn Þorvarðard. húsfrú. Svanfríður
Jakobsd. kennaranemi. Thora Kristjánsson
húsmóðir. Unnur Erlendsd. húsfrú. Vilborg
R. Schram fóstra. Valborg Þórðard. aðst.st.
Vrlborg Jóhannesd. húsmóðir. Vigdfs
Magnúsdóttir, hjúkr.kona. Valgerður Hrólfs-
dóttir kennari. Þurfður Geirlaugad. verka-
kona. Þórhalla Grétarsd. verzl.kona. Þóra G.
Möller, húsm. Þórey J. Sigurj. barnalæknir.
Þóranna Sigurbergsd. menntask.nemi. Þórey
Ingvarsd. hjúkr.kona. Þqrbjörg H. Sigurjóns-
d. húsm. Þóra Kolbeinsdóttir.**
afli gaf 60.700 tonn af fiskmjöli og
15.300 tonn af lýsi. Síðari vikuna
var dagsafli þannig að 17. marz
veiddust 71 þúsund tonn, 18. marz
41 þúsund tonn, 19. veiddust 63
þúsund tonn, 20. marz 56 þúsund
tonn og hinn 21. marz 56 þúsund
tonn, samtals 288 þúsund tonn,
sem gáfu í fiskmjöli 62.700 tonn
og 16 þúsund tonn af lýsi.
Aflinn er svo mikill að allur
floti Perúmanna getur ekki
stundað veiðarnar í einu. Eru
skipin látin skiptast á.
Gífurlegur ansjóvetuafli Perúmanna