Morgunblaðið - 17.04.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRlL 1975
3
25 ára afmæli Þjóðleikhússins:
Afmælisins minnzt
á margvíslegan hátt
Á SUNNUDAGINN eru liðin 25
ár frá því Þjóðleikhúsið hóf
starfsemi sína. Verður afmælis-
ins minnzt með margvíslegum
hætti og má þar nefna frumsýn-
ingu Silfurtungls Laxness í
nýrri gerð, samantekt úr nokkr-
um verkum sem leikhúsið hef-
ur sýnt á starfstfma sfnum,
ljóða- og söngkvöld, útgáfu rits
um leikhúsið og ef til vill
hljómplötuútgáfu. Þjóðleik-
húsið kynnti þessi atriði fyrir
blaðamönnum í gær og voru
þar í fyrirsvari Sveinn Einars-
son, þjóðleikhússtjóri, Vil-
hjálmur Þ. Gfslason, formaður
Þjóðleikhússráðs, og leikstjór-
arnir Gfsli Alfreðsson og
Stefán Baldursson.
Afmælissyrpa
Á sjálfan afmælisdaginn,
sunnudaginn 20. april, verður
sýning á aðalsviðinu um kvöld-
ið. Þar verður flutt tveggja
tíma afmælissyrpa, þ.e. sýnis-
horn úr mörgum þeirra verka
sem sýnd hafa verið i 25 ára
sögu leikhússins. Flutt eru
atriði úr 20 verkum, leikritum,
söngleikjum og óperum. Gisli
Alfreósson hefur haft umsjón
með sýningunni, og sagði hann
á fundinum i gær, aó ekki bæri
að taka það svo, að hér væri
samsafn þess bezta sem leik-
húsið hefur boðið uppá. Flytj-
endur eru 50—60 talsins, leik-
arar, dansarar, einsöngvarar og
Þjóðleikhúskórinn. Þetta er
boðssýning og verða þar ein-
göngu starfsmenn hússins fyrr
og síðar og nokkrir gestir þess.
Sunnudaginn á eftir verður
sýning fyrir almenning og jafn-
vel fleiri sýningar en það fer
eftir undirtektum. Af verkum
sem sýnt verður úr má nefna
Islandsklukkuna, Gullna hliðið,
Gisl, Pétur Gaut, Fiðlarann á
þakinu, My Fair Lady,
Kabarett, Þrettándakvöld, G
þetta er yndælt stríð, Rigólettó,
Töfraflautuna, Leðurblökuna
og Þrymskviðu. Þá verður Is-
lenzki dansflokkurinn með tvö
atriði. Reynt er að hafa sömu
leikara og léku hlutverkin á
sinum tima, eftir því sem
kostur er.
Ljóðakvöld
Miðvikudagskvöldið 23. apríl
verður ljóða- og söngvakvöld á
litla svióinu i kjallara Þjóðleik-
hússins. Þetta er um klukku-
tima dagskrá og verður hún i
frekar léttum dúr að sögn
Stefáns Baldurssonar, sem haft
hefur umsjón með dagskránni.
Dagskráin hefur hlotið nafnið
Ung skáld og æskuljóð. Verða
þar flutt ljóð eftir ung skáld,
miðaldra skáld og nokkur eldri
skáld. Þau verða bæði lesin og
sungin. Flytjendur eru fimm
leikarar sem njóta aðstoðar
söngflokksins Þrjú á palli. Af
höfundum ljóða má nefna t.d.
Böðvar Guðmundsson, Ninu
Björk Árnadóttur, Megas, Þór-
arin Eldjárn, Jóhann Hjálmars-
son, Matthías Johannessen,
Hannes Pétursson, Þorstein frá
Hamri, Stein Steinar, Jóhannes
úr Kötlum, Tómas Guðmunds-
son og Halldór Laxness. Ekki er
áformuð nema ein sýning en
þær gætu orðið fleiri ef undir-
tektir verða góðar.
Silfurtunglið
Fimmtudagskvöldið 24. apríl,
sumardaginn fyrsta, verður
frumsýning á léikriti Halldórs
Laxness, Silfurtunglinu. Eins
og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu hefur höfundurinn
gert nokkrar breytingar á verk-
inu frá því það var frumflutt í
Þjóðleikhúsinu fyrir liðlega 20
árum síðan. Hefur hann stytt
það nokkuð, bætt inn köflum og
fjölgað hlutverkum. Munu
nærri 40 manns koma fram á
sýningunni. Þau Sveinn Einars-
son leikhússtjóri og Bríet
Héðinsdóttir eru leikstjórar,
Sigurjón Jóhannsson hefur
gert leiktjöld en tónlist er eftir
Jón Nordal. Verður hún flutt á
annan hátt en á sýningunni
1954. Með helztu hlutverk fara
Anna Kristín Arngrimsdóttir,
Erlingur Gislason, Ingunn
Jensdóttir, Róbert Arnfinns-
son, Sigurður Örn Arngrims-
son, Valur Gislason, Hákon
Waage, Bryndis Pétursdóttir og
Guðmundur Magnússon. Silfur-
tunglið verður svo að sjáifsögðu
áfram á verkefnaskrá leikhúss-
ins.
Rit og hljómplata
I sambandi við afmæli Þjóð-
leikhússins hefur verið ákveðió
að gefa út rit um starf leikhúss-
ins á undanförnum 25 árum.
Hefur Vilhjálmur Þ. Gislason
fyrrverandi útvarpsstjóri tekið
að sér að semja þetta rit og mun
það væntanlega koma út með
haustinu. Vilhjálmur sagði á
blaðamannafundinum i gær, að
þetta væri ekki saga leikhúss-
ins heldur mætti frekar nefna
þetta svipmyndir úr starfi þess
og þeim verkefnum sem það
hefur tekið til meðferðar.
Væntanlega verður ritið ríku-
lega myndskreytt. Þá er í
athugun að gefa út hljómplötu
með óperuflutningi sem leik-
húsið hefur verió með á boð-
stólum en þaó atriði er þó ekki
Framhald á bls. 18
Forráðamenn og leikstjórar Þjóðleikhússins skýra frá afmæiisdag-
skránni á fundi með blaðamönnum f gær. Frá vinstri: Stefán
Baldursson, Vilhjálmur Þ. Gfslason, Sveinn Einarsson og Gfsli
Alfreðsson. Ljósm. Sv.Þorm.
Árni Egilsson, Vladimfr Ashkenazy, Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri sinfónfuhljómsveitarinnar.og Þorkell Sigurbjörnsson.
Fyrsti íslenzki bassa-
konsertinn frumfluttur
A tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar tslands á morgun verður
frumflutt nýtt tónverk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Þetta er
konsert fyrir hljómsveit og bassa-
fiðlu, sem Þorkell samdi sérstak-
lega fyrir Arna Egilsson, bassa-
leikara. Stjórnandi hljómsveitar-
innar á þessum tónleikum er
Vladimír Ashkenazy.
Tónverkió er eini islenzki
konsertinn, sem saminn hefur
verið fyrir bassa, en þegar Árni
Egilsson lék hér á listahátið fyrir
tæpu ári, ásamt André Prévin og
fleirum, kom hann að máli vió
Prévin, og bað hann um að benda
sér á íslenzkt tónskáld, sem
hugsanlega gæti samið fyrir sig
konsert. „Prévin lagði til að ég
talaði við Þorkel Sigurbjörnsson,
og hann var fús til þess að reyna
þetta.“ sagði Arni í gær.
Framhald á bls. 18
Fjársöfnun vegna Indó-Kína
RAUÐI kross tslands og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hafa nú
ákveðið að efna til sameiginlegr-
ar fjársöfnunar um allt land til
aðstoðar við hjálparstarfið f
Suður-Vietnam og Kambódfu.
Var þetta ákveðið þar sem endur-
teknar hjálparbeiðnir hafa komið
frá þeim aðilum, sem þessar
stofnanir hafa samband við f
Indó-Kfna.
I fréttatilkynningu frá Rauða
krossinum og Hjálparstofnuninni
segir, að nú virðist sorgarleikur-
inn f Vietnam og Kambódfu vera
á lokastigi. Eins og ávallt sé'al-
menningur í nokkrum vafa um
hvernig bregðast skuli við þegar
menn berast á banaspjót af
stjórnmálalegum ástæðum. Menn
velti því fyrir sér hvort hjálparað-
gerðir beri þann árangur sem til
sé ætlazt, hvort hér sé ekki
botnlaus hít. Alkirkjuráðið og Al-
þjóðaráð RK hafi starfsfólk á 011-
um þeim svæðum, sem um ræðir.
Því megi treysta að fullt eftiriit
verði haft með því fjármagni eða
vörum héðan kynnu að vera send-
Framhald á bls. 18
Frá hörmungarsvæðunum f Indó-Kfna
Sigurlaugur Þorkelsson, blaðafulltrúi Eimskipafélags lslands,
Sigurd Simonssen, Thomas Arabo, og Steinn Lárusson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Úrvals.
Ferðir „Smyrils” milli íslands
og Noregs hefjast 1 júní
— fargjald fyrir tvo með bíl 31 þúsund krónur
„VIÐ erum hér til að ganga frá
skipulagi ferðanna milli Is-
lands, Færeyja og Noregs, og
eitt af því, sem þarf að taka
afstöðu til er hvaða staður
verður endastöð „Smyrils" á
Austurlandi,“ sagði Thomas
Arabo, forstjóri „Strandfara-
skipa landsins", færeyska
skipafélagsins f gær. „Þetta
verður ákveðið fljótlega eftir
að við komnm heim til Fær-
eyja.“
Sigurd Simonsen, ferðamála-
stjóri i Færeyjum, hefur verið
hér ásamt Arabo, og héldu þeir
fund með fréttamönnum i gær.
Eimskipafélag Islands hefur
umboð fyrir „Strandfaraskip
landsins" hér á landi, og mun
Ferðaskrifstofan Urval hafa
umsjón með farmiðasölunni, en
einnig verður hægt að kaupa
farseðla hjá öllum öðrum ferða-
skrifstofum hér á landi.
Færeyska skipafélagið keypti
„Smyril“ frá Danmörku og var
kaupverð skipsins 26 milljónir
danskra króna, en nú er skipið í
Friðrikshöfn i Danmörku, þar
sem endurbætur á því fara
fram fyrir um 3 millj. danskra
króna.
Skipið getur flutt alls 360
farþega og 130 bila. Rúm er
fyrir 160 farþega í káetum, en
svefnrými er á dekki skipsins
fyrir 200 farþega.
Feróin milli Islands og Björg-
vinjar tekur 6 sólarhringa, en
þá er meótalin tveggja og hálfs
sólarhrings dvöl i Færeyjum.
Þar geta farþegar búið um borð
og gegn vægu gjaldi, en hafi
þeir t.d. bifreið meðferðis gefst
ágætt tækifæri til að skoða
eyjarnar á eigin vegum.
Sem dæmi um fargjöld má
nefna, aó svefnpláss á dekki frá
Reykjavík til Björgvinjar
Framhald á bls. 18