Morgunblaðið - 17.04.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRIL 1975
11
Haraldur Kröyer
afhenti trúnaðar-
bréf á Kúbu
Haraldur Kröyer afhenti hinn
31. marz 1975 forseta Kúbu, dr.
Osvaldo Dorticós Torrado, trúnaó-
arbréf sitt sem sendiherra ls-
lands á Kúbu með aðsetri i Wash-
ington, D.C.
Stúdentafélag Háskóla Islands
Hér fer á eftir I heild fréttatil-
kynning, sem stjórn Stúdentafé-
lags Háskóla tslands sendi frá sér
fyrir skömmu. Tilkynninguna
undirrita: Benedikt Ölafsson, Jón
Sólnes, Hjörleifur Kvaran, Krist-
inn Björnsson og Hjörtur Hjart-
arson.
A fundi fullskipaðrar stjórnar
Stúdentafélags Háskóla Islands,
sem haldinn var 24. marz 1975,
var eftirfarandi ályktun lögó
fram og samhljóða samþykkt:
A undanförnum árum hefur fá-
mennur hópur stúdenta lagt á það
ofurkapp að koma með öllum til-
tækum ráðum í veg fyrir starf-
semi SFHI. Þessi starfsemi hefur
lögum félagsins samkvæmt verið
fólgin í því að halda vörð um
sjálfstæði Háskóla Islands, menn-
ingarlega hagsmuni stúdenta og
þjóðlega reisn; ennfremur að
halda Vetrarfagnað og Rússagiidi.
Friður til þessara starfa hefur
verið knappur hin siðari ár vegna
linnulausra ofsókna hatursmanna
félagsins, en þó aldrei eins og
síðastliðið starfsár. Tilkynningar
og auglýsingar frá félaginu eru
umsvif alítið rifnar og á þeim troó-
ið. Svo geigvænleg er óskamm-
feilnin að hiklaust I augsýn starfs-
manna félagsins, ráðast flugu-
menn þessir á allt sem SFHI við-
kemur, rífa það og tæta froðufell-
andi af bræði og heift.
Er nú svo komið, að stjórn
SFHl telur það ekki ná réttum
tilgangi sínum að auglýsa lögboð
inn aðalfund félagsins, sem halda
á 1 marz, ár hvert, af ótta við
upptekna háttu þessara kumpána.
Því sú hætta er vissulega fyrir
hendi að hinum almenna stúdent
komi auglýsing um aðalfund fé-
lagsins aldrei fyrir sjónir. Er þá
verr stað farið en heima setið. Til
marks um óþreyju skæruliða, má
minna á auglýsingu i síðasta Stúd-
entablaði, þar sem þeir undir for-
ystu Marðar Gýrdal, auglýsa eftir
auglýsingu, sem auglýsa skal aðal-
fund SFHÍ. Ennfremur er stjórn-
inni kunnugt um að auglýsing
SFHI um aðalfund félagsins í
fyrra hangir sem minjagripur yfir
fótalagi eins liðans.
Segja má, að tair nafa iatið sitt
eftir liggja í herferðinni gegn
Stúdentafélaginu. Öfgamenn til
hægri og vinstri, austurs og vest-
urs, koma fram gagnvart félaginu
sem ein breiðfylking undir al-
máttugri yfirstjórn Stúdenta-
ráðs. Er þar gamall draumur að
rætast.
Af gefnu tilefni mótmælir
stjórn SFHl öllum aðdróttunum
um tengsl félagsins við öfgasam-
tök á borð við Vöku og Verðandi.
Hið sanna i samskiptum stjórnar-
liða við utanaðkomandi öfl, er, að
þeir aðilar og menn sem stjórnin
treysti hvaó mest á varóandi
framtíð þessa gamalgróna og
virðulega félags, brugóust allir og
gengu til liðs við andstæðinga
vora.
Þannig er það ekki ófyrirsynju,
að byggingarmál félagsins hafa
verió nokkuð til umræðu að und-
anförnu. Meðal annars hefur það
borið á góma, hvort ástæóa væri
til að endurskoða byggingaráform
félagsins, til dæmis með það 1
huga að i stað þessa veglega húss
undir starfsemi félagsins yrði
hafist handa byggingu virkis eða
kastala. Því svo vel hefur skæru-
hernaður tekist á hendur oss í
stjórn SFHI að vart er ofsagt, af
vér séum nokkuð einangraðir
orðnir i Háskóla Islands. Ekki fyr-
ir þær sakir að skoðanir vorar
falli ei stúdentum i geð heldur
vegna hins að vér erum afgirtir til
hægri og vinstri af Vöku og Verð-
andi og komum ekki boðskap vor-
um rétta boðleið til stúdenta.
En i umræddum kastala gætu
fyrrverandi stjórnarmenn SFHI
setið óhultir og beðið betri tima.
Það þarf vart að taka það fram að
byggingarnefnd félagsins er al-
gjörlega sjálfstæð og óháð stjórn-
arskiptum í SFHI, enda skipuð til
að starfa svo lengi sem hún hefur
verk að vinna.
Stjórn Stúdentafélags Háskóla
Islands hefur þvi á fundi sfnum
hinn 24. marz, 1975, tekið þá
ákvörðun að fela embætti rekt-
ors Háskóla Islands frá og með 24.
marz nafn og eigur félagsins. Mun
stjórn félagsins 1974—75 ganga
frá félaginu í umslagi, sem verður
áfhent rektorsembættinu hinn 1.
apríl 1975. Verður það jafnframt
siðasta embættisverk þeirrar
stjórnar. Stjórn SFHl 1974—75 er
harmur i huga við þessi timamót í
sögu þessa merkilega félags, sem
verðuröO áraá því herrans ári sem
nú er nýhafið. En þvi miður verð-
ur svo að vera meðan ekki er
vinnufriður til að halda merki
Stúdentafélagi Háskóla tslands
háu og hnarreistu sem þvi ber.
Vér getum aðeins vonað að bráð-
um komi betri tið með blóm i
haga og þá verói aftur aðrir til að
taka við þessu aldna félagi, sem
vilja hafa og þrótt til að gera því
svo hátt undir höfði þvi ber.
Sjóður félagsins nemur nú
krónum 30.885,50. Ekki þykur
ástæða til að fé þetta ligg> ónot-
að á þessum viðsjártímum í
þjóðfélaginu. Þvi ánafnar stjórn
SFHl fé þessu til Stúdentafélags
Reykjavikur og skal þvi varið til
stuðnings byggingu gosbrunns
sem umlykja skal styttuna af sr.
Sæmundi presti í Odda á lóð Há-
skóla Islands.
Afmælisskákmót Sambands Is-
lenzkra skákmanna, haldið i til-
efni 40 ára afmælis sambandsins,
var haldið um s.l. helgi. Tefldar
voru 7 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Þátttakendur voru alls 20,
þar af tvær konur. Sigurvegari
varð Ingi R. Jóhannsson, endur-
skoðandi Utvegsbankans, en hann
vann allar sínar skákir.
Annars varð röð efstu manna
þessi:
1. Ingi R. Jóhannsson 7 v.
2. Jón Kristinsson 5M v.
3.—5. Stefán Þormar Guómundsson 44 v.
3.—5. Hilmar Karlsson 44 v.
3.—5. Jóhann Örn Sigurjónsson 44 v.
ALLTAF EITTHVAÐ NYTT
Ny sending
Kvenkápur • pils • kjólar 0 úr riffluðu flaueli
Blússur • toppar • mjó leðurbelti 0 margir litir.
Kvenbuxur með háum streng
Galla- og flauelsbuxur frá Lewis og Inega
Wild-cat flauelsbuxur á 2.690.-
Frábært úrval af allskyns bolum, rúllukragabolir úr
frotté og Acryle. Einnig einlitir og mislitir bolir.
Jakkaföt, með og án vestis.
Herrabuxur £ 3 snið £ fjölbreytt litaúrval.
Nýtt úrval af Men's clube skyrtum.
Peysur 0 vesti # bindi • slaufur.
Ný sending herraskór
LAUGAVEGI 37 OG LAUGAVEGI 89
•fSÞ-