Morgunblaðið - 17.04.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRIL 1975
15
Verkalýðsfélög gagnrýna
fjárlagafrumvarp Healeys
London, 16. apríl. Reuter.
VERKALVÐSFÉLÖG í Bretlandi
og vinstrisinnar í Verkamanna-
flokknum gagnrýndu harðlega f
dag fjárlagafrumvarp Denis
Healey fjármálaráðherra og
sögðu að það mundi auka dýrtíð-
ina. Herskáar verklýðshreyfingar
gáfu til kynna að nýjar launakröf-
ur yrðu bornar fram til að vega
upp á móti verðhækkunum.
Það með er óttazt að slegið geti i
brýnu milli stjórnarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar sem er
aðalbakhjall hennar. Þó er ekki
álitið að fjárlögin stefni einingu
flokksins i hættu og talið er víst
að stjórnin haldi velli í atkvæða-
greiðslunni um þau.
Ray Buckton, einn af foringjum
járnbrautarmanna, sakaði Healey
um að „niðast á verkamönnum“
og spurði hvers vegna hann
reyndi ekki heldur að stöðva pen
ingaflóð úr landi frá einkaaðilunw
Gremju gætti vegna þeirrar full-
yrðingar Healeys að há laun væru
undirrót verðbólgunnar og vegna
þess að hann virðist sætta sig við
aukið atvinnuleysi.
Talsvert kaupæði var i verzlun-
um i London í dag þar sem verð
hækkanirnar sem gert er ráð fyrir
i fjárlögunum taka ekki gildi fyrr
en 1. mai. Staða pundsins batnaði
fyrst eftir að frumvarpið var lagt
fram en versnaði siðan aftur og
Englandsbanki varð að koma til
hjálpar.
Hins vegar hækkuðu hlutabréf
i verði í kauphöllum þar sem talið
er að fjárlögin hafi jákvæð áhrif á
fjárfestingar. Þó óttast fjármála-
menn að framhald verði á miklum
lántökum erlendis og telja að hall-
inn á fjárlögum sé alltof mikill og
þess vegna á pundið i erfiðleik-
um.
Healey mætti á fundi með þing-
mönnum Verkamannaflokksins
og sagði þar að „tilgangslaust
væri að heimta kauphækkanir til
að kaupa litasjónvarpstæki,
whisky, bjór og tóbak“. Hann
sagði að fólk yrði að sætta sig við
hækkanir á munaðarvörum sem
væru „nauðsynlegar vegna verð-
bólgunnar". Þótt nokkur stóryrði
féllu var sagt að fundurinn hefði
farið vel fram.
Vopnahlé en
áfram barizt
Beirút, 16. apríl.
Reuter. AP.
PALESTlNSKIR skæruliðar og
hægrisinnaðir falangistar í
Líbanon samþykktu vopnahlé i
kvöld eftir bardaga sem hafa stað-
ið í fjóra daga. Rashid Al-Solh
forsætisráðherra tilkynnti þetta í
útvarpi en bardagar héldu áfram
á við og dreif.
Foringjar deiluaðila komu einn-
ig fram i útvarpinu og tilkynntu
aó þeir hefðu skipað stuðnings-
mönnum sinum að virða vopna-
hléð í hvívetna og hætta öllum
bardögum. Þeir hafa kostað 110
mannslíf.
Nýir hópar vopnaðra manna
hafa bætzt i hópinn i siðustu bar-
dögunum. Talið var að taka
mundi nokkra klukkutíma að
koma vopnahléinu í framkvæmd
ef vopnahlé kæmist á á annað
boró.
Solh sagði að falangistaforing-
inn Pierre Gemayel hefði sam-
þykkt að framselja líbönskum
yfirvöldum tvo menn sem lýst var
eftir i upphafi bardaganna og að
þeir hefðu verið settir i varðhald
ásamt 13 öðrum mönnum sem áð-
ur höfðu verið teknir til yfir-
heyrslu. Hann skoraði á almenn-
ing að færa allt líf í eðlilegt horf
og sagði að átökin væru vatn á
myllu fjandmanna Palestínu-
manna og Líbana.
Palestinska fréttastofan WAFA
sagði að handtökurnar mundu
Sleðahundar
drápu telpu
Syðra Straumfirði, Grænlandi —
Tveir voveiflegir atburðir hafa
gerzt með stuttu millibili á Aust-
ur-Grænlandi. Fjögurra ára telpa
beið bana þegar hópur af sleða-
hundum réðst á hana á flugvellin-
um í Kulusuk. I Angmagssalik
skaut ölvaður maður konu sína til
bana. — Henrik Lund.
stuðla að þvi að ró kæmist á. Hún
sagði að eðlilegt væri að Solh
beitti rétti yfirvalda til að „hand-
taka morðingja og glæpamenn og
refsa þeim“.
Riad, framkvæmdastjóri Araba-
bandalagsins, hélt áfram sáttatil-
raunum sínum i dag. Auk tveggja
ráðherra sósíalista sem hafa sagt
af sér hafa þrír aðrir ráðherrar
hótað að segja af sér ef sáttatil-
raunirnar fara út um þúfur.
Æðsti yfirmaður libönsku
kirkjunnar, Antonius Khreish
patríarki, og sendiherra Saudi-
Arabíu, Mohammed Mansour
Rumeih, hafa einnig reynt að
miðla málum. Báðir ræddu vió
Gemayel í dag.
Frú Onassis fær aðeins
3 milljónir dala í arf
fru onassis
JACKIE Onassis erfir aðeins
þrjár milljónir dollara eftir
eiginmann sinn, skipakónginn
Aristoteles Onassis, að sögn
The New York Times. Áður var
talið að hún fengi allt að 200
milljónir dollara.
Blaðið segir enn fremur að
Onassis hafi ætlað að skilja við
konu sina. Náin samstarfs-
maður hans, John Meyer,
hringdi i lögmann að nafni Roy
Cohn 3. desember sl. að sögn
blaðsins og sagði honum að
Onassis vildi að hann yrði lög-
fræðingur sinn í skilnaðarmáli
sem hann ætlaði að höfða gegn
Jackie.
Börn Jackie Onassis og John
F. Kennedy fyrrverandi forseta
fá hvort um sig eina milljón
dollara í arf. Aður hafði verið
talið að þau mundu erfa ailt að
15 milljón dollara hvort.
Þegar Onassis lézt I Paris 15.
marz voru auðæfi hans áætluð
alit að 500 milljón dollarar.
Fjárhæðin sem frú Onassis fær
er sögð sú lágmarksupphæð
sem Onassis gat ánafnað henni
samkvæmt griskum lögum.
Nokkrir vinir Onassis-
fjölskyldunnar hafa sagt að frú
Onassis
vildi f á
skilnað
Onássis vilji meiri peninga að
sögn New York Times. Hins
vegar er Christina Onassis,
dóttir skipakóngsins frá fyrsta
hjónabandi, sögð fjandsamleg
frú Onassis.
Vinir Cristinu Onassis segja
að hún hafi reynt að telja föður
sinn á að skilja við Jaekie. Vin-
ir Onassis segja að skipa-
kóngurinn hafi ákveðið að
hætta við að sækja um skilnað
vegna veikinda sinna en ekki
vegna þess að hann hafi sætzt
við konu sina.
Samkvæmt griskum lögum á
frú Onassis rétt á að minnsta
kosti einum áttunda eigna
manns sins. Hins vegar átti
Onassis um 100 fyrirtæki og
fjármál hans voru svo flókin að
hann einn virtist skilja þau.
Sérfræðingar i griskum lög-
um segja að Onassis hefði getað
samið erfðaskrána þannig að
frú Onassis fengi miklu minna
en einn áttunda heildartekna
hans.
Orðrómur um skilnað Onass-
is-hjónanna komst fyrst á kreik
1970 en hann var alltaf borinn
til baka. New York Times segir
að árið 1970 hafi frú Onassis
haft á orði við vina sína og
ættingja að skipakóngurinn
mundi skilja við hana fyrr eða
síðar.
Portúgal:
Nær allir þættir efna-
hagslífsins þjóðnýttir
Lissabon 16. april
Reuter — AP.
STJÓRNIN I Portúgal ræður nú
yfir nær öllum þáttum efnahags-
lífs þjóðarinnar, eftir að tilkynn-
ingin um enn frekari þjóðnýtingu
var gefin út i gærkvöldi að lokn-
um rikisstjórnarfundi. ÖII raf-
orkuver landsins hafa verið þjóð-
nýtt, járnbrautirnar, flugfélögin
og önnur samgöngufyrirtæki. Þá
hafa stálverksmiðjur landsins og
oliufélög einnig verið þjóðnýtt.
Fyrir nokkrum vikum þjóðnýtti
stjórnin flesta banka landsins og
tryggingafyrirtæki. 1 undirbún-
ingi er formleg þjóðþýting helztu
námufyrirtækjanna, bruggverk-
smiðja og allra stærstu iðnfyrir-
tækja landsins.
Þjóðnýting undirstrikar enn
frekar þá vinstri stefnu, sem rikir
meðal valdamanna landsins eftir
misheppnaða byltingu hægri
manna i siðasta mánuði. Þessar
aðgerðir draga enn úr þýðingu
kosninganna, sem fram eiga að
fara i landinu í næstu viku. Vasco
Goncalves, forsætisráðherra
landsins, sagði i dag: „Þær að-
gerðir, sem stjórnin hefur gripið
til, sýna svo ekki verður um villzt
þá stefnu, sem við viljum að bylt-
ingin taki. Við viljum tryggja lýð-
ræði í landinu og þróast yfir i
sósialisma eftir vissan aðlögunar-
tima, en sóisalismi er okkar æðsta
markmið.1' Forsætisráðherrann
sagði, að ef ekki hefði verið grip-
ið til þessara þjóðnýtingar hefðu
lýðræðisþróunin getað lent á villi-
götum. Hann sagði að portúgalska
þjóðin yrði að horfat i augu við
baráttu á hverri klukkustund á
aðlögunartimabilinu.
Þá skýrði Batista, landbúnaðar-
ráðherra Portúgals, frá þvi að
stjórnin hefði ákveðið að leggja
fram frumvarp, sem heimilaði
henni að iaka eignarnámi öll
landbúnaðarsvæði með áveitu-
kerfi, sem væru stærri en 50 hekt-
arar og svæði án áveitukerfis,
sem væru yfir 500 hektarar að
stærð.
Þá var einnig frá þvi skýrt, að á
næstu dögum yrði sett ný reglu-
gerð varðandi verðlag og launa-
máfog jafnframt tilkynnt að verð
á brauði, kjöti, mjólk, sykri, olíu
og hveiti myndi verða óbreytt út
þetta ár.
Nýr varafor-
seti í Kaíró
Tannbönkum komið á fót ?
Eða hverfa tannskemmdir?
LONDON — Sænskir vísinda-
menn segjast hafa fundið upp
aðferð sem geri kleift að koma
á fót nokkurs konar „tannbönk-
um“ f framtfðinni.
Þeir lýsa aðferðinni þannig
að tönn sem er dregin úr sjúkl-
ingi sé geymd lifandi i frysti
ásamt rótunum f eitt ár og
sfðan megi græða hana aftur i
sjúklinginn á öðrum stað eða i
annan sjúkling.
Dr. P. Otteskog frá Karol-
inska Institutet í Stokkhólmi
skýrði frá þessu á þingi 1.000
tannlækna í London. En þar
kom einnig fram að verið geti
að tannskemmdir hverfi úr sög-
unni áður en langt um Ifði.
Brezkir visindamenn sögðu
að þess væri ef til vili ekki
langt að biða að bólusetja
mætti fólk gegn tannskemmd-
um. Þeir sögðu að þetta hefði
þegar verið reynt á öpum með
góðum árangri.
Dauðum lifrænum efnum
sem valda tannskemmdum var
sprautað f apana. Þeim var
síðan gefinn mannamatur og
verulega dró úr tannskemmd-
unum að sögn prófessor Thom-
as Lehner við Guy’s-
sjúkrahúsið.
Loks getur ný sykurtegund
dregið úr tannskemmdum um
90% að sögn finnskra vfsinda-
manna. Þessi nýi sykur kallast
xylitol, er eins sætur og venju-
legur sykur og finnst í berjum,
ávöxtum og birkitrjám.
Kaíró, 16. april. Reuter.
ANWAR Sadat forseti skipaði
nýjan varaforseta í dag og virðist
hafa rekið þann mann, sem hefur
gegnt þvi starfi í fimmtán ár,
Hussein Shafei.
Hinn nýi varaforseti er yfir-
maður flughersins, Mohammed
Mubarak flugmarskálkur, en í
stjórnartilkynningu um skipun
hans er ekki minnzt á Shafei.
Fleiri en einn maður geta gegnt
embætti varaforseta en nafn
Shafei er ekki á ráðherralista
hinnar nýju stjórnar Mahmoud
Salem forsætisráðherra.
Ismail Fahmi verður áfram
utanríkisráðherra og Abdel
Ghani Gamassy hermálaráðherra/
Dr. Yafez Ghanem, fv. aðalritari
Arabiska sósíalistasambandsins,
verður einn þriggja varaforsætis-
ráðherra.