Morgunblaðið - 17.04.1975, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRlL 1975
t
Maðurinn minn,
GUNNLAUGUR LOFTSSON,
kaupmaður, Brávallagötu 14,
lézt I Landakotsspítala þriðjudaginn 1 5 apríl.
Guðrún Geirsdóttir.
t
Bálför eiginkonu minnar móður okkar,
EGGRÚNAR ARNÓRSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 1 8. april kl. 3 síðdegis.
Steingrfmur Guðmundsson,
Margrét Steingrimsdóttir,
Kristjana Steingrimsdóttir.
t
Faðir okkar
ÁRNI B. KNUDSEN
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag 1 7 apríl kl. 13.30.
Fyrir mina hönd og systra minna
Knútur Knudsen.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
HAFSTEINN VILBERGS VILBERGSSON,
Lækjargötu 20, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 21 apríl kl. 1.30.
Hansína Kolbrún Jónsdóttir,
Jón Fannar V. Hafsteinsson, Kristín Marfanna V. Hafsteinsdóttir,
Sigríður Fanney Björnsdóttir, Vilberg Jónsson.
Eiginmaður minn, + EIRÍKUR PÉTUR ÓLAFSSON,
Réttarholtsvegi 27, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni, föstudaginn 18. apríl kl 13.30 síðdegis Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Margrét Ó. Hjartar.
t
Bálför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
UNNAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 1 9. apríl kl. 10.30.
Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Kristján Vigfússon,
Erla Kristjánsdóttir, Bjarni Steingrimsson,
Sólrún Kristjánsdóttir, Jón Friðsteinsson
og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar
móður, tengdamóður og ömmu okkar SIGRÍÐAR GESTSDÓTTUR,
fró Flagbjarnarholti
GuSfinna Jónsdóttir SigurSur Þorbjömsson
Gestur Jónsson Steinunn Ástgeirsdóttir
Sigurjón Jónsson GerSur GuSjónsdóttir
Sveinn Jónsson og bamabörn.
Myndin er tekin á æfingu Kvennakórs Suðurnesja, nemenda úr
Tónlistarskóla Keflavfkur og „rytma-grúppunnar" nýlega.
Kvennakór Suðurnesja
heldur tónleika að Minni-
Borg og á Seltjamarnesi
KVENNAKÓR Suðurnesja
hefur að undanförnu hald-
ið þrjár söngskemmtanir í
Félagsbíói í Keflavík, fyrir
fullu húsi i öll skiptin og
við mikinn fögnuð áheyr-
enda.
1 kórnum eru 32 konur,
en auk þeirra taka 20 nem-
endur Tónlistarskólans í
Keflavik þátt í tónlistar-
flutningnum, auk þess sem
„rythma-grúppa“ aðstoðar,
en undirleikari kórsins er
Ragnheiður Skúladóttir.
Stjórnandi kórsins er Herbert
H. Ágústsson, en einsöngvarar
eru þær Rósa Helgadóttir og
Elisabet Erlingsdóttir, en hún
hefur jafnframt annast raddþjálf-
un kórsins.
Kvennakór Suðurnesja heldur
tvenna tónleika utan heimabyggó-
arinnar á næstunni. Þeir fyrri
verða að Minni-Borg í Grímsnesi
næsta laugardag kl. 16, en þeir
síðari verða í Félagsheimili Sel-
tjarnarness kl. 20.30 sunnudaginn
27. apríl.
Að sögn Margrétar Friðriks-
dóttur, formanns kórsins, kemur
til mála að halda tónleika víðar á
næstunni, og sagði hún frábærar
viðtökur vera hvatningu til þess.
Efnisskrá kórsins er fjölbreytt,
en fyrri hlutinn er eftir íslenzku
tónskáldin Þorvald Blöndal, Ás-
kel Snorrason, Sigvalda Kalda-
lóns og Inga T. Lárusson, en með-
al laga Inga er Austfjarðaþokan,
sem Þorsteinn Valdimarsson
+
Dóttir okkar, systir og dótturdóttir,
KRISTRÚN JÓNASDÓTTIR,
Álfhólsvegi 2 A, Kópavogi,
sem andaðist á Vlfilsstöðum 12. aprll, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 1 8. apríl kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Styrktarfélag lamaðra og fatiaðra.
Jóhanna Gunnarsdóttir, Jónas Jónsson,
Þórir Jónasson, Jón H. Jónasson,
Gylfi Jónasson, Kristrún Jóhannesdóttir.
skáld hefur gert texta við, og
hefur hann ekki áður verið flutt-
ur með laginu.
Slðari hluti efnisskrárinnar er
eftir ýmsa erlenda höfunda, þ. á
m. Bítlana og Béla Bartók.
Elísabet Erlingsdóttir syngur ein-
söng með kórnum.
Gróskudagar
Isafirði 14. april.
MENNTASKOLANEMAR á Isa-
firði hafa nú að fordæmi mennta-
skólanema við Tjörnina horfið frá
stundaskrá í nokkra daga. Kalla
þeir þessa daga gróskudaga og
eiga þeir að vera tilbreyting frá
venjulegu skólahaldi. Hafa nem-
endur skipt sér niður I vinnuhópa
og ákveðið var að nota tímann til
að kynnast atvinnulifi Vestfjarða
og vinna að ýmiskonar áhugamál-
um. Hópur nemenda fór I þeim
tilgangi I tveggja daga heimsókn
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu og samúð við andlát og
jarðarför ástkæru eiginkonu minnar, móður, fósturmóður, tengdamóð-
ur og ömmu,
GUÐFINNU SVEINSDÓTTUR,
Stórholti 24, Reykjavlk.
Sigurður Stefánsson,
SigrlSur SigurSardóttir, SigurSur Ólafsson,
Hulda Sigurðardóttir, Gísli Jónsson,
Svava Sigurðardóttir, Bjarni Guðmundsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Kristján Hjartarson,
Guðfinnur Halldórsson, Sigrún Halldórsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alúð öllum þeim nær og fjær, er auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför, mannsins mlns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
AXELS BÖÐVARSSONAR,
bankaritara,
Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliði á deild 3 A á Land-
spítalanum svo og starfsfólki Útvegsbankans.
Margrét Steindórsdóttir,
Erla Axelsdóttir. Einar Ingimundarson,
Björn Axelsson, Magnea Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
— Hákon
Bjarnason
Framhald af bls.7.
seta manna. Eyðingin stafar fyrst
og fremst af eyðingu birkiskóg-
anna ásamt þrotlausri beit hús-
dýra, einkum sauðkindarinnar.
Hvers konar eyðing af völdum
náttúruhamfara eða veðurfars er
ýmist staðbundin eða tímabund-
in, og náttúran bætir sjálf slíka
skaða, ef hún er einráð, ef landið
hefði verið mannlaust.
Þegar huganum er rennt aftur i
aldir virðist svo sem að hér hafi
þrifist friðsamt og róstulitið þjóð-
félag bænda um þriggja alda
skeið eftir að land byggðist. Þá
njóta menn frumgæða landsins,
frjósamrar moldar, skjóls af skóg-
um og kjarri, eldiviðar og margs
konar hlunninda. (16) Svo hefst
róstusamt tímabil og barist er um
auð og völd, en slikt getur bent til
þess, að einhvers staðar sé farið
að kreppa að. Nokkrum árum eft-
ir að gert er skattbændatal verða
fiskveiðar arðbær atvinnuvegur á
skömmum tima. Þær rétta við hag
þjóðarinnar og margir verða stór-
auðugir enda þótt kjör al-
mennings batni ekki að sama
skapi.
Þá skýtur verstöðvum upp, þar
sem aflasælast er. Um margar
aldir leggja flestir verkfærir
menn leið sina þangað öll sín
manndómsár til að afla lífsnauð-
synja. Heima sitja konur, börn og
gamalmenni til að sinna búskapn-
um. Hefði búskapurinn verið
nógu afurðamikill til að veita
hverri fjölskyldu lífsbjörg, er
harla óliklegt að menn hefðu lagt
á sig löng og erfið ferðalög að
vetrarlagi, þolað vosbúð á landi
og sjó og stundað lífshættulega
atvinnu í skammdegi á kaldasta
tima árs.
Ljóst er, að kjör islendinga
hafa lengst af verið ærið kröpp.
Margt hefur valdió á ýmsum tím-
um. Há landleiga og kúgildaleiga,
margs konar óáran, kúgun af
hálfu höfðingja og kirkju, siðar
ánauó erlends valds og illir
verslunarhættir ásamt ýmsu
fleiru hefur valdið fátækt og úr-
ræðaleysi alls almennings. En ein
af höfuðorsökum þess er sú, að
landgæðin brugðust. Islendingar
urðu að bregða geiri sínum gegn
landinu sjálfu til þess að þeir
fengju lifað af. Með því að merg-
nemenda MI
til Dýrafjarðar þar sem þeir
skiptu sér niður á sveitabýli í
Mýrarhreppi til að kynnast bú-
skapnum. Aðrir nemendur fóru í
róður á línubátum frá nærliggj-
andi verstöðvum. Margt fleira er
á dagskrá þessa Gróskudaga, en
fyrirhugað er að hver hópur skili
skýrslu um reynslu sína sem sið-
an verða birtar I skólanum.
— Siggi Gríms.
Afnotagjalds-
hækkun nái ekki
til Austurlands
HREPPSNEFND Egilsstaða-
hrepps hefur skorað á mennta-
málaráðherra að sjá svo um, að
hækkun afnotagjalds Sjónvarps
fyrir fyrri helming þessa árs nái
ekki til sjónvarpsnotenda á
Austurlandi vegna óviðunandi
móttökuskilyrða frá endurvarps-
stöðinni á Gagnheiði nú i vetur,
ellegar þá, að verulegur afsláttur
verði veittur af afnotagjaldinu.
Þá hefur hreppsnefndin mót-
mælt þvi harðlega að afnotagjöld
sjónvarps og útvarps séu inn-
heimt sameiginlega, þannig að
eigendur sjónvarpstækja komist
ekki hjá þvi að greiða afnotagjald
útvarps, þótt ekkert eigi þeir tæk-
ið.
Útfaraskreytingar
blómouol
Groðurhusió v/Sigtun sími 36770