Morgunblaðið - 17.04.1975, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRIL 1975
Frá Barnaskólum
Kópavogs.
Innritun sex ára barna, fæddra á árinu 1969,
sem eiga að vera í forskóladeildum barnaskól-
anna í Kópavogi næsta vetur, fer fram í skólun-
um föstudaginn 1 8. apríl kl. 3 — 5 síðdegis. —
Innritun aðfluttra barna 7 —12 ára, sem flytjast
eiga í skólana í haust, fer fram á sama tíma.
Til glöggvunar skal þess getið, að skólahverfismörk milli Kópavogs-
skóla og Digranesskóla eru Brattabrekka, og skólahverfi Snælandsskóla
er byggðin norðan Nýbýlavegar inn á móts við Þverbrekku, og göturnar
Hjallabrekka, Lyngbrekka og Túnbrekka sunnan Nýbýlavegar. í Snæ-
landsskóla verða þó aðeins 6—9 ára börn úr skólahverfi hans næsta
vetur, en eldri börn úr hverfinu í Kópavogs- eða Digranesskóla eins og
s.l. vetur.
Fræðsluskrifstofa Kópavogs, sími 41863, veitir
nánari upplýsingar um innritunina.
Fræðslustjórinn í Kópavogi
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðislfokksins
i Reykjavik
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Galtafelli
Laufásvegi 46 á laugardögum frá kl.
14 —16. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér viðtals-
tíma þessa.
Laugardaginn 1 9. apríl verða til viðtals:
Ellert B. Schram, alþingismaður, Ólafur
B. Thors, borgarfulltrúi Valgarð Briem,
varaborgarfulltrúi.
Ellert
Ólafur
Valgarður
Arður til
hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar
Samvinnubanka íslands h.f. þann
1 2. apríl s.L, greiðir bankinn 1 2%
arð p.a. af innborguðu hlutafé
fyrir árið 1 974.
Arðurinn er greiddur i aðalbankanum og útibúum
hans gegn framvísun arðmiða ársins 1 973.
Athygli skal vakin á þvi að réttur til arðs fellur niður,
sé hans ekki vitjað innan þriggja ára frá gjalddaga.
Reykjavík, 14. apríl 1975
Samvinnubanki íslands h.f.
óskar eftir starfsfólki
ÚTHVERFI
Efstasundi 60—100, Laugarásvegur 1—37,
Laugarásvegur 38 — 77.
AUSTURBÆR
Skólavörðustígur, Ingólfsstræti.
VESTURBÆR
Nýlendugata,
GARÐAHREPPUR
Vantar útburðarfólk í Arnarnesi.
Uppl. í síma 52252.
SEYÐISFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu. Mbl. uppl. hjá umboðsmanni og á
afgr. í síma 10100.
BÚÐARDALUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl. hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 101 00.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl. hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 1 0100.
Karlakórinn
SVANUR
endurreistur
Akranesi 15. april
KARLAKÖRINN Svanur á Akra-
nesi hefur nú verið endurreistur
og starfar af miklum krafti. Kon-
ur kórfélaga starfa einnig í
félagsskap, sem heitir Bergþóra,
og styrkja Svan með ráðum og
dáð. Karlakórinn mun halda sam-
söng í bíóhöllinni næstkomandi
föstudag 18. april kl. 21 fyrir
styrktarfélaga og gesti. Kórinn
endurtekur skemmtunina á
laugardag kl. 16. Ennfremur
syngur kórinn á vegum Tónlistar-
félags Borgarfjarðar að Logalandi
í Reyholtsdal, laugardaginn 26.
apríl kl. 21.
Stjórnandi Karlakórsins Svans
er Haukur Guðlaugsson, söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar.
Undirleik annast frú Fríða Lárus-
dóttir. Einsöngvarar með kórnum
eru hinir velþekktu Agúst Guð-
mundsson og Kristinn Hallsson. A
efnisskránni er mjög fjölbreytt
dagskrá eftir innlenda og erlenda
höfunda. Júlíus.
— 70 ára
Framhald af bls. 19.
garður þar, — en þó fyrst og
fremst til að telja léttstíg spor
systranna tveggja, hinna listelsk-
andi systra, dansandi um grænar
hlíðar fjallsins eins og álfkonur
úr fellinu. Þaðan gefur að
minnsta kosti sýn yfir álfabyggð-
ina alla, öllum sem hafa gaman af
álfheimum. Og þaðan sér líka til
Hvítár, hins þungstreyma fljóts,
Vörðufells, — og svo Skálholts-
staðar, þar sem saman runnu í
einn bikar háleitust synd, og
hjartagróin lotning mannssálar-
innar fyrir veldi guðs á vorri jörð.
Hið jarðneska streymir fram eins
og fljótið, en lifið i álfheimum er
ekki háð tímanum, og verður
aldrei gamalt...
Þessar fáu línur eiga að tjá af-
mælisbarninu Ingibjörgu hlýjar
árnaðaróskir í tilefni af merkum
degi í æfi hennar og ástvina henn-
ar. Þær ná ekki til að rekja neina
sögu. Eg veit að hún nýtur þess að
teyga af lindum minninganna, og
eg vil óska þess að sá lífsdrykkur
endist henni sem lengst, tær og
hreinn eins og morgundöggin.
Valtýr Guðjónsson.
Hafnarfjörður
Vorboðakonur
haldafund i sjálfstæðishúsinumánudaginn 21. april kl. 8.30.
Kosnir verða fulltrúar á landsfund sjálfstæðisflokksins. Gauð-
laug Björnsdóttir kynnir nýjungar í hannyrðum frá Hannyrða-
búðinni Linnetsstig 6. Opið hús. Allar sjálfstæðiskonur vel-
komnar á fundinn. Konur, takið með ykkur handavinnu.
Stjórnin.
SUS Heimdallur
Kjördæmamálið
Starfshópur um kjördæmamálið heldur fund fimmtudaginn
17. apríl kl. 17 í Galtafelli, Laufásvegi 46. Nýir þátttakendur
velkomnir.
Sjálfstæðisfélag
Miðneshrepps
heldur félagsfund í Leikvallarhúsinu i Sandgerði fimmtudaginn
17. þ.m. kl. 20.30.
Á dagskrá: Kosning fulltrúa á landsfund sjálfstæðisflokksins
og kosning i fulltrúaráð. Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Grindavíkur
heldur almennan fund sunnudaginn 20. april kl. 20.30 i
Festi, litla sal.
Dagskrá: Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins
3.—6. maí.
Bæjarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ræða bæjarmálin.
Mætið vel og stundvislega.
Akureyri — nærsveitir
Spilakvöld
sjálfstæðisfélaganna
önnur umferð verður spiluð n.k. fimmtudagskvöld 1 7. april og
hefst í sjálfstæðishúsinu kl. 20.30.
Glæsileg kvöld og heildarverðlaun.
Dans að lokinni félagsvist til kl. 1 eftir miðnætti. Nefndin
S.U.S. F.U.S. Baldur
Er ríkisstjórnin
á réttri leið?
Samband ungra sjálfstæðismanna og F.U.S. Baldur efna til
umræðufundar um ofangreint málefni.
Fundurinn verðurhaldinn i Félagsheimili Seltirninga kl. 8.30
þriðjudaginn 22.4.
Framsögumenn verða: Baldur Guðlaugsson og Viglundur
Þorsteinsson. Fundurinn eröllum opinn.
S.U.S. F.U.S. Baldur
S.U.S. F.U.S Heimir
Er ríkisstjórnin
á réttri leið?
Samband ungra sjálfstæðismanna og
F U.S. Heimir Keflavik efna til umræðu-
fundar um ofangreint málefni.
Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu við Hafnargötu 46, Keflavík,
fimmtudaginn 1 7. apríl kl. 8.30.
Framsögumenn verða: Friðrik Sóphusson
og Jón Magnússon. Fundurinn er öllum
opinn.
S.U.S. F.U.S. Heimir