Morgunblaðið - 17.04.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRlL 1975
31
Jafnt hjá
Holbæk
Holbæk, danska liðið sem Jóhannes
Eðvaldsson mun leika með, gerði jafn-
tefli í fjórdu umferó dönsku 1. deildar
keppninnar sem fór fram á laugardag-
inn. Andstæóingarnir voru Esbjerg og
fór leikurinn fram á heimavelli þeirra.
Varó Holbæk fyrra til aó skora, en Es-
bjerg jafnaði úr vftaspyrnu. önnur úrslit
f 1. deildar keppninni f Danmörku urðu
þau að Yanlöse vann B 1903 2—0, B 1901
vann KB 1—0, Randers Freja vann Næst-
ved 4—1, Slagelse vann Vejle 1—0, B
1909 tapaði fyrir AaB 0—2, Fremad vann
Frem 2—1 og B 93 tapaði fyrir Köge
0—2.
Eftir 4 umferðir hefur Vanlöse 8 stig,
Köge, Esbjerg, Randers Frejaog Holbæk
6 stig, B 1901 5 stig, KB 4 stig, B 93,
Næstyed ogFremad 3 stig, Vejle, AaB og
Slagelse 2 stig, B 1903 og B 1909 hafa 1
stig og Frem er á botninum með 0 stig.
Vorwárts
meistari
ÚRSLITALEIKURINN í Evrópubikar-
keppninni í handknattleik fór fram í
VVestfalenhalle í Dortmund í Vestur-
Þýzkalandi á sunnudaginn. Voru það a-
þýzka liðið ASK Vorwárts og júgóslavn-
eska liðið Borac Banja Luka sem léku til
úrslita. Ahorfendur voru um 4000 tals-
ins, flest Júgóslavar sem búsettir eru f
V-Þýzkaflandi og hvöttu þeir lið Banja
Luka óspart á meðan á leiknum stóð. Það
kom þó fyrir ekki þar sem Vorvárts
sigraði f leiknum 19—17, eftir að staðan
hafði verið 9—8 í hálfleik. Leikur þessi
var annars gffurlega harður, og höfðu
dönsku dómararnir Henning Svensson og
Jan Christensen ekki góð tök á honum.
Markhæstur f liði Vorwárts var Josef
Rose með 6 mörk, en Selec skoraði flest
mörk fyrir Luka, 6. Sem kunnugt er var
Vorwárts mótherji FH í átta-líða úrslit-
um bikarkeppninnar. Frá þvf að Evrópu-
meistarakeppnin hófst hafa eftirtalin lið
hlotið Evrópumeistaratitilinn:
1957: Dukla Prag (Vann Örebrö, Svfþjóð
í úrslítum 21:13). 1958: Ekki keppt.
1959: Redbergslid, Svíþjóð (Vann FA
Göppingen, V-Þýzkal. 18:13). 1960: FA
Göppingen, V-Þýzkal. (Vann Arhus
KFUM í úrslitum 18:13). 1961: Ekki
keppt. 1962: FA Göppingen, V-Þýzkal.
(Vann Partizan, Júgóslavfu 13:11). 1963:
Dukla Prag, Tékkóslv. (Vann Dynamo
Bukerest í úrslitum 15:13). 1964: Ekki
keppt. 1965: Dynamo Bukarest (Vann
Zagreb í úrslitum 13:11). 1966: Leipzig,
A-Þýzkal. (Vann Honved, Ungvcrjal. f
úrslitum 16:14). 1967: Gummersbach, V-
Þýzkal. (Vann Dukla f úrslitum 17:13).
1968: Steaua Bukarest (Vann Dukla f
úrslitum 13:11). 1969: Ekki keppt. 1970:
Gummersbach (Vann SC Dynamo A-
Þýzkal. í úrslitum 14:11). 1971:
Gummersbach (Vann Steaua Bukarest í
úrslitum 17:16) 1972: Partizan Bjelovar
(Vann Gummersbach í úrslitum 19:14).
1973: Maf, Moskvu (Vann Partizan í úr-
slitum 26:23) 1974: Gummersbach
(Vann Maí í úrslitum 19:17). og 1975:
Vorwárts (Vann Banja Luka f úrslitum
19:17).
Landsliðið til
Stykkishólms
Körfuknattleikslandsliðið mun halda
til Stykkishólms á laugardaginn, og æfa
þar og keppa. Er ætlunin að það leiki við
lið Snæfells, sem er eins og kunnugt er I
1. deild í körfuknattleiknum. Mun
leikurinn hefjast kl. 16.00. tslenzka ungl-
ingalandsliðið f körfuknattleik mun svo
fara til Eskifjarðar um helgina og leika
þar við lið frá Austurlandi.
Glæsileg sýning
SÝNING SOVÉZKA fimleikafólksins [
Laugardalshöllinni I fyrrakvöld var I
einu orSi sagt stórglœsileg, enda
áttu áhorfendur tæpast orð til að
lýsa hrifningu sinni að sýningunni
lokinni, en húsfylli var. Sovézka fim-
leikafólkið heldur aðra sýningu I
Höllinni i kvöld, og hefst hún kl.
20.00. Sagði Ásgeir Guðmundsson,
formaður Fimleikasambands íslands,
i viðtali við Morgunblaðið í gær, að
þá þegar væri orðið uppselt í öll
sæti, en nokkuð væri eftir af
stæðum. Hann sagði einnig, að
vegna hins gífurlega áhuga fólks á
að sjá sýningar þessar. hefði verið
ákveðið að efna til aukasýningar á
föstudagskvöldið og hefst hún, eins
og hinar kl. 20.00. Forsala að-
göngumiða hefst hins vegar kl.
18.00 i dag og verður selt til kl.
20.00. Forsala verður einnig á sama
tima á morgun.
Telja verður heimsókn sovézka
fimleikafólksins einstæðan viðburð á
þessu sviði, og sennilega gefast ekki
mörg tækifæri i framtiðinni til þess
að sjá (þróttafólk sem býr yfir
annarri eins hæfni i iþróttagrein
sinni og það gerir á fjölum Laugar-
dalshallarinnar. Er fyllsta ástæða til
þess að hvetja fólk til þess að láta
ekki sýningar þessar fram hjá sér
fara.
Svavar Carlsen tekur við silfurverðlaunum i þungavigtarflokki á NM
1973. i fyrra hlaut hann bronsverðlaun. Svavar verður meðal keppenda á
Norðurlandamótinu nú, og eru miklar vonir bundnar við frammistöðu
hans, enda hefur hann sigrað alla þungavigtarmeistara hinna Norður-
landanna ( keppni.
Erfiðara en í fyrra
- sagði Vachun þjálfari júdólandsliðsins
— Það er erfitt að segja
nákvæmlega um styrkleika
Norðurlandanna miðað við önnur
Evrópuriki, sagði Michai Vachun,
hinn tékkneski landsliðsþjálfari (
júdó, þegar hann var að því
spurður hvar Norðurlöndin væru
á vegi stödd í fþróttagrein þess-
ari. — Það eru sex mjög sterkar
júdóþjóðir í Evrópu, sagði Vach-
un, — og skera þær sig nokkuð
úr. Svfar og Finnar eru þó ekki
þarna langt á eftir, en öll Norður-
löndin hafa á að skipa allgóðum
liðum.
Um næstu helgi verður Júdó-
meistaramót Norðurlanda háð í
Laugardalshöllinni, og senda öll
Norðurlöndin fullskipað lið hing-
Víkingsstúlkurnar unnu
URSLITAKEPPNI islandsmóts
kvenna f blaki er nú hafin og fór
fyrsti leikurinn fram nú um helgina.
Þetta eru þriggja liða úrslit og eru
það ÍMA. sem vann Norðurlandsriðil,
Stigandi, sem vann Suðurlandsriðil,
og Vikingur sem vann Rvtkurriðil,
sem berjast um titilinn. — Á sunnu-
daginn léku Stigandi og Vikingur og
sigraði Vikingur verðskuldað 3:0. Lið
Stiganda er skipað stúlkum úr
íþróttakennaraskóla fslands á
Laugarvatni og keppir i fyrsta sinn i
vetur. Liðið hefur náð merkilega
góðum árangri á ekki lengri tima.
Vikingsliðið leikur nú annað árið f
islandsmóti og vann m.a. Reykja-
vikurmótið i fyrra.
Stigandi hóf leikinn af miklum
krafti og komst i 4:0 með góðum
uppgjöfum Láru Guðmundsdóttur.
Vikingsstúlkur voru seinar i gang og
misstu bolta klaufalega ( gólfið en
minnkuðu muninn (4:3. Stigandi jók
aftur forskotið i 7:4 en þá komust
Víkingar ( gang og eftir það fékk
Stigandi ekki stig. Anna Arad.
Málfriður Pálsd. og Karólina
Guðmundsd. unnu næstu átta stig
með góðum uppgjöfum. Vikingar
innsigluðu siðan sigurinn 15:7. —
Það kom greinilega í Ijós munurinn á
liðunum i fyrstu hrinunni. Stiganda-
stúlkur voru mun kraftmeiri og skal
engan undra en Vikingsstúlkur mun
„tekniskari". Boltameðferðin var
allt önnur og uppspil og skellir voru
áberandi betri. — f annarri hrinu var
mun meiri spenna þvi hrinan var jöfn
alveg upp i 6:6 en stðan tók Stigandi
forystu 8:6 og 10:8 og siðan 13:8.
Sigurinn virtist vera i höfn en Viking-
ar voru ekki á þeim buxunum að gefa
sig og unnu upp forskotið og sigruðu
15:13, og munaði þar mest um upp-
gjafir frá Önnu og Málfríði sem skor-
uðu 7 siðustu stigin. Lára Sveins-
dóttir sem getið hefur sér góðan
orðstir i annarri grein iþrótta var
Vfkingum erfið. Hún var iðin við að
skella og lauma á Viking enda hafði
hún hæðina og stökkkraftinn til
þess. Þó hefur hún, sem og fleiri
semherjar hennar óhreint fingurslag
og fékk nokkuð dæmt á sig fyrir það.
Siðasta hrinan var mikill barningur
en lauk með öruggum sigri Vfkings
15:8. — Auður Andrésdóttir og
Anna Aradóttir stóðu sig best Vik-
inga en Lára var einna mest áberandi
hjá Stiganda en annars sker sig eng-
in sérstaklega úr. —
Mótinu lýkur um næstu helgi og
leikur þá ÍMA við Stiganda á laugar-
dag og Viking á sunnudag.
að. I fyrra fór mótið fram í
Noregi, og þar komu Islendingar
mjög á óvart með því að hreppa
silfurverðlaun í sveitarkeppn-
inni, næstir á eftir Finnum, auk
þess sem íslenzku júdómennirnir
uppskáru þrenn bronsverðlaun i
einstaklingskeppninni.
— Þetta verður ugglaust
erfiðara fyrir okkur nú, sagði
Vachun, — og þá fyrst og fremst
fyrir þá sök að nú vara þeir sig
betur á okkur. I fyrra bjóst eng-
inn við neinu af Islendingum, og
þvi kom frammistaða þeirra á
óvart. Eg tel þó að við eigum
allgóða möguleika i móti þessu, og
þá ekki sízt fyrir þá sök að
íslenzkir júdómenn hafa aldrei
æft betur en í vetur, og eru þvi
vel undir þetta mót búnir. Það er
auðvitað slæmt fyrir okkur, að
tveir af beztu júdómönnum lands-
ins: Kári Jakobsson og Sigurður
Kr. Jóhannsson eru meiddir og
geta því ekki keppt með, en mað-
ur verður að vona að aðrir haldi
uppi merkinu. Það er lika dálitið
slæmt fyrir okkur að hafa ekki
fengið neina keppni við erlenda
júdómenn i vetur. I fyrra höfðum
við keppt bæði við Norðmenn og
vestur-þýzka unglingalandsliðið
áður en við fórum á Norðurlanda-
mótið.
Eysteinn Þorvaldsson, formað-
ur Júdósambands íslands, tók i
sama streng: — Það var búið að
ákveða landskeppni vió Norð-
menn í vetur, sagði hann, — en
þeir sviku okkur um að koma.
Verður ekkert af slíkri lands-
keppni fyrr en þá næsta haust.
Eysteinn sagði það mikið fyrir-
tæki að gangast fyrir sliku móti
sem þessu, þar sem keppa yrði við
fullkomnar aðstæður, og hingað
yrðu sendir menn til þess að fylgj-
ast með að framkvæmdin yrði
eins og reglur gera ráð fyrir. —
Eg er þó ekki hræddur um að við
stöndum okkur ekki við fram-
kvæmdina, sagði Eysteinn.
Erlendu þátttakendurnir i júdó-
mótinu munu koma hingað til
lands á föstudaginn, en mótið
verður sett kl. 14.00 á laugardag-
inn i Laugardalshöllinni, og þá
strax á eftir á sveitakeppnin að
hefjast. Er gert ráð fyrir þvi að
henni verði lokió um kl. 17.30. Þá
um kvöldið verður svo fundur
júdósambands Norðurlanda, en á
sunnudaginn fer fram keppni i
einstaklingsflokkum og hefst hún
kl. 10.00.
KKRR
AÐALFUNDUR Körfuknattleiks-
ráðs Reykjavfkur verður haldinn
I kvöld fimmtudaginn 17. apríl,
að Hótel Esju og hefst kl. 20.00.
Arshátíð
Knattspyrnufélagsins Vals)
verður haldin í Átthagasal Hótel Sögu föstudaginn
18. apríl og hefst með borðhaldi kl. 20.00 (Husinu
lokað kl. 20.30).
Skemmtiatriði: Halli og Laddi.
Dansað til kl. 2.00.
Miðasala hjá húsverði að Hliðarenda og Hótel Sögu
fimmtudaginn 17. april kl. 18.30—19.30.
Nefndin.
Joe Havelange, forseti FIFA:
Sendum ykkur dómara og þjálfara til kennshistarfa
Brasiliumaðurinn Joe
Havelange, forseti FIFA —
alþjóðasambands knattspyrnu-
manna kom í heimsókn til tslands
á föstudaginn. Þá um kvöldið hélt
hann fund með fréttamönnum, og
voru stjórnarmenn KSI viðstadd-
ir. Tilgangur ferðar Havelange
hingað til lands mun fyrst og
fremst hafa verið sá að kynna sér
ástand knattspyrnumála, en
Havelange hefur gert mjög við-
reist siðan hann varð kjörinn for-
maður FIFA I sögulegri atkvæða-
greiðslu á síðasta ársþingi sam-
bandsins, og að undanförnu hefur
hann lagt mikla áherzlu á að
heimsækja Evrópulöndin, en sem
kunnugt er börðust þau af alefli
gegn kosningu hans — studdu
Bretann sir Stanley Rouse í
kosningunni. Joe Havelange jar
þekktur að þvi að beita fyrir sig
ýmsum brögðum í kosningabar-
áttu sinni, og var t.d. óspar á að
lofa brasiliska knattspyrnulands-
liðinu I heimsókn til þeirra landa
sem vildu styðja hann. Mun Have-
lange m.a. hafa heitið Islending-
um slíkri heimsókn, veittu þeir
honum brautargengi, og hann
skrifaði einnig undir samninga
við Dani, sem hann gat síðan ekki
staðið við, þegar á hólminn kom,
og hefur danska knattspyrnusam-
bandið i hyggju að höfða mál
gegn honum.
A fundinum með fréttamönn-
um á föstudagskvöldið ræddi Joe
Havelange fyrst vitt og breitt um
knattspyrnumálin og aðstöðu Is-
lendinga, sem hann taldi sérstæða
vegna hins stutta keppnistímabils
hjá okkur. — Það er mikið atriði
hjá ykkur að lengja keppnistíma
bilið, sagði hann, — og mun FIFA
veita ykkur liðsinni til þess að svo
geti orðið. — Þetta er hægt m.a.
með þvi að bæta vallaraðstöðuna,
og sagði Havelange, ekkert mæla
á móti því að notað yrði gervigras
á knattspyrnuvelli. Það væru að-
eins úrslitaleikir í stórmótum er
ekki mættu fara fram á slikum
völlum.
— FIFA getur einnig aðstoðað
ykkur á annan hátt og mun gera
það, sagði Havelange. Við munum
senda hingað þjálfara og dómara
til þess að halda námskeið og
fylgjast með því sem er að gerast
hjá ykkur. Einnig sagði Have-
lange að þess yrði freistað að
koma Islendingum inn I knatt-
spyrnumót sem á að fara fram i
Frakklandi.
Næstu heimsmeistarakeppni
bar einnig litilsháttar á góma.
Sagði Joe Havelange að nú hefði
FIFA i hyggju að koma á heims-
meistarakeppni fyrir unglinga á
aldrinum 16—19 ára. Þá kom
einnig fram, að ekki er enn ákveð-
ið hversu mörg lið munu taka þátt
I lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar 1978, en ákveðið er að
hún fari fram i Argentinu, þrátt
fyrir allt.
Joe Havelange var að þvi spurð-
ur hvort hann teldi Island vanþró-
að land á sviði knattspyrnunnar,
en á blaðamannafundi I Osló
hafði hann rætt um það að nú
myndi FIFA leggja áherzlu á að
aðstoða þau lönd sem væru van-
þróuð i íþróttinni. Spurningu
þessari svaraði Havelange á þá
leið, að ekkert Evrópuríki væri
vanþróað i knattspyrnu. Með
þessum ummælum sinum í Osló
hefði hann fyrst og fremst átt við
Afrikuriki og riki i Mið-
Ameriku, auk nokkurra Asíu-
landa. Þetta breytti þó engu um
það, að Islendingar hefóu nokkra
sérstöðu meðal Evrópuríkjanna,
og að þörf væri á að veita okkur
aðstoð, og þá fyrst og fremst i þvi
formi, sem áður er að vikið, þ.e.
með því að senda hingað sérfróða
menn til námskeiðahalda og
kennslu.
Joe Havelange hélt frá Islandi á
laugardagsmorgun. Stanzaði hér
skemur en upphaflega hafði verið
ráð fyrir gert.
— stjl.