Morgunblaðið - 17.04.1975, Blaðsíða 32
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1975
Jón Sigurðsson,
formaður Sjó-
mannasambandsins:
Skugginn
af efnahags-
frumvarpinu
felldi sam-
komulagið
SATTASKMJARI ríkisins hefur
boðað fuiltrúa útgerðarmanna og
undirmanna á bátaflotanum til
samningafundar i dag kl. 14 og er
það fyrsti fundurinn í deilunni
eftir að aimennir fðlagsfundir
innan sjómannafélaganna fclidu
samkomulag það, sem gert hafði
verið af samninganefndum við-
komandi aðila. Þá hefur sátta-
fundur verið boðaður i deilu
undirmanna á togaraflotanum
nk. þriðjudag.
1 samtali við Morgunblaðið i
gær sagði Jón Sigurðsson, formað-
ur Sjómannasambands Íslands, að
hann hefði ásamt formönnum
þriggja stærstu sjómannafélag-
anna þá fyrr um daginn átt við-
ræður við Geir Hallgrimsson for-
sætisráðherra.
Ljósmynd Ói.K.M.
AÐGERÐALAUS ATVINNUTÆKI — Stöðugt
stöðvast fleiri togarar — síðutogarar og stórir skut-
togarar — í höfnum landsins vegna verkfalls undir-
manna á togurunum. Ekkert hefur þokazt í sam
komulagsátt undanfarið en sáttasemjari hefur boð
að fund með deiluaðilum nk. þriðjudag.
Jón kvaðst ekki geta skýrt frá
efni viðræðnanna að svo stöddu
nema hvaö rætt hefði verið um
efnahagsfrumvarp rikisstjórnar-
innar, sem nú liggur fyrir Al-
þingi. ,,Að flestra dómi var það
skugginn af þessu frumvarpi,
sem átti verulegan þátl í þeirri
andstöðu sem samkomulagið
mætti og að það var fellt," sagði
Jón ennfremur.
Riíssar slógu um 20—22% af
timburverðinu
Verðlœkkunin kemur þó naumastað ráði
fram ítítsöluverðinu innanlands
Lóan komin
Mælifelli — 16. apríl.
I MORGUN heyrði Magnús
Indriðason, bóndi i Húsey í
Vallhólmi, i lóunni þar heima
undir bæ. Er þetta heldur með
fyrra móti nema þegar vel
viðrar en þessa dagana eru
hlýindi í Skagafirði og sólfar
eftir stutt en napurt kulda-
kast. — sr. Agúst.
EULLTRÚAR islenzkra timbur-
innflytjenda eru nýlega komnir
frá Moskvu eftir viðræður við
sovézk yfirvöld um endurskoðun
á gildandi viðskiptasamningi
milli landanna hvað timbur
áhrærir. Niðurstaða þessara
samninga felur í sér hagstæðari
viðskiptakjör fyrir hina íslenzku
innflyt jendur. Að ósk hinna
fslenzku aðila er umsamið magn
timburs skorið niður um u.þ.b. 5
þúsund teningsmetra frá þeim
samningum sem í gildi voru og
um 20—22% verðlækkun er að
ræða sem Sovétríkin telja
hliðstæða verðlagsþróuninni
á heimsmarkaði. Engu
að siður er þess naumast
að vænta að sú verðlækk-
un komi að ráði fram í útsölu-
verði timburs hér á landi m.a.
vegna þess að fyrirhugað mun að
hækka flutningsgjöld skipafélag-
anna, að þvi er Hjalti Pálsson,
framkvæmdastjóri innflutnings-
deildar Sambandsins, tjáði
Morgunblaðinu í gær.
r r
Fer LIU í mál við sam-
gönguráðuneytið?
Deilt um aflagjald Norglobals
KOMIN er upp deila vegna gjalds
af lönduðum afla f bræðsluskipið
Norglobal. Samgönguráðuneytið
hefur þegar úrskurðað að afla-
gjaldið, sem er að upphæð um 1.7
millj. króna, renni til hafnarsjóðs |
Seyðisfjarðar. Hinsvegar telur I
Landssamband fsl. útvegsmanna
að ekki sé löglegt að leggja gjald
á afla landaðan f Norglobal, þar
sem skipið hafi aldrei notað höfn,
og þvf ákveðið að láta dómstóla
skera úr um hvort löglegt sé að
taka hið umrædda gjald. Afla-
gjald telst 1% af sjávarafla lögð-
um á land á hafnarsvæði, til
vinnslu eða brottflutnings og
reiknast gjaldið af heildarverð-
mæti aflans. 1 hafnarlögunum frá
1972 segir að kaupanda aflans
beri að afhenda hafnarstjóra
skýrslu um keyptan afla
mánaðarlega. Umrætt gjald er
ætlað til þess að standa straum af
kostnaði við hafnargerð og ár-
legan rekstrarkostnað hafnar eða
f þágu hafnarinnar.
Skömmu eftir að Norglobal
kom tíl landsins og var lagst við
festar á Reyðarfirði barst Sam-
gönguráðuneytinu bréf frá
Hafnasambandi sveitarfélaga, þar
sem þess er óskað að ráðuneytið
úrskurði hvernig innheimta beri
og ráðstafa aflagjaldi vegna verk-
smiðjuskipsins Norglobal. Stuttu
síðar Urskurðaði ráðuneytið að
fyrrgreint gjald skyldi renna til
Seyðisf jarðar, og telur það skyldu
umráðamanna Norglobals að
standa skil á aflagjaldi til hafnar-
sjóðs Seyðisf jarðar.
I úrskurði ráðuneytisins segir,
að krafa um gjaldtöku sé ekki
byggð á hafnarlögum, heldur hafi
það verið ein af forsendum sam-
þykkis ríkisstjórnarinnar á leigu
skipsins, að fullt aflagjald yrði
greitt af öllum afla, sem verk-
smiðjuskipið tæki við. Þá segir, að
sú ákvörðun, að aflagjaldið skuli
renna til Seyðisfjarðar, stafi ein-
faldlega af þvf, að annar leigutaki
Norglobals ætti heimili og varnar-
þing á Seyðisfirði. Fiskimjöls-
verksmiðja sú, sem skemmdist
Framhald á bls. 18
Að sögn Hjalta sömdu íslenzku
innflutningsaðilarnir um kaup á
miklu magni timburs en vegna
samdráttar í byggingariðnaði o.fl.
hér innanlands gátu þeir ekki
tekið við öllu þessu magni og
þegar kom fram á þetta ár reynd-
ust eftirstöðvarnar af samningn-
um um 20 þusund teningsmetrar.
Miðað við að útsöluverð timburs
um þessar mundir er um 35 þús-
und krónur teningsmetrinn mun
láta nærri að verðmæti þessa
magns hafi verið um 700 milljónir
króna. Voru islenzku innflytjend-
urnir bundnir af þessum samn-
ingi í þann mund sem verð-
lækkun fór að verða á timbri á
heimsmarkaði.
„Erindi okkar timburinnflytj-
.enda til Sovétrikjanna að þessu
sinni var þannig fyrst og fremst
að fá þarlenda seljendur til að
taka fyrrgreindan samning til
endurskoðunar og ná bæði fram
lækkun á magni vegna áfram-
haldandi samdráttar heima fyrir
og verðlækkun á timbrinu miðað
við verðþróunina á heims-
markaði,“ sagði Hjalti Pálsson.
Niðurstaða þessara viðræðna varð
svo eins og fyrr greinir að sovézk
útflutningsyfirvöld komu til móts
Bjarni Guðbjörns-
son bankastjóri
Utvegsbankans
EFTIR því, sem Morgunblaðið
hefur komizt næst, hefur nú
verið ákveðið, að Bjarni Guð-
björnsson taki við bankastjóra-
embætti því við Utvegsbank-
ann, er varð laust við lát
við óskir íslenzku kaupendanna
og féllust á að skera magnið niður
í 15 þúsund teningsmetra og
lækkuðu verðió um 20—22% sem
Hjalti kvað Rússa telja heims-
markaðsverð um þessar mundir.
Air Viking:
Forkaupsrétt að
2 Boeingþotum
til viðbótar
1 NÝÚTKOMNU hefti hins virta
flugtímarits Flight International
er skrá yfir flugfélög veraldar
ásamt upplýsingum um sögu,
starfsmannahald og flugflota
hvers og eins. Allra hinna stærri
islenzku flugfélaga er getið í þess-
ari skrá en athygli vekur að í
upplýsingum um flugflota Air
Viking er þess getið að auk þess
að eiga tvær Boeing 707 (720B)
hafi félagið forkaupsrétt aó
tveimur öðrum þotum af sömu
gerð.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
i Guðna Þórðarson, forstjóra Air
Viking, sem er erlendis, til að
Framhald á bls. 18
Jóhannesar Elíassonar. Auk
Bjarna Guðbjörnssonar hafa
verið nefndir í sambandi við
þetta embætti Jón Skaftason,
Kristinn Finnbogason og Heim-
ir Hannesson. Bjarni
Guðbjörnsson hefur um nokk-
urt skeið verið útibússtjóri
Útvegsbankans í Kóoavogi.
Áður var hann útib’isstjóri
bankans á Isafirði jafnhliða
þingmennsku.