Morgunblaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRlL 1975 Ljósm. Friðþjófur. I FJÖLLEIKAHÚSINU SILFURTÚNGLINU — Feilan Ö. Feilan forstjóri Silfurtúnglsins (Erlingur Gíslason) stjórnar gleðskapnum. Myndin var tekin á æfingu. Þjóðleikhúsið: Silfurtúngl Laxness frumsýnt LEIKRIT Halldörs Laxness, Siifurtunglið, verður frumsýnt í kvöld í Þjóðleikhúsinu. Leikritið var fyrst sýnt 1954 en hefur ekki verið sviðsett hér á landi sfðan. Hins vegar hefur það verið sýnt erlendis, m.a. í Helsingfors og Moskvu. Höfundur hefur gert nokkrar breytingar á leikritinu en allar helstu persónur eru þó þær sömu. Jón Nordal semur tón- listina við verkið og er hún einnig að nokkru breytt frá því sem upphaflega var. Leik- myndir eru eftir Sigurjón Jóhannsson en leikstjórar eru Bríet Héðinsdóttir og Sveinn Einarsson. Leikritið Silfurtúnglið er i fjórum þáttum. Það hefst á heimili Óla og Lóu, ungrar hús- móður í litlum fjarðarkaupstað, í kvöld hún er siðan gerð að söng- stjörnu í fjölleikahúsinu Silfur túnglinu, þar sem leikritið fer að miklu leyti fram. Með helstu hlutverk fara: Anna Kristín Arngrímsdóttir, sem leikur Lóu, Erlingur Gísla- son, sem leikur Feilan Ó. Feil- an, forstjóra Silfurtúnglsins; Róbert Arnfinnsson leikur Mr. Peacock, forstjóra í Universal Concert Incorporated. Isa, saungmær er leikin af Ingunni Jensdóttur og Óli, bóndi Lóu, af Sigmundi Erni Arngrímssyni. Valur Gíslason leikur Lauga, föður Lóu, og Guðmundur Magnússon Róra. Hákon Waage er aflraunamaðurinn Samson Umslóbógas og Bryndis Péturs- dóttir leikur sviðgæslu. Alls koma milli 30 og 40 manns fram í sýningunni. Skátamessur á sumardag inn fyrsta Að venju halda skátar í Reykja- vík og nágrenni sumardaginn fyrsta hátfðlegan og fyrri hluta dags eru haldnar nokkrar messur. Skátamessur verða haldnar á fjórum stöðum í borginni. I Neskirkju kl. 11.00 verður Skátafélagið Ægisbúar ásamt boðsgestum Skátasambands Reykjavíkur. Þessari messu verður útvarpað. Prestur séra Fi ank Halldórsson Predikun flytur Áslaug Frið- riksdóttir fyrrv. fél. for. Kv. sk. Sendu verkfalls- mönnum 40 þús. MEÐAN á verkfalli verkstæðis- manna á Selfossi stóð sendi stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur þeim 40 þús. krónur með baráttu- kveðjum, að því er segir i frétt frá félaginu. Orgelleikari Reynir Jónasson Söngstjóri Magnús Pétursson I Hallgrimskirkju kl. 10.30 verður Skátafélagið Landnemar. Prestur séra Ragnar Fjalar Lárusson Orgelleikari Predikun flytur Arnfinnur Jónsson skátaforingi 1 Féllaskóla kl. 10.30 verður Skátafélagið Hafernir. Prestur séra Hreinn Hjartason Orgelleikari Snorri Bjarnason I Breiðholtsskóla kl. 10.30 verð- ur Skátafélagið Urðarkettir. Prestur séra Lárus Halldórsson Orgelleikari Daníel Jónasson Um kl. 13.30 safnast allir skátar, Ijósálfar og ylfingar sam- an á Rauðarárstíg milli Hverfis- götu og Skúlagötu. Þaðan verður gengið kl. 13.45 í skrúðgöngu til Laugardalshallar. Gengið verður austur Laugaveg norður Kringlu- mýrarbraut og austur Sigtún að Laugardalshöllinni. En þar hefst kl. 14.30 Sumarfagnaður skáta sem verður með varðeldasniði. Tekið skal sérstaklega fram að aðgangur er öllum heimill bæði að messunum og sumarfagnaói meðan húsrúm leyfir, en aðgangs- eyrir að Laugardalshöllinni er kr. 50.—. Kristján Ragnarsson formaður L.Í.Ú.: / / L.I.U. andvígt stefnu ríkisstjórnar- innar um ráðstöfun gengishagnaðar MORGUNBLAÐIÐ hafði I gær samband við Kristján Ragnars- son, formann Landssambands fs- lenzkra útvegsmanna, og spurði hann hvort útvegsmenn hefðu tekið afstöðu til frumvarps ríkis- stjórnarinnar um ráðstöfun fjár úr gengishagnaðarsjóði. 1 svari Kristjáns kom fram að búið er að taka afstöðu til þess og að útvegs- menn eru á móti frumvarpinu I svo til öllum atriðum, en svar Kristjáns fer hér á eftir. „1 athugasemdum um frumvarp- ið segir, að hlutur útgerðarinnar úr fiskverðshækkuninni i ársbyrj- un sé 900 milljónir króna, en út- gjalda auki af völdum olíuhækk- unar frá áramótum sé um 1000 milljónir króna. Auk þess er um stórfelidar hækkanir að ræða á öðrum sviðum útgerðarkostnaðar, eins og á veiðarfærum, viðhaldi og verði skipa o.fl. Að undanförnu hefur mátt lesa í Reykjavikurbréfi Morgunblaðs- ins, að um stórfellda fjármagnstil- færslu hafi verið að ræða til út- gerðarinnar á undanförnum mán- uðum, og látið er að því liggja að þakklæti útvegsmanna til stjórn- valda hafi verið af of skornum skammti. Skyldi nokkurn undra þótt eitthvað hafi skort á þakklæt- ið? HAFNARBÍÖ tekur i dág til sýn- inga eina frægustu mynd Chap- lins — Barnið eða The Kid eins og hún nefnist á frummálinu. Þar sem þessi mynd er heldur stutt miðað við venjulegan sýningar- tima nú á dögum fá áhorfendur einnig i kaupbæti The Idle Class, sem Chaplin gerði sama ár og Barnið en hún er þó talsvert styttri. Chaplin gerði Barnið árið 1920, og er hún vafalaust meðal fræg ustu mynda hans, enda fyrsta myndin sem hann gerir nokkurn veginn í fullri lengd. I þessari Nú fyrst er að koma fram frum- varp um ráðstafanir i sjávarút- vegi, sem gilda á frá 1. janúar þar sem gert er ráð fyrir stórfelldri aukningu á sjóðakerfi sjávarút- vegsins, um allt að einn og hálfan milljarð króna, með álagningu nýrra útflutningsgjalda, sem verja á til niðurgreiðslu á oliu, sem mun koma útgerðinni til góða. Að undanförnu hefur verið mikið um það rætt, að nauðsyn beri til að afnema hið flókna kerfi er sjávarútvegurinn á við að búa, er allt byggist á innbyrðis til- færslu í atvinnugreininni sjálfri. Rikisstjórnin hafði tjáð útvegs- mönnum að fiskverðið hækkaði um 11% með lögum er bæta ætti útgerðinni hina miklu kostnaðar- hækkanir er gengisbreytingin olli og myndu útvegsmenn þá greiða það olíuverð, sem þeim er gert að greiða i dag. Þeir sem vel öfluðu Samkór Vestmanna- eyja í söngför SAMKÓR Vestmannaeyja hefur að undanförnu haldið 9 tónleika ( samkomuhúsinu f Vestmannaeyj- um. Hefur húsfyllir verið I hvert skipti og lætur nærri að 1700 manns hafi sótt tónlcikana. Eins og áhorfendafjöldinn bendir til hefur kórinn fengið hinar beztu móttökur. Nú hyggur kórinn á ferðalag. Mun hann syngja í Selfossbíói annaö kvöld, í Austurbæjarbíói á laugardaginn klukkan 14 og Festi, Grindavik, á sunnudags- kvöldið. Efnisskrá kórsins er f jöl- breytt, innlend og erlend þjóðlög og nýrri lög þar á meðal eitt frum- flutt lag eftir söngstjórann, Sig- urð Rúnar Jónsson. Dixeland- hljómsveit skipuð meðlimum úr lúðrasveit Vestmannaeyja er kórnum til aðstoðar og einnig kemur hljómsveitin ein fratn á tónleikunum. mynd kemur einnig mjög við sögu uppgötvun Chaplins — 4ra ára drengstauli að nafni Jackie Coog- an. Má segja að hann hafi orðið heimsfrægur kvöldið sem þessi mynd var frumsýnd, enda sam- leikur þeirra Chaplins og Coog- ans ógleymanlegur flestum þeim er séð hafa. Hafnarbíó hefur sem kunnugt er fest kaup á nokkrum helztu meistaraverkum Chaplins í nýj- um eintökum og stækkuðum fyrir breiðtjald. Eru þessar myndir úr þeim flokki. myndu þá njóta tekna umfram útgjöld og þeir sem ekki öfluðu yrðu að greiða það sem á vantaði. Þessa hugmynd samþykktu samtök útvegsmanna og lögðu áherzlu á, að þessi leið yrði farin. Af einhverjum ástæðum hefur ríkisstjórnin nú alveg skipt um stefnu og leggur nú áherzlu á aukningu sjóðakerfisins, sem hún hefur áður svo mjög fordæmt. Samtök útvegsmanna hafa í meginefni lýst sig andvíg ráðstöf- un gengishagnaðar vegna þess, að þeim fjármunum er mjög mis- skipt meðal útgerðarinnar þrátt fyrir að þeir eru hennar eignir.“ „Hott, hott á hesti” Hlaðborð hjá Fáks- konum og börnum boðið á hestbak KONUR I Hestamannafélag- inu Fáki í Reykjavfk verða með kaffihlaðborð í félags- heimili Fáks við Elliðaár í dag, sumardaginn fyrsta. Kræsingar standa á borðum frá kl. 3.00 e.h. og fram eftir degi. Sennilegt er að þetta verði siðasta hlaðborð Fáks- kvenna í vetur, en þegar hafa þær haft þrjú, sem jafnan hafa verið f jölsótt. í dag verður börnum einnig leyft að koma á hestbak milli kl. 3.00 og 5.00 við hesthús Fáks við Elliðaár. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sfnum. A svæðinu verða einnig til sýnis geitur og verða þar bæði hafur og kiðl- ingar. Hafnarbíó sýnir Barn Chaplins Klausturhólar efna til listmunauppboða Bókauppboð haldið á laugardaginn Guðmundur Axelsson uppboðs- haldari. GUÐMUNDUR Axelsson, kaup- maður i listmunaverzluninni Klausturhólum, hefur fengið leyfi til að halda listmunaupp- boð í borginni. Verður fyrsta uppboðið f Tjarnarcafé á laug- ardaginn og er það bókaupp- boð. Er það ætlun Guðmundar að halda f framtfðinni uppboð á bókum, málverkum, myntum og frfmerkjum. Guðmundur hefur áður starf- að við listmunauppboð hjá Knúti Bruun en nú hefur hann sjálfur fengið uppboðsleyfi og sér einn um uppboðið á laugar- daginn. Það verður í Tjarnar- café klukkan 14. 100 númer eru á uppboðinu og verða bækurn- ar til sýnis i verzluninni Klaust- urhólum Lækjargötu 2 n.k. föstudag. Merkasta númerið á uppboðinu er númer 100, Heimskringla eða Noregskon- ungasögur, mjög gömul og fá- gæt útgáfa. Ein slík var boðin til sölu í Noregi fyrir skömmu fyrir 340 þúsund krónur Is- lenzkar. Mörg önnur merkileg Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.