Morgunblaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRIL 1975
11
ur sínum á happafleytunni
„Hermóói" og lögðu þannig barn-
ungir sitt af mörkum í haröri og
óvenju samstilltri lifsbaráttu
stórrar barnafjölskyldu á erfiðum
tímum. Það er þannig engin til-
viljun, að sjómennska og sjávar-
útvegur hefir orðið ævistarf
þeirra allra að meira og minna
leyti. Systkinin eru þessi: Kristín
Anna, búsett á Isafirði, gift
Asgeiri Sigurðssyni vélstj. frá
Bæjum, Þuriður, gift Arnviði
Björnssyni, pípulagningam. á
Húsavík, Gunnar skipstjóri,
kvæntur Kristínu önundard. frá
Neskaupstað, Þórður skipstj.,
kvæntur Vigdísi Birgisd. frá
Salóme Gunnarsdótt-
ir frá Barði—Áttrœð
1 DAG heilsar sumri á áttræðis-
afmæli sinu vestur á Isafirði
sómakonan Salóme Gunnarsdótt-
ir. Ég á von á þvi, að það verði
margt um manninn i Mjógötu 3,
hjá þeim hjónum Sölu og
Hermanni frá Barði, eins og vinir
þeirra kalla þau gjarnan, en á
Svalbarði í Ögurvík áttu þau
heima sín beztu manndómsár, og
ólu þar upp stóran barnahóp —
samhent hjón og farsæl í sínu
einkalifi. Ég á bágt með að
ímynda mér, að nokkurn tíma
hafi hrokkið styggðaryrði á milli
þeirra hjóna á langri vegferð
gegnum lifið og ósjaldan hefi ég
heyrt Hermann láta í ljós hljóð-
láta, einlæga aðdáun á mannkost-
um konu sinnar.
Salóme fæddist 24. apríl 1895 að
Eyri í Skötufirði og ólst þar upp
hjá foreldrum sinum, Gunnari
bónda Sigurðssyni og Kristinu
Önnu Haraldsdóttur konu hans,
til 4ra ára aldurs, er móðir hennar
lézt fyrir aldur fram frá stórum
barnahöpi. Gunnar brá þá búi og
fluttist nokkru síðar suður til
Bessastaða, þar sem hann gerðist
ráðsmaður hjá Skúla alþingism.
Thoroddsen. Salóme dvaldist þar
í eitt ár með föður sinum, þá lá
leiðin aftur vestur, — að höfuð-
bólinu Ögri við Djúp, þar sem hún
ólst upp til fuliorðinsára hjá Þur-
íði Ólafsdóttur húsfreyju, ekkju
bændaskörungsins Jakobs Rósin-
karssonar.
Arið 1918 giftist hún Hermanni
Hermannssyni, hinum mesta
ágætismanni, komnum af kjarna-
fólki af Ströndum og við Djúp.
Ungu hjónin dvöldu 8 fyrstu
hjúskaparár sín í Ögri. 1 Ögurhús-
inu voru vistarverur margar og
rúmgóðar og á háaloftinu, sem
varð húsnæði þeirra ungu hjón-
anna, voru lokrekkjur að fornum
sið.
Þegar börnunum fjölgaði
byggðu þau Hermann og Salóme
sér hús á landskika utar með
Ögurvíkinni og kölluðu að Sval-
barði, í daglegu tali jafnan stytt I
Barð. Þar bjuggu þau næstu 19
árin eða fram til ársins 1945, er
þau fluttust til Isafjarðar, þar
sem þau hafa búið síðan. Þá voru
börnin orðin 11 talsins, 5 dætur
og 6 synir, þau elztu uppkomin,
þau yngstu enn á barnsaldri. A
þessum árum, hin illræmdu
kreppuár þar innifalin, var út-
vegur stundaður frá ögurvík og
Ögurnesi af dugnaði og harðfylgi.
Um 100 manns, þar á meðal stórar
barnafjölskyldur, munu þá hafa
búið á þessum slóðum. Fólkið lifði
á góðum fiski úr hinni gjöfulu
„gullkistu Vestfjarða“, sem nú er
illu heilli tæmd og þurrausin, lik-
lega í senn fyrir duttlunga náttúr-
unnar og mannlega skammsýni.
En það var aldrei neinn kreppu-
svipur yfir Barðs-heimilinu þótt
vafalaust hafi húsfreyjan jafnan
þurft að halda spart á, eins og
raunar flestir Islendingar á þess-
um tíma.
Glókollar í hverju horni —
fallegir og fjörugir krakkar, ilm-
andi kaffi og ný jólakaka á borð-
um, hlýtt og elskulegt viðmót
gestrisinna húsbænda setja sinn
svip á endurminngu mína um
komu að Barði, hvort sem hún var
í sambandi við kirkjuferð í ögur,
barnapróf eða gleðskap f ung-
mennafélagshúsinu. I húsinu á
Barði, þótt ekki væri það ýkja
stórt, var alltaf nóg rúm fyrir
gesti og gangandi, þó að stór væri
hópurinn, sem fyrir var. Og
ógleymanleg verður mér desem-
bernóttin, þegar við, ungviðið
heiman úr Vigur, vorum háttuð
niður i glóðvolg bólin á Barði,
svefnlaus og skipsvana. Þá hafði
skollið saman í norðan stórhríð, á
meðan Ögursveitungar, ungir sem
gamlir, skemmmtu sér að jólasið
við söng og dans, og bátar á vík-
inni orðið fyrir áföllum.
Barnalán þeirra Barðshjóna er
mikið. Dæturnar fimm og synirn-
ir sex — öll hið mesta atgervis-
fólk, svo sem þau eiga kyn til.
Þeir voru ekki háir í loftinu,
bræðurnir, þegar þeir byrjuðu að
sækja sjóinn með Hermanni föð-
Húsavík, Sigriður, Karitas, gift
Steingrími Birgiss., trésmiðam. á
Húsavík, Sverrir alþingism.,
kvæntur Grétu Kristjánsd., kiæð-
skeram. Isafirði, Gísli Jón, fram-
kvstj., kvæntur Jónínu Einarsd.,
Halldór skipstj. á ísafirði,
kvæntur Katrínu Gísladóttur,
Guðrún Dóra, gift Þóri Þórissyni
vélstj., og Birgir rekur lestina,
starfandi hjá S. Þ. við kennslu í
sjómennsku og sjómannsfræðum
í Malasiu, kvæntur Öldu Sig-
tryggsd. frá ísafirði.
Salóme er fríð kona og bjartleit,
yfir öllu hennar fasi hvílir í senn
mildi og reisn. Háöldruð stendur
hún enn keik og óbuguð, þótt
líkamlegu þreki hafi hnignað
nokkuð. A þessu merkisafmæli
hennar minnist ég gamalla og
góðra kynna okkar Vigurfólks við
hana og fjölskyldu hennar með
þakklæti og virðingu. Með henni
og Björgu móður minni var jafn-
an einkar kær og einlæg vinátta.
Þeim lét vel að hittast í góðum
hópi, þegar skotizt var yfir álinn
til skrafs og ráðagerða um sitt-
hvað, sem laut að áhugamálum og
Félog með þjálfað starfslið i þjónustu við þig
félagsstarfi í Ogursveit, á meðan
byggð stóð þar með meiri blóma
en nú.
Fjölmargir afkomendur þeirra
Salóme og Hermanns, frændur
þeirra og vinir frá gamalli og
nýrri tíð munu í dag senda hinni
áttræðu öðlingskonu hlýjar
kveðjur og árnaðaróskir á hið
notalega heimili þeirra hjóna á
Isafirði.
Lifðu heil, heiðurskona, og til
hamingju með langt og dáðríkt
ævistarf.
Sigurlaug Bjarnadóttir.
Sjötíu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandarikjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið i samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
FLUCFELAG LOFTLEIDIR
ISLAJVDS