Morgunblaðið - 24.04.1975, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRlL 1975
Vantar skýli og pen-
inga frekar en matvæli
Rætt við Björn Tryggvason formann
Rauða kross Islands um Vietnam-söfnunina
UM ÞESSAR mundir stendur yfir
söfnun Rauða kross Islands og
Hjálparstofnunar kirkjunnar til
hinna þjáðu I Vietnam. Samskon-
ar söfnun stendur nú yfir víða um
heim, en mestar munu þessar
safnanir vera á Norðurlöndunum,
Bretlandi, V-Þýzkalandi og Sviss.
A miðvikudag í s.l. viku var hald-
inn sérstakur fundur I aðalstöðv-
um Rauða krossins í Genf og
hann sat Björn Tryggvason for-
maður Rauða kross tslands. 1
stuttu samtali við Morgunblaðið
lét Björn þess getið, að hann
hefði farið á fund fyrir Seðla-
bankann til Oslóar og af þeim
sökum gefizt kostur á að skreppa
á fundinn I Genf. 1 fyrstu spurð-
um við Björn hvort sllk fjársöfn-
un hefði ekki farið hér fram áður.
— Já, og á því leikur enginn
vafi, að alþjóða Rauði krossinn
hefur forystuhlutverki að gegna í
Viet Nam og Kambódíu. Hjálpar-
stofnanir Sameinuðu þjóðanna
byggja alhliða á Rauða krossin-
um. Mest er starfið i Suður-Viet
Nam, í héruðunum og í sjálfri
Saigon. Þar er byggt að vel skipu-
lögðu sjálfboðaliði Rauða kross
S-Viet Nam, sem hefur á að skipa
um 6000 manna starfsliði, aðal-
lega stúdentum. Þá eru sendar
vistir og lyf til Hanoi frá Austur-
Berlín. Mikið samband er frá
höfuðstöðvunum í Genf við full-
trúa P.R.G. og er verið að reyna
að opna Da Nang höfn og flugvöll-
inn þar fyrir hjálparsendingar.
Norðurlöndin hafa unnið að
miklu hjálparstarfi í norðurhluta
S-Viet Nam og norræn verktaka-
fyrirtæki eru þar starfandi. Og
komið hefur þegar fram, að starf
Rauða krossins á svæði Viet Cong
(P.R.G.) er talið mjög öflugt.
— Islendingar hafa venjulega
ekki, sagði Björn, legið á liði sínu
þegar stórhörmungar hrjá aðrar
þjóðir. Arin 1968 og 1970 voru
sendar fjárhæðir til hjálpar I Viet
Nam, Laos og Kambódíu, en síðan
ekki. I janúar 1973 fór fram
almenn fjársöfnun á Norðurlönd-
um til hjálparstarfsins i Viet Nam
og var slík fjársöfnun i undirbún-
ingi hér, einmitt þegar gosið í
Heimaey byrjaði. Varð ekkert úr
söfnuninni og dæmið snerist við.
íslendingar fengu hjálparfé frá
Norðurlöndum, tæplega 2000
Flugvirkjar
færa verk-
fallsmönnum
25 þús. kr.
AÐALFUNDUR Flugvirkjafélags
Islands, haldinn 12. apríl 1975,
samþykkti eftirfarandi:
Flugvirkjafélag íslands harr.iar
að stjórn Kaupfélags Arnesinga
hefur gripið til þeirra mjög svo
vafasömu aðferðar að segja upp
einum af elstu starfsmönnum fyr-
irtækisins, til þess að jafna
ágreiningsmál. Slíkt ætti að
tilheyra liðinni tíð.
Góð afkoma fyrirtækis er mikið
undir því komið að góður andi og
gagnkvæmur skilningur ríki milli
fyrirtækis og starfsliðs.
Með þetta í huga skorar F.V.F.I.
á stjórn Kaupfélagsins að leysa
þetta vandræðamál á þann ein-
falda hátt, að taka aftur uppsögn
starfsmannsins.
Fundurinn samþykkti að veita
kr. 25.000, til styrktar verkfalls-
mönnumí réttlætisbaráttu þeirra.
millj. kr., og varð fjársöfnunin á
Norðurlöndunum til hjálpar Vest-
mannaeyingum til þess að draga
úr fjársöfnun á Norðurlöndum til
Viet Nam. Nú liggur það ljóst
fyrir, að aðstæður í Viet Nam og
Kambódíu eru eða líklega eiga
eftir að verða álika alvarlegar og
aðstæður urðu í Biafra og Bangla-
desh.
Siðan vék Björn að því, að nú
væri feikikraftur í öflun hjálpar-
fjár viða, en sérstaklega á Norður-
löndum og viða í V-Evrópu.
Söfnunin í Noregi virtist þó í sér-
flokki, því þar væri búizt við, að
almenningur legði fram samtals
10—12 milljónir norskra króna
eða 360 millj. isl. kr. og norska
ríkið allt að 40 millj. n.kr., sem
eru nú um 1200 millj. isl. kr. —
Skipulagning á Norðurlöndunum
er ákaflega góð, en þar hafa
einstök blöð, eins og t.d. Aften-
posten í Osló, hafið fjársöfnun og
svo stjórnmálaflokkar, sagði
Björn.
— Fannst þér margt nýtt koma
fram á fundinum í Genf hvaó
sjálft hjálparstarfið snerti?
1 DAG, sumardaginn fyrsta, mun
skátafélagið Hraunbúar í Hafnar-
firði minnast þess, að 50 ár eru
liðin frá þvi, að fyrsti skáta-
flokkurinn hóf göngu sína þar.
Að vísu minntust Hraunbúar
þessa atburðar á afmælisdaginn
— Hvernig hefur starfsemin i
Kambódíu gengið síðustu vikurn-
ar?
— Það er nú allt i endurskipu-
lagningu. Sjálft griðasvæói Rauða
krossins var sett upp i hóteli og á
hótelsvæði i Phnom Penh og
hefur sænskt hjúkrunarlið með
skurðlæknum verið þar starfandi.
— Hvað er það sem fólk van-
hagar mest um á þessum hörm-
ungarsvæðum?
— Það halda kannski margir að
matarskorturinn sé mestur, en
svo er ekki. Matar er aflað í Hong
Kong, Japan og Singapore. Rauði
krossinn leggur fyrst og fremst
áherzlu á peningaframlög og inn-
kaup í Suðaustur-Asíu. Það sem
vantar mest eru lyf sem vinna
gegn malaríu, kvefi, húðsjúkdóm-
um o.fl. Þá er gríðarmikil þörf
fyrir skýli úr plasti eða tjaldhús,
auk teppa, en vitað er að skýli
þarf að reisa fyrir tugþúsundir
fjölskyldna. Matvæli, sem vantar,
eru hrísgrjón, niðursoðin mjólk,
þurrmjólk og fjörefnabætt mjólk.
Þá vantar fiskafurðir, eins og t.d.
saltfisk, niðursoðnar fiskafurðir
og kjötmeti vantar ennfremur.
hinn 22. febrúar, og höfðu drótt-
skátar félagsins veg og vanda að
þeirri kvöldvöku, sem var fyrir
unga Hraunbúa og tókst hún með
hinni mestu prýði.
Hraunbúar byrja sumardaginn
fyrsta með því að mæta kl. 10
árdegis við skátaheimilið Hraun-
byrgi. Þaðan leggja þeir svo af
stað i skrúðgöngu klukkan 10.15
og ganga til kirkju. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur fyrir
göngunni. Athöfnin í kirkjunni
hefst kl. 11 og aðstoða skátar við
guðsþjónustuna. Páll Gíslason,
skátahöfðingi íslands, flytur
ræðu, en síra Garðar Þorsteinsson
þjónar fyrir altari.
Skátaheimilið Hraunbyrgi og
félagsheimili hjálparsveitar skáta
í Hafnarfirði verða opin frá kl. 2
til kl. 4 e.h. og til sýnis öllum
þeim, sem áhuga hafa á að skoða
þau og kynnast starfi skátanna.
Skátaflokkar verða við ýmiss
konar skátastörf í Hraunbyrgi og
hjálparsveitarmenn svara
spurningum og_ kynna starfsemi
sina í Hjáiparsveitarhúsinu.
Klukkan 5 hefst síðan skemmti-
vaka í Hraunbyrgi fyrir unga
skáta. Um kvöldið veröur svo af-
mælisfagnaður fyrir dróttskáta og
gamla Hraunbúa og gesti félags-
ins, sem haldinn verður í Hraun-
byrgi.
Vormót Hraunbúa verður
haldið dagana 13.—16. júní n.k. í
Krisuvík.
Laugardaginn 19. aprfl gekkst Æskulýðsráð Reykjavíkur fyrir
framhaldsráðstefnu um skemmtanahald og félagsstarf ungs fólks f
Reykjavfk, þar sem mættir voru fulltrúar frá ýmsum stofnunum,
sem hafa afskipti af málefnum unglinga. Fulltrúar nemenda i
gagnfræða og framhaldsskólum borgarinnar fluttu framsöguerindi,
lýstu ástandi og báru fram tillögur sfnar til úrbóta. Eftir almennar
umræður var þátttakendum skipt f umræðuhópa sem síðan skiluðu
áliti. Siðar verður nánar skýrt frá niðurstöðum ráðstefnunnar.
Hraunbúar minnast 50 ára
afmælis skáta í Hafnarfirði
Þessi mynd er á auglýsingaveggspjaldi þvf, sem Rauði krossinn f
Noregi hefur gefið út, en þar hafa nú safnazt háar fjárhæðir til
hjálparstarfsins í Viet Nam og Kambódfu.
Skjólstæðingar Amnesty
international sleppt
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Islandsdeild
Amnesty International:
„Islandsdeild Amnesty
International hefur verið tilkynnt
frá höfuðstöðvum samtakanna í
London, að fangelsuð blökkuhjón
í Suður-Afríku, sem íslenska
deildin hefur verið að leitast við
að hjálpa á undanförnum vikum,
hafi nú loks verið látin laus.
Þau voru handtekin í septem-
ber síðastliðnum og hafa setið í
strangri gæslu í Pretoríu allt upp
frá því, án þess þó að ákæra væri
borin fram á hendur þeim né að
þau væru leidd fyrir rétt. Eigin-
manninum að minnsta kosti var
frá öndverðu haldið i algerri ein-
angrun og var jafnt meinað utn að
hafa samband við ættingja sína
sem lögfræðinga.
Nöfn hjónanna, sem eru um þri-
tugt, eru Lindelwe og Brigitte
Mabandla. Handtaka þeirra og
fangelsun vakti þegar athygli
viða um lönd, auk þess sem hin
frjálslyndari öfl í heimalandi
þeirra reyndu af alefli að leggja
þeim lið. Grunur lék ennfremur
á, að eiginmaðurinn sætti pynd-
ingum, og leitað var til dómstól-
anna á staðnum af því tilefni en
án árangurs.
Lindelwe Mabandla starfaði að
verkalýðsmálum þeldökkra þegar
hann var fangelsaður og er
raunar einn af forystumönnum
þeirra i Suður-Afríku. Brigitte
kona hans starfaði við stofnun í
Durban sem berst gegn kynþátta-
misrétti.
Þau hjónin urðu skjólstæðingar
íslandsdeildar AI nokkru eftir
stofnun hennar á síðastliðnu ári
og höfðu félagar hérlendis skrifað
nokkur bréf til Suður-Afríku, þar
sem háttsettir ráðamenn voru
hvattir til þess í nafni samtak-
anna, að þeir_hlutuðust til um að
þau hjónin yrðu látin laus eða að
minnsta kosti að þeim yrði tjáð
hvað þau hefðu brotið af sér. A.I.
á Islandi mun nú halda áfram að
fylgjast með högum þeirra.
Það eru höfuðstöðvar Amnesty
International í London sem velja
þá fanga sem hinar ýmsu deildir
víðsvegar um heim taka síðan að
sér að starfa fyrir. Amnesty Inter-
national er sem kunnugt er stofn-
að i þeim tilgangi að berjast fyrir
verndun mannréttinda og gegn
hvers konar pólitískri kúgun hvar
sem er i heiminum.
íslenska deildin var stofnuð s.l.
haust og telur nú um 150 manns.“
SERVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÖT
Heildsala — Smásala Jí
SÍLD & FISKUR
Bergstaóastræti 37 sími 24447