Morgunblaðið - 24.04.1975, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRlL 1975
29
Austantjalds
togarar á grá
lúðuveiðum
TALSVERÐUR floti austur-
þýzkra togara er nú að veiðum 71
mílu vestur af Hornbjargi. Með
togurunum, sem eru 15 talsins,
eru 5 stór verksmiðjuskip þrjú
austur-þýzk, eitt sovézkt og eitt
pólskt. Þá eru sovézk rannsóknar-
skip einnig við landið.
Talið er að togararnir fyrir
vestan séu á grálúðuveiðum.
Stúdentar gefa
5 þúsund krónur
Stúdentaráð Háskóla Islands
hefur lýst stuðningi sínum við
verkfallsaðgerðir á Selfossi og
átelur vinnubrögð stjórnenda
K.A.
Til áréttingar stuðningi sinum
hefur ráðið látið 5 þús. krónur af
hendi rakna til verkfallsmanna og
skorar um leið á stúdenta að sýna
samstöðu i verki, eins og segir í
fréttatilkynningu ráðsins.
Mjög léleg síld-
arsala í Danmörku
EINA íslenzka síldveiðiskipið,
sem farið hefur til veiða í
Norðursjó á þessu vori er
Súlan frá Akureyri. Skipið
seldi í fyrsta skipti f gær,
aðeins 16,9 tonn fyrir 271 þús.
krónur og var meðalvcrð pr.
kg. kr. 16.06, sem þykir mjög
lélegt og bendir til þess
hvernig ástandið er á síldar-
markaðnum í Danmörku um
þessar mundir. Á meðan
verðið batnar ekki, er þess
vart að vænta að mörg skip
haldi héðan til þessara veiða.
Eitrið í höfn
Abo, 21. april. — NTB.
HINUM umdeildu eiturflutn-
ingum finnska ríkisolíufélagsins
lauk í dag er síðustu tunnurnar af
banvænum arsenikúrgangi voru
losaðar úr danska skipinu Jens
Rand og þær læstar inni i sér-
stakri geymslu i höfninni
Nádendal fyrir utan Abo í Finn-
landi.
Plata frá
Pelican
ROKKHLJÓMSVEITIN Pelican
hefur sent frá sér tveggja laga
hljómplötu. Eru á plötunni lögin
Silly Piccadilly eftir Björgvin
Gislason, við texta Agústs
Guðmundssonar, og brezka lagið
Lady Rose. Upptaka var gerð i
Bandaríkjunum. Platan hefur að
sögn framkvæmdastjóra sveitar-
innar fengið góðar viðtökur og er
fyrsta sending þegar uppseld.
Vinnubrögð við samn-
ingagerð gagnrýnd
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Baldur á
Isafirði samþykkti kjarasamninga
á fundi 6. apríl s.l., en í fréttatil-
kynningu frá félaginu segir að
fundurinn leggi þunga áherzlu á
að hér sé aðeins um bráðabirgða-
samkomulag að ræða.
Þá telur fundurinn vinnubrögð
við gerð kjarasamninga undan-
farin ár, „þar sem félögum
Alþýðusambandsins hefur verið
haldið i tilgangslitlu og oft til-
gangslausu samninga- og viðræðu-
þófi mánuðum saman eftir að
samningar verkafólks hafa verið
úr gildi fallnir og liðnir venjuleg-
ir uppsagnafrestir“, eins og segir
í ályktuninni.
BINGÓ
BINGÓ í TEMPLARAHÖLLINNI, EIRÍKSGÖTU 5, KL.
8.30 í KVÖLD. VINNINGAR AÐ VERÐMÆTI 25
ÞÚSUND KRÓNUR. BORÐUM EKKI HALDIÐ LENG-
UR EN TIL KL. 8.15. SÍMI 20010.
Stóreign
við
miðbæinn
Skrifstofu- verksmiðju eða
verzlunarhusnæði, ca. 1500
ferm.
gólfflötur á einni hæð, til sölu
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum
stað í borginni.
Þeir sem áhuga hafa á kaupum leggi nöfn sín á
afgr. Mbl. fyrir næstu helgi merkt. „Stóreign"
— 7508
NYIR HÖCCDEYFAR FRA
meira oryggi
aukín þcegindi
betri ending
tOFf i
r-w'
‘■0. I
1
11
o|
XI V
MONROE SUPER S00
4
MONROE SUPER SOO
MONROE LOAO-LEVELER
i<
MONROE RIDE-LEVELER
fyrir f lestar
bifreiða
(^nau
st kf
TRABANT UMBOÐIO
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg, simar 84510 og 8451 1
■Veitingahúsið-
09» í K«Ö!iO
Næturgalar leika
Húsið opnar kl. 20
Dansað til kl. 1
Spariklæðnaður
SKIPHOLL
Strandgötu 1 - Hafnarfiröi ■ ‘5? 52502
eman
k KX MM 15522.
Akureyringar — Dalvíkingar
JÚDAS í HEIMSÓKN
Miðvikudaginn (síðasta vetrardag)
í Menntaskólanum.
Sumardaginn fyrsta í Alþýðuhúsinu.
Föstudag í Lóni. Laugardag í Víkurröst.