Morgunblaðið - 24.04.1975, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRIL 1975
Hlutverka-
skipti í
skíða-
brautunum
Á SUNNUDAGINN verður hlut-
verkaskipti á keppnisbrautum
skiðafólksins í Bláfjöllum. Oftast
eru það hinir fullorðnu sem
standa fyrir mótum barna- og
unglinga, en á sunnudaginn mun
ungt skiðafólk úr Ármanni og ÍR
standa fyrir og sjá um fram-
kvæmd á „Öldungakeppni" á
skíðum í Bláfjöllunum, og gefst
þarna kjörið tækifæri fyrir þá
sem komnir eru af bezta „skíða-
aldrinum" til þess að spreyta sig.
— Við ætlum að hafa braut-
irnar mjög léttar, sagði Kristinn
Sigurðsson, einn unglinganna,
sem fyrir móti þessu stendur, —
svo að allir eiga að geta farið í
gegnum þær. Og auðvitað vonum
við að sen} flestir mæti þarna til
þátttöku, og þá helzt pabbar og
mömmur þeirra unglinga sem
mest hafa verið á skíðum í vetur.
Keppt verður í þremur aldurs-
flokkum karla og tveimur flokk-
um kvenna. Aldursflokkar karla
verða 35—40 ára, 41—45 ára og 46
ára og eldri, en kvennaflokkarnir
verða fyrir 35—45 ára og 46 ára
og eldri.
Mótið hefst kl. 13.00 á sunnu-
daginn við Skíðaskála Ármanns í
Bláfjöllum, en nafnakall verður
hins vegar klukkustundu fyrr,
eða kl. 12.00.
r jmM
■ v Wm ÍMii I W ' Jll
Bikarmeistarar FH 1975: Efri röð frá vinstri: Helgi Ragnarsson,
Arni Guðjónsson, Geir Hallsteinsson, Þórarinn Ragnarsson, Krist-
ján Stefánsson, Sæmundur Stefánsson, Ólafur Einarsson, Örn Hall-
steinsson, liðsstjöri, Ingvar Viktorsson, formaður handknattleiks-
deildar FH. Fremri röð: Jön Gestur Viggösson, Gils Stefánsson,
Birgir Finnbogason, Magnús Ólafsson, Gunnar Einarsson, Örn
Sigurðsson og Guðmundur Arni Stefánsson.
• • ________
Orþreyttir Framarar misstu
bikarinn til FH-inga í lokin
Víkingar
BADMINTONDEILD Víkings gengst
fyrir innanfélagsmóti í badminton í
íþróttahúsi Réttarholtsskóla laugar-
daginn 26. aprll n.k. Keppt verður í
einliða- og tvíliðaleik karla og ungl
inga, og er öllum félögum Vlkings
hsimil þátttaka.
Þátttaka tilkynnist til Sigurðar
Jóhannessonar I síma 34161 og Þor-
steins V. Þórðarsonar I slma 38524
fyrir 24. aprll n.k.
GUDJÖN Jónsson þjálfari Fram
tók mikla áhættu f bikarúrslitun-
um við FH I fyrrakvöld. Hann lét
sex af sjö leikmönnum liðsins
leika í heilar 60 mínútur án hvíld-
ar, þ.e. allan leikinn út i gegn.
Þessir leikmenn eru vissulega
burðarásar liðsins og höfðu nærri
því fært félaginu bikartitilinn en
þeir þoldu bara ekki þetta mikla
álag. Undir lok leiksins, á mikil-
vægustu mínútunum, voru þeir
orðnir örþreyttir og misstu leik-
Sagt eftir leikinn
Gunnar Einarsson, fyrirliði FH:
-Ég er sérstaklega ánægður með
sigurinn I þessum leik Við höfum
stefnt markvisst að þessu eftir
ófarirnar I fslandsmótinu.
Stemningin var mjög góð I hópnum
fyrir leikinn og þegar svo er getur
það ekki endað með öðru en sigri
þótt hann hafi verið heldur naumur I
þetta sinn. Ég var satt að segja
orðinn hræddur um tlma I seinni
hálfleik að við ætluðum að missa af
lestinni en þegar við fórum að sla á
fann ég að við myndum hafa það,
enda voru Framararnir augsýnilega
orðnir mjög þreyttir. Það var gaman
að kveðjuleikurinn skyldi verða sig-
urleikur, ég fer utan til Göppingen I
byrjun júnl."
Evrópuleikir
Um sfðustu helgi fóru fram tveir leikir
f Evrópubikarkeppni landsliða f knatt*
spyrnu í 1. og 5. rióli. I 1. riðli sigraði
Tékkóslóvakía Kýpur 4—0 (2—0) og f 5.
riðli varð jafntefli f leik Italfu og Pól-
lands 0—0 Staóan í þessum riólum er
þannig:
1. rióill:
England
Tékkóslóvakfa
Portúgal
Kýpur
5. rióill:
Pólland
Holland
ltalfa
Finnland
3 2 1 0 8—0 5
2101 4—3 2
1010 0—0 1
2 0 0 2 0—9 0
3210 5—1 5
2 2 0 0 6—2 4
2011 1—3 1
3003 2—8 0
Mansfield
í 3. deild
Mansfield tryggði sér sigur f ensku 4.
deildar keppnínni f knattspyrnu f fyrra-
kvöld með þvf að sigra Scunthorpe með
sjö mörkum gegn engu f leik liðanna.
Mansfield-liðinu hefur vegnað mjög vel I
vetur og er eina liðið f ensku deilda-
keppninni f knattspyrnu sem ekki tapaði
ieik i heimavefli. 1 fyrrakvöfd sigraði svo
Chester Hartlepool 1—0, og tryggði sér
þar með rétt til þess að lefka f 3. deild
næsta vetur. Þriðja fiðið sem feerist upp
úr4. deildinni er Shrewsbury.
Arnar Guðlaugsson, fyrirliði Fram:
„Við vorum með þennan leik i hendi
okkar og þvl mjög ergilegt að tapa
honum. Við þoldum einfaldlega ekki
pressuna og héldum ekki höfði á
mikilvægustu augnablikunum. Eins
bætti þreytan ekki úr undir lokin.
Loks má nefna dómarana sem mér
fundust okkur óhagstæðir en það er
hins vegar ekki réttlátt að skella
skuldinni á þá."
Geir Hallsteinsson, þjálfari og leik-
maður FH: „ Ég er vissulega ánægður
að enda minn þjálfaraferil hjá meist-
araflokki FH með sigri I bikarkeppn-
inni. Ég hef lært það I vetur, að það
fer ekki saman að vera bæði leik-
maður og þjálfari, maður verður
aldrei nema hálfur I báðum hlut-
verkum. Þvl hef ég ákveðið að láta
af þjálfun og stefni að þvl að verða I
toppformi næsta ár. Þessi leikur við
Fram var erfiður enda Fram alltaf
erfiður andstæðingur. Framarar leika
alltaf af skynsemi og það gerðu þeir I
þessum leik allt þar til úthaldið
brást. Ég held að þeir hafi goldið
þess mjög að skipta ekki inná, t.d.
þegar staðan var orðin 14:10 þeim I
vil."
Guðjón Jónsson, þjálfari Fram:
„Ég get nú ósköp lltið sagt enda
varla búinn að ná mér eftir þessi
miklu vonbrigði. Við vorum óskap-
lega klaufskir að tapa þessu svona
niður. Við reyndum t.d. mjög ótlma-
bær skot I lokin. Þá má ekki gleyma
blessuðum dómurunum sem mér
fundust vera okkur óhagstæðir t.d.
þegar þeir ráku Pálma útaf fyrir
engar sakir."
Þórarinn Ragnarsson, leikmaður
FH: „Það var mikil stemning hjá
okkur fyrir þvl að vinna þennan leik
og ég er mjög glaður yfir því að það
skyldi takast. Annars fannst mér eitt
athyglisvert koma fram I leik okkar
og það sama á við um mörg önnur
íslenzk lið, þ.e. hve illa okkur gengur
að halda boltanum og leika skyn-
samlega. Það endast engir til að
hlaupa svona endalaust milli sóknar
og varnar eftir allt of stuttar sóknir.
Framhald á bls. 39
inn úr höndum sér og bikarinn
yfir til FH, — bikar sem virtist
þeirra eign alveg fram í lokin.
Eftir á virðist þetta óskynsamleg
ráðstöfun hjá Guðjónú enda
þreyta leikmanna Fram ásamt
frábærum endaspretti Þórarins
Ragnarssonar helztu orsakir þess,
að leikurinn snerist ( höndum
Framara. — Eg taldi mig þurfa á
þessum leikmönnum að halda,
var svar Guðjóns, er blaðamaður
Mbl. ræddi við hann að leik lokn-
um. Og hann bætti þvf við, að
leikir Fram i vetur hefðu flestir
verið svo jafnir og tvísýnir, að
ekki hefði verið möguleiki á því
að reyna ungu leikmennina eins
og æskilegt hefði verið og því
hefði hann einfaldlega ekki haft
nóg af reyndum leikmönnum til
skiptanna. Lokatölur leiksins
urðu 19:18, FH I vil, eftir að stað-
an hafði verið 10:9 Fram I hag í
hálfleik. Sigurmark FH kom 30
sekúndum fyrir leikslok og var
Þórarinn Ragnarsson þar að
verki. Sem sagt, FH bikarmeist-
ari á handknattleik 1975.
FH byrjar vel
Fyrir leikinn fengu tveir leik-
manna Fram blómvendi, fyrirlið-
inn Arnar Guðlaugsson fyrir 200
leiki og Jón Sigurðsson markvörð-
ur fyrir 100 leiki. Að því búnu
hófst leikurinn og það voru FH-
ingarnir sem voru mun friskari i
byrjun. Voru þeir bræður Gunnar
og Ölafur Einarssynir þar fremst-
ir í flokki. Gunnar var fyrirliði
FH í leiknum enda hans síðasti
leikur með FH í bili a.m.k. en
hann heldur í júní n.k. til Þýzka-
lands þar sem hann mun leika
með Göppingen. FH-ingar komust
í 2:0 og síðar í 4:2. Voru þeir á
þessum tíma grimmir í sókninni
en slakir í vörn og svo fór að
Fram hafði jafnað metin þegar 10
minútur voru af leik, 4:4. Hélzt
leikurinn síðan i nokkru jafnvægi
fram til hálfleiks nema hvað
Frömurum tókst einstaka sinnum
að ná forystu, mest tvö mörk, 9:7.
Rétt fyrir hlé var staðan 1Q:9
Fram i vil og miklir möguleikar á
því að auka þá forystu þegar tveir
FH-ingar voru reknir af velli með
stuttu millibili. En öllum til mik-
illar furðu dæmdi Öli Olsen leik-
töf á Framara og áttu menn að
vonum erfitt með að skilja, að lið
sem er með 6 menn á móti 4 úti á
vellinum sé að reyna að tefja leik-
inn. En ekki þýðir að deila við
dómarann og Framarar höfðu því
aðeins eitt mark yfir i hálfleik,
10:9.
Fram nær góðu forskoti
Fram lék með óbreytt lið allan
fyrri hálfleikinn og þótti það að
vonum einkennilegt en menn áttu
eftir að verða enn meira undrandi
þegar á leikinn leið. Geir skoraði
fyrsta mark seinni hálfleiksins
fyrir FH og staðan var 10:10. En
næstu fjögur mörk skoraði Fram
og virtist komið með vinnings-
stöóu, 14:10. I þessari stöðu hefði
það augsýnilega verið skynsam-
legast að skipta eitthvað af fasta-
mönnum Fram útaf, en það ráð
var ekki tekið og þeir Guðjón,
Arnar, Sigurbergur, Pétur, Pálmi
og Hannes látnir leika áfram. Fór
þreytan brátt að gera vart við sig
hjá þeim og sóknin varð þung-
lamaleg. FH-ingar minnkuðu
muninn en ekki tókst þeim að
jafna metin fyrr en 6 mínútur
voru eftir, 17:17. Á næstu mínút-
um gerðist margt, Geir var rekinn
af velli, Árni kom Fram yfir 18:17
og þegar tvær mínútur eru eftir
fékk Pálmi reisupassann. A þess-
um teimur mínútum innsiglaði
Þórarinn sigur FH með tveimur
mörkum úr horninu en hann
sýndi afbragðsgóðan leik siðustu
minúturnar. Framarar fengu
tækifæri til að rétta hlut sinn en
ótímabær skot komu i veg fyrir
það. Lokasekúndurnar reyndu
Framarar allt hvað af tök að jafna
metin en án árangurs og sigur
FH-inga var þar með i höfn.
Liðin
FH-ingar léku ekki sannfær-
andi handknattleik lengst af i
þessum leik. Þeir byrjuðu ágæt-
lega í sókninni en voru að sama
skapi slakir í vörninni framan af.
Vörnin og markvarzlan löguðust
heldur þegar á leikinn leið en þá
dofnaði aftur á móti yfir sókninni
og það var ekki fyrr en Þórarinn
byrjaði að finna smugur í horninu
undir lokin að sóknarleikurinn
fór að ganga aftur. Þeir bræður
Gunnar og Ólafur voru ásamt Þór-
arni atkvæðamestir i sókninni en
Geir lék þar minna hlutverk en
oft áður. Víðar Simonarson lék
ekki með að þessu sinni. Birgir
markvörður varði litið framan af
og kom Magnús Ólafsson þá í
markið og stóð sig með mikilli
prýði allt þar til Framarar fundu
hans veiku hliðar og var honum
þá snarlega kippt útaf. Stóð Birgir
sig þokkalega það sem eftir var.
Lið Fram stóð sig merkilega vel
í leiknum þegar mið er tekið af
álaginu á þessa fáu leikmenn og
geta liðsins verður yfirhöfuð að
teljast merkilega mikil þegar haft
er í huga hve margir góðir leik-
menn hafa hætt þar á allra síð-
ustu árum. Það er einhver seigla i
Frömurum sem fleytir þeim langt
og þeir kunna þá kúnst að leika af
skynsemi. I sókninni voru Pálmi
og Hannes atkvæðamestir og
Arnar var drjúgur í sinu nýja
hlutverki sem útileikmaður.
Guðjón markvörður varði oft á
tiðum mjög vel, þar á meðal tvö
vítaköst. Þessir menn voru allan
timann inná ásamt þeim Sigur-
bergi og Pétri en þeir Guðmund-
ur Þorbjörnsson og Arni Sverris-
son skiptust á um að vera inná og
kom Arni einkar vel út úr leikn-
um.
I heildina var þetta allskemmti-
legur leikur og mjög spennandi í
lokin en gæði handknattleiksins
voru oft ekki mikil.
Mln. FH Fram
2. Gunnar 1:0
3. ólafur 2:0
3. 2:1 Pálmi (v)
5. Gunnar 3:1
5. 3:2 Arnar
7. Gunnar 4:2
8. 4:3 Pétur
8. 4:4 Pálmi
10. ólafur 5:4
12. 5:5 Pálmi (v)
13. 5:6 Pálmi (v)
13. ólafur 6:6
15. 6:7 Pálmi (v)
15. óiafur 7:7
19. 7:8 Hannes
20. 7:9 Arni
21. Sæmundur 8:9
25. Ólafur 9:9
26. 9:10 Hannes
Hálfleikur
33. Geir 10:10
34. 10:11 Ilannes
36. 10:12 Arnar
37. 10:13 Pálmi (v)
38. 10:14 Hannes (v)
39. ólafur 11:14
42. Gunnar 12:14
44. 12:15 Arnar
45. Gunnar (v) 13:15
46. 13:16 Hannes
47. Þórarinn 14:16
50. Þórarinn 15:16
51. 15:17 Pálmi
52. Þórarinn (v) 16:17
54. Geir 17:17
57. 17:18 Arni
59. Þórarinn 18:18
60. Þórarinn 19:18
Mörk FH: Ólafur Einarsson 6,
Gunnar Einarsson 5 (1 v), Þórar-
inn Ragnarsson 5 (1 v), Geir Hall-
steinsson 2 og Sæmundur
Stefánsson eitt mark.
Mörk Fram: Pálmi Pálmason 7
(5 v), Hannes Leifsson 5 (1 v),
Arnar Guðlaugsson 3, Árni
Sverrisson 2 og Pétur Jóhannes-
son eitt mark.
Brottvísanir af leikvelli: Örn
Sigurðsson, Kristján Stefánsson
og Geir Hallsteinsson úr FH,
Arnar Guðlaugsson og Pálmi
Pálmason úr Fram, allir reknir
útaf i 2 mínútur.
— SS.