Morgunblaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1975 15 indi. Þá koma þeir, sem and- leg spektin er gefin, sr. Þórir og sr. Jón Auðuns. Annar kvað að nokkru hafa helgað mér ræðu í hljóðvarpi á uppstigningardag. Hinn sallar á mig breiðsíðu í Morgunblaðinu. Jafnvel dr. Jakob Jónsson, sem ég til þessa hef metið meir en flesta aðra predik- ara þessa lands, fær ekki stillt sig um að sneiða að mér í sjónvarpi á sunnudagskvöldi, auk þess sem hann í stuttri blaðagrein gefur mér föðurlega ábendingu um að halda hér í Skálholti þess konar námskeið fyrir guðfræðinga, sem ég fyrir nokkrum mánuðum aug- lýsti, að fram færi nú í sumar. Loks er að geta viðtalsins við Guð- mund Einarsson. Og meira er ef- laust i vændum. Ég er ekki bardagafúsari en al- mennt gerist. Þar af leiðandi kynni einhver að ætla, að nú væri kominn tími til að leggja niður skottið, biðja „sálarrannsóknar- menn“ afsökunar á stórum orðum í þeirra garð, — og draga sig síðan i hlé. Það eru takmörk fyrir því, hve lengi einstaklingur fær borið það á herðum sér að vera „mest skammaðurmaðurá Islandi," eins og einn af grönnum mínum komst að orði nýverið. Allt um það mun afsökunar- beiðni fyrir farast að sinni. Víst var ég stórorður í garð „sálarrannsóknamanna." En nú hef ég fengið þau orð öll endur- goldin með vöxtum og vaxta- vöxtum. Mun nú ekki hallast á, hvorki um „stóryrtar fullyrðing- ar“ né „ærumeiðingar,“ — svo að vitnað sé i grein sr. Þóris Stephensen. Eitt er það enn, sem gerir það að verkum, að samvizkan kvelur mig ekki að ráði né knýr mig til að knékrjúpa „sálarrannsókna- mönnum“.“ — Ég réðist aldrei að i þessari hreyfingu í eiginlegum „f jölmiðli", — í nútfmamerkingu þess orðs. Grein mfn birtist í fyrirferðalitlu tímariti, sem að jafnaði er keypt og lesið að fáum. Hún var fáum ætluð, og aidrei var það markmið mitt, að efni grein- arinnar kæmist í hámæli. Þar hafa aðrir um vélt, — fréttamenn og hefðarkelrkar ýmsir. Munu „sálarrannsóknarmenn “ sjálfir ekki vera með öllu saklausir af þeirri „fjölmiðlun.“ Geta þeir því sjálfum sér um kennt, ef þeir þykjast hafa orðið fyrir öþægi- legu aðkasti I augsýn alþjóðar. VI „Stóryrtar fullyrðingar" og „ærumeiðingar“ einkenna grein mína, — að dómi sr. Þóris Stephensen. Ein er þó sú bardaga- aðferð, sem mér hefur sézt yfir, þegar margnefnd grein var rituð: Ég gleymdi algjörlega öllum þeim beinum hótunum og atvinnurógi. Þar hefur sr. Þórir hins vegar orðið mér snjallari. Skal nú það því vikið að lyktum. Sr. Þórir Stephensen lýkur at- hugasemdum með því að skjóta máli sínu til „þjóðarinnar." Þessi aðili er hvattur til að „taka af- stöðu" til þess, sem „koma skal frá hinu forna höfuðsetri ís- lenzkrar kristni,“ — Skálholti. — Þjóðin er beðin að „átta sig... í tfma“ (leturbr. min).— E.t.v. sýna þessi orð betur en allt annað, hversu ólíkt við höf- umst að, ég og sr. Þórir. Ég hef aldrei ætlað mér þá dul að hvetja „þjóðina" til eins eða neins í trúarefnum. Satt að segja mundi ég ekkert eftir „þjóðinni," þegar ég skrifaði kirkjuritsgreinina al- ræmdu. Þess vegna kom ég lika af fjöllum, þegar ég var beðinn um að birta greinina í heild i Morgun- blaðinu. Slíkt hlaut ég að af- þakka. Greinin var alls ekki skrifuð „þjóðinni." Viðmiðun mín var miklu takmarkaðri en svo. Ég hafði i huga þann fámenna hóp landsmanna, sem lesið hefur guðfræði. Ahugi minn beinist að öðru en hugðir sr. Þóris. Hann vill safna „þjóðinni“ til átaka. Mér þykir vænt um trúarhugmyndir. Þær skipta mig meiru en allt annað. Satt að segja eru þess kon- ar hugmyndir hversdagslega ofar í huga mér en „þjóðin." Ann ég þó „þjóðinni" alls hins bezta, — og „þjóðin" vonandi mér, — þótt illa sé ég ræmdur í svip! Af þessum ástæðum hirði ég heldur ekki um að svara árásum efnislega í áheyrn „þjóðarinnar." Ég hef engan áhuga fyrir því, að margir lesi orð mín af litlum skilningi. Hitt væri mér kært, ef Kaffi pk. 109 kr? (Strásykur 1 kg. kr. 210 Gr. baunir Ora 1/1 kr. 130 Smjörlíki 1 stk. kr. 138 Hveiti 10 Ib. kr. 397 Ritskex kr. 86 Yfir 20 teg. af kexi á kjarapöllum Fiskibollur 1/2 kr. 88 |C-11 3 kg. kr. 571 Dilkakjöt í heilum skrokkum. Úrbeinað hangikjöt á kjarapöllum Cocoa Puffs og Cheerios á kjarapöllum OPIÐ TIL KL. 7 í KVÖLD OG TIL KL. 12 Á MORGUN Kostaboð á kjarapollum KJÖT OG FISKUR SELJABRAUT 54.S1MI: 74200 einhverjir yrðu til að lesa þau af nokkrum skilningi. Annað mál er svo það, ef þau „þjóðin" og sr. Þórir sameinast í einhvers konar baráttu gegn Skál- holtsstað vegna þess eins, að ég sit hér. Þá kynni nú um siðir að setja hroll að skolla! Þeir hafa löngum verið at- kvæðamenn, þeir lærðu Stephen- senar. Á dögum Leirgerðar litu þeir á ísland allt sem eins konar ættaróðal sitt, en þjóðina sem hjúalið. Þessi tilhneiging virðist vera ættgeng. Og óneitanlega fer um mig hrollur, þegar ég hugsa til þess dags, er sr. Þórir Stephensen þeysir í hlað með „þjóðina“ upp á vasann, — til þess að stugga mér af Skálholtsstað! Nú vill svo til, að mér er mjög annt um þá menn, er reistu stað þennan úr rústum, meðan sr. Þórir Stephensen sat á tali við' framliðna. Þessara manna vegna vil ég ekki, að Skálholt áfalli smán sakir Kriststrúar minnar. Mun ég þvi að öllum líkindum flýja inn á Kjöl, þegar dagur reið- innar rennur upp og þeir Stephensenar ríða hér upp traðirnar, — margir ættliðir, — stiftamtmenn og landshöfðingjar, konferenzráð og klerkar, — að ógleymdri „þjóðinni," sem á þeim degi mun fylkja sér um foringj- ann, — sr. Þóri dómkirkjuprest. Einhvern tíma hefði það raunar þótt tíðindum sæta, ef „þjóðin“ hefði tekið höndum saman gegn einhverjum þeim, er heima átti í Skálholti, fyrir það eitt, að sá hinn sami lét i ljósi efasemdir um það, að evangelisk-lúthersk kristni ætti samleið með þvi kyn- lega blandi forneskjulegrar þjóð- trúar og úrkynjaðrar dulspeki, er í dag gengur undir nafninu spír- itismi." En tímarnir breytast. Nú hvetur dómkirkjuprestur í Reykjavík „þjóðina'* til að taka afstöðu gegn svo háskalegum efa- semdum. Taka afstöðu, — f tfma! Skilst fyrr en skellur i tönnum, sr. Þórir! Ef brottför min af Skál- holtsstað er markmið þitt og annarra þeirra, er slegið hafa upp máli þessu í blöðum og hrakið það langt úr leið, má að vísu vera, að þið fáið vilja ykkar framgengt um síðir. Þó skal á það bent, að þeim málarekstri mun tæpast ljúka á einni dagstundu. Og óvíst er, hver ríður hugþyngstur heim frá leikn- um að lyktum. Þess vegna kann og að vera ástæða til, að þú gerir a.m.k. eina, heiðarlega tilraun til að skilja mælt mál, — útúrsnúningalaust og án þess að gera öðrum upp hugmyndir, sem aldrei var að finna i þeirra höfði, — áður en þú reiðir ryðgaða bredduna til hins síðasta höggs! Með þökk fyrir birtinguna.— Skálholti, annan hvítasunnudag, Heimir Steinsson. g::ða vöruhynning Ko: mió í búðina og’ brag’óió g::ða -ÓÐALSPYLSU og fáió uppskriftir! verður í Hagkaupi Skeifunni 15, föstudaginn 23. maí frá kl. 4—7 síðdegis. Þar munu húsmæórakennarar á vegum Kjötiónaóarstöðvar Sambandsins kynna nýjungar frá stöðinni og gefa ráðleggingar um matreiðslu. Goða vörurnar eru framleiddar við bestu aðstæður og undir ströngu eftirliti eigin rannsókna- stofu. ' ............ Gl-jÐI fyrirgóóan mat Nákvæmni Öryggi Ending TRESMIÐAVELAR Ma. fyrirliggjandi: Hjólsagir - Fræsarar - Bútsagir Matarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.