Morgunblaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MAt 1975 19 FYRST KVENNA A EVEREST — Mynd þessi er af Junko Tabei, 35 ára japanskri konu, sem kleif hæsta fjallstind heims. Mt. Everest, nú fyrir skömmu, — fyrst kvenna. Leiðangur hennar var eingöngu skipaður konumfyrir utan leiðsögumenn og þessi mynd var tekin 1. maí sl., þar sem hún var að,.taka á móti einni af fylgdarkonum sínum, er hún kom birgðum hlaðin til búða leiðangursins í 21.000 feta hæð. Leiðsögumaður Junko Tabei síðasta spölinn upp á tind Everest, sem er 29.028 fet, var sherpinn Ang Tenzing, en þangað komust þau 16. maí sl. Vaxandi atvinnu- leysi í OECD-ríkjum paris, 22. maí. REUTER NYRRj skýrslu frá Efnahags- og Þróunarstofnuninni — OECD — emur fram, að atvinnuleysi fer Barbara Hep- ivorth látin St. Ives, Englandi, 21. maí — Reuter. RARBara Hepworth hinn frægi Þfezki myndhöggvari, lézt í gær- kvöldi, 73ja ára að aldri. Eldur ^om upp á heimili hennar og var ekki vitað um orsök hans. Bar- Þara Hepworth var talin einn remsti myndhöggvari Bretlands hlaut margháttaða viðurkenn- |ngu um ævina og eru verk henn- á söfnum og sýningum í 'Jöldamörgum löndum. Barbara Hepworth og Henry Moore voru saman við nám 1920 °8 um hrið vann hún i samvinnu ^10 rúmenska myndhöggvarann Brancusi og málara á borð við Mondrian, Braque og Picasso. vaxandi og þjððarframleiðsla minnkandi í aðildarlöndum henn- ar. Þar segir m.a., að vænta megi enn 1—1!4% samdráttar í þjóðar- framleiðslu á þessu ári, en á fyrri heimingi ársins hafi samdráttur- inn numið 5—6% miðað við síð- ustu 18 mánuði þar á undan. Fjöldi atvinnulausra í löndun- um 24, sem aðild eiga að OECD, jókst um helming á einu ári, fór upp í 14 milljónir manna, sem er um 5% af heildarvinnuafli OECD ríkj anna. I skýrslu þessari, sem lögó verð- ur fram á ráðherrafundi samtak- anna í næstu viku, kemur fram, að í Bandaríkjunum, Þýzkalandi, Frakklandi, Italíu og Bretlandi hefur iðnaðarframleiðsla minnk- að um 10—15%. Iðnaðarfram- leiðsla Japana minnkaði um 20%. Hins vegar telja sérfræðingar OECD ýmislegt benda til þess, að yfirstandaði lægð í efnahagslífi þjóðanna sé að komast i lágmark. Sömuleiðis hefur aðeins miðað í rétta átt í baráttunni gegn verð- bólgunni. Á árinu 1974 jókst verð- bólgan um 15% en aukningin á fyrstu fjórum manuðum þessa árs hefur verið um 10%. Þó telja þeir sig sjá merki þess, að atvinnuleysi muni halda áfram að aukast um hríð. 1 skýrslunni er gert ráð fyrir því, að heildarsamdráttur í alþjóðaviðskiptum verði á þessu ári um 10%. ®aRBARA hepworth V*NNl!R AÐ lista verki. . prægasta verk hennar er minn- lngarstytta hennar um Dag Hammarskjöld, fyrrverandi fram- ^væmdastjóra Sameinuðu þjóð- ®nna, sem var afhjúpuð í New "ork 1964. Þingmenn í USA lýsa stuðningi við lsraela Washington, 22. maí — Reuter. 76 BANDARlSKIR öidungadeild- arþingmenn af 99 þingmönnum deildarinnar skoruðu á Ford for- seta f bréfi sem birt var í dag, að hætta banni á vopnasölu til Israel. Bréfið var afhent forsetan- um í gær og sögðu nokkrir þing- mannanna á blaðamannafundi í dag að því væri ætlað að sýna rfkan stuðning við áframhaldandi aðstoð við Israela á meðan endur- skoðun stefnu Bandaríkjastjórn- ar gagnvart Miðausturlöndum stendur yfir. Þá er í bréfinu lýst áhyggjum yfir því að fall banda- mannastjórnar Bandaríkjanna í Suður-Víetnam og Kambódíu skuli túlkað sem fyrirboði þess að Bandaríkjamenn muni draga úr skuldbindingum sinum gagnvart Israel qg öðrum bandamönnum. Hubert Humphrey öldunga- deildarþingmaður sagði á blaða- mannafundinum að hann væri reiðubúinn til að beita hjálpar- áætlun Bandaríkjanna við erlend ríki gegn hugsanlegum tilraunum stjórnarinnar til að beita Israela þvingunum með því að stöðva vopnaaðstoð. Humphrey er for- maður undirnefndar utanríkis- málanefndar öldungadeildarinn- ar sem fer með málefni erlendrar aðstoðar. Þingrof í Finnlandi í júníbyrjun? Helsinki. 22. maí NTB. FINNSKA íhaldsblaðið „Uusi Suomi“ segir í dag, að finnska ríkisstjórnin muni afhenda Uhro Kekkonen, forseta lausnarbeiðni sína í næstu viku, — og líklega verði haldnar þingkosningar 21. og 22. september nk. Er því hald- ið fram af blaðsins hálfu að for- setinn muni rjúfa þing í júníbyrj- un. Anderson látinn ElTT af vinsælustu tónskáld- um Bandaríkjanna, Leroy Anderson, lézt á sunnudag að heimili sínu í Connecticut í Bandaríkjunum, 66 ára að uldri. Banamein hans var •ungnakrabbi. Leroy Anderson var mörgum tslendingum per- sónulega kunnugur frá dvöl sinni hér á landi á árum heims- s*yrjaldarinnar síðari, er hann var höfuðsmaður í bandaríska uernum. Hann kunni íslenzku, euda einstakur málamaður; var sagt, að hann kynni til fulls a-m.k. nfu tungumál. Anderson var fyrst og fremst LEROY ANDKRSON kunnur fyrir létta músik — og hann þótti hefja þá tegund tón- Iistar á hærra stig en hún var á um þær mundir, sem hann tók að hasla sér völl. Þegar Sin- fóníuhljómsveitin í Boston fór í hljómleikaferð til Irlands heyrðist t.d. í fyrsta sinn i Evrópu Irlandssvíta hgns, sem var byggð á gömlum írskum þjóðlögum. I könnun, sem samband bandarískra sinfóniuhljóm- sveita lét gera árið 1953, kom í ljós, að tónverk Leroy Ander- sons voru oftar flutt en nokkurs bandarísks tónskálds annars, — næst honum komust Aaron Copland, George Gershwin, Samuel Barber og Richard Rodgers. Meðal vinsælustu laga hans má nefna Sleðaferð, sem hann samdi i steikjandi sólarhita í ágústmánuði, Bláa tangóinn, sem af seldust um milljón hljómplötur, Synkópuklukk- una, Ritvélina og Sandpappir- ballettinn. Leroy Anderson var af sænsku bergi brotinn. Foreldr- ar hans fluttust til Bandarikj- anna gagngert til þess að hann gæti stundað nám við Harvard- háskóla. Tónlistarmenntun fékk hann þó fyrst i heimahús- um, fyrst hjá móður sinni, sem var organisti og kenndi honum kornungum að leika á piánó, og föður sínum, sem starfaði hjá póstþjónustunni en kenndi honum að leika á trompett, er hann var 12 ára að aldri. I Harvard lagði hann fyrst og fremst stund á tónlistarnám og tungumálanám. Enda þótt hann stæði sig með prýði í tónlistar- náminu og ynni styrk til að ljúka meistaragráðu var hann efins um að frami hans í tónlist yrði sá, sem hann óskaði. Hann lagði því meira upp úr mála- náminu á næstu árum og tók doktorspróf i norrænum mál- um. Um 1935 var hann þó eftir allt saman kominn á kaf í tón- smíðar, útsetningarstörf og hljömsveitarstörf og því hélt hann áfram ósleitilega, þegar frá eru skilin árin, sem hann var i hernum, fyrst í heims- styrjöldinni síðari, og siðan í Kóreustríðinu. „Ég stefndi aldrei að frægð og frama — né fjáröflun,“ er haft eftir Leroy Anderson — „ég gerði aðeins það sem mig langaði til að gera og það vildi svo til, að aðrir höfðu einnig gaman af þvi.“ Shelepin hraparúr metorða- stiganum Moskvu, 22. maí. AP. Moskvuútvarpið skýrir svo frá í dag, að Alexander N. Shelepin hafi verið leystur frá starfi sínu sem yfirmaður sóvézku verkalýðs- samtakanna — að eigin ósk, að sagt var, — en ákvörðunin um þetta var tekin á miðstjórnar- fundi samtakanna. Virðist Shelepin með þessu fallinn alger- lega úr metorðasliganum sovézka, í bili a.m.k., en hann var um tíma talinn skæðastur keppinautur Leonids Brezhnevs um völdin i flokksforystunni. Shelepin, sem er 56 ára að aldri, var yngsti með- limur stjórnmálanefndar sovézka kommúnistaflokksins, en þaðan var honum vikið í sl. mánuði. Shelepin . ar áður yfirmaður sovézku leyniþjónustunnar og tal- ið er, að hann hafi átt stóran þátt í því að bola Nikita Krúsjeff úr valdastóli á sínum tíma. Hann fékk sæti sem fullgildur meðlim- ur stjórnmálanefndarinnar að- éins mánuði eftir fall Krúsjeffs 1964. Talið var, að hann hefði reynt að ná einhverju af völdum Brezhnevs i fiokknum þegar árið eftir en mistekizt. Árið 1967 varð hann yfirmaður verkalýðssam- takanna. Þegar Shelepin missti sæti sitt hjá stjórnmálanefndinni var hann nýkominn úr umdeildri ferð til Bretlands, en þangað fór hann i boði brezku verkalýðssamtak- anna og hlaut misjafnar móttök- ur. Kom til andófsaðgerða gegn Sovétríkju"um meðan hann var i Bretlandi og boðið honum til handa var mjög gagnrýnt. Við starfi Shelepins hjá verka- lýðssamtökunum tekur Alexei V. Viktorov. Maserati gjaldþrota Mílanó, 22. mai — Reuter. HLUTHAFAR i hinni heimsfrægu ítölsku sportbilaverksmiðju Maserati ákváðu i dag að lýsa fyrirtækið gjald þrota eftir stórfellt tap á undanförnu ári. Var ástæðan fyrir tapinu sögð hinir almennu rekstrarerf iðleikar bifreiðaiðnaðarins, ásamt tak- mörkunum á ökuhraða í ýmsum löndum, en verksmiðjan hefur sér- hæft sig i gerð hraðskreiðra sport- bíla. Árið 1969 hafði franska bifreiðaverksmiðjan Citroen yfirtekið meirihluta hlutabréfa i Maserati. Framleiðsla Maserati hefur verið að dragast saman smám saman að und- anförnu og er nú lokun verksmiðj- unnar í Modena, þar sem 900 manns vinna, yfirvofandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.