Morgunblaðið - 14.09.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1975
31
ur - bara öðruvísi”
legasta hef ég séð Gunnar örn
Gunnarsson og Magnús Kjartans-
son og eflaust eru nokkrir fleiri
mjög efnilegir."
„Þú ert sem sagt ekkert
hræddur um framtíð islenzkrar
myndlistar?“
„Ég held að þaðséengin hætta á
að allt fari til fjandans. Myndlist-
in er mikið fjölbreyttari núna en
fyrir 10—15 árum, þó að ég þori
ekkert að segja um gæðin. Það er
heldur ekki hægt að gera neinn
samanburð. Það er með ólíkind-
um að við skulum hafa átt mynd-
listamenn eins og Kjarval, Ás-
grím og Jón sem samtíðamenn í
ekki fjölmennara þjóðfélagi.
Hvort við yngri mennirnir getum
gert betur þori ég ekkert að segja
um.“
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
þriðja ljósmyndasýning klúbbsins
Ljós, en þar sýna þrír félagar
klúbbsins og einn gestur sem að
þessu sinni er Mats Wibe Lund.
Fyrst tókum við tali Pjetur Maack
og spurðum hann hvort sýningar
klúbbsins hefðu haft einhver
örvandi áhrif á aðra ljósmyndara
t.d. að halda sýningar.
„Við vonuðumst til þess f upp-
hafi,“ segir Pjetur" að þetta hefði
áhrif, en sú varð ekki raunin. Við
erum ekkert betri en aðrir ljós-
myndarar. og það geta margir
gert þetta. Það má segja um svona
sýningar, að myndirnar eru oft
ekki fullunnar fyrr en sýningin
er ákveðin. Ég sé þvf enga ástæðu
fyrir því að fleiri hafi ekki farið
af stað með slíkar sýningar. Miðað
við fólksfjölda eru færri sýningar
hér en á Norðurlöndum. Það má
kannski segja að þessi klúbbur
hafi orðið til góðs að einu leyti,
hann klofnaði og hinn
helmingurinn er genginn f annan
klúbb, sem mun sýna í Hamra-
görðum í október"
„Metur almenningur ljósmynd-
ina sem list?„
„Núna á þriðju sýningu okkar
hefur það runnið upp fyrir mér,
að því betur sem við gerum og
þroskumst, því meir fjarlægjumst
við almenning. Almenningur
hefur mjög gróna hugmynd um
ljósmyndina. Það eru flestir sem
álíta að falleg mynd eigi að vera
af stað, sem þeir þekkja,Og menn
segja, að enginn sé orðinn góður
Ijósmyndari, fyrr en afmenningur
viðurkennir hann. Sömu sögu er
að segja með listmálara."
„Nú eru þínar myndir byggðar
upp á einni persónu, hvernig und-
irtektir hefur þetta verkefni þitt
fengið?"
„Ég setti allar myndirnar upp
sem sjálfstæðar, en ég verð að
viðurkenna að ég hef ekki selt
eina einustu mynd enn. Fólk
Kristján Davíðsson við eitt verka sinna
Jðhannes Jóhannesson virðir fyrir sér málverk
á sýningunni í Norræna húsinu
segir hreint og beintj ég set ekki
bláókunnuga manneskju upp á
vegg hjá mér.“
„Er ljósmyndunin list?“
„Þetta er frekar skreytingar-
list, eins og Mats Wibe Lund vill
kalla þetta. Svona sýningar skapa
auðugra mannlíf, og ég held að
það séu 150 ár þar til ljósmyndari
fær listamannalaun. En þess má
líka geta, að flestir skilja Ijós-
myndina. Hingað kom gömul
kona frá Hrafnistu um daginn og
hún sagði: „Þetta er miklu
skemmtilegra en málverka-
sýningar. Ég veit hvað snýr upp
og hvað niður á ljósmyndinni, en
oft á tfðum ekki á málverkinu.”
Mats Wibe Lund sýnir lita-
stækkanir á ljósmyndasýning-
unni, en Mats hefur fengizt við
ljósmyndun í fjölda ára, og f upp-
hafi segir hann, að ljósmyndun
hafi tekið miklum framförum
undanfarin ár, þó sérstaklega
hvað snertir búnað og efni. „En
ég held að sjálfur þyrfti ég
bráðum að fara á upprifjunar-
námskeið.“
„Eru ljósmyndarar orðnir betri
en áður?“
„Tæknilegar framfarir ein-
stakra ljósmyndara hafa ekki
verið miklar, Ijósmyndarinn sér
ekkert betur en áður. Betri mynd-
ir skapast af betri búnaði."
„Ertu að sýna einhverja list
Framhald á bls. 37
^ jazzBaixettækóLi búpu
jozzbollett
Skólinn tekurtil starfa
1 9. sept.
1 3 vikna námskeið.
KENNT VERÐUR:
JAZZBALLETT
MODERN
SHOW-DANSAB
Kennari Bára Magnúsdóttir.
NYJUNG
LEIKLIST —TJÁNING
Leiðbeinandi: Edda
Þórarinsdóttir, leikkona.
Upplýsingar og innritun í síma 83730.
Ath. framhaldsnemendur hafi samband við skól-
ann sem allra fyrst.
□ jazzBaLLectsKóLi bópu
Teg. 30.
dökkbrúnu leðri,
loðfóðraðir.
Stærðir nr. 35—40.
Verð kr. 6.580.—
Stærðirnr. 41—46.
Verð kr. 6.680.—
Póstsendur
Skóverzlun Pórðar Péturssonar
V/AUSTURVÖLL, KIRKJUSTRÆTI 8, SÍMI 14181.
TRAMPS
Ný sending
Teg. Trampsskór.
í antik-brúnu leðri.
Teg. 20.
í antik-brúnu leðri
loðfóðraðir
Stærðir 36—41.
Verð kr. 5.485.-
Stærðir nr. 35—46.
Verð kr. 4.595.—
□ □ □ jazzóaiietteKdi Bóru