Morgunblaðið - 19.10.1975, Síða 19

Morgunblaðið - 19.10.1975, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1975 19 i v leikur og hreyfing. Maður er alltaf á sviðinu eins og í leikhúsi og tarnirnar geta orðið ærið strembnar. Stundum reynum við að ljúka verkefninu á nokkr- um dögum í einni lotu til þess að fá þá ef til vill tveggja daga frí á staðnum til að taka því rólega og skoða sig um, en síðan er henzt til næsta staðar í næsta verk- efni. Yfirleitt eru alltaf 10—12 manna flokkar sem ferðast í þessum myndatök- um. Það eru þá fyrirsætur, framleiðend- ur og ljósmyndarar áð öllu jöfnu, en það er alltaf búið á I. flokks hótelum og að því leyti er þetta þægilegt, því það er ekki aldeilis sparað á þessum vettvangi. En þótt reynt sé að gera þetta þægilegt þá er þetta strembin vinna og maður hefur það eiginlega á tilfinningunni að maður sé alltaf í studiói, enda er þetta ákaflega mikið skipulagt og til dæmis kemur það sem ég var að vinna í sumar ekki á markað fyrr en næsta vor.“ „Reynir þetta starf ekki oft á skap og jafnvægi?" „Vissulega og maður verður að gera sér grein fyrir því, það er þannig með alla vinnu sem er síbreytileg eftir stöðum og viðfangsefnum þótt megin- markmiðið sé það sama. En ég hef alltaf lagt upp úr því að fara alveg afslöppuð í vinnuna og úr henni. Margar stelpur sem eru í þessu starfi ná ekki að losna við streituna og þær detta undantekn- ingarlaust fljótlega út úr þessu.“ „Getur þú nefnt mér erfið dæmi um myndatökur?“ „Fyrir þremur vikum, til dæmis, vorum við þrjú model að vinna hjá einu blaði. Hugmyndin var sú að strákurinn i hópnum átti að vera töframaður, en við stelpurnar vorum í kínverskum fötum. Allt í kring um okkur voru dúfur, töfra- maðurinn var með dúfur og við þurftum báðar að hafa dúfur á handleggnum og dúfur f kringum okkur. Við vorum hreinlega á kafi i dúfum og þetta tók allan daginn. Ef þetta hefðu verið ein- hverjar friðardúfur væri þetta ekki til að tala um, en því fór fjarri. Dúfnagrey- in vissu ekki sitt rjúkandi ráð, flugu þvers og krus, rákust á okkur og annað sem inni var og að auki voru þær ekkert að hika við að drita á óæskilegustu stöð- um og það var ósjaldan sem við þurftum að hreinsa af okkur dúfnadritið, bæði úr fötum og hári. Hins vegar hef ég frétt að það hafi komið mjög góðar myndir út úr þessu, svo það var þá ekki til einskis barist. Annað dæmi get ég nefnt. Þá varð ég að vera á mótorhjóli og aka á ofsa- hraða, en bíllinn með ljósmyndaranum keyrði á undan og réð ferðinni. Ég var orðin anzi smeyk þegar hraðinn var orð- inn hvað mestur, en þetta tókst.“ „Og nú hverfur þú frá öllum þessum möguleikum eins og ekkert sé?“ „Það hefur kostað mikla vinnu að ná þessu, en ég var orðin svolítið þreytt á þessu, fannst ég búa orðið í ferðatösku, en það er gott að vera komin heim og slappa af frá ferðalögunum. Þetta hefur gengið ofsalega vel og ég má vera ánægð, en heim hef ég alltaf ætlað mér. Hins vegar býst ég við að skreppa til Milanó og Parísar næsta ár í stuttar myndatök- ur, en það er nú einu sinni svo að eftir því sem maður hefur ferðast meira, þeim mun betur kann maður að meta ísland. Ég kunni vel við mig í París og New York sem gestur, en, Guð minn góður mér finnst ekkert á við Island." — á.j. sýningarsalur Tökum allar notaðar bifreiðar i umboðssólu Fiat 126 ’74 Fiat 128 2ja dyra '74 Fiat 127 '73 Fiat 128 2ja dyra ’75 Fiat 127 '75 Fiat 128 Rally '73 Fiat 125 P '73 Fiat 128 sport '73 Fiat 125 P '74 Fiat 132 1600 '73 Fiat 128 2ja dyra '71 Fiat 132 1600 '74 Fiat 128 2ja dyra '73 Fiat 132 GLS '75. V FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson h.f., SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888 • • BVGGINGAVORUR Armstrong HUÓÐEINANGRUNAR - PLÖTURog tilheyrandi LÍM Wicandc’L) VEGGKORK i plötum KORK O (=>LÆT GÓLFFLÍSAR Armaflex PÍPUEINANGRUN Armstrong GÓLFDÚKUR GLERULL bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Armúla 16 sími 38640 Vélaborg hf. auglýsir VARMAPLAST plasteinangrun Verksmiðjan Armúla 16 HÖFUM TIL AFGREIÐSLU, NÚ ÞEGAR: URSUS dráttarvélar 40 hö verð kr. 523 500 00 URSUS dráttarvélar 60 hö verð kr. 689 500 00 Jarðtætara UNIA GGZ 1,6 verð kr. 110 500 00 Mentor vökvaheyskera . ......... verð kr. 185 000. 00 Flothjól fyrir dráttarvélar Stærð 1 100X28 verð kr. 39 000 00 Stærð 600x16 verð k r. 29 000 00 Erum fluttir í Sundaborg, Klettagörðum 1. Sími 86680

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.