Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÖBER 1975 37 KARLAKÓR Reykjavíkur er nykominn heim úr tveggja vikna söngför um íslendinga- byggðir í Manitoba í Kanada og Minnesota i Bandaríkjun- um. Voru móttökur og undir- tektir með þeim hætti, að óhætt er að segja, að kórinn hafi farið mikla sigurför og* stuðlað að tengslum við fólk af islenzku bergi vestanhafs, sem þykir vænt um uppruna sinn, talar islenzku og vill halda sambandi við ísland. Söngskrá kórsins var mjög fjölbreytt, mikill hluti laganna islenzkur og textarnir sömu- leiðis flestir á íslenzku. Á söngskrá voru 20 lög og þar að auki varð kórinn alltaf að syngja nokkur aukalög. Hrifning áheyrenda var geysileg, hvar sem kórinn söng og eftir siðasta lag á söngskránni stóðu áheyrend- Ur upp með dynjandi lófataki og tárfelldu margir af hrifningu. Sigurður Björnsson óperu- söngvari fékk lausn frá störf- um við söngleikahús i Munchen til þess að geta farið i þessa söngferð með kórnum. Hann söng einsöng i þremur lögum og einu aukalagi og átti að sjálfsögðu sinn þátt i þeirri hrifningu, sem þarna var auðsæ. Auk Sigurðar sungu einsöng þeir Hreiðar Pálmason og Friðbjörn Björnsson, en Hreiðar og Ragnar Þjóðólfs- son sungu dúett. Stjórnandi kórsins er Páll Pampichler Pálsson. Fyrsta söngskemmtun kórsins i Kanadaförinni fór fram í Playhouse Theater í Winnipeg. Húsfyllir var og talið, að um 1000 manns hafi hlýtt á kórinn. Voru þar sumir langt að komnir, bæði vestan af Kyrrahafsströnd og austan frá Toronto. Annar konsertinn fór fram í Brandon, sem er 30 þúsund manna bær i vesturátt frá Winnipeg, nærri fylkinu Saskatchewan, þar sem all- margt fólk af íslenzkum ættum býr. í Brandon er annar af tveimur kunnustu tónlistarskólum Kanada og þar er svo að segja splunku- MfeteJ Karlakór Reykjavfkur á söngskemmtuninni f Brandon. Lokið vel heppnaðri söngför Karlakórs Reykjavíkur um íslendinga- byggðir vestra ný tónleikahöll, sem rúmar 900 manns i sæti; geysilega glæsilegt hús og nýtízkulegt í útliti. í Brandon búa margir Vestur-íslendingar og komu áheyrendur sem svaraði fullu Þjóðleikhúsinu hér. Sumir voru langt að komnir eins og á konsertinum í Winnipeg, til dæmis Tómas bóndi Tómas- son, sem býr i Mordar suður við landamæri Bandarikj- anna. Fyrir konsertinn hafði bæjarstjórnin í Brandon matarboð fyrir karlakórs- menn og konur þeirra og á eftir gafst kostur á að hitta samkomugesti að máli í kaffi- boði, sem haldið var í söngleikahöllinni. Meðfylgj- andi myndir eru teknar á konsertinum í Brandon. Þriðja söngskemmtunin i Kanada fór fram í samkomu- A8 ferSalokum eftir vel heppnaða söngför um Manitoba og Minnesota. TaliS frá vinstri: SigurSur Björnsson óperusöngvari, sem söng einsöng með kórnum. Anna Áslaug Ragnarsdóttir undirleikari kórsins, Pðll Pampichler Pilsson stjómandi og Ragnar Ingólfsson formaSur Karlakórs Reykjavikur. húsinu i Lundar og var mál manna, að það hefði verið því líkast að koma á sam- komu einhversstaðar i sveit á íslandi. Húsið er hvorki stórt né glæsilegt, en þó töldu margir, að þessi söng- skemmtun hefði verið hápunktur fararinnar vegha þess hve áheyrendur voru rammíslenzkir. Kvenfélagið á staðnum hafði veg og vanda af höfðinglegum veitingum. Áður en haldið var suður yfir landamærin til Minneapolis, kom kórinn við hjá gamla fólkinu á elli- heimilunum i Gimli og Selkirk og söng þar hluta af söngskránni. Voru þar ýmsir meðal áheyrenda, sem höfðu stigið sín bernskuspor á íslandi, en flutzt vestur í æsku og margt af þessu fólki hafði aldrei til íslands komið síðan. Síðasta söngskemmtun Karlakórs Reykjavikur fór fram í kirkju í Minneapolis, þar sem konur úr þjóðræknis- félaginu Heklu tóku á móti kórnum og buðu öllum sam- komugestum uppá kaffi og meðlæti á eftir. Hvert sæti i kirkjunni var skipað og áttu karlakórsmenn naumast von á því, þar sem norskur karla- kór var með konsert á sama tima í tilefni af komu Ólafs Noregskonungs þangað til borgarinnar. Eins og annars- staðar á söngskemmtunum Karlakórs Reykjavikur, mátti sjá langt að komið fólk, en auk þess eru allmargir ís- lenzkir námsmenn í Minnea- polis og fjölmenntu þeir að sjálfsögðu. Með í förinni voru nokkrir blaðamenn og auk karlakórs- manna og eiginkvenna þeirra voru um 50 farþegar. Öllu þessu fólki var komið fyrir á heimilum hjá Vestur- íslendingum i Winnipeg og voru viðtökur mjög rómaðar. Náði hjálpsemi gestgjafanna jafnvel svo langt að þeir tóku sér fri úr vinnu til þess að geta sinnt gestum sínum sem bezt. í Minneapolis bjó kórinn og farþegarnir hins- vegar á hóteli. Eins og oft hefur verið vik- ið að áður, voru þessi októ- berhátíðahöld í tilefni þess að i októbermánuði fyrir réttum 100 árum hófst landnám íslendinga í Nýja-íslandi Þetta var siðasti liður þeirrar hátiðar. Söngur karlakórsins var framlag íslands og hefði ugglaust verið erfitt að finna nokkuð annað, sem vekti eins innilegan fögnuð meðal þessa fólks, sem ennþá þekk- ir og syngur islenzk lög. GS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.