Morgunblaðið - 19.10.1975, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKT0BER 1975
ÞEGAR vinstri stjórnin beitti sér
fyrir því, að Framkvæmdastofn-
un ríkisins yrði sett á fót, snerist
Sjálfstæðisflokkurinn öndverður
gegn þeirri ákvörðun og töldu
þingmenn flokksins og aðrir mál-
svarar, að með Framkvæmda-
stofnun rfkisins væri sett á stofn
nýtt bákn, sem mundi draga til
sín mikið miðstjórnarvald í efna-
hags- og atvinnumálum lands-
manna. Þá var hin pólitíska þrí-
eykisstjórn þáverandi stjórnar-
flokka talsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins mikill þyrnir í augum.
Þegar núverandi ríkisstjórn tók
við völdum, var tveimur af þrem-
ur forstöðumönnum Fram-
kvæmdastofnunar sagt upp störf-
um, þ.e. fulltrúum Alþýðubanda-
lags og SFV, en i þeirra stað var
ráðinn Sverrir Hermannsson,
einn af alþingismönnum Sjálf-
stæðisflokksins, og hefur hann
veitt Framkvæmdastofnuninni
forstöðu ásamt Tómasi Árnasyni
nú um tíu mánaða skeið. Morgun-
blaðið hefur átt viðtal við Sverri
Hermannsson um Framkvæmda-
stofnunina, hlutverk hennar og
störf og fyrsta spurningin var sú,
hvernig það gæti samrýmzt ofan-
greindri afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins til Framkvæmdastofn-
unar, að einn af þingmönnum
hans veitti henni forstöðu.
Varnaðarorð
okkar höfðu
úrslitaáhrif
— Það var eðlilegt eins og til
var stofnað af hálfu vinstri
stjórnar, að Sjálfstæðisflokkur-
inn snérist harkalega gegn þess-
um áformum, sagði Sverrir Her-
mannsson. Sjálfstæðisflokkurinn
er flokkur einkaframtaks og vald-
dreifingar. En ég tel, að varnaðar-
orð okkar hafi haft úrslitaáhrif í
þá átt, að sú risavaxna stofnun,
sem vinstri stjórnin virtist ætla að
koma á fót, varð aldrei til. í
inngangi laganna um Fram-
kvæmdastofnun rfkisins, er henni
ætlað að annast hagrannsóknir,
áætlunargerð og heildarstjórn
fjárfestingarmála. Hér var ekki
lítið lagt undir. Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði brotið niður að
verulegu leyti ofboðsleg ríkisaf-
skipti, sem hér höfðu þróazt og
vildi ekki hverfa aftur til kerfis
hafta og skömmtunar og náðar og
miskunnar hins opinbera.
Hins er svo að gæta, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur aldrei
lagt til, að yfirstjórnin í þjóðfélag-
inu ætti ekki að vera í höndum
þjóðkjörinna manna. Það kom
fram í máli okkar manna, þegar
við vorum komnir í stjórn, að ótti
okkar hefði reynzt að mestu
ástæðulaus. Út frá þessum sjónar-
hól þarf að skoða málið. Við
stjórnum ekki landinu einir. I
málefnasamningi stjórnarflokk-
anna var tekið inn ákvæði um
endurskoðun á lögum um Fram-
kvæmdastofnunina. Það voru
fyrst og fremst fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, sem vildu ekki
óbreytt lög. Af þessum ástæðum
var strax í september 1974 skipuð
nefnd til þess að endurskoða lög
um Framkvæmdastofnun og í
henni áttu sæti auk mín, þeir
Ingólfur Jónsson, Tómas Árnason
og Steingrímur Hermannsson.
Þessi nefnd skilaði, samkvæmt
beiðni, sein trúnaðarmáli, tillög-
um um endurskoðun á lögunum
þ.á m. tillögum um að leggja
kommissararáðið niður, og voru
þessar tillögur Iagðar fram í októ-
ber á sl. ári. Ríkisstjórnin hefur
haft í mörg horn að lita á þessu
tímabili, og formaður sjálfstæðis-
flokksins hefur sagt, að það
standi upp á sig í þessum efnum.
Ástæðan fyrir því, að menn
hafa ekki látið sér liggja meira á
er sú, að við höfum i framkvæmd
farið eftir tillögum okkar, en ekki
eftir núverandi lögum. Hvert
einasta smáatriði, sem kemur til
Framkvæmdastofnunar er Iagt
undir ákvörðunarvald þingkjör-
innar stjórnar þessarar stofn-
unar.
Það er ekki hægt að tala um að
leggja verkefni Framkvæmda-
stofnunarinnar niður, það þyrfti
þá að finna þeim annan stað og
það væri ekki hægt nema undir
pólitiskri stjórn.
— Væri ekki hugsanlegt að
skipta verkefnum Framkvæmda-
stofnunar miili Þjóðhagsstofn-
unar og Seðlabanka, eins og raun-
verulega var áður en Fram-
kvæmdastofnunin var sett á fót?
— Það mætti alveg eins spyrja,
hvort Þjóðhagsstofnun ætti ekki
að leggja undir áætlunardeild og
Framkvæmdastofnun.
— Hvers vegna?
— Min rök eru fyrst og fremst
þau, að það vantar meiri pólitiska
stjórn á þetta þjóðfélag. Ráð-
herrar hafa engin tök á að hafa
með höndum þá stjórn, sem þarf,
sökum tímaskorts. Þótt afreks-
menn séu eru málaflokkar þeirra
svo margir og viðamiklir, að þeir
hafa engin tök á að anna þeim og
veita þá pólitísku forystu, sem
þarf. Þeir eru á bólakafi við að
afgreiða vandamálin og enginn
tími til nýsköpunar.
Þegar ný ríkisstjórn er mynduð
fer áróðursmilla embættismanna-
kerfisins í gang og styður á blaða-
mannahnappana, sem aldrei
mega vera að því að hugsa heila
hugsun og kröfurnar birtast. Ekki
fleiri ráðherra. Höfum engin efni
lánasjóða. Það fé, sem hann hefur
til ráðstöfunar, er dálítið eigið fé
en aðallega innlent og erlent láns-
fé. Á árinu 1974 lánaði Fram-
kvæmdasjóður 2040 milljónir
króna, en árið 1975 er áformað að
hann láni 3650 milljónir króna.
Lánakjörin sníðum við eftir þeim
markaði, sem við tökum lánin á.
Lán eru nú ýmist gengistryggð
eða verðtryggð.
— Hvernig hefur Fram-
kvæmdastofnuninni tekizt að
beita aðhaldssemi í útlánum
Framkvæmdasjóðs, sem er ein
forsenda þess, að takast megi að
hafa hemil ð verðbólgunni?
— Það var áform ríkisstjórn-
arinnar að láta staðar numið við
2700 milljóna lánveitingar á
þessu ári. En eftir að málin höfðu
verið þæfð mánuðum saman og
lagzt hafði verið á öll tog í átt til
hækkunar . . . enduðu þau áform
í skötulíki.
I þessu sambandi er rétt að taka
fram tvennt: Fiskveiðasjóður
hefur verið mjög aðþrengdur og
lögmæt krafa hans til lána úr
Framkvæmdasjóði nemur 2000
milljónum króna. Fjárfestingar-
áform í landbúnaði hafa vaxið
með þeim risaskrefum, að úti-
lokað reyndist nú á þessu ári að
vantar meiri pólitíska
stjórn á þetta
þjóðfélag”
segir Sverrir
Hermannsson
í viðtali um
Framkvæmdastofnun ríkisins
á því. En mig minnir að Seðla-
bankinn hafi verið 3 ár að ná því
marki að fara fram úr Stjórnar-
ráðinu í mannahaldi með 113
starfsmenn á móti 111 hjá
Stjórnarráðinu. Til þess eru nóg
efni. Embættismannakllkan veii
að því meiri pólitísk yfirstjórn
þeim mun minna vald þeim til
handa. Svo fara embættismenn-
irnir öllu sínu fram. En ekki má
gleyma því, að stjórnmálamenn-
irnir bera ábyrgð á þessari öfug-
þróun. Og það sem er átakan-
legast: Við höfum einnig sett upp
þetta bákn til að verja-okkur.
— ... Verja ykkur fyrir
hverjum?
— ... Fyrir ásókn umbjóðenda
okkar, af því, að við þorum ekki
að takn ákvarðanir, segja já eða
nei. Við verðum að hætta þessum
feluleik og taka óhræddir ákvarð-
anir sjálfir fyrir opnum tjöldum.
Hér hjá okkur í Framkvæmda-
stofnuninni verður að segja já eða
neí í sambandi við afgreiðslu
mála. Við viljum ekki vísa þeim
málum frá okkur til eins eða
neins.
Verkefni
Framkvæmdasjóðs
— Hver eru meginverkefni
Framkvæmdastofnunar?
— Þau eru þríþætt. I fyrsta lagi
stjórn Framkvæmdasjóðs. Hann
lánar fé til annarra fjárfestinga-
draga úr þeim svo nokkru næmi.
Nú hafa verið settar nýjar reglur
um verðtryggingu Iána, en menn
mega vara sig á því að stefnu-
breyting til samdráttar getur ekki
orðið á einu ári. Ákvarðanir eru
teknar að jafnaði ári fyrirfram
þannig, að þessi rfkisstjórn stóð
frammi fyrir feiknalegum fram-
kvæmdaáformum, sem stofnað
var til á árinu 1974. Þess vegna
mega menn ekki verða fyrir von-
brigðum, þótt nokkurn tíma taki
að snúa dæminu við.
— Hefur Framkvæmdasjóður
getað aflað alls þess fjár, sem
hann hefur þurft á að halda á
þessu ári?
— Það var teflt á tæpasta vað
um fjármögnun Framkvæmda-
sjóðs. I dag er útlit fyrir, að á
muni skorta um 400 milljónir
króna, að sjóðurinn nái inn því fé,
sem hann vantar. Það fjármagn,
sem átti að koma frá Iffeyrissjóð-
unum verður miklu minna en til
stóð, þar sem Byggingasjóður
ríkisins gengur fyrir og fær þar
852 milljónir króna. Ég skal
ekkert um það segja á þessu stigi,
hvernig þetta vandamál verður
Ieyst. Okkur stendur til boða að
taka erlend lán, en það er rikis-
stjórnarinnar að ákveða það.
Sumum sýnist við vera búnir að
taka meira en nóg af erlendum
lánum, þegar vextir og afborganir
nálgast 20% af útflutningstekjum
1979 miðað við hóflegar lántökur.
— En hvað um útlánaáformin á
árinu 1976? Er ætlunin að láta
peningana streyma úr Fram-
kvæmdasjóði á þvf ári einnig eða
má búast við þvf, að meiri og
sterkari hömlur verði settar á út-
lán sjóðsins á næsta ári?
— Það er erfitt að svara þessari
spurningu. Við náum því aðeins
tökum á óðaverðbólgunni, að úr
lánveitingum dragi almennt. Mér
sýnist margt benda til þess, að við
ættum að geta dregið úr Iánveit-
ingum á næsta ári. Það fer mikið
eftir samningum við launastétt-
irnar hvort þenslan heldur áfram,
en takist að draga verulega úr
verðbólgunni verður meira svig-
rúm til að hafa hemil á útlánum.
En á það verður lögð áherzla að
veita sterkt aðhald. Við megum
ekki verða fyrir vonbrigðum, þótt
ekki hafi tekizt betur til en raun
ber vitni um.
Byggðaröskun af
mannavöldum
— Og þá er komið að öðru meg-
inverkefni Framkvæmdastofn-
unar, sem er Byggðasjóður er
ekkisvo?
— Jú, hlutverk Byggðasjóðs er
að veita fjármagni til lands-
byggðarinnar til eflingar
byggðar, framkvæmda og til að
treysta atvinnuvegina út um land.
Allir stjórnmálaflokkar hafa sam
einast um þetta stefnumark.
Byggðasjóður hefur á þessu ári til
ráðstöfunar um 1020 milljónir
króna, en það er eins og krækiber
í helvíti, ef miðað er við einokun
suðvesturlandsins á stórvirkjum
og stóriðju. Það er mesta byggða-
röskun af mannavöldum, sem
þekkzt hefur hér á landi bæði
fyrr og síðar. Nú er lands-
byggðinni haldið f teygju með
góðu tali og breiðum yfirlýsingum
um virkjun á ýmsum stöðum út á
landi, svo að Suður- og suðvestur-
landið geti enn haldið fram eig-
okun sinni á stórvirkjunum í
Þjórsá og stóriðju við Faxaflóa og
þessar breiðu yfirlýsingar halda
áfram, hvort sem vit er f eða ekki.
Það er verið að leggja veg fyrir
100 milljónir króna upp á Fljót-
dalsheiði, þótt vatnið í Bessa-
staðaá sé tæplega i rakvatn og
sérfræðingar þeytist um í leit að
vatni, en dreifikerfi rafmagns á
Austurlandi í lamasessi. Vatnið er
hinsvegar að finna inn við
Eyjabakka. Það er farið til Sauð-
árkróks og lýst yfir 150 Mw.
virkjun í Blöndu og Eykon segir í
Reykjavfkurbréfi, að þar myndist
uppistöðuvatn til að veiða i og
koma upp áveitum til þess að
rækta upp heiðarlöndin. Það hlýt-
ur að gerast með því að veita
vatninu upp í móti, annars væru
þau gróin nú þegar. En nú
fljúgast bændur á og Sjálfstæðis-
flokkurinn er laus allra mála og
getur haldið áfram í friði að
byggja stórt á Suðvestur-horninu.
En hvað gerðist i sambandi við
niðurskurð? Framlög til orku-
mála hækka um 1140 milljónir