Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTOBER 1975
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavfk.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sfmi 10 100.
Aðalstræti 6, sfmi 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Hér í Morgunblaðinu
hefur því margsinnis
verið haldið fram á undan-
förnum mánuðum og miss-
erum, að þjóðfélag okkar
geti ekki staðizt 50% verð-
bólgu ár eftir ár, en senn
hefur sú þróun staðið um
tveggja ára skeið. Nú er
þetta að koma í ljós. Nú er-
um við í raun og veru komin
að rauða strikinu. Og eitt
fyrsta fórnarlamb hinnar
æðisgengnu verðbólgu, sem
hér hefur geisað um tveggja
ára skeið eru námsmenn og
lánasjóður þeirra. Á tímum
Viðreisnarstjórnarinnar var
mörkuð ný stefna í lána-
málum námsmanna sem
miðaði að því að lán til þeirra
ykjust jafnt og þétt á næstu
árum á eftir, þar til ákveðnu
marki yrði náð. Þessi breyt-
ing fól í sér miklar kjarabæt-
ur fyrir námsmenn um leið
og hún þýddi umtalsverðan
útgjaldaauka fyrir ríkissjóð.
Á næsta ári er talið, að til
þess að sjóðurinn hafi nægi-
legt fjármagn til að úthluta
lánum til námsmanna skv.
gildandi reglum-þurfi ríkis-
sjóður að leggja Lánasjóði
námsmanna til hvorki meira
né minna en 1700 milljónir
króna, einn milljarð og 700
milljónir króna. Þessi upp-
hæð nemur hvorki meira né
milljónir, sem á vantar, eru
einfaldlega ekki til. Menn
verða að horfast í augu við
þann blákalda veruleika, að
þessir peningar eru ekki til
og að það er ekki hægt að
búa þá til með neinum töfra-
brögðum.
Lánasjóður námsmanna er
í raun og veru fyrsta alvar-
lega fórnarlamb verðbólg-
unnar. 50% verðbólgan veld-
ur því, að allt lánakerfi
námsmanna er brostið.
Endurgreiðslur til sjóðsins
eru nú taldar nema um 7%
af verðmæti þess, sem út er
lánað. Þetta þýðir í raun, að
hér er ekki lengur um lán að
ræða heldur yfir 90% styrki
til 3600 námsmanna, sem
stunda nám heima og erlend-
is. Við svona dæmi verður
birgða, þar sem haustlánin
verða greidd út eftir helgina
en þó aðeins hluti þeirra.
En hér er aðeins um
bráðabirgðalausn að ræða.
Menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra hafa und-
anfarnar vikur unnið að því
að útvega það fé, sem vant-
aði. Það reyndist ekki auð-
velt. Óðaverðbólgan hefur
brennt á báli þá fjármuni,
sem til voru í þjóðfélaginu.
Allir sjóðir eru að tæmast.
Við erum komin í botn. Það
er af engu að taka. Það er
rétt, sem Matthías Á.
Mathiesen, fjármálaráð-
herra, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær í tilefni
af heimsókn námsmanna til
hans í fyrradag, að við erum
þjóð, sem ekki getur veitt sér
LANAMAL NAMSMANNA
OG ÓÐAVERÐBÓLGAN
minna en 3% af heildarupp-
hæð þess fjárlagafrumvarps,
sem lagt var fram á Alþingi
fyrir skömmu. Það er
auðvitað óðaverðbólgan, sem
þenur fjárþörfina svona
gífurlega út en til saman-
burðar má geta þess, að á
fjárlögum yfirstandandi árs
eru Lánasjóði námsmanna
ætlaðar um 680 milljónir
króna og í fjárlagafrumvarpi
því, sem lagt hefur verið
fram er áætlað að hækka
þessa upphæð um 127
milljónir króna. Þarna vex
fjárþörf Lánasjóðsins svo
gífurlega, að þær 1000
einfaldlega ekki ráðið. En
hér er glöggt dæmi á ferð-
inni um afleiðingar óðaverð-
bólgunnar fyrir þjóðfélag
okkar og menn munu sjá
fleiri slík á næstu mánuðum.
Hér er að sjálfsögðu um
mjög alvarlegt mál að ræða.
Það hefur skapað náms-
mönnum og aðstandendum
þeirra mikla erfiðleika á
undanförnum vikum, hversu
mjög hefur dregizt að borga
haustlánin út. Stundum er
ekki hægt að leysa mál fyrr
en þau eru komin í algeran
hnút. Þetta vandamál hefur
nú verið leyst til bráða-
það á þessu hausti, sem hún
gat í fyrra. Og það er líka
rétt, sem fjármálaráðherra
segir, að forsenda fyrir því
að endurreisa lánakerfi
námsmanna er í rauninni sú,
að endurgreiðslureglum til
sjóðsins verði breytt. 1 því
sambandi er eftirtektarvert
að kynnast viðhorfum náms-
manna í Stýrimannaskóla og
Vélskóla, en þeir segja í
ályktun: „Fundurinn telur
eðlilegt, að endurgreiðslu-
fyrirkomulagi sjóðsins verði
breytt þannig, að lánin verði
vísitölutryggð og endur-
greiðsla miðist við laun að
loknu námi, þannig að ljóst
sé, að hér sé um lán að ræða
en ekki ölmusu.“ Þetta eru
heilbrigð sjónarmið, en jafn-
víst er, að margir námsmenn
mundu hugsa sig um tvisvar
áður en þeir tækju verð-
tryggð lán úr lánasjóði náms-
manna.
I lánamálum námsmanna
er komið að vegamótum. Því
veldur fyrst og fremst 50%
verðbólgan. Stundum heyr-
ast þær raddir, að við verjum
of miklum fjármunum til
þess að gera þessu unga fólki
kleyft að stunda nám í
nokkur ár. Gleymum því
ekki, að nútima þjóðfélag
byggist á þekkingu. Þekk-
ingar verður ekki aflað, al-
mennt talað, nema með
nokkru námi. Og gleymum
því heldur ekki, að þótt
námsmenn fái mikil lán
verða foreldrar þeirra einnig
að leggja þeim til umtals-
verða fjármuni. Það er saga,
sem velflestar fjölskyldur á
Islandi þekkja vafalaust. En
um leið og vel er búið að
námsmönnum má líka gera
til þeirra miklar kröfur. Þær
kröfur fyrst og fremst, að
þeir stundi nám af kost-
gæfni, svo að þessum fjár-
munum skattgreiðenda þ. á
m. foreldra þeirra, sé ekki
sóað og einnig þá kröfu, að
þeir horfist i augu við þá
staðreynd, að þjóðfélag
okkar á í miklum erfið-
leikum og að þeir erfiðleikar'
hljóta að koma niður á þeim,
alveg eins og öðrum þjóðfé-
lagsþegnum.
Rey kj avíkurbréf
Laugardagur 18. október
Jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum
Leikir og lærðir, sem einhverja
innsýn hafa í efnahagsmál, munu
sammála um, að brýnasta við-
fangsefnið á þeim vettvangi sé
að hamla gegn óðaverðbólgunni
og draga úr hallanum á greiðslu-
viðskiptum við erlendar þjóðir.
Björn Jónsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands, sagði riýverið,
að tímabært væri að snúa þeirri
baráttu, sem á gengnum árum
hefur verið háð við afleiðingar-
verðbólgunnar, gegn orsökum
hennar, eða þeim þáttum hennar,
er rætur eiga heima fyrir. Þessi
herkvaðning forseta Alþýðusam-
bandsins þarf að ná eyrum alþjóð-
ar.
Forsenda árangurs í slíkri bar-
áttu er, að ríkisvaldið stuðli að
almennu jafnvægi í þjóðarbú-
skapnum. Frumvarp það að fjár-
lögum komandi árs, sem nýverið
var lagt fyrir Alþingi sýnir í
fyrsta skipti um langt árabil um-
talsverða viðleitni í þessa átt, til
raunhæfs aðhalds bæði í ríkis-
rekstri og ríkisframkvæmdum.
Þannig er bersýnilega að þvf
stefnt, að frumvarpið feli ekki í
sér neinar þær ráðstafanir, sem
valdið gætu verðhækkunum,
fremur hið gagnstæða. Jafnframt
er fótum spyrnt gegn útgjalda-
þenslu ríkisins, miðað við önnur
svið efnahagsstarfseminnar í
landinu. Frumvarpið gerir ráð
fyrir 4.700 milljóna króna niður-
færslu útgjalda frá því sem orðið
hefði, ef öllum kostnaðarhækkun-
um yfirstandandi árs hefði verið
hleypt inn í hin nýju fjárlaga-
drög. Þannig er, þrátt fyrir 40 til
50% verðbólgu á árinu, aðeins
gert ráð fyrir 21.5% hækkun rík-
isútgjalda í krónum talið, en
hækkun þeirra milli áranna 1974
og 1975 nam 60.6%
Niðurfærsla
ríkisútgjalda
Áætluð niðurfærsla ríkisút-
gjalda, samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu, hlýtur óhjákvæmilega að
segja til sín á ýmsum sviðum.
Ráðgert er að flytja sérstakt laga-
frumvarp um 5% niðurskurð nú
lögbundinna útgjalda ríkissjóðs,
en áætlaður sparnaður af þeirri
niðurfærslu er 300 m.kr. Þá er
boðað frumvarp -um breytingar á
lögum um almannatryggingar,
sem leiða á af sér sparnað sem
nemur 2000 m.kr. Niðurgreiðslur
á búvörum verða lækkaðar um
fjórðung, sem þýðir 1.425 m.kr.
Útflutningsuppbótum á landbún-
aðarvörur verður haldið innan
núverandi marka, sem gerir 870
m.kr. sparnað. Vikulegum
kennslustundum á grunnskóla-
stigi verður fækkað um sem nem-
ur 50 m.kr.
Þessar ráðstafanir, ef sam-
þykktar verða, gera það kleift að
framkvæma umtalsverða skatta-
lækkum, þ.e. niðurfellingu 12%
vörugjalds frá og með nk. ára.mót-
um, sem og að standa við um-
samdar tollalækkanir, sem hvort
tveggja þýðir um 4000 m.kr.
ávinning fyrir heimilin í landinu.
Þó lækkun niðurgreiðslna á bú-
vörum sé dregin frá þessari upp-
hæð, 1425 m.kr., standa enn eftir
um 2.575 m.kr.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
25% hækkun skattvísitölu og að
bein skattbyrði verði hlutfalls-
lega óbreytt frá yfirstandandi ári.
Fjármálaráðherra boðaði þegar á
þessu þingi frumvarp um breyt-
ingar á skattalögum. Fimm starfs-
hópar hafa um nokkurt skeið
starfað að því á vegum fjármálá-
ráðuneytis að undirbyggja hugs-
anlegar skattalagabreytingar.
Skýrsla um staðgreiðslukerfi og
söluskatt með virðisaukasniði
liggur þegar fyrir. Endurskoðun á
afskriftarreglum, skattlagningu
söluhagnaðar og tillögugerð um
sérsköttun hjóna er yfirstand-
andi. Væntanlega kemur árangur
þessa undirbúningsstarfs í ljós í
boðuðu stjórnarfrumvarpi um
breytingar á skattalögum.
Hlutur þing-
manna er eftir
Sú hefur jafnan orðið raunin,
að frumvarp að fjárlögum hefur
hækkað verulega í meðförum
þingmanna. Það ætti að vera al-
mannakrafa, með hliðsjón af
stöðu efnahagsrnála, greiðsluhalla
við útlönd og verðbólguvexti, að
þingliðið hverfi úr hlutverki
kröfugerðarhóps í þjóðfélaginu.
Þvert á móti væri það verðugt
hlutskipti kjörinna landsfeðra að
bæta enn um betur mótaða að-
haldsstefnu í fjárlagafrumvarp-
inu. Það er eðlileg krafa hins al-
menna borgara á hendur þingfull-
Irúum, að þeir leiti viðbótarráða
til frekari samdráttar í ríkiskerf-
inu og sníði sér stakk eftir vexti
og raungetu þjóðarbúsins í ríkis-
framkvæmdum. Sú þinghefð,
sem einkennzt hefur af yfirboð-
um og kjördæmapoti við fjárlaga-
gerð stangast einfaldlega á við
staðreyndir þjóðarbúskaparins í
dag, og þarf að mæta órofa and-
stöðu almenningsálitsins við rikj-
andi aðstæður. Fjárlagagerð sú,
sem verður verkefni þingsins á
næstu mánuðum, þarf að verða að
próíraun þingmanna í hugum
fólksins i landinu, þar sem það
þýðir falleinkunn að stuðla að
aukinni ríkiseyðslu, ekki einungis
að því er varðar almannafé, held-
ur jafnfratnt lánsfjármagn til
annarra en allra brýnustu og
óhjákvæmilegra framkvæmda.
Nú er unnið að lánsfjáráætlun
fyrir næsta ár, heildaryfirliti, sem
spanna á lánamálin í landinu á
næsta ári og lántökur erlendis til
hvers konar framkvæmda. Þess-
ari áætlanagerð á að verða lokið í
næsta mánuði og leggjast fram
meðan fjárlagafrumvarpið er í
meðförum þingsins. Hún á m.a. að
auðvelda ákvarðanatöku um
framkvæmdir, sem í þessu frum-
varpi er ráðgert að afla lánsfjár
til og ekki hefur verið tekin af-
staða til í einstökum atriðum.
Hún ætti að skapa nauðsynlega
yfirsýn við fjárlagagerðinni. Von-
andi verður sú upplýsingasöfnun,
sem i henni felst, til að auðvelda
þingmönnum að standa fast í
ístaðinu, varðandi nauðsynlega
aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum.
Þjóðartekjur,
viðskiptakjör
og varzla
landhelgi
Hér verður ekki fjallað um út-
færslu fiskveiðilandhelgi okkar
né vörzlu hennar, enda hefur það
verið rækilega gert 1 Morgunblað-
inu i vikunni, sem var að liða, og
raunar lengi undanfarið. Við
skulum hinsvegar gefa okkur þær
forsendur, sem vel geta orðið
staðreynd næstu daga eða vikna,
að ekki takist samningar við fisk-
veiðiþjóðir á Norðaustur-
Atlantshafi um frið á Islandsmið-
um.
Þingmenn hylla forseta og fóstui
þegnum, á hólmi fjárlagaafgreiðsl
í dag.
Erfitt er að segja fyrir um af-
leiðingarnar ef til ófriðar og
átaka kemur. Við munum að vísu
mæta þeim afleiðingum með
framsýni og einurð, og árangur
útfærslunnar verður framtlðar-
gæfa okkar, með eða án samn-
inga. En'við kunnum að þurfa að
axla margháttaðar byrðar á leið-
inni aó sigri. Óhjákvæmilegt
verður að stórefla landhelgisgæzl-
una með stórauknum kostnaði I
búnaði og rekstri. Tollmúrar
munu enn rýra viðskiptakjör okk-
ar og þjóðartekjur, a.m.k. um
nokkurt skeið. Efnahagsvandinn
mun vaxa, viðskiptakjörin rýrna
og þjóðin sem heild verður að