Morgunblaðið - 19.10.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTOBER 1975
29
Minning:
Magnús H.
Valdimarsson
Ekki get ég sagt að mér hafi
beinlínis komið á óvart andláts-
fregn Magnúsar Valdimarssonar,
svo lengi hafði hann háð harða
baráttu við sjúkdóm þann, er að
lokum bar hann ofurliði.
Eftir nærri 20 ára kunnings-
skap og félagsleg tengsl fer ekki
hjá því að ýmsar minningar komi
fram í huga minn. Ég minnist
brennandi áhuga hans á félags-
málum, áhuga sem mér á stúnd-
um þótti ganga öfgum næst, en
komst þó ætið við nánari athugun
að þeirri niðurstöðu að allt hans
tal í því efni kom af sönnum
áhuga. Ég minnist þess er
Magnús, sársjúkur, hringdi heim
til okkar hér til að vita um líðan
lítils drengs okkar sem hafði orð-
ið fyrir alvarlegu slysi og var ekki
hugað lif. Magnús hringdi dag-
lega og ég hefi fyrir satt að hon-
um hafi verið færður síminn inn
að rúmi, svo hann mætti hringja
og tala við mig til að vita um líðan
drengsins. Þetta gerði Magnús
samfellt í l'A mánuð þar til er
liðan drengsins fór að batna.
Þetta kalla ég trausta samúð og
vináttu.
Þegar fólk hverfur af hérvistar-
sviði sínu er oft talið upp sitthvað
sem viðkomandi var talið til
tekna. Ég ætla þó ekki að telja
neitt upp um Magnús á því sviði
til þess er hann of þekktur fyrir
félagsmálastörf sín, og þeir aðrir,
sem um hann skrifa, eru hæfari
til.
Allir, sem komnir eru til vits og
ára, og gert hafa sér grein fyrir
nauðsyn á félagslegu samstarfi í
þjóðfélagi sem okkar, vita að
framkvæmd slikra starfa og
skipulagning veltur mikið á þeim,
er til forystu veljast.
Magnús valdist i hóp þeirra er
til forsjár voru valdir og hefir þar
óefað komið til staðgóð þekking
hans og löng reynsla. Hann vann
ætið af krafti og ósérhlífni, tók
málin föstum tökum, og leysti þau
eftir sinni sannfæringu. Þetta gat
engum dulist er sjá vildi.
Ég naut þeirrar ánægju að
starfa nokkuð lengi með Magnúsi
á vettvangi Félags ísl. bifreiðaeig-
enda, þar sem hann var í fram-
kvæmdastjórastarfi, þar sem
hann naut trausts og virðingar
allra þeirra er til hans sóttu.
Hann gegndi starfi sínu með
rausn og reisn þess manns sem
vammlaus er. Magnús markaði
um árabil stefnumál og fram-
kvæmd FÍB með góðum árangri
og búast má við að lengi muni
áhrifa hans á sviði þeirra mála
gæta.
Ég þakka Magnúsi óeigingjarnt
starf, sem einn af félögum i FÍB,
þakka marga ánægjustund á
fundum og landsmótum, vinsam-
legar leiðbeiningar og forsjá..
Fátækleg orð eru e.t.v. ekki
smyrsl á sár þeirra er í sorg eiga,
en á einhvern hátt eru þau þó það
tjáningarform sem við ráðum yfir
er deyfa kunna hinn sára harm.
Ég kveð Magnús með þökk og
virðingu ég bið honum blessunar
og velfarnaðar á ókunnum leið-
um.
Aðstandendum öllum votta ég
samúð mina.
Pétur Maack Þorsteinsson.
Ford Cortina árg. 1976 komin til
landsins. Cortina 1600 L 2ja
dyra. Verð kr. 1.246.000.
SVEINN
EGILSSON HF
Skeifunni 17 sími 85100
nauöungaruppboö
sem auglýst var í 2., 4. og 7. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1975 á fasteigninni Básvegur 5—7, Keflavík, þinglesin eign
Heimis h.f., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 23. okt.
1975 kl. 11 f.h. að kröfu Benedikts Blöndal hrls., og
Skattheimtu ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
sem auglýst var í 71., 73. og 75. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1973 á fasteigninni Suðurgata 17, Keflavík, þinglesin
eign Torfa Agnars Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu bæjarsjóðs Keflavíkur fimmtudaginn 23. okt. 1975 kl.
14.
Bæjarfógetinn í Keflavik.
sem auglýst var í 1 7., 1 9. og 21. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1974 á fasteigninni Klapparstigur 8, efri hæð, Keftavík,
þinglesin eign Kristmundar Ingibjörnssonar, fer fram á eign-
inni sjálfri að kröfu Jóhannesar Johannessen hdl., Garðars
Garðarssonar hdl. og veðdeildar Landsbanka íslands fimmtu-
daginn 23. október 1 975 kl. 1 3.30.
Bæjarfógetinn i Keflavik.
sem auglýst var í 2., 4. og 7. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1 975 á Höfn i Hafnarhreppi, talin eign Hafbliks h.f., fer fram á
eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms Þörhallssonar hri. þriðju-
daginn 21. okt. 1975 kl. 1 1 f.h.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
á fiskverkunarhúsi með vélum, tækjum og 3750 fm leigulóð á
Eyrarbakka, eign hlutafélagsins Einarshafnar, áður áuglýst í
Lögbirtingablaði 2., 9. og 23. júlí 1975, fer fram samkvæmt
kröfu Tryggingarstofnunar ríkisins á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 23. október 1 975 kl. 1 6.00.
Sýslumaður Árnessýslu.
GRÁSLEPPUNET
Eigum til afgreiðslu af lager grásleppunet á
mjög hagstæðu verði:
Aðeins 995.
Lengd: 60 FM
Dýpt: 9 MD
Möskvi: IOV2
Garn: No. 12.
— Slangan.
^rV9gvagata 10 Sírrn 21915-21286
P O Box 5030 Reykjavik
Til afgreiðslu strax
P og H Diesel rafsuðurvél
200 amp með úrtaki fyrir 220 v 50 Hz
G. Þorsteinsson & Johnson,
Ármúla 1, sími 85533.
REAAINGT 'ON RAI\D
-, §
SKJALASKÁPAR. MÖPPUR OG SKJALABÚNAÐUR í fjölbreyttu úrvali. ELDVARÐIR SKJALASKÁPAR Tveggja og fjögurra skúff u. •J ÍT fcCTI Laugavegi 178. Sími 38000. <