Morgunblaðið - 19.10.1975, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1975
Björn Þorsteinsson
Van Den Broeck
William R. Hartston
W. Jansa
Eugena Laine
BJÖRN ÞORSTEINSSON
Fæddur 7. janúar 1940.
Sinn fyrsta meiri háttar sigur
vann Björn á haustmóti T.R.
1960, er hann varð skákmeist-
ari félagsins. Árið eftir varði
hann titil sinn glæsilega, fékk
8'á vinning af 9 möguleikum.
Björn varð skákmeistari
Reykjavíkur 1964 og lét sig
ekki muna um að^vinna allar
skákirnar, 9 að tölu. Árið 1967
varð Björn skákmeistari ís-
lands hlaut 7'A vinning af 11
mögulegum. Björn hefur oft
teflt fyrir islands hönd á
Olympíuskákmótum og öðrum
alþjóðlegum keppnum.
Björn er núverandi skák-
meistari Íslands og teflir sem
slikur á svæðamótinu.
Dr. H. VAN DEN BROECK
Belgía.
Van Broeck hóf þátttöku í
skákmótum 1951, er hann tefldi
á alþjóðlegu unglingamóti í
Zevenbergen og árið eftir í
Bevervik. Á árunum 1953—55
tefldi hann reglulega í Klúbba-
keppni Evrópu, en sú keppni er
mjög vinsæl á meginlandinu.
Van Broeck varð í 3. sæti á
belgíska meistaramótinu 1956,
á eftir stórmeistaranum
O’Kelly og alþjóðlega meistar-.
anum Dunkelblum. Van Broeck
hefur teflt tvisvar á Olympíu-
skákmótum, Moskvu 1956 og
Munchen 1958.
SVEN HAMANN
Danmörku.
Hamann hefur um nokkurt
skeið verið talinn næst öfl-
ugasti skákmaður Dana, á eftir
Bent Larsen. Hann hefur áður
teflt á svæðismóti í Vrjaneka
Banja 1967, þar sem hann
hafnaði í 6. sæti með 9'A vinn-
ing, jafn Pachman og 'A vinn-
ingi á undan Jansa.
í fjarveru Larsen hefur
Hamann teflt á 1. borði fyrir
Danmörku i fjölda keppna.
Nefna má Clare-Bepedickt
keppnina 1971, þar sem Ha-
mann hlaut beztu útkomu 1.
borðs manna, 4 vinninga af 6
mögulegum og Olympíuskák-
mótið í Siegen 1972.
Á Skákþingi Norðurlanda
1973 varð Hamann í 2.—3. sæti
ásamt Westerinen með 8 vinn-
inga, en Larsen varð efstur með
.9 vinninga. Keppendur voru
111 talsins.
WILLIAM R. HARSTON
Fæddur 12. ágúst 1947.
Englandi.
Helstu afrek hans við skák-
borðið eru þessi: Skákmeistari
Bretlands 1973, og 1975, 1. sæti
í skákmóti í Alieante á Spáni
1973, þátttakandi i svæðis-
mótinu á Praia da Rocha 1969
og í Vrnjacka Banja 1972 og í
þriðja sæti á skákmótinu I Hast-
ings 1972/73.
William R. Hartston hefur,
auk þátttöku i fjöldamörgum
skákmótum smærri og stærri,
skipað sæti í bresku skáksveit-
inni á Olympíuleikunum í skák,
sem hér segir: Havana 1966,
Siegen 1970, Skopje 1970 og
Nice 1974.
William R. Hartston hefur
verið mjög virkur þátttakandi i
Vladimir Liberzon
Ekki tókst honum þó að gera
sér mat úr stöðuyfirburðunum
og svo fór að Matulovic vann
skákina og varð i 1. sæti fyrir
bragðið.
Jansa hefur teflt ötullega
undanfarið og meðal afreka
hans má nefna 3.—5. sæti f
Sarajevo 1972 ásamt Keres og
Hort með 9!4 vinning af 15
mögulegum. Jansa sigraði á al-
þjóðlegu skákmóti á ítalíu,
1973 með 7 v. af 11 mögulegum.
1 2. sæti var Llengyel með 6
vinninga og Ivkov f 3. sæti með
5'A vinning.
Jansa varð skákmeistari
Tékkóslóvakíu 1974, og sama ár
varð hann i 1.—3. sæti á mjög
öflugu móti í Amsterdam,
ásamt Ivkov og Tukmakov með
10 vinninga af 15 mögulegum.
Þeir tefla á
svœðamótinu
ALÞJÓÐLEGA svæðamótið í skák hefst í Reykjavík í dag. Þátttakendur í mótinu
eru 15 að tölu, þar af eru sex stórmeistarar. Tveir íslenzkir keppendur verða á
mótinu, þeir Friðrik Ólafsson stórmeistari og Björn Þorsteinsson, núverandi
skákmeistari Islands. Athyglin mun að sjálfsögðu beinast mest að þeim tveimur
og þá sérílagi að Friðrik sem stefnir að því að hreppa annað tveggja efstu sætanna
á mótinu sem tryggir áframhald á millisvæðamót. Hér fer á eftir kynning á
þátttakendum mótsins og myndir af þeim flestum, en ekki reyndist unnt að fá
myndir af þeim öllum.
Bresku skáklíf i um árabil,
hann er alþjóðlegur skákmeist-
ari, með 2475 Elo-stig, einnig
hefur hann ritað mikið um
skák, og má þar finna meðal
annars, bækur um skákbyrj-
anir.
Wiiliam R. Ilartston mun
áreiðanlega stefna að árangri
stórmeistara á svæðismótinu i
Reykjavik 1975.
W. JANSA
Tékkóslóvakla.
Jansa hefur oft verið nærri
því að komast áfram í milli-
svæðamótin eins og t.d. á
svæðamótinu í Aþenu 1969, þar
sem hann varð í 5. sæti með 12
vinninga af 17 mögulegum. 1
síðustu umferð varð hann að
sigra Matulovic og hafði betra
tafl langt fram eftir skákinni.
John Murray
EUGENE LAINE
Guernsey.
Eugene Laine er 48 ára
gamall og tefldi í Olympíusveit
lands síns í Siegen 1970. Á
Guernsey er vaxandi áhugi
fyrir skáklistinni og í nóvem-
ber n.k. er fyrirhugað þar
mikið alþjóðlegt skákmót.
VLADIMIR LIBERZON
er nú teflir fyrir Israel, fæddist
1 Sovétrfkjunum, nánar tiltekið
í Moskvu þann 23. 3. 1937.
Liberzon náði árangri alþjóð-
legs skákmeistara, á árinu 1963
og tveimur árum siðar, var
hann útnefndur alþjóðlegur
stórmeistari.
Liberzon hefur borið sigur úr
býtum, á eftirtöldum alþjóð-
legum skákmótum: Zinnowitz,
A-Þýzkalandi 1967 (ásamt Uhl-
mann), Debrecen, Ungverja-
landi 1968, Feneyjum, Italiu
1974, og Lone — Pine, U.S.A.
1975.
Liberzon gerðist israelskur
þegn árið 1973, og titilinn
„skákmeistari lsrael“, vann
hann árið 1974.
Vladimir Liberzon er mjög
öflugur skákmeistari, og hefur
skákstyrkur hans vaxið jafnt og
þétt undanfarið, og er sigur
hans á skákmótinu í Lone Pine
mjög athyglisverður, en þar
leiddu saman hesta sína 22 stór-
meistarar, i 44 manna skák-
móti, og voru tefldar 10 um-
ferðir, eftir svissneska kerfinu.
Liberzon hlaut'7!4 v. og skaut
aftur fyrir sig þekktum nöfnum
úr skákheiminum, svo sem
Gligoric 2593, Browne 2550,
Panno 2545, L. Schmid 2540,
Csom 2530, Gheorghiu 2521, svo
nokkrir séu nefndir, en
Liberzon var með 2485 Elo-stig,
og hefur trúlega aukið stigatölu
sina verulega, á þessu móti.
Á þessari stuttu kynningu á
Vladimir Liberzon, má sjá að
hann verður hættulegur keppi-
nautur, um efstu sætin á
svæðismótinu í Reykjavík 1975.
JOHN MURRAY
Irland.
John Murray er .31 árs gamall
og hefur teflt á alþjóðlegum
skákmótum síðan 1969. Hann
varð írlandsmeistari i bréfa-
skák 1968 og teflir á 1. borði
fyrir Irland i Evrópukeppninni
sem nú stendur yfir. Murray
hefur orðið mjög sigursæll á
skákmótum heima á írlandi, og
skulu nokkur þeirra talin hér:
1. sæti á minningarmóti
Mulcahy, Cork 1971.
l.’Sæti á meistaramóti Dublin
2 ár í röð, 1971 og 72, og 1974
sigraði Murray á opnu páska-
móti í Dublin. Sfðustu 3 árin
hefur Murray verið fastur
maður í liði Irlands i hinum
ýmsu sveitakeppnum. Hann
sigraði í „efra flokki“ á skák-
móti í Wijk-an Zee 1975 og
hlaut 1. borðs verðlaun í Arm-
strong-Cup kepinni sama ár.
PETER OSTERMEYER
Fæddur 12. 10. 1943.
V-Þýzkalandi.
Ostermeyer hefur tvisvar
orðið unglingameistari
V-Þýzkalands í skák, árin 1961
Framhald á bls. 47.
Peter Ostermeyer BrunoParma Friðrik Ólafsson ZoItanRibli Jan Timman