Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKT0BER 1975
TlU HÁLFBRÆÐUR — Þessir tíu hrútar eru allir undan Hrauna frá Efra-Langholti. Fjórir þeirra dæmdust í flokk heiðursverðlaunahrúta, fimm hlutu fyrstu verðlaun A og
einn hlaut fyrstu verðlaun B.
Þriðjungur
hrútanna synir
Hrauna frá
Efra-Langholti
Haukur Glslason, Stóru-Reykjum, heldur hér ( hrút sinn Blævar, sem stóð efstur 1 flokki heiðursverð-
launahrúta.
Héraðs.sýning á hrútum aðEystra-
Goldingaholti
★ ★
Texti & myndir:
Tryggvi Gunnarsson.
Haraldur Sveinsson veitir forstöðu fjárræktarbúinu á Hrafnkelsstöðum f Hrunamannahreppi. Hér
heldur hann í hrút sinn Gylfa, sem varð annar f flokki heiðursverðlaunahrúta.
Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, var um langt árabil dómari á hrútasýningum. Hér kemur hann út
úr fjárhúsinu í Eystra-Geldingaholti. Til hliðar stendur Stefán Jasonarson (t.v.) f Vorsabæ, formaður
Búnaðarsambands Suðurlands og ræðir við einn þeirra mörgu sem komu til að fylgjast með
héraðssýningunni.
HÉRAÐSSÝNING á hrútum fór fram
að Eystra-Geldingaholti i Gnúpverja-
hreppi síðast liðinn sunnudag Til
þessarar sýningar var komið með
hrúta, sem valdir höfðu verið á sýn-
ingum hreppabúnaðarfélaganna i
Árnessýslu, austan Hvitár og Ölfus-
ár, og voru alls 30 hrútar sýndir
Sérstaka athygli vakti að þarna voru
sýndir 10 hálfbræður, sem allir voru
undan sama hrútnum, Hrauna frá
Efra-Langholti. Þá voru á sýningunni
sýndir 6 hópar lambhrúta, 5 frá
sauðfjárræktarfélögum og einn frá
fjárræktarbúinu á Hrafnkelsstöðum í
Hrunamannahreppi
Héraðssýningar á hrútum fara
fram i hverjum landsfjórðungi á
fjögurra ára fresti og eru hrútar, sem
þar eiga að mæta, valdir á hrútasýn-
ingum, er fram fara i hverjum hreppi
það sama haust Fjöldi hrúta á
héraðssýningu úr hverjum hreppi
fer eftir sauðfjáreign i hreppunum
og er gert ráð fyrir að 1000 vetrar-
fóðraðar kindur séu á bak við hvern
hrút Til sýningarinnar I Eystra-
Geldingaholti komu flestir hrútar úr
Hrunamannahreppi eða 7 en bænd-
ur i Gnúpverjahreppi sendu næst
flesta hrúta eða 6 Eins og áður var
tekið fram komu aðeins til þessarar
sýningar hrútar úr Árnessýslu aust-
an Hvitár og Ölfusár en vegna smit-
hættu á tannlosi og kýlapest er
bannað að flytja fé milli þessara
svæða i ár
Dómar hrútanna á þessari sýn-
ingu fór á þann veg að 1 4 höfnuðu i
heiðursverðlaunaflokki, 12 fengu
fyrstu verðlaun A og fjórir fyrstu
verðlaun B
I flokkt heiðursverðlaunahrúta
stóð efstur Blævar, 3ja vetra frá
Oddgeirshólum, eign Hauks Gísla-
sonar, Stóru-Reykjum, Hraungerðis-
hreppi Faðir Blævars er Frosti frá
Oddgeirshólum Frosti er sonur
Þokka frá HoTi i Þístilfirði, sem not-
aður var á Sæðingarstöðinni á Akur-
eyri og siðar á Sæðingarstöðinni í
Laugardælum Sauðfjársæðingar-
stöð Búnaðarsambands Suðurlands
i Laugardælum hefur keypt Frosta
og er hann kominn á stöðina. Mál
Blævars eru: 114 kg að þyngd,
brjóstmál 115 sm, spjaldhryggur
27,5 og leggur 126 mm Blævar
hlaut samtals 85,5 stig. Þess má
geta, að sonur Blævars, Vestri, 2ja
vetra, eign Ingvars Þórðarsonar,
Reykjahlíð á Skeiðum, var dæmdur
sjötti bezti hrúturinn i flokki heiðurs-
verðlaunaiirúta.
Annar bezti heiðursverðlaunahrút-
urinn var dæmdur Gylfi, 4ra vetra
frá Efra-Langholti, eign Haralds
Sveinssonar, Hrafnkelsstöðum,
Hrunamannahreppi Faðir Gylfa er
Hrauni frá Efra-Langholti, en Hrauni
stóð efstur á héraðssýningu á hrút-
um fyrir fjórum árum í Árnessýslu
og var eftir þá sýningu keyptur að
Sæðingarstöðinni í Laugardælum
Hrauni er fæddur i Kílhrauni á
Skeiðum, sonur Sprota frá Kil-
hrauni Synir Hrauna hafa að sögn
Árna G Péturssonar, sauðfjárrækt-
arráðunauts, verið áberandi á hrúta-
sýningum i Árnes- og Rangárvalla-
sýslu á þessu hausti og má geta
þess, að á héraðshrútasýriingu i
Rangárvallasýslu stóð sonur
Hrauna, Drellir frá Voðmúlastöðum
efstur Eigandi Drellis er Guðlaugur
Jónsson, Voðmúlastöðum, A-
Landeyjum Á sýningunm að Eystra-
Geldingaholti var þriðji hver hrútur
undan Hrauna Nokkuð hefur borið
á að fitan sé gul á kjötföllum lamba
undan Hrauna og er talið að hér geti
verið um erfðagalla að ræða, en á
þessu hausti fæst úr þvi skorið hvort
þessi grunur á við rök að styðjast
Mál Gylfa reyndust vera: Þyngd
120 kg , brjóstmál 122 sm, spjald-
hryggur 26,5 sm og leggur 128
mm Hann hlaut 85,0 stig
j þriðja sæti heiðursverðlauna-
hrúta hafnaði Gámur, frá Oddgeirs-
hólum, eins vetra, eign Guðmundar
Árnasonar, Oddgeirshólum, Hraun-
gerðishreppi Faðir Gáms er Þristur
frá Oddgeirshólum en hann er und-
an Vegg, sem notaður var á Sæð-
ingarstöðinni i Laugardælum en var
i fyrra seldur stöðinni á Akureyri.
Gámur hlaut einkunnina 9 fyrir læri
en aðeins einn annar hrútur hlaut
svo háa einkunn fyrir læri. Mál
Gáms: Þyngd 96 kg., brjóstmál 1 10
sm, spjaldhryggur 25 sm og leggur
1 28 mm Hann hlaut 84,5 stig.
Ef úrslit sýningarinnar eru skoðuð
með tilliti til hreppanna kemur i Ijós
að hrútarnir úr Hraungerðishreppi
hafa dæmzt jafnbeztir eða allir i
flokk heiðursverðlaunahrúta og
þaðan eru fyrsti og þriðji hrútur í
þeim flokki Næst koma hrútarnir úr
Villingaholtshreppi en þeir höfnuðu
allir þrír i heiðursverðlaunaflokki
Þriðju jafnbeztu hrútana áttu bænd-
ur í Hrunamannahreppi en fjórir
lentu i heiðursverðlaunaflokki og
þrir hlutu fyrstu verðlaun A
Eins og áður sagði voru einnig
sýndir á þessari sýningu sex hópar
lambhrúta Hópinn, sem þar stóð
efstur, átti Guðmundur Árnason,
Oddgeirshólum. Öðru og þriðja sæt-
inu deildu með sér hópur frá Ingólfi
Bjarnasyni, Hlemmiskeiði, Skeiðum,
og annar frá Jóni Ólafssyni, Eystra-
Geldingaholti, Gnúpverjahreppi.
Með dómi á lambhrútum er reynt að
spá fyrir um hvernig þeir kunni að
reynast sem kynbótahrútar. Þess má
geta að hópurinn frá Hlemmiskeiði
var allur undan sama hrút, Flá, sem
ættaður er frá Jóni í Eystra-
Geldingaholti en Flár var á sl. vori
keyptur inn á Sauðfjársæðingarstöð-
ina í Laugardælum
Dómarar á héraðssýningunni voru
þeir Árni G Pétursson, sauðfjár-
ræktarráðunautur, Leifur Jóhannes-
son, ráðunautur I Stykkishólmi, og
Einar Þorsteinsson, ráðunautur, Sól-
heimahjáleigu. Á hreppasýningun-
um dæmdu Árni og Hjalti Gestsson,
ráðunautur á Selfossi, en alls voru á
þeim sýningum sýndir-588 hrútar
Víð spurðum Árna G. Pétursson
álits á þessari héraðssýningu i
samanburði við fyrri sýningar. Árni
sagði að hrútarnir á þessari sýningu
væru jafnbetri en áður og mun færri
hrútar dæmdust i fyrstu verðlaun B
og hrútar i fyrstu verðlaunum A
væru mjög jafnir. „Það hefur náðst
verulegur árangur i að stytta fótleggi
og skapa þannig betri skilyrði fyrir
vöðvasöfnun i lærum," sagði Árni.
En hvað er það einkum, sem bet-
ur mætti fara í sauðfjárrækt bænda i
Árnessýslu?
„Menn mættu leggja si£ meira
fram i sambandi við fjárval Einkum
ættu menn að beina sjónum sínum
að styrkleika fóta Nokkuð hefur bor-
ið á veikleika i afturkjúkum, þannig
að rétt er að menn hugi sérstaklega
að kjúkuliðum Vöðvagerð verður að
skoða vel með tilliti til holdasöfn-
unar en víða skortir fé meiri
lærvöðva."
Með nýjum búfjárræktarlögum frá
árinu 1973 voru gerðar breytingar á
fyrirkomulagi hrútasýninganna.
Hvað felst i þessum breytingum?
„Hreppahrútasýningar fara nú
fram á tveggia ára fresti og á hverju
ári eiga bændur þess kost að fá
dóma á veturgamla hrúta. Ég tel að
með þessum sýningum miði mjög i
rétta átt með vaxtarlag fjárins,"
sagði Árni að lokum
Búnaðarsamband Suðurlands
starfrækir Sauðfjársæðingarstöð í
Laugardælum og við báðum Hjalta
Gestsson, ráðunaut og fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsambands-
ins, að segja okkur frá starfsemi
stöðvarinnar. Hjalti sagðist gera ráð
fyrir að stöðin yrði með 1 2 hrúta i
vetur en á hverju ári eru sæddar um
4000 til 5000 ær og lætur nærri að
fimmti hver bóndi noti þjónustu
stöðvarinnar. Nú eru starfræktar
þrjár slikar stöðvar i landinu, á Akur-
eyri og Hesti í Borgarfirði auk stöðv-
arinnar i Laugardælum. Það kom
fram hjá Hjalta, að stöðvar þessar
hafa með sér mikið samstarf og hafa
á undanförnum árum skipzt á hrút-
um. Lauslega áætlað má gera ráð
fyrir að milli 25 Og 30% þeirra
veturgamalla hrúta, sem sýndir hafa
verið á hrútasýningum, séu afkvæmi
hrúta á sæðingarstöðvum
„Ég tel að starfsemi þessara
stöðva verðí til að styðja sauðfjár-
ræktina í landinu en með starfsemi
þeirra hefur verið reynt að kalla fram
meiri kjötlægni Annað verkefni bið-
ur þá óunnið en það er leit að
mjólkurlægni og frjósemi og hlýtur
það að verða i höndum bænda
sjálfra. En hvað sem fyrrnefndum
eiginleikum liður mega bændur ekki
gleyma mikilvægi góðrar fóðrunar
og meðferðar," sagði Hjalti er við
spurðum hann um árangur af starfi
sauðfjársæðingarstöðvanna
Á Hrafnkelsstöðum í Hruna-
mannahreppi er starfrækt fjárræktar-
bú, sem nýtur styrks úr rikissjóði
Fjárræktarbú af þessu tagi eru nú
fjögur I landinu en auk búsins á
Hrafnkelsstöðum eru þau á Segl-
búðum í V-Skaftafellssýslu, hluti
ánna á Skriðuklaustri á Fljótsdals-
héraði mynda fjárræktarbú og ær á
bæjunum Þórisstöðum á Hvalfjarð-
arströnd og Ytrahólmi i Innra-
Akraneshreppi mynda fjórða fjár-
ræktarbúið Haraldur Sveinsson tók
við fjárræktarbúinu á Hrafnkelsstöð-
um af Helga Haraldssyni fyrir nokkr-
um árum. Við spurðum Harald,
hversu margt fé búið hefði haft á
fóðrum á sl. vetri Hann sagðist hafa
verið með 270 fjár á húsi en væri
nú að byggja nýtt fjárhús, sem ætti
að rúma 450 fjár.
„Fjárræktarbúin fjögur njóta sam-
bærilegs styrks og fjárræktarfélögin
úr rikissjói en þegar búin voru stofn-
uð var styrkur til þeirra i raun hærri
en lækkaði við tilkomu fjárræktarfé-
laganna," sagði Haraldur og hélt
áfram: „Þetta eiga að vera stofn-
ræktarbú með hreinum stofni og
fylgjast sauðfjárráðunautar Búnaðar-
félags íslands með starfsemi búanna
og t.d. eru allar veturgamlar gimbrar
mældar á hverju vori."
Samhliða hreppasýningum á hrút-
um í nokkrum hreppum I Árnessýslu
og Rangárvallasýslu. Þá fer fram
sunnudaginn 19. þessa mánaðar
héraðshrútasýning í Vestur-
Skaftafellssýslu en vegna sauðfjár-
veikivarna verður sýningin tviskipt,
fyrir vesturhlutann verður sýning i
Höfðabrekku í Mýrdal og fyrir aust-
urhlutann á Hungurbökkum i Kirkju-
bæjarhreppi.