Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 34

Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÖBER 1975 Landslag í sköpun: þessum fallega garði, auk jurta eins og vatnaliljanna f kastala- gryfjunni, og inni í kastalanum er safn með steingervingum úr brúnkolanámunum, þar sem eru leifar af þessum sömu trjám eins og.þau voru fyrir 20 milljónum ára og af yfir 100 tegundum af frjókornum, sem ekki fengu að verða að jurtum þá. Þetta sýnir hvað hægt er að gera, ef vilji er fyrir hendi og fé. Auðvitað kostar þetta mikið. Um 40 þúsund mörk þarf til að bæta einn hektara lands til land- búnaðar, 20—22 þúsund mörk í skóg. Kostnaði er að sjálfsögðu bætt á kolaverðið, sem fór hækk- andi með olíukreppunni og veitir meira svigrúm. Ekkert er með öllu illt. I rauninni eru vandamálin fleiri. Á brúnkolasvæðinu býr fólk i þorpum. Það verður að flytjast með gróðrinum aftur fyrir námuna og þorpin að endur- nýjast. 7 þorp hafa þegar verið flutt með 11 þúsund manns, en alls munu um 20 þúsund manns þurfa að flytja sig áður en upp er staðið, á kostnað námunnar. En Fyrrum var talað um náttúru- vernd í ákveðinni merkingu, þar sem miðað var við að geyma landslag og lífríki óhreyfð. Nú er ekki síður í þéttbýlum löndum talað um stjórnun á landinu eða landslagssköpun. í orðinu felst hvers konar verndun á landslagi, dýra og jurtalífi, gömlum minjum og grænum svæðum, en jafnframt nýsköpun á því landslagi, sem áður hafði orðið fyrir hnjaski af völdum mannsins og endurbætur, þar sem nýta þarf land á einhvern hátt, þannig að frá því sé gengið aftur eftir fyrirframgerðri ákvörðun. Það getur þá ýmist orðið eins og það var áður eða breytt, með nýjum hæðum, skógum og vötnum. Slík lands- lagssköpum hljómar kannski dá- lítið tilgerðarlega. Maður getur ekki almennilega fellt sig við að maðurinn taki að „skapa“ lands- Iag, en með þeirri fyrirmynd, sem hann hefur hvarvetna í náttúr- unni, getur það tekist býsna vel, þó á teikniborði sé. Það sá ég mörg dæmi um í ferð um Þýzka- land, til að kynnast hvers konar umhverfisverndun. Raunar miðast þetta við þá staði, þar sem maðurinn hefur skemmt eða nýtir enn gæði landsins sér til lífsviður- væris. Og Þjóðverjar gera þetta vissulega í stórum stíl, sem annað þar sem þeir taka til hendi. Ég ætla til skýringar að draga fram nokkrar myndir af því, sem ég kynntist. Skammt vestur af Köln eru ein- hverjar stærstu brúnkolanámur heims, með um 55000 milljón tonnum af kolum, sem geysileg þörf er fyrir nú eftir að oliu- kreppan hófst. Þarna eru brún- kolin unnin á 2500 ferkm svæði milli Aehen, Köln og Neuss, en það er álíka stórt land og Luxem- burg. Landinu er flett ofan af brúnkolaæðunum, sem liggja ská- hallt í jörðu frá 4—10 metra dýpi og niður á 400 m dýpi. Þarna hefur landið sigið fyrir 20 milljónum ára og sandur lagst yfir skóga og plöntur, svo súrefni komst ekki að og úr urðu brún- kolin dýrmætu. Þau eru nú nýtt þannig að 85% þeirra eru notuð beint í rafmagnsframleiðslu fyrir 1'á milljón manna byggð og til stóriðnaðar í Ruhrhéraðinu. Risa- kranar, sem vega 7400 tonn og kosta um 100 milljón mörk, moka þarna upp kolunum niðri í litríkri risagryfju, sem nú er um 200 m djúp. Aðgerðin er svo hrikaleg að sjá, þegar staðið er og horft yfir námurnar, að manni hálf hryllir við. Og sárið er stórt í jörðinni. En það er ekki skilið eftir þannig, heldur er það grætt. t rauninni var byrjað að bæta tjón- ið, þó á annan hátt væri, á 17. öld, þegar fyrstu kolin voru tekin úr Aftan við námuna er landíð grætt, klætt hæðum, vötnum og grænum skógum — þar sem þéttbýlisfólkið getur unað sér. það leysir kannski ekki allan vanda. Þó hefur þetta gengið vel, var mér sagt. Fólkið lifir mikið á námunum og rekstrinum í sam- bandi við þær og skilur þörfina. Auk þess fer það úr gömlum húsum, sem lengi hefur verið vitað að þyrftu að víkja og flytur í önnur ný með öllum nútímaþæg- indum í staðinn. Fólkið í þorp- unum flytur Ifka saman á nýjan stað í sama héraði. Það ræður hvort það fer þangað eða fær húsið sitt bætt, og fer alveg í burtu, sem fáir kjósa. Húsin eru metin og borguð, en útveguð hag- stæð lán fyrir mismuninum. Al- mennar byggingar skólar, sam- komuhús og kirkjur reisir námu- félagið í stað þeirra gömlu. Ég kom í einn slíkan bæ, Körpen- Mútrath, sem 3500 íbúar fluttu í fyrir 10 árum. Hann er vaxandi, og hús og garðar mjög fallegt og vel frágengið. Það er athyglisvert að þegar slíkt þorp er flutt, þá er byrjað á því að flytja kirkjugarð- inn með öllu sem í honum er. Fólkið leggur höfuðáherzlu á að taka með sér á nýja staðinn sína látnu ættingja. Þar kemur hinn mannlegi þáttur inn í. Umhyggja fólks fyrir hvílustað ættingja sinna kemur á sama hátt fram, þar sem 3 þorp hafa orðið að vikja fyrir hinum geysimiklu vatnsmiðlunarlónum Ruhrárinn- ar. Þar var kirkjugarðurinn lfka fluttur fyrst og síðan reist kirkja og skóli, að ósk íbúanna. I fyrsta þorpið, Leue Listernohn, fluttu 1600 manns árið 1961. Ég kom í þann bæ. Þar hafði aðeins verið fyrir eitt skógarvarðarhús, en á hálfu ári var bærinn byggður upp með fallegum húsum og görðum. 1 mörg ár hafði verið vitað að að þessu kæmi og fólkið við því búið. Ibúrnir á vatnasvæðinu ákváðu að þeir vildu halda hópinn eða öllu heldur að halda 3 hópa í þremur þorpum. Þeir völdu sér arkitekta og fengu svo jafnstór hús sem þeir höfðu átt fyrir, án milligreiðslu. Landslagsarkitekt fékk það verkefni að halda svæðinu sem mest óbreyttu og þarna í brekkunni er Ijómandi fagurt með útsýni yfir vatnið, sem nú hylur gamla þorpið. Ástæðan fyrir því að nauðsyn- legt þótti að fá þessi stóru vötn, er sú, að áin Ruhr, sem rennur í gegn um mikil iðnaðarhéruð, er mjög misvatnsmikil. En þarna er mjög þéttbýlt með tilheyrandi þörf fyrir drykkjarvatn. Vatns- þörfin hefur aukist mikið sem annars staðar, úr 20 lítrum á mann upp í 250 lítra nú. Samband vatnakerfis Ruhrárinnar, Ruhr- verband, var stofnað á árinu 1913, Brúnkolanáman er sem flakandi sár, djúpt í jörðinni og f baksýn nýr skógur og raforkuverið, sem nýtir kolin. Risakraninn rffur upp brúnkolin, sem fyrir 20 millj. ára voru margs- konar tré og jurtir, og nýtir þau f dýrmæta orku til rafmagnsfram- leiðslu f rafstöðinni skammt frá. litlum holum. Þá setti furstinn, eigandi landsins, þau lög, að fylla ætti holuna aftur og gróðursetja þar tré, þvf hann vildi geta haldið áfram að fara í veiðiferðir um óspillt land. 1 rauninni var þó ekki byrjað að fylla í og rækta yfir kolanámuna fyrr en eftir 1880. Og 1953 voru svo sett lög í héraðinu, sem segja fyrir um að landinu eigi að skila eins og það var fyrir — með ökrum þar sem akrar voru og trjám þar sem skógur var áður. Nú er þetta raunverulega gert jafnóðum. Jarðveginum er flett ofan af, kolin tekin og fyllt í á eftir. Það er í rauninni furðulegt að horfa á þéssar Ijósu gryfjur langt niður í jörðina, þar sem risakran- arnir éta í sig grjótið og senda burtu á færiböndum beint f raf- stöðina eða á járnbrautarvögnum burt, og sjá svo við endann á gryfjunni hæðir og ása með fal- legum skógi, 6—7 ára gömlum og þar sem verið að er planta út 4—5 ára gömlum trjám með vélum, sem geta afkastað allt að r>000 plöntum á dag á jafnsléttu. En sfðan 1965 er búið að planta þannig 65 milljón trjám. Græn- meti grær á ökrum bændanna, þar sem kolasárin voru áður og gert hefur verið 2500 hektara stórt útivistarsvæði með skógum, görðum og vötnum, þar sem pytt- irnir voru dýpstir. Þar er fuglalíf auðugt og fiskur í vötnum. Dýrin hafa með svolítilli hjálp komið aftur. Um helgar sækja nú 50—60 þúsund manns úr iðnaðarborg- unum í kring þangað, til að veiða og róa, ganga um og njóta úti- vistar. Byrjað var á verndarsvæði á þessum slóðum árið 1880. Nú eru allar námur fylltar jafnóðum. Síðasta gamla gryfjan var tekin fyrir 1964. Ekki er síður furðulegt að geta komið í grasgarða þessa risafyrir- tækis við aðalstöðvarnar í Pfeifer- dalskastala, sem er frá 15. öld, og séð allar þær trjátegundir og jurtir, sem fyrir 20 milljónum ára uxu þarna og urðu með tfmanum að brúnkolum. Þetta eru 10 tegundir af trjám, sem öll má sjá í Skógar, hæðir, vötn og bæir koma í kjölfar námusáranna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.