Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTOBER 1975
47
— Rætt við
Birgi Kjaran
Framhald af bls. 23
mál lögð fyrir minni starfshópa sem
síðan skila niðurstöðum til stjórnar.
Allur undirbúningur þessa ársfundar
var mjög góður frá hendi Norðmanna
Ég spurði framkvæmdastjórann norska
hvað svona fyrirtæki kostaði og taldi
hann kostnaðinn lauslega áætlaðan
um 700 þúsund norskra króna eða
sem næst 20 milljónir íslenzkra króna.
Að visu var hann vongóður um að
þetta fé myndi skila sér til baka fljót-
lega, beint eða óbeint. Hann bætti við,
að þátttakendur skildu alltaf eftir tölu-
vert af gjaldeyri i landinu og að hótelin
nytu góðs af og kannski væri mesti
óbeini hagnaðurinn fólginn i þeirri
landkynningu sem ársfundurinn hefði I
för með sér. Hann fleygði þvi fram
hvort íslendingar myndu geta haldið
svona ráðstefnu. Ég svaraði því til að
mér vitanlega hefði það ekki borizt i tal
en eftir að hafa sótt þennan fund og
vitandi hvað bæði gistihúsakostur og
ráðstefnuaðstaða hefði batnað geysi-
lega fyndist mér sú hugmynd engan
veginn út i hött að upp á þvi yrði
bryddað enda nýverið fengið reynslu af
stórum ráðstefnum hér á landi sem
þótt hefðu takast vel.
— Fundinum lauk með hátiðlegri
athöfn og kosinn var nýr forseti sem er
frá Mexico og ætlunin er að næsta
ráðstefna verði haldin í Singapore.
FYRIRLESTUR UM
NÁTTÚRUVERNDARMÁL
— í leiðinni notaði ég tækifærið og
hélt fyrirlestur um náttúruverndarmál
almennt og þó með sérstöku tilliti til
íslands. Fyrirlesturinn var haldinn á
vegum tveggja samtaka, Náttúru-
verndarsamtaka Noregs og World
Wildlife Fund en þau samtök þekkjum
við íslendingar af mörgu góðu, t.d.
lögðu þau fram á sinum tíma fé til
kaupa á Skaftafelli og gerðu það
mögulegt að stofna þar þjóðgarð. Fyr-
irlesturinn var fluttur í kennslustofu i
nýja háskólanum i Ósló og var hann á
norsku. Ég sýndi auk þess þrjár stuttar
islenzkar kvikmyndir, arnarmynd
Magnúsar Jóhannssonar, Surtseyjar-
mynd Ósvalds Knudsen og mynd um
vorkomuna á íslandi eftir erlenda
kvikmyndagerðarmenn. Þær vöktu
allar mikla athygli og sérstaklega þó
hafarharmynd Magnúsar, en ég hef
áður orðið var við sérstaka hrifningu á
henni t.d. þegar ég flutti fyrirlestur I
Englandi. Að þessu sinni var ástæðan
kannski ekki slzt sú, að arnarmálin eru
nú mjög ofarlega á baugi hjá náttúru-
verndarmönnum i Noregi því þótt arn-
arstofninn hjá þeim sé all miklu sterk-
ari en sá islenzki, þar sem þar i landi
munu vera um 300 pör hafarna og
kóngsarna samanborið við þau 100
pör sem eru hér, er samt talin vera
hætta á ferðum. Mér var ánægja af þvl
að þessi náttúruverndarsamkoma var
all fjölsótt og m a. var þarna mikið af
stúdentum og öðru ungu fólki sem
greinilega hefur áhuga á náttúru-
verndarmálum. Að lokum vil ég svo
bæta þvi við að eftir þeim viðtökum
sem ég fékk og viðtölum við íslenzka
námsmenn þá held ég að óhætt sé að
fullyrða að gott sé að vera Islendingur i
Noregi
------—t—------
— Minning
Guðmundur
Frainhald af bls. 39
um tíma. Hann kom smiðju sinni í
fyrstu fyrir í kjallara, þar til hann
reisti verkstæði bak við húsið
1912 og stækkaði það 1936. Guð-
mundur var sívinnandi, afkasta-
mikill í starfi og stóð ávallt sjálf-
ur að öllum slíkum framkvæmd-
um.
Guðmundur var lífrænn og at-
hafnasamur maður. Utan megin-
starfs fékkst hann við ótal verk-
efni framkvæmda og félagsmála.
Árið 1916 áttí hann þátt í því að
athugun var gerð á hvort unnt
væri að vinna kalk (steinlím) í
Mógilsárlandi við Esju. Safnað
var 35 þús. kr. til framkvæmd-
anna, byggt yfir starfsemina og
fenginn brennsluofn. Starfsemin
var ýmsum erfiðleikum bundin
og varð að hætta, en húsið var selt
og tókst að endurgreiða söfnunar-
féð.
Um svipað leyti keypti hann í
félagi við aðra bát frá Noregi, sem
gerður var út um fimm ára tíma-
bil.
Nokkur ár starfrækti Guð-
mundur verzlun í útbyggingu sem
hann reisti við hús sitt að Laufás-
vegi.
f félagsmálum kom hann viða
við. Fyrir aldamótin gekk hann í
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík
(síðustu ár heiðursfélagi). Hann
var nokkur ár formaður Taflfé-
lags Reykjavikur. Félagsmaður
Verzlunarmannafélagsins. Stofn-
félagi í Eimskipafélagi Islands.
Einn af stofnendum Stangaveiði-
félagsins gamla og gjaldkeri þess
alla starfstíð þess.
Á fyrri árum tók Guðmundur
talsverðan þátt í stjórnmálum.
Stóð hann jafnan í stríðinu þar
sem það var harðast. Þeir Þor-
steinn Erlingsson skáld og Guð-
mundur voru nábýlismenn og
góðir kunningjar.
Guðmundur hafði yndi af kveð-
skap og kunni mikið af ljóðum,
brá hann títt fyrir sig í viðræðum
ef hann vildi komast að megin-
efni máls, kjarnyrtum ljóðlinum
þjóðskálda.
I trúmálum og lifsviðhorfum
var Guðmundur mjög viðsýnn og
hafði í þeim efnum að einkunnar-
orðum þessar hendingar úr kvæði
Þorsteins:
„Ég trúi því sannleiki að
sigurinn þinn,
að síðustu vegina jafni.“
Á fimmtugsaldri var Guðmund-
ur mjög þjakaður af veikindum er
sóttu þungt á hann. Leitaði hann
nokkuð lækninga, en fékk enga
bót.
Það lá ekki í eðli hans að gefast
upp við erfiðleika og tók hann það
þá til bragðs að gera tilraunir á
sjálfum sér með breytt mat-
aræði. Hætti aó neyta almennra
fæðutegunda svo sem fisks, kjöts,
með fleiru, en tilreiddi sér sjálfur
máltiðir úr lífrænum efnum.
Leið ekki á löngu þar til alveg
skipti sköpum um heilsufar hans,
og hélt hann sig eftir það mjög
reglubundið við slíkt mataræói
sem margir telja sérvizku, en
hann sagði hafa sannað réttmæti
sitt með þvi, að síðan bjó hann við
kvillalausa hestaheilsu til ævi-
loka.
Árið 1933 varð Agnar son-
ur hans meðeigandi I blikksmiðj-
unni, en tók við fyrirtækinu
nokkrum árum siðar og starfræk-
ir nú ásamt sonum sínum Breið-
fjörðsblikksmiðju, að Sigtúni 7.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um æviatriði Guðmundar J.
Breiðfjörð, en jafnframt sækja á
endurminningar áratuga kynna
við mjög sérstæðan persónuleika.
I öllu athafnalifi sfnu gaf Guð-
mundur sér tíma til þess að laða
að heimili sinu og Guðrúnar okk-
ur nokkra drengi úr nágrenninu á
Laufásvegi og Frikirkjuvegi.
Kenndi hann okkur skák og spil,
smiðaði sjálfur taflborð og tafl-
menn, m.a. eitt forkunnarfagurt
úr málmi, er gekk nokkur ár sem
meistaraverðlaunagripur.
Þegar að þroska unglingsár-
anna kom, stofnaði hann með okk-
ur málfundafélag sem hann stýrði
af miklu frjálsræði, en húsmóðir-
in annaðist ytri aðstæður af góð-
leik og myndarskap. Var oft glatt
á hjalla og ríkti þar innileg vin-
átta og drengskapur.
Guðmundur var stórhuga og
hiklaus I öllu sem hann fékkst
við, en laus við allt stærilæti eða
tilgerð I umgengni. Hann var
mjög frábitinn öllu umstangi og
dekri við eigin persónu, en þakk-
látur börnum sínum og tengda-
börnum og virti að verðleikum þá
nærgætni og umhyggju er þau
lögðu fram honum til velfarnaðar.
Aldurinn fer misjafnlega með
fólk en bugaði aldrei Guðmund J.
Breiðfjörð þótt hann næði yfir 96
ára tilveru þessa heims. Ég heim-
sótti hann títt siðasta árið og tók-
um við ávallt skák saman, hélt
hann nákvæma skrá yfir þetta og
átti hann til góða tvo vinninga er
við tefldum siðast saman viku fyr-
ir andlát hans.
Ég minnist þess ekki að hafa
nokkurn tima heyrt Guðmund
mæla kvörtunar- eða æðruorð,
hins vegar hafði hann ákveðnar
skoðanir á hverju þvi er hann lét
sig nokkru skipta og fór ekki á
milli mála hver meining hans var
á hlutunum.
Hann viðurkenndi ekki hugtak-
ið hlífð við sjálfan sig, en réttsýni
og góðvild gagnvart öðrum voru
sterkustu þættir i hugarfari hans
til hinztu stundar.
Ilalldór Jónsson.
— Svæðamótið
Framhald af bls. 30
og 1962. Árið 1974 varð hann
skákmeistari V-Þýzkalands,
hlaut 10‘/z v. í 2. sæti varð
Eising með 10 v. og 3.
Reichenbach með 9V6 v.
Ostermeyer starfar að
stærðfræðikennslu við
háskólann í Dusseldorf.
FRIÐRIK ÓLAFSSON
Fæddur 26. janúar 1935
Þegar á unga aldri þótti sýnt
að Friðrik byggi yfir
óvenjulegum skákhæfileikum.
Fimmtán ára gamall sigraði
hann í meistaraflokki á
skákþingi Norðurlanda og varð
siðan . skákmeistari
Norðurlanda , þermur árum
síðar. Þetta var þó aðeins
byrjunin á glæsilegum ferli. Á
jólaskákmótinu í Hastings 1955
vakti Friðrik heimsathygli með
þvi að verða efstur á mótinu
ásamt Kortsnoj,
Sovétríkjunum. Taimanov og
Ivkov voru fyrirfram álitnir
sigurstranglegastir, en urðu að
gera sér 3. og 4. sætið að góðu.
Eftir þetta tók einn sigurinn
við af öðrum og í Portoroz 1958
var Friðrik útnefndur
stórmeistari í skák. Á þessu
móti vann Friðrik sér rétt til að
keppa um áskorendaréttinn á
hendur heimsmeistaranum.
Botvinnik.
Hér yrði of langt mál að rekja
afrekaskrá Friðriks, en með
glæsilegum ferli sínum hefur
hann orðið íslenzkum
skákmönnum mikil hvatning til
dáða og laðað unga menn að
skáklistinni. Sá áhugi sem
spratt hér upp um og eftir 1955
er fyrst og fremst einum manni
að þakka, stórmeistaranum
okkar, Friðriki Ólafssyni.
BRUNO PARMA
Júgóslavia.
Sínum bezta árangri á
skákbrautinni náði Parma á
friðarskákmótinu mikla i
Zagreb 1965, en þar tefldu m.a.
15 stórmeistarar. Efstir urðu
Ivkov og Uhlman með 13V4
vinning af 19 mögulegum, i 3.
sæti varð heimsmeistarinn
Petroshan, og siðan komu
Parma og Portisch með 12
vinninga. Parma var eini
keppandi mótsins sem ekki
tapaði skák, enda situr öryggið
jafnan í fyrirrúmi. Parma var
meðal keppenda á
minningarmóti um dr. Vidmar
sem haldið var i júni s.l.
Heimsmeistarinn Karpov
sigraði með 11 vinningum af 15
mögulegum, næstur kom
Gligoric með .10 vinninga og
Parma og Portisch höfnuðu i
6.—7. sæti með 8'/i vinning og
Parma var taplaus rétt einu
sinni.
PERTTI POUTIAINEN
Finnland.
Poutiainen er einn yngsti og
jafnframt efnilegasti
skákmaður Finnlands i dag.
Hann tefldi á 1. borði i finnsku
stúdentasveitinni á siðasta
heimsmeistaramóti og varð
skákmeistari' Finnlands 1974.
Þar sigraði Poutiainen
örugglega með 9V$ v. en næstu.
menn voru vinningi á eftir.
Poutiainen náði alþjóðlegum
meistaratitli á alþjóðlegu
skákmóti í Budapest í april s.l.
Þar sigruðu Ribli og
Polugaevsky með lO'/i v. af 15
mögulegum en Poutiainen fékk
8 v. og hafnaði I 6.—7. sæti
ásamt Sax, Ungverjalandi.
ZOLTÁN RIBLI
Fæddur f Mohács 1951.
Ungverjalandi.
Ribli var útnefndur meistari
1967, alþjóðlegur meistari 1970
og nafnbótina stórmeistari í
skák, hlaut hann árið 1973,
aðeins 22 ára. Skákmeistari
Ungverjalands varð hann árin
1973 og 1974. Ribli hefur átt
sæti í ungversku skáksveitinni
á Olympíuskákmótum frá því í
Siegen 1970. Á þessu ári hefur
hann náð þeim mjög svo góða
árangri, að skipa 1.—2. sæti,
ásamt rússneska stórmeistar-
anum L. Polugaevsky, á sterku
skákmóti í Budapest.
Zoltán Ribli er einn af
efnilegustu skákmönnum
heimsins um þessar mundir, og
hefur hann sýnt geysimiklar
framfarir undanfarið.
Elo-stigakerfið, gefur Ribli
2520 stig. Aðstoðarmaður Riblis
á svæðamótinu í Reykjavik,
verður skákmeistarinn Laszló
Vadász.
TIMMAN
Holland.
Timman er islenzkum
skákunnendum vel kunnur,
síðan hann tefldi hér i
Reykjavíkurskákmótinu á
dögunum.
Timman hefur teflt mikið
undanfarið og yfirleitt með
góðum árangri. Hann varð I 1.
sæti á alþjóðlegu skákmóti f
fsrael sem fram fór i júní s.l.
Þar hlaut Timman 9 vinninga
af 13 mögulegum, en næstir
urðu Liberzon og Kraidman, en
neðar voru þekktir
stórmeistarar svo sem Najdorf
og Pachman með 7 vinninga.
Wijk-an Zee skákmótið sem
haldið var um síðustu áramót
dró að sér 11 stórmeistara og í
efstu sætum urðu Portisch með
10'A vinning og Hort með 10
vinninga. Timman lenti í 8. sæti
með 8 vinninga. jafn Geller og
Browne.
Timman hefur um nokkuð
skeið verið öflugasti
skákmaður Hollands, og á
meistaramótinu 1974 hlaut
hann 8 'A vinning af 11
mögulegum, 2 vinningum
meira en næstu menn, Ree og
Sosonko.
ARNE ZWAIG
Noregi.
Zwaig hefur áður teflt hér á
landi, árið 196Í er hánn tSk
þátt í Skákþingi i\orouilauua.
Þar tefldi Zwaig í
unglingaflokki og lenti í 1.—2.
sæti á samt Braga
Kristjánssyni. Zwaig hefur
áður teflt á svæðamótum. Hann
varð i 8. sæti í Halle, 1967 með
10'/i vinning, tveim vinningum
á undan íslenzka
keppandanum, Jóni
Kristjánssyni. Þá tefldi Zwaig á
svæðismótinu i Raach 1969 og
varð I 12.—14. sæti ásamt
Dueball, V-Þýzkalandi og
Drimer, Rúmeníu, Meðal
þátttakanda var Guðmundur
Sigurjónsson sem varð í 6. sæti.
Zwaig hefur oft tekið þátt i
Skákþingi Norðurlanda, og
1965 varð hann í 3. sæti í
landsliðsflokki.
nýjasca
Coskm i
Sungumú
x
1=»
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53
NÝUNG
Þjálfun fyrir karlmenn á öllum aldri, hefst
31. október 1 sinni til 2 í viku af næg
þátttaka fæst. Sturtur, sauna, gigtarlampi,
hvild, viktun og jafnvel nudd ef óskað er.
Uppl. og innritun
í síma 42360 eftir kl. 4
á virkum dögum og um
helgar heimasími 40935.
Þjálfari verður Haraldur Erlendson
Með snældum (kassettum) og kennslubókum getur
nemandinn af egin rammleik náð góðu valdi á
tungumálum með 10 — 15 mínútna daglegu námi í
3 — 6 mánuði. Hann þarf ekki aðra leiðsögn en
þá sem er að finna í námsgögnunum.
Nú eru á boðstólum:
Enska án erflðlS: kennstubók, 3 snaeidur og íslensk þýðing.
Þýska án erflðlS: kennslubók, 3 snældur og íslensk þýðing.
Spænska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk
þýðing.
Sænska handa ykkur: kennslubók, æfingabók, 4 snældur
og íslensk þýðing.
French without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Italian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Russian Wlthout toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Ennfremur eru á boðstólum bréfanámskeið
í ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og
esperantc
HEIMANÁM SEM HENTAR ÖLLUM
BRÉFASKÓLINN
Suðurlandsbraut 32 Reykjavík sími 81255