Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 1
249. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hópur sovézkra menntamanna styður Sakharov Moskvu 30. okt. Reuter. HÓPUR sovézkra menntamanna og nokkrir þekktir andófsmenn hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir láta f Ijós stuðning við vfsindamanninn Andrei Sakharov og fagna þvf að hann hafi fengið friðarverðlaun Nóbels f ár. Orðsending þeirra ver birt um ær mundir sem hin opinberu máigögn sovézka kommúnista- flokksins virðast vera með f und- irbúningi meiri háttar herferð á hendur Nóbelshafanum. Rithöfundurinn Andrei Amalrik sem er allþekktur á Vesturlöndum sagði við erlenda blaðamenn í Moskvu nú síðdegis að með þessu vildu þeir láta það koma fram að Sakharov nyti víða stuðnings og virðingar f Sovét- ríkjunum. Meðal annarra sem skrifa undir eru sagnfræðingur- inn Roy Medvedev, sem iðulega hefur verið á öndverðum meiði við Sakharov, myndhöggvarinn Ernst Neizvestny, tveir félagar f sovézka rithöfundasambandinu, Vladimir Kornilov og Osip Chorny, og Pjbtr Grigorenko, fyrrum hershöfðingi. 1 skjali hópsins segir: „Allt opinbert starf Andrei Sakharovs byggist á þeim forsendum að raunverulegur friður sé óhugs- Framhald á bls. 24 Flugslys við Prag — 68 létust — 52 komust af Prag 30. okt. NTB. Reuter. SEXTlU og átta manns létu lffið f morgun, þegar júgósiavnesk vél af gerðinni DC-9 með 115 farþeg? og fimm manna áhöfn fórst í að- Juan Carlos tekur við — enn dregur af Franco Madrid 30. október. Reuter. NTB. SPÁNSKA rfkisstjórnin sam- þykkti f kvöld að útnefna Juan Carlos prins þjóðhöfðingja Spánar til bráðabirgða „meðan Franco hershöfðingi er sjúkur" eins og sagði f tilkynn- ingu forsætisráðherrans. Ef Franco deyr verður tilskip- unin varanleg. Tilkynningin um að Juan Carlos taki við embætti þjóðhöfðingja kom eftir að sagt hafði verið frá þvf fyrr um daginn að líðan Framhald á bls. 24 flugi að flugvellinum f Prag. Allir farþegarnir voru tékkneskir verkamenn, sem voru að koma úr leyfi f Dalmatiu f Júgóslavfu. Vitað er að 27 af þeim sem kom- ust Iffs af eru slasaðir. Af áhöfn vélarinnar komst af ein flug- freyja. Fréttir eru óljósar um hvernig slysiö bar að höndum, en flugvöll- urinn við Prag hafði verið lokaður þrjá siðustu daga vegna þoku. I morgun létti til og var áfráðið að láta vélina lenda. Þegar hún var að nálgast Sedlec, úthverfi Prag, virðist hún skyndi- lega hafa hrapað til jarðar. Vélin Framhald á bls. 24 Sadat Egyptalandsforseti dansar hér við hina frægu bandarfsku söngstjörnu Pearl Baily f samkvæmi, sem haldið var honum til heiðurs f Hvfta húsinu á dögunum. Baily skemmti gestum viðgóðar undirtektir og kallaði Sadat upp á svið til sfn á meðan. Sadat er nú f New York og sagði á fundi með 800 viðskiptafrömuðum þar f gær, að hann vonaði að bandarfsk fyrirtæki gerðu meira af þvf að fjárfesta f Egyptalandi en gert hefði verið undanfarið. Voru dipló- matarnir vopnaðir? Kaupmannahöfn 30. okt. Einkaskeyti til Mbl. frá AP. I FRÉTTUM frá Kaupmannahöfn í dag segir að lögreglan á Kastrup- flugvelli hafi gefið í skyn að sovézku diplómatarnir tveir, sem stöðvaðir voru í gær á leið til Islands, hafi verið vopnaðir. Sendiráðsmennirnir tveir neituðu að fara i gegnum byssuskoðun og var þeim þá bannað að ganga út í íslenzku flugvélina. Kastruplög- reglan segir að ekki hafi verið gerð tilraun til að Ieita í farangri sendiráðsmannanna en þeir kváðust vera með sendiráðspóst meðferðis og hafi aðeins verið ætlunin að ganga úr skugga um Framhald á bls. 24 Átök fjara út í Beirút Beirút, 30. október. Reuter. BARDAGAR fjöruðu út f Beirút f dag þegar lýst hafði verið yfir tfunda vopnahléinu siðan sfðustu bardagarnir hófust. Varla nokkur maður f Beirút trúir þvf að vopna- hléið verði varanlegt. Hléð á bardögunum gerði bandarfska sendiráðinu kleift að bjarga tfu mönnum úr tveimur hótelum sem hefur verið haldið I umsátri. Síðan f ágústlok hafa að minnsta kosti 970 manns fallið I bardögunum. Heilbrigðisráðuneytið segir að það geti ekki lengur útvegað sjúkrahúsum blóð vegna hins Framhald á bls. 24 V-Þjóðverjar bjóðast til að færa frystitogara sína út fyrir 200 mílur Bonn 30. okt. Reuter. WISCHNEWSKl aðstoðarutan- rfkisráðherra Vestur-Þýzkalands sagði f dag að Vestur-Þjóðverjar hefðu boðið Islendingum að fara með frystitogara sfna út fyrir 200 mflna mörkin. Ráðherrann sagði einnig að fslenzka rfkisstjórnin hefði f stórum dráttum fallizt á tillögurnar. Mbl. bar fréttina undir Einar Ágústsson utanrfkisráðherra. Hann sagði að það væri alrangt að fslenzka rfkisstjórnin hefði fallizt á tillögur Vestur-Þjóðverja. Hins vegar væri rétt að þeir hefðu boðið að fara með frystitogara sfna út fyrir 200 mflna mörkin, svo og að finna leið til að mót- mæla ekki hinni nýju fiskveiði- lögsögu. „En fráleitt er að segja að við höfum fallizt á tillögurnar. Enn ber ailtof mikið á milli til þess,“ sagði Einar Ágústsson. 1 Reutersfréttinni frá Bonn segir ennfremur: „Hans JUrgen Wischnewski sagði fréttamönnum í Bonn frá því að viðræður hæfust á ný í næsta mánuði og „góðar lfkur“ væru á þvf að samkomulag tækist bráðlega um að takmarka aflamagn Vestur-Þjóðverja innan fiskveiðilögsögunnar. Heimildir innan vestur-þýzku ríkisstjórnarinnar sögðu að Vest- ur-Þjóðverjar hefðu gert all' miklar tilslakanir í tillögum þeim sem voru lagðar fyrir íslenzku rfkisstjórnina. Wischnewski sagði að það hefði verið eitt helzta ást- eytingarefni f síðustu samninga- viðræðum aðila hvort frysti- togarar fengju að stunda veiðar innan markanna, en nú hefðu Þjóðverjar boðizt til að færa þá alveg út fyrir. I frétt Reuters um málið segir ennfremur að Vestur-Þjóðverjar hafi ekki opinberlega viljað fallast á að viðurkenna hina nýju 200 milna fiskveiðilögsögu Is- lands, fyrr en málið hefði verið „Flotinn er tilbúinn — segja brezku blöðin yy Einkaskeyti til Mbl. London, 30. október. AP. „FLOTINN er tilbúinn," segir The Guardian f fyrirsögn á frétt um ummæli Roy Hatters- leys aðstoðarutanrfkisráðherra í Neðri málstofunni f gær og fleiri brezk blöð fjalla um málið í dag. „Ráðherra heitir vernd handa togurum við tsland," segir The Times f fyrirsögn á frétt um þau ummæli Hatters- leys að brezkir togarar fái vernd innan 50 mflna við Is- land ef nýr samningur verður ekki gerður þegar núverandi samningur rennur út 13. nóvember. The Guardian útskýrir bak- svið deilunnar og segir: „I tveimur fyrri „þorskastríðum“ var fylgt þeirri stefnu að forðast að kalla sjóherinn á vettvang fyrr en það var orðið algerlega nauðsynlegt. I hinu síðasta, 1973, dóluðu herskip flotans utan fiskveiðimarkanna á alþjóðlegri siglingaleið meðan óvopnaðir dráttarbátar og önnur skip, sem voru tekin á leigu, voru notuð til að stöðva vopnuð skip islenzku strand- gæzlunnar og koma í veg fyrir að þau áreittu brezka togara. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að sömu aðferð verði beitt aftur ef enginn nýr samningur milli Breta og Islendinga hefur verið gerður þegar núverandi samn- ingur rennur út á miðnætti 13. nóvember." Financial Times birtir grein Framhald á bls. 24 rætt á næstu Hafréttarráðstefnu. „En i fyrirhuguðum samningum m.vndi verða miðað við 200 mílna svæðið," ségir í fréttinni. Wischnewski bætti þvi við, að meginmunurinn á deilu tslands Framhald á bls. 24 Hreinsanir í Albaníu Belgrad 30. okt. Reuter. ÞRlR albanskir ráðherrar hafa verið sviptir embættum sfnum f Tirana og virðist valdabaráttan milli ráðamanna um hver verið eftirmaður Enver Hoxha færast f aukana, að þvf er diplómatískar heimildir f Belgrad sögðu f dag. Ráðherrarnir, sem voru látnir víkja, voru Abdyl Kellezi, aðstoð- arforsætisráðherra, námumála- ráðherrann Koco Theodosi og ráð- herra utanríkisviðskipta. I júlí á sl. ári var varnarmálaráðherra landsins, Bequir Balluku, látinn hætta starfi, en fjórtán ár eru nú liðin síðan tók að brydda á valda- baráttu innan kommúnistaflokks- ins. Enver Hoxha er sagður mjög heilsuveill og hrumur orðinn. Áður hafði lengi verið talið að Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.